Morgunblaðið - 03.04.1976, Qupperneq 32
HAUKAR
í Hellubíói í kvöld
í»iri0iiTOÍ*Hnt>íí>
Al'GLYSINGASIMÍNN ER:
22480
JWor0tml>líil>ií>
LAUGARDAGUR 3. APRÍL 1976
Óhapp við boranir að Laugalandi:
Misstu borhausinn
og stöng í holuna
ÖHAPP varð nú í vikunni, er verið var að bora sfðari holuna á
Laugalandi í Eyjafirði, en þar standa vfir boranir vegna hitaveitu
fyrir Akureyri. Þar hrotnuðu borstöngin og borhausinn, þ.e. borinn
sjálfur hrapaði niður á um það bil 1.000 metra dýpi ásamt um 80 til 90
metrum af borstöngum. Tjðnið, sem varð f þessu óhappi, er metið á 7
til 8 milljónir króna, en þrátt fyrir það á rekstur Jötuns, en svo heitir
borinn, ekki að verða fyrir töfum, þar sem annar borhaus er til.
Samkvæmt upplýsingum Axels
Björnssonar hjá Orkustofnun
voru tildrög óhappsins þau, að
verið var að vinna við holu númer
2, sem boruð er að Laugalandi.
Boranir hófust í febrúarbyrjun og
höfðu verið boraðir um 1.87.0
metrar. Var verið að ljúka við
vinnu við holuna og hafði holan
verið þrýstiprófuð. Var verið að
taka upp borstangirnar og voru
um 8 stangir eftir, þegar það
óhapp varð að þær losnuðu og
Lóan er
komin...
*r. - 'w
LÖAN er komin. Er það fyrsti
vorboðinn, sem vonandi veit á
gott og sólrfkt sumar. Trvggvi
Jónsson, verksmiðjustjóri í
Eiskimjölsverksmiðjunni f Ös-
landi, sá eina staka lóu í fjör-
unni við verksmiðjuna, sem er
á Höfn f Hornafirði. Er þetta
óvenjusnemma að lóan lætur á
sér kræla.
Samkvæmt upplýsingum Elí-
asar Jónssonar, fréttaritara
Mbl. í Höfn, hafa hreindýr
verið á götum Hafnar i allan
vetur og þykja það naumast
tíðindi þar eystra. Aðallega
hafa dýrin haldið sig i svoköll-
uðum Löndum. Þá hefur
fiskirí verið að glæðast undan-
farið, en það hefur verið frem-
ur dræmt í vetur á Höfn i
Hornafirði.
hröpuðu niður i holuna. Ekki er
alveg Ijóst hve langt þær fóru
niður í holuna, en gizkað er á um
1.000 metra, en efri endi stíflunn-
ar, sem myndazt hefur, m.a.
vegna hruns i holunni, er á um
700 metra dýpi. Reynt var að dæla
grjötinu, sem hrundi úr veggjum
holunnar er borinn hrapaði, svo
að unnt væri að bjarga upp born-
um og stöngunum, en það mis-
tókst og var borhausinn afskrifað-
ur í fyrrakvöld.
Tilraunir til þess að ná bornum
upp eru mjög áhættusamar.
Rekstur borsins kostar á dag 900
þúsund krónur og stangirnar, sem
notaðar eru til þess að fiska upp
það sem i holunni er, kosta um
11 milljónir króna. Var ákveðin
hætta að missa meira af stöngum
niður, þar sem holan var orðin
ótrygg og hætta á að hún hryndi
meira saman.
Þessi hola, sem ónýttist, var
Eramhald á hls. 31
Island vann
NORÐURLANDAMÖT unglinga í handknattleik hófst i Laugar-
dalshöllinni f gærkvöldi og fóru þá fram tveir leikir. 1 fyrsta leik
mótsins sigruðu Islendingar Norðmenn með 18 mörkum gegn 11,_______________________
eftir að staðan hafði verið 6—5 fyrir Island í hálfleik. Þegar 15 mínútur voru til leiksloka var staðan
10—9 fvrir Norðmenn en á lokakaflanum skoruðu fslenzku piltarnir 9 mörk gegn 1 og unnu örugglega.
Markhæstir í fslenzka liðinu voru Jón Hauksson með 6 mörk og Gústaf Björnsson með 4 mörk. Síðan
léku Danir og Svíar og sigruðu Danir 10—9. Mótinu verður fram haldið í dag og leika Noregur og
Finnland kl. 10.00 og Island og Svfþjóð kl. 11.00. Mvndin er tekin f leik Islands og Noregs f gærkvöldi
og sýnir Gústaf Björnsson skora eitt marka lslendinganna..
Ljósmynd Frióþjófur
Þróunarsjóður S.Þ. stöðvar framlag
sitt til ræktunartilrauna á Islandi
RANNSÖKNASTOFNUN land-
búnaðarins fékk fyrir rúmri viku
skevti frá FAÖ með tilkvnningu
um að stöðvaðir hefðu verið nú
strax styrkir þeir, sem veittir
hafa verið úr þróunarsjóði
Sameinuðu þjóðanna og áttu að
halda áfram næstu 3—4 árin til
beitarrannsókna, til ræktunar
grasfræs, til uppgræðslu og tún-
ræktar og til vlrannsókna. Öll
þessi rannsóknaverkefni eru f
fullum gangi, búið að nota um
90% af styrknum eða um 64
millj. fsl. króna i að koma upp
tækjum og til námsstyrkja. Til að-
tryggja að verkefnið skili þeim
árangri, sem gert var ráð fyrir í
samningunum, vantar aðstoð sér-
fræðinganna, sem nú áttu að
koma hingað tvisvar til þrisvar á
ári næstu árin, að þvf er Björn
Sigurbjörnsson, forstöðumaður
Örvæntingarfullir, segir Björn Sigurbjörnsson,
forstöðumaður Rannsóknastofnunar landbúnaðarins
Rannsóknastofnunar land-
húnaðarins, sagði Mbl.
— Við erum örvæntingarfullir
um framgang þessara verkefna,
sem búið var að leggja í svo mikið
fé, mannafla og tæki, sagði Björn.
Það hefur komið í Ijós af þvi sem
búið er að gera, hve gífurlega
mikilvæg þessi verkefni eru fyrir
íslenzkan landbúnað og garðyrkju
og því er nauðsynlegt að tryggt sé
að sérfræðiaðstoðin, sem gert var
ráð fyrir, falli ekki niður og verði
kostuð af íslenzka ríkinu. Má
benda á, að innlendur kostnaður
bæði við fræverkefnið og beitar-
verkefnið er samkvæmt land-
græðsluáætluninni greiddur af
þjóðargjöfinni svonefndu. En það
eru um 11 millj. á þessu ári frá
R.L. og annað eins frá Land-
græðslunni. Fáist sérfræðiaðstoð-
in og áframhaldandi þjálfun
okkar manna á þessu sviði, ættu
tilraunirnar að geta haldið áfram.
Á þessu ári var áformað að veita
aðstoð fyrir 12—15 þúsund
dollara eða 28 milljónir frá S.Þ.
og svipað á næstu 3—4 árum.
Verkefnin, sem hér um ræðir,
eru þrjú. Það er beitarverkefni
með rannsóknum á beitarþoli af-
rétta og heimalanda, sem. fara
áttu fram á 10 mismunandi stöð-
Hollendingar vilja samvinnu um 30
þús. ferm. ylræktarhús á Islandi
Á MÁNUDAG koma hingað til
lands 6 Holléndingar til viðræðna
við stjórnvöld um möguleika á að
koma hér á fót ylræktarveri til
framleiðslu á Uhrysantemum-
græðlingum til útflutnings til
Hollands. Hefur verið talað um
ylver, sem vrði í eigu Islendinga,
f allt að 30 þúsund fermetra
gróðurhúsi í Hveragerði og notuð
gufa til hitunar og raforku-
vinnslu fyrir lýsingu. Slíkir
græðlingar eru nú ræktaðir að
vetrinum fvrir Hollendinga i
Afrlkulöndum og Suður-Ameríku
og mundu Islendingar með jarð-
hita slnum gera það sama. Munu
Hollendingarnir ræða við for-
sætisráðherra, iðnaðarráðherra
og landbúnaðarráðherra.
Málið hefur verið i undir-
búningi síðan um áramót, en
áhugi Hollendinganna vaknaði
vegna rannsóknaverkefnis um yl-
rækt, sem Sameinuðu þjóðirnar
styrktu, en nú hefur verið
stöðvað. Hefur Björn Sigur-
björnsson forstöðumaður Rann-
sóknastofnunar landbúnaðarins
unnið með þeim í undirbúnings-
viðræðum, ásamt Grétari Unn-
steinsssyni skólastjóra Garðyrkju-
skóla ríkisins og garðyrkjuráðu-
nautum Búnaðarfélagsins. Land-
búnaðarfulltrúi sendiráðs
Hollendinga í London, Douve
Vries, hefur komið nokkrum sinn-
um vegna þessara hugmynda. Nú
verða i för með honum P.
Voskamp, eigandi eins stærsta
gróðurhúsafyrirtækis i veröld-
inni, Voskamp en Vrijland.
Einnig P. Windhausen frá fyrir-
tækinu Hortiflora International
Chrysantemum Cuttings, sem er
samsteypa margra fyrirtækja,
sem verzla með chrysantemur, en
það fyrirtæki mundi kaupa fram-
leiðsluna. Þá koma þrír séi
fræðingar frá Philips verk-
smiðjunum og rannsóknastofum
þeirra, O. Elgersma, J. van
Gammeren og J. Sluiters, og ætla
þeir m.a. að flytja fyrirlestra í
Garðyrkjuskóla ríkisins í Hvera-
gerði á miðvikudag.
Áformin eru öll á byrjunarstigi
en talað hefur verið um að setja
upp til að byrja með 3 hektara
hús. Til samanburðar má geta
þess að öll gróðurhús undir gleri
á íslandi eru um 13 hektarar.en i
Hollandi eru þau um 8000
hektarar, og öll hituð með olíu og
gasi.
um um allt land í mismunandi
hæð yfir sjó og á mismunandi
tegundum beitilands. Fóru í fyrra
fram rannsóknir á sex stöðum og
átti að bæta tveimur við nú.
Bráðabirgðaniðurstöður liggja
fyrir, sem sýna, að mjög nauðsyn-
legt er að halda þessu áfram,
Framhald á bls. 31
Hæstiréttur
vísaði kær-
unniá bug
HÆSTIRÉTTUR úrskurðaði i
gær, að kæra fjórða gæzluvarð-
haldafangans í Geirfinnsmálinu
skyldi ekki tekin til greina. 30
daga gæzluvarðhaldsúrskurður
mannsins, sem Sakadómur
Reykjavíkur kvað upp, verður því
óraskaður. Maður þessi er fimmt-
ugur að aldri og var hann síðast
settur inn af þeim fjórum mönn-
um, sem nú sitja inni vegna máls-
ins. Dómsrannsókn i Geirfinns-
málinu hófst á þriðjudaginn og
hefur henni verið fram haldið dag
hvern síðan og hafa alls 7 manns
komið fyrir dóminn.
Krónan sígur
GENGI íslenzkrar krónu hefur
sigið allverulega frá áramótum,
þó ekki gagnvart sterlingspundi,
sem staðið hefur sig fremur illa á
alþjóðagjaldeyrismarkaði. Miðað
við íslenzka krónu hefur Banda-
rlkjadollar hækkað um 3,9% frá
áramótum. Aftur á móti hefur
fslenzk króna hækkað gagnvart
sterlingspundi á sama tlma um
rétt 4%.