Alþýðublaðið - 28.09.1958, Blaðsíða 5
Sunnudagur 28. sept. 1958
AlþýSnblaSiB
kfin er öllu
ÞJÓÖVILJINN hefur við und-
anfarnar verðhækkanir verið
að dangla í boíninn á sínum
eigin ráðherrum, þ. e. ráðherr-
um viðskipta- og verðgæzlu-
mála, og hrópa á þá um SVIK
VIÐ „verðstöðvunarstefnuna“.
Með þessurn línum er þó ekki
ætlunin að gera heimilismál
Alþýðubandalagsins að um-
ræðuefni — þeir um það.
NÝJU FÖTIN KEISARANS.
Lesendum blaðsins er þó að
sjálfsögðj. Ij óst hvílíkan hrá-
skinnaleik hér er um að ræða.
Það er 'staðreynd að við mynd-
un núverandi ríkisstjórnar
heimtuðu kommúnistar í sín-
ar hendur viðskiptamál (handa
Lúðvík) og verðgæzlumál
(handa Hnnibal). Þessa kröfu
fengu þeir uppfyllta. Það er
og staðreynd að fyrir skarpa
framgöngu þessara tveggja
ráðherra samþykktu 7 af 8
þingmönnum Alþýðubanda-
lagsins (og þar með Þjóðvilj-
ans) allt það fráhvarf, sem
orðið er á stöðvnnarstefnunni,
enda leyndu fyrrnefndir ráð-
herrar því ekki að sæmd þeirra
lægi við, þar sem þessi mála-
flokkur heyrði undir þeirra
ráðuneyti.
Rxtstýrendur Þjóðviljans
hafa og áreiðanlega heyrt
raddirnar frá sínum „saklausu
börnum“, sem hrópa: „Þrátt
fyrir allt eruð þið í engum verð
gæzlu- eða viðskiptafötum, þið
eruð allsberir“.
Landsmenn taka undir.
VERKALYÐSUMHYGGJA.
Þegar ríkisstjórnin byrjaði
_____________________
Fyrsti bíllinn
model 1959
Framhald af 3. síðu.
á 100 km. En á rólegum akstri
á sömu braut og sömu vega-
lengd, meðalhraði 60 km upp í
80 km, var notkun vélarinnar
9 i á 100 km.
Opel Kapitán er framleiddur
í Þýzkalandi: Adam Opel A. G.
Russelheim, en umboð á Islandi
hefur Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga.
Rétt er að geta þess að lok-
um, að það, sem að framan get-
ur, er tekið eftir sænska ritinu
„Teknikens Várld“, en sérfræð-
ingar blaðsins hafa reynt bif-
reiðina og rannsakað hana. Og
hefur hún hlotið betri meðmæli
en nokkur önnur ný bifreið,
sem þeir hafa rannsakað Blað-
ið og bifreiðasérfræðingar þess
njóta mjög mikils trausts og á-
lits ekki aðeins í Svíþjóð, held-
ur og víða um heim.
(Tvær Opel Kapitan bifreiðir
eru komnar hingað, önnur eign
Halldórs Kiljans Laxness, en
hin eign Gísla Sigurbjörnsson-
ar forstjóra.)
mjög skelegglega á verðstöðv-
unarstefnunni, voru velflestir
á einu máli um að verkalýðs-
hreyfingin hefði drengiíega
staðfest vilja sinn, um stöðvun
verðhækkana. Þjóðviljinn taldi
þá alla griðníðinga sem færu
ettir það fram á lagfæringar
sinna kjaramála.
Þegar stjórn Sjómannafé-
lagsins samkv. áðurgerðri sam-
þykkt félagsmanna sinna, sett-
íst að samningaborði við út-
vegsmenn, þá hét það aðför
gegn ríkisstjórninni og póli-
tískt verkfall. Þegar stjórn
Bagsbrúnar gerir það sama,
heitir það stórsigur fyrir al-
þýðuna á síðum Þjóðviljans.
Einnig svona málflutningur
sýnir, að fötin sem þeir Þjóð-
vilja- og Alþýðubandalags-
menn halda sig vera í, eru ekki
á þeim. Þeir eru allsnaktir, —
það er sannleikurinn.
VINNUBRÖGÐ í
VERKALYÐSMALUM.
Þegar Alþýðuflokksmenn í
Ðagsbrún fara fram á að við-
höfð sé allsherjaratkvæða-
greiðsla samkv. lögum A.S.Í.
um kiör íulltrúa á Alþýðusam-
bandsþing, þá lýsir Þjóðvilj-
inn því klökkur, að verið sé að
vega aftan að hinni heilögu
forustn Dagsbrúnar í yfirvof-
andi vinnudeilu.
En þegar-stjórn Sjómannafé-
lags Reykjavíkur stóð í 3ja
mánaða vinnudeilu árið 1950,
þá þótti það góð latína að
rægja og svívirða á sama tíma,
a.Ha stjórnarmenn Sjómanna-
félagsins og kalla þá verka-
lýðssvikara o. s. frv. til þess að
fá „sína menn“ kjörna í stjórn
félagsins. Þessi voru vinnu-
brögð Þjóðviljans þá. Einnig
hér er nektin augljós, og það
sem verra er, þeir virðast ekki
eiga von á að fá nokkur föt.
Eiturlyf janotkun
í Egypfalandi
KAIRO. — Egyptar hafa nú
hleypt af stokkunum nýrri um-
bótaáætlun til þess að hamla
•gegn vaxandi eiturlyfjanotkun.
Er henni aðallega beint að ung-
lingum. Þessi nýja stefna að
koma á umbótum og lækna
stafar af því, að hinar þungu
refsingar við eiturlyfjanotkun,
sem ráð er fyrir gert í egypzk-
um lögun, hafa ekki upprætt
hana.
í fremstu röð þeirra, sem bei'j
ast fyrir umbótum og lækningu
á þessu sviði, er yfirstjórn í-
þróttamála og ungmennastarfs,
en sú stjórn fær völd sín beint
frá Nasser. Er yfirstjórnin nú
að skipuleggja krossferð gegn
útbreiðslu eiturlyfja.
Af opinberum skýrslum sést
að Egyptar neyta meiri eitur-
lyfja en nokkur önnur þjóð í
Austurlöndum nær. Stafar
þetta af hinni víðtæku og ólög-
legu sölu eiturlyfja í landinu.
Af 23 milfjónum íbúa í landinu
1 var vitað um 600 000 eiturlyfja
neytendur í landinu 1957. Þar
að auki var talið, að aðrar .600-
000 væru á góðri leið með að
verða stöðugir eiturlyfj aneyt-;
endur.
Aðaleitur’lyfið, sem menn
nota í Egyptalandi, er hashish
og ópíum. Aðalaðferðin til að
neyta þeirra er að reykja þau
í sígarettum eða vatnspípum
þeim, er tíðkast í Íandinu, eða
jafnvel tyggja þau óunnin.
Baráttuaðferðin, sem æsku-
lýðs- og íþróttaráðið hyggst
beita er sú, að reyna að opna
augu landsmanna fyrir því hve
geigvænleg er útbreiðsla þess-
arar spillingar. Þannig vonast
ráðið tii að hefta hinar illu af-
leiðingar smyglsins, sem vart
verður hægt að hefta sjálft.
Auk sjálfrar neyzlunnar vill
ráðið reyna að uppræta múg-
mennsku ungmenna, sem er ein
af aðalorsökunum fyrir út-
breiðslu eiturlyfjaneyzlu, allt I
frá unglingsárum til fullorð-
insára. Áætlun ráðsins er því
tvíþætt, sem sagt að koma í veg
fyrir spillinguna og revna að |
lækna, eftir því sem við' verð-.i
ur komið.
Hefur ráðið fengið stjórnar-!
völdin til að koma á fót scrstök ;
um stofnunum, þar sem sjúk-
lingarnir geta fengið bæði lík-
amlega og sálfræðilega hjálp.
Telur ráðið, að óttinn við refs-
ingu geti ekki einn orðið til
þess, að sjúklingar og eitur-1
lyfjasalar bæti ráð sitt. En sam j
kvæmt gildandi lögum í Egvpta;
landi, sem eru ein hin hörð-
ustu í heimi á þessu sviði, geta
neytendur fengið ailt að 15 ára
fangelsi, og eituriyfjasalar allt
að 25 ára fangelsi.
En alveg á sama hátt og
meirihluti þeirra eiturlyfja,
sem smylgað er inn í landið,
næst aldrelf þannig næst í
fæsta þeirra, sem selja eða
neyta eitursins.
Með þetta í huga- hyggst
æskulýðsráðið fá stjórnina til
að breyta lögunum, til þess að
þeir, sem sakfelldir eru, geti
enn haft möguleika á að bæta
líferni sitt.
Opera um ævi Raspútíns
NÝLEGA var óperan „Heil-
aði djöfullinn" eftir Nicholas
Nabokov frumsýnd í Banda-
ríkjunum við góðar undirtektir
gagnrýnenda og áheyrenda-
Handritið að óperunni samdi
Stephen Spender.
Gagnrýnandi „The Louis-
ville Times“ fórust svo orð um
sýninguna:
„Óperan, er skáldleg lýsing
frá þeim tímum, er Grigori Ras
pútíin var uppi. Hún segir frá
ævi cg voveiflegum dauðdaga
þessa Síberíumunks, sem Var
svo áhrifamikill við hirð Niku.
lásar II. Rússakeisara vegna
skyggnisgáfu sinnar og lækn-
ingahæfileika. Róbert Fischer
fór með aðalhlutverkið, Grigori
Raspútín,' og tókst honum að
túlka hina gífurlegu lífsorku
hans, en á henni byggðist aðal-
lega það vald, sem Raspútín
hafði yfir samtíðarmönnum sín
um. Texti og tónlist eru með
nútímasniði. í óperunni er eng-
in aría í venjulegum skilningi.
vegna söngsins eingöngu, heid-
ur skiptast á tónlist og tal, eft-
ir því sem efnið gefur tilefni
til. Enginn kór syngur í oper-
unni, en í mörgum áhrifamestu
atriðum hennar er samsöngur
allt frá þriggja til sex radda
Moritz Bomhard stjórnaði leik
og söng, og voru söngvarar og
hljómsveit framúrskarandi vel
þjálfuð fyrir þetta erfiða verk.
eins og frumsýningin bar með
sér.“
Óperan var uppfærð á veg-
um Louisville Philharmonic
Society.
Iðnnemar
FramJaala af 1. sI5n.
bandsstjórnar og skýrslur
deilda.
Þinginu verður haldið áfram
og hefst fundur kl. 2 í dag og
verða skýrslur sambandsstjórn
ar og deilda til umræðu.
Núverandi formaður Iðn-
nemasambandsins er Þórður
Gíslason.
ÓDÝRIR ÓDÝRIR
UPPREIMAÐIR STRIGASKÓR
B a r n a s t æ r 5 i r
frá kr. 31,20.
Karlmannastærðir
kr. 40,50.
Breiðablik
LAUGAVEGI 63, horni Laugavegs og Vitastígs.
Frá Gagnfræðaskótum
Reykjavíkur.
Nemendur komi í skólana fimmtudaginn 2. október
næstkomandi, sem hér segir:
Gagnfræðaskóli Austurbæjar:
Skólasetning kl. 2 e. h.
Gagnfræðaskóli Vesturbæjar:
Skólasetning í Iðnó kl. 3 e- h.
Gagnfræðaskólinn við Vonarstræti.
Skólasetoing í Iðnó kl. 1,30 e. h.
Gagnfræðaskóli verknáms:
Skólasetning í Iðnó kl. 5 e. h.
Hagaskóli:
2. bekkur komi kl. 9 f. h., 1. bekkur kl. 10,30
f. h„ 3. og 4. b'ekkir kl. 2 e. h.
Gagnfræðaskólinn við Lindargötu, Gagnfræðadeild
Langholtsskóla og Réttarholtsskóli: 2 bekkir komi kl. 9
f. h„ 1. bekkir kl. 10,30 f. h.
Um skiptingu skólahverfa vísast til fréttatilkynn-
ingar í blöðum.
NÁMSSTJÓRI.
S
,s
s
s
,s
V
s
s
s
s
|s
y
s
s
r» -
FRÁ ÍÞRÓTTAVELLINUM.
Hausfmót meisfaraflokks.
i
í DAG KL 2 fara fram síðustu leikir mótsins á Melavellinum. — <
ÞÁ LEIKA '
FRAM - VALUR
Dómari : Grétar Norðfjörð. Línuv. Magnús Pétursson og Guðbjörm Jónsson.
STRAX Á EFTIR LEIKA
ÞRÓTTUR -- KR
Ðómari: Valur Benediktsson. ,Lmuverðir: Örn Ingólfsson og Einar Hjartarson.
Mótan.efncli».