Alþýðublaðið - 04.10.1958, Síða 3
ILaugardagur 4. október 1958
Alþý8ablaSi«
3
Alþýðublaöiö
Útgefandí;
Ritstjóri:
Fréttastjóri:
Auglýsingastjóri:
Ritstjórnarsímar:
Auglýsingasími:
Afgreiðslusími:
Aðsetur:
Alþýðuflokkurlnn.
Helgi Sæmundsson.
Sigvaldi Hjálmarsson
Emilía Samúelsdóttir.
14901 og 14902.
1 4 9 0 6
1 4 9 0 0
Aiþýðubúsið
Prentsmiðja Alþýðublaðsins Hverfisgötu 8—10.
Hep pileg ráðstöfu n
RÍKISSTJÓRNIN heíur sett reglur um. sjúkraflutninga
brezku skipanna hér við land. Samkvæmt þei.m er herskip-
um óleyfilegt að flytia veika togarasjómenn til lands, og
verða togararnir sjáifir að annast það verk. Ákvörðun um
hvenær i'erskipum leyf.st að flvtia siúka menn af áhöfn
sinni til hafnar verður hins vegar tekin hveriu sinni. Jafn-
framt er fram tekið, að íslendingar muni veita sjúkum
brezkum sjórr.önnum móttöku og lækn shjálp eins og fram-
ast sé auðið.
Alþýðublaðið fag'nar því, að settar hafa verið ákveðn-
ar reglur í þessu efni, enda fór það þess á ieit fyrir nokkr-
um dögum. Hlutaðeigendur vita bá fyrirfram að hverju
er að hverfa, og seiflutningar sjúkra manna milli togara
og herskipa munu hætta. Virðist engum vafa bundið, að
sjálfsagt sé, að togararnir annist sjúkraflutninga sinna
manna, en herskip bví aðeins, að sjúklingarnir séu úr hópi
áhafna þeirra. Alþýðublaðið mælti með því fyrirkomu-
lagi í ábendingu sinni til ríkisstjórnarinnar.
Morgunblaðið og Þjóðviljmn reyna að eigna sér ákvörð-
un ríkisstiórnarinnar í þessu máli. Þau um bað. En afstaða
þessara blaða var sannarlega með þeim hætti, að hún var á
engan hátt takandi til fvrirmvndar. Hún var í fáum orðum
sagt sú að fordæma þá ráðstöfun dómsmálaráðherra að nota
ekki flutning siúks togarasjómanns sem tllefni þess að hand
taka fyrsta brezka veiðibiófinn eftir stækkun landhelginnar.
Þetta mál er svo þrautrætt, að engu þarf við að bæta. Hins
vegar ættu sanngjarnir menn þegar að hafa sannfærzt um,
að ráðstöfun dómsmálaráðherra var siálfsögð. Morgunblað-
ið og Þjóðviljinn hafa ekk; fiallað málefnalega um þetta
atriði heldur látið stjórnast af andúð og offorsi í garð hlut-
aðeigandi ráðherra. Slíkt nær engri átt óg er þjóðareining-
unni í landhelg smálinu næsta hættulegt.
Mestu máli skiptir að reglur þær, sem ríkisstjórnin
hefur sett, reynist vel eins og vonir standa til. Og það
er út af fyrir si-g gott og blessað, að Morgunblað'ð og Þjóð
viljinn eigni sér þær. bótt í barnaskap sé. Nefnd blöð
hætta þá vonandi beim óhenpilega málflutningi, sem þau
hafa undanfarið í frammi haft. en ímvnda sér í staðinn,
að framkvæind landhelgisgæzlunnar sé í þeirra mynd.
Hitt er annað, hversu komið væri málstað íslendinga í
landhelgisdeilunni við Breta, ef liandtöku fyrsta brezka
togarans í nýju landhclginni hefði borið að með þeim
hætti, sem þeim lék hugur á.
Framkvæmd landhelg'sgæzlunnar er miög mikilvæg, og
sannarlega má enginn blettur falla á skiöld okkar íslend-
inga í því efni. Öllu slíku hefur verið forðað til þessa. —
Starfsmenn landhelgisgæzlunnar hafa getið sér mikinn
orðstír með alvöru sinn', stillingu og festu. Hlutaðéigandi
yfirvöld hafa sömuleiðis last allt kapp á að skipuleggja land-
helgisgæzluna sem bezt. Allt betta er vert að þakka. Og regl
ur þær um sjúkraflutningana, sem nú eru komnar til sög-
unnar, munu reynast heppileg ráðstöfun til að tryggja, að
enginn blettur falli á íslenzka skjöldinn.
vantar unglinga til að bera út blaðið í þessi
hverfi :
BARÓNSSTÍG
VESTURGÖTU
MELUNUM
LAUGATEIG
GRÍMSSTAÐAHOLTI
HÖFÐAHVERFI
Talið við afgreiðsluna. — Sími 14-900.
TEIGAGERÐI
KLEPPSíIOLT.
Alþýðublaðið
Togarameníi vcry ösvaðir og cviðbúnir, segir Pétur
Jónsson, skipherra á
MINNSTA varðskip íslenzku
landhelgisgæzlunnar, ,,Óðinn“,
kom til Reykjavíkur í fyrradag.
Blaðið náði í gær tali af skip-
herranum, Pétri Jónssyni, og
spurði hann frétta af þeim um-
deilda atburði, er varðskips-
menn voru kallaðir aftur úr
togaranum „Paynter11, sem þeir
höfðu náð á sitt vald, og liann
látinn sigla sinn sjó.
— Við sendum sjö menn af
,,Óðni“ um borð í togarann og
mættu þeir meiri mótstöðu en
búizt var við. Notuðu Bretar
ýmis vopn gegn okkar mÖnn-
um, hnífa, axir, spanna o. fl. Þó
held ég að Þelr hafi verið óvið-
búnir, er við lögðum að. því-að
fáir menn voru á síðu, en fleiri
komu brátt hlaupandi. Eg held
að okkur hefði ekki .tekizt að
fara um borð, ef Bretarnir
hefð'u verið viðbún'r.
VÉLSTJÓRINN MEIDDIST.
„María Júlía“ kom fljótt á
vettvang, setti álíka marga
menn um borð í togarann og
náðu okkar menn þá yfirhönd-
inni. í átökunum hlaut Krist-
inn Steindórsson véistjóri mik-
ið högg í kviðinn, en hann var
nýlega skorinn upp við kvið-
sliti. Þarf sennilega að skera
hann upp aftur af þessum sök-
um.
ÓVÆNT ÁKVÖRÐUN.
Pétur kvað varðskipsmenn
hafa verið búna að koma vélum j
togarans í gang og verið að ráðg i
ast um, hvort draga skyldi inn
akkeri eða sleppa því, þegar fyr
irmæli um að yf.rgefa togar-
ann komu „eins og þjófur úr
heiðskíru lofti“. Sagði hann, að
það hefði komið mjög á óvart til
að byrja með og valdið óánægju
j varðskipsmanna. Þetta gerðist
j um 12 sjómílna mörkin og var
herskipið ,,Diana“ skammt frá
á leiðinni frá Patreksfirði. —
Sagði Pétur, að sennilega hefði
herskip.ð tekið togarann í sína
vörslu og útilokað hefði verið
að komast með hann inn fvrir
þriggja mílna landhelgina. —
Togarinn er gamall og gengur
10—12 mílur, en herskipið 35
mílur, alvopnað með fiölmer.ni
sjóliða um borð.
FLESTIR ÖLVAÐIR.
— Togaramenn voru flestir
ölvaðir, sagði Pétur, og senni-
lega nýbúnir að fá sinn dag-
lega rommskammt þegar okkar
menn komu um borð. Komu
þeir jafnvel upp til skipstjóra
að biðja um meira, meðan á
þessu stóð. Skipstjórlnn var
stilltastur togaramanna, en hins
vegar var 1. stýrimaður fremst
ur í flokki í baráttunni við ís-
lendinga.
LÖG UM SJÓRÁN?
Pétur kvaðst hafa lieyrt því
fleygt, að til væru ævagömu!
lög í Bretlandi, sem heimili
brezkum skipum sjórán, svo
framarlega sem innlend skip
væru ekki rænd. En eins og
kunnugt er, halda Bretar fast
í ganilar venjur, og eftir fram-
ferði þeirra á íslenzkum miðum
virðist sem lög þessi séu enn
í fúllu gildi!
rt
MEÐFERÐ
SJÚKLINGSINS.
Bretar ætluðu ekki að láta
varðskipsmenn sjá þegar þeir
fluttu veika togaramanninn yf-
ir í herskipið, sem fór með hann
til Patreksfjárðar. Sagði Pétur,
að ekk. hefði verið að siá af
meðferðinni á manninum, að
um iárveikan sjúkling v-æri að
ræða, því að honum var flevgt
til, eins og kartöflupoka. Ekki
fór hsrskipið strax í land með
sjúkiinginn, heldur sendi bát
yfir í annan togara. Ekki er vit i
að í hvaða erindum sú ferð var
farin. Sagði Pétur, að sér fynd-
stundar landhelgisgæzlu á vetr.
um. Pétur er kvæntur Vilborgu
Þórðardóttur og eiga þau sjö
börn.
GÓÐ FRAMMISTAÐA
UTANRÍKISRÁÐHER.RA.
Að lokum kvaðst Pétur vilja
taka það fram, að sér fyndist
Guðmundur í. Guðmundsson,
utanríkisráðherra, hafa staðið
sig mjög vel í landhelgismál-
inu að því leyti sem Þao mál
hefur komið til hans kasta.
Einnig kveðst hann viss um,
að yf rmenn landhelgisgæzl-
unnar í landi geri það eitt, sem
- i •
Pétur Jónsson, skipherra á „Óðni.”
ist far.ð aftan að varðskips-
mönnum með því að leyfa her-
skipi að fara með togarasjó-
mann til hafnar, þar sem togar-
arnir þyrftu ekki einu sinni að
fá leyfi til þeirrar ferðar.
ÁSIGLINGAR-
TILRAUNIR.
Stundum hefur það komið
fyrir, að togarar hafa tekið inn
vörpuna og farið að elta varð.
skipin og reyna að sigla á þau.
Segir Pétur, að togaraskip-
stjórar fái til þess leyfi og sani
þykki fulltrúa brezkra togara-
eigenda, sem er um borð í
einu herskipanna, en telur
ekki líklegt að skipherrar lier
skipanna gefi skipanir eða
leyfi til þess.
SKIPHERRA í IVz ÁR.
Pétur Jónsson hefur verið
sk pherra á ,,Öðni“ í hálft ann
að ár. Áður var hann stýrimað
ur á varðskipum frá ársbyrjun
1954 og skipherra í afleysing-
um. Auk þess var hann fyrst
með vitaskipið ,,Hermóð“, er
þeir telji heppilegast og réttast
á hverjum tíma, enda þótt á-
kvarðanir þein-a hafi valdið
stundaróánægju meðal sumra,
t. d. þegar fyrrnefndum togara
var sleppt. Munu allir þjóðholi-
ir íslend.ngar taka undir þessi
ummæli Péturs einum rómi.
Rigning
GERÐU-það-sjálfur hreyfingin
hefur nú borizt til Kína. Kín-
verjar eru sumsé farnir að
framleiða sitt regn sjálfir.
Kínverska fréttastofan hef-
ur tilkynnt, að í Kirin-fylki
hafi verið gerðar fimm vel
heppnaðar tilraunir með rign-
ingarframleiðslu. 180 kílóum
af þurrum ís var dreift í' 6700
metra hæð og myndaðist tals-
verð rigning á 120 fej-'kíló-
metra svæði. , k