Alþýðublaðið - 27.11.1930, Side 3

Alþýðublaðið - 27.11.1930, Side 3
nABÞ«ÐDB&AÐIÐ ■ Nýjar fjrrsta flokks Virgioia cigarettnr. ■ I Three Bells | = 20 stk. pakklnn kostar kp. 1.25. — Búnar til s = tajð British American Tobaeeo Co, London. 1 Fást i heildsSln hjá s M 1 Tóbaksverlz. íslands h.f. I Einkasalar á tslandi : lllllllllllilllHHIilllllHnilBBIIHinlHHIIIIHMIIHÍIHIlKlilBllimiimiiirBlllllllilllilllHIIHIIHIIIillilinilliHliBlS þess að taka upp samkeppni við Thor Jensen og Mjólkurfélag Reykjavíkur. Hinir síðartölchi að- iljar hafa hér fjölda mjólkurbúða og útsölustaða og fasta viðskifta- menn, og eru auk þess miklu fésterkari en mjólkurbúin, sem eiga við ýmsa byrjunarörðugleika að stríða. Afleiðingin hefir því orðið sú, að svo má heita, að Mjólkurfélagið og Thor Jensen sitji enn að. mestu að mjólkur- markaðmun hér og ráði veröinu. Að eins þann tíma árs, að haust- inu, sem lítið er um mjólk, geta mjólkurbúin selt nokkuð verulegt af sinni mjólk til bæjarins, en einmitt þá er líka minst um mjólk þar eystra. Ráðið til þess að lækka útsölu- verð mjólkur í Reykjavík og jafn- framt 'hækka meðalverð það, sem bændur eystra.fá fyrir sína mjólk, er, að opna Reykjavikurmarkað- inn fyrir mjólk þeirra. Yrði að þessu tvöfaldUr hagur fyrir bænd- urna, því að af lækkun mjólkur- verðsins myndi óðara leiða stór- jnikla aukningu í mjólkurnotkun og mjólkursölu til bæjarins. Enginn minsti vafi er á því, að mjólkurbúunum eystra væri stórmikill hagur að þvi að selja mjólk sína komna hingað til Reykjavikur fyxir t. d. 28 aura ilitra í heiidsölu, ef þeir jafnframt gætu trygt sér hér sölu á t. d. 3000—3500 lítrum til uppjafnaðar á dag árið um í kring. Og með sæmilegu skipulagi á sölunni mætti þá auðveldlega lækka út- söluverðið niður í 34—35 aura og jafnframt koma við fullkomnu' heilbrigðiseftiTliti og rannsókn á gæðum mjólkurinnar. Auðvitað yrði þe'tta til þess, að Thor Jensen og meðlimir Mjólk- urfélagsins gætu ekki fengið jafn- hátt verð fyrir sína mjólk eins og þeir nú fá. Þeir yrðu að sætta sig við sama heildsöluverð og mjólkurbúin eystra. En aðstaða þeirra yrði alt um það betri en bændanna eystra vegna minni flutningskostnaðar. Og engin á- stæða er til þess fyrir Reykvik- inga að kaupa af Thor Jensen og stórbændum hér í grend dýrari mjólk en fáanleg er annars stað- ar, énda ættu þeir ekki að æskja þess að vera eins konar gustuka- menn Reykvíkinga. Bændur eystra treysta sér ekki til að vinna sér hér markað með þvi að taka upp samkeppni við Th. J. og M. R. og lækka útsölu- verðið. Miklir erfiðleikar eru og á því að stofna svo fjölment og öflugt mjólkurneytendafélag hér í bænum, að það geti verulega bætt sölufyrirkomulagið og lækk- að verðið. Það er sameiginlegt hagsmuna- mál allra Reykvíkinga, að mjólk- urverðið lækki. Þess vegna er eðlilegasta og sjálísagðasta leiðin sú, að bærinn tairi alla mjólkursöluna í sínar hendur, setji upp um 20 mjólk- urbúðir og kaupi mjólkina af bændum og félögum þeirra, komna hingað til bæjarins, fyrir ákveðið heildsöluverð. Engin fyrirstaða ætti að-vera á því hjá „Framsókn" á alþingi, að veita bænum heimiid til þess að taka í sínar hendur einkasölu á mjólk. Einmitt með þvi er bændum eystra, sem „Framsókn" segist bera svo mjög fyrir brjósti, gerð hin mesta hagsbót, jafnframt því, sem bæjarbúum er tryggð ó- dýrari mjólk og öruggara heil- brigðiseftirlit, en nú er hægt að koma við. Hin „frjálsa verzlun" með mjólkina er nú komin á hið „hærra þróunarstig", eins og Guð- mundur Jóhannsson myndi orða það. Samkeppni er sem sé engin um verðið, heldur að eins um hitt, að fjölga búðunum og auka sölukostnaðinn. Fjórir stærstu mjólkursalarnir: Mjólkurfélag Reykjavfkur, Thor Jensen og Mjólkurbúin bæði eystra, hafa sameiginlega kosið nefnd til þess að ákveða útsölu- verð mjólkur hér í bænum. Þessi verðlagsnefnd ræður þvi, hvaði Reykvíkingar eru látnir borga fyrir mjólkina. Og Mjólkurfélagið og Thor Jensen geta vegna að- stöðu sinnar ráðið öllu um á- kvarðanir nefndarinnar, meðan mjólkurbúin ekki treystast að taka upp samkeppni við þau. Reykvíkingar eru þar ekki að spurðir, fremur en þeim komi mjólkurverðið ekkert við. Þeim er ætlað að hlýða valdboði nefnd- arinnar — og borga. Finst ekki bæjarstjórn kominn timi til að taka í taumana og létta af Reykvíkingum skatti til Thor Jensen og Mjólkurfélagsins, sem nemur um V2 milljón króna eða því nær jafn miklu og öll fátækraframfærsla bæjarins ? Barn deyr af slysi. Akureyri, FB., 26. nóv. Tveggja ára gamall drengur, sonur Freymóðs Jóhannssonar málara, datt út um glugga á ann- ari hæð i gær, og slasaðist svo, að hann dó tveimur stundum sið-" ar. Naðnr deyr af slysL (Samkvæmt símfregn.) Karl Árdal á Akureyri, dóttur- sonur Páls heitins Árdals skálds, er nýdáinn af slysförum. Lifði hann í sólarhring eftir að slysið varð. Blaðið hefir ekki enn fengið fregnir um, hvemig slysið vildl til. Isfisksala. „Þorgeir skorargeir" seldi afla sinn í gæjr í Bretlandi, 400 „kitt“, fyrir 733 sterlingspund. Einnig hefir „Andri“ selt afla sinn, en ófrétt um verðið. Vestan af Snæfellsnesi. Eftir Árna Ágústsson. . (Frh.) Fundurinn i Ólafsvik. Á fundinum, sem haldinn var í Ólafsvik meðan ég dvaldi þar, mætti af hálfu íhaldsins maður með ósviknar íhaldsgáfur. Var það Eliníus Jónsson kaupfélags- stjóri, maður við aklur og for- maður „æskulýðs“-félags Ihalds- flokksms þar. Var fyrri hluti ræðu hans innihaldslaust sjálfs- hól, þar sem hann mældst til þess við fundaxmenn, að þeir leyfðu honum að vera framvegis foringi ólafsvilringa í landsmál- um. Síðan lýsti Eliníus yfir því, að hann ætlaði að iesa upp stefnuskrá „Sjáifstæðis“-flokksins, og krafðist þess um leið af mér, að ég kæmi ednnig með stefnu- skrá Alþýðuflokksins. í byrjun fundarins lýsti ég stefnu jafnað- armanna í öllum stærri málum, sem nú eru á dagskrá hjá þjóð- inni og kaupfélagsstjóranum til frekari fullnægingar í þvi efni las ég upp orðrétt nokkur helztu atriðin á stefnuskrá Alþýðu- flokksiins. Þá stóð Eliníus upp og bjuggust fundannenn við því, aö hann læsi upp stefnuskrá „Sjálf- stæðis“-flokksins, en í stað henn- ar las hann upp lög „&skulýðs“- félags íhaldsins í Ólafsvík. Var þá fundarmönnum skemt. Að loknum upplestri félagslaganna dró ihaldsmaðurinn upp úr vasa sínum rifið og saurugt blað, sem hann kvaðst hafa fundið nýlega í fórum sínum. Á blaðsnepli þess- um var upploginn óhróður um ástandið í Rússlandi, en ekki vissi ræðumaður hvað blað þetta héti. En síðar á fundinum upp- lýstíst það, að blaðið var „Fram- tíðin“, sem Jóhannes Birkiland er riitstjóri að. Þótti flestum það svipað og að faTa i geitarhús að ieita sér ullar að leita sér sannra upplýsinga um Rússland hjá í- haldsritstjórum á borð við Jó- haunes Birkiland 0g Valtý Ste- fánsson. Þá kom þessum Elimusi það í hug, að tilgangur fundar- ins myndi vera að rýra fylgi nú- verandi þingmanns Snæfellinga. Talaði hann þvi af miklum fjálg- leik um það, hve ódTengilegt það væri að kjósa eklri Halldór fram- vegis á þing. Rök ræðumanns fyrir því voru þessi: Halldór er maður gamall orðinn og óvíst hve langt hann á eftir ólifað. Þess vegma á að kjósa hann á þing. Ég gat þess, að ég hefði nú ekltí miunað eftir þessum þing- manni, og svo myndi mörgum Snæfellingi fara, að hann gleymdi því, að þetta kjördæmi ætti nokk- urn þingmann. Tóku fundarmenn undir þessa athugasemd með miklum fögnuðiu Halldór Steins- son talaði nokkur sundurlaus orð tíl varnar sér og flokki sinunn en þau féllu máttlaus niður og virt- ust ekki hagga neitt þeirri á- kveðmu afstöðu, sem fundarmenn höfðu tekið gegn Ihaklsflokknum. Mjög varð Halldór þingmaður slegihn, er hann komst að því, að verkamennirnir í Ólafevik hefðu í hyggju að stofna félag til sóknar og vamax í hagsmunabar- áttu sinni við íhaldið. En eins og kunnugt er, hefir verklýðs- hreyfingin í Ólafsvík sætt þeim raunalegu örlögum fram að þessu að vera stjómaö af íhaldsþing- manninum Halldóri Steinsyni. Hefir starf hans í verkamannafé- laginu verið fólgið í þvi, að halda félaginu niðri og hefta baráttu þess. Það var því grátur og gnístran tanna í hinum hrörnandi herbúðum íhal dsins í Ólafsvik, þegar um 50 verkamenn stofn- uðu Jafnaðarmanna- og verklýðs- félag Ólafsvíkur að afloknum hiu- um opinbera fundL Stofnun þessa félags, sem hefir það efst á. stefnuskrá sinni að útiloka áhrif Ihaldsins í héraðinu, markar tvi- mælalaust merk og glæsileg tíma- mót í sögu verklýðshreyfdngar- inriar í ólafsvík. Meiíra. Prófessorsnafn hefir verið veitt Einari Jónssyni myndhöggvara, Ásgrími Jónssyni málara og séra Bjarna Þorsteinssyni á Siglufirði. Af mÆsíld veiðist nú talsvert á Pollinum við Akureyri.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.