Morgunblaðið - 03.04.1976, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3, APRtL 1976
Áskorun bæjarstjórnar ísafjarðar
Blaðinu hefur borist áskorun
frá bæjarstjórn Isafjarðar til
ríkisst jórnar, heilbrigðisráð-
herra, samgönguráðherra og fjár-
veitinganefndar Alþingis. I
áskoruninni er farið fram á að
þessir aðilar grípi þegar í stað til
raunhæfra aðgerða er trvggi lífs-
nauðsvnlegt sjúkraflug innan
héraðs á Vestfjörðum sem um sjö
ára skeið hefur verið haldið uppi
af flugfélaginu Örnum h.f. á Isa-
firði
Bæjarstjórnin minnir á laga-
skyldu heilbrigðisráðuneytisins
um aðild að öryggis- og sjúkra-
flugi og bendir á að þar er ríkinu
augljóslega mun hagkvæmara að
styrkja núverandi rekstraraðila
til að halda uppi þessari þjónustu
heldur en að annast sjálft slíkan
rekstur.
Jafnframt minnir bæjarstjórn-
in á þingsályktunartillögu Al-
þingis um Inn-Djúps áætlunina er
þar er kveðið á um nauðsyn
reglulegs áætlunarflugs frá Isa-
firði í Reýkjanes. Þar segir enn-
fremur að Djúpbátnum og flug-
félaginu Örnum h.f. verði tryggð
nægileg rekstrarframlög á fjár-
lögum til þess að annast þessa
þjónustu.
Bæjarstjórnin telur að með
áðurnefndri lagasetningu og
þingsályktun hafi Alþingi ótví-
rætt lýst þeim vilja sínum að
þessi þáttur heilsugæslu og
öryggisþjónustu við íbúa af-
skekktra byggðarlaga verði
tryggður i framkvæmd.
Þá vekur bæjarstjórnin athygli
á þvi að sú styrkveiting sem farið
er fram á i þessu skyni nemi
innan við helmingi rekstrar-
kostnaðar við eitt sjúkrarúm á
Borgarspítalanum i Reykjavík.
Ennfremur segir að með hlið-
sjón af framansögðu skori bæjar-
stjórn Isafjarðar á hæstvirtan
heilbrigðisráðherra, Matthías
Bjarnason, að hann hafi frum-
kvæði að skjóti lausn þessa máls
sem er í orðsins fyllstu merkingu
lifshagsmunamál þeirra Vestfirð-
inga er lakasta læknisþjónustu
hafa, eða alls enga, og afskekktast
búa.
Vinsælu
Barnaoy
unylinyaskrifboroin
Ódýr, hentug og falleg.
Gott litaúrval.
Sendum hvert á land sem er
Biðjið um myndalista.
STÍL-HÚSGÖGN
AUDBREKKU 63 KÓPAVOGI SÍMI 44600
Aðalfundur
Samvinnubanka Islands h.f.,
verður haldinn að Hótel Sögu, hliðarsal, laugardaginn 3. apríl
1 976 og hefst kl. 1 4.00.
Dagskrá skv. 18. gr. samþykktar fyrir bankann.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins verða afhentir
á fundarstað.
Bankaráð
r
Samvinnubanka Islands hf.
Kristniboðsvika
í húsi KFUM og K
Sunnudagskvöldið 4. apríl kl.
20.30 hefst samkomuvika, sem
Samband islenzkra kristniboðs-
félaga (eða Kristniboðssamband-
ið, eins og það er oft kallað) efnir
til i húsi KFUM og K við Amt-
mannsstíg 2 B. Ræðumenn verða
margir, bæði lærðir og leikir, ung-
ir og gamlir. Aðalræðumaður
þessa fyrsía kvölds verður síra
Jónas Gíslason, lektor. Á samkom-
unum verður kristniboðið í
Konsó, Eþiópíu, kynnt í máli og
myndum. Auk þess verður fjöl-
breyttur söngur, kórsöngur,
kvartettsöngur, tvisöngur o.fl.
auk almenns söngs. 1 lok vikunn-
ar verður tekið á móti gjöfum til
kristniboðsstarfsins.
Starfið i Konsó hefur farið
sivaxandi ár frá ári, frá því að það
hófst árið 1954. I ársskýrslu
kristniboðans Skúla Svavarssonar
fyrir árið 1975 er m.a. að finna
eftirfarandi upplýsingar:
í söfnuðunum í Konsó sem til-
heyra lúthersku kirkjunni í
Eþíópíu, Mekane Yesus, eru 5300
kristnir menn. Á árinu 1975
bættust við rúmlega 960 nýir
safnaðarmenn. Skipulagðir söfn-
uðir 1 Konsóhéraði eru 60,
prédikunarstaðir 93, einn barna-
skóli með 249 nemendum, 68 les-
skólar með 3277 nemendum. Inn-
lendi söfnuðurinn hefur sjálfur
lagt fram 4,501,51 eþíópiska dali
til starfsins. 39.921 sjúklingur
hlaut meðferð á sjúkraskýl-
inu á kristniboðsstöðinni. Legu-
sjúklingar voru 623, 111 minni
háttar og 3 meiri háttar
uppskurðir voru gerðir, fæðingar
62.
Augljóst er, að margþætt starf
sem þetta kostar mikið fé, enda er
gert ráð fyrir, að kostnaðurinn á
yfirstandandi ári verði um eða
yfir 12 milljónir króna Starfið
hefur aldrei notið neinna opin-
berra styrkja, heldur aðallega
verið borið uppi af gjöfum ein-
staklinga og kristilegra félaga eða
kristniboðsfélaga, sem starfa á
evangelisk-lútherskum grund-
velli, frjálsum samtökum trúaðra
áhugamanna innan islenzku
kirkjunnar. Einu sinni á ári, á
kristniboðsdaginn, er efnt til sam-
skota við guðsþjónustur i kirkjum
landsins. Auk þess eru haldnar
kristniboðssamkomur og kristni-
boðsvikur í fjölmennustu bæjum
landsins, venjulega einu sinni á
ári. Þá gefst mönnum tækifæri til
þess að leggja eitthvaðaf mörkum
til kristniboðsstarfsins.
Fólk er því hvatt til þess að
sækja samkomurnar í húsi KFUM
og K við Amtmannsstig vikuna
4.—11. apríl. (fréttatilk.)
m m Lindargötu 25.
Harmonikunuroin símar 13743-
15833.
„Halló krakkar”
til Vestfjarða
EFTIR að‘hafa sýnt leikinn
HALLÓ KRAKKAR 19 sinnum
fyrir börn I Hafnarfirði, á Sel-
fossi, i Hveragerði, Njarðvíkum,
Keflavík, Kópavogi, Reykjavik og
á Seltjarnarnesi, ætlar Barnaleik-
húsið að hefja sig til flugs og
halda vestur á Firói með sýning-
una.
20. og 21. sýning á HALLÓ
KRAKKAR verða i Alþýðuhúsinu
á Isafirði næsta laugardag 3. apríl
kl. 14 og 16:30.
28644
Vantar allar stærðir af fast-
eignum á söluskrá
Höfum fjársterka kaupendur. Látið skrá eign yðar hjá
okkur. Mikil eftirsprun. _ .
-- Opið i dag frá kl. 9—5.
ITMW tr
Faiteiqnajala Lauqaveqi J 3 jimi 2664A
'' "cí - ■ ‘ : ir ) opnaði f moi |un
í Iðnaðarmannahúsinu við Ingólfsstræti
GUI\IMAR GUOJÓÍ\ISSON, HÁRSKERAMEISTARI
■Ban