Morgunblaðið - 16.02.1977, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
36. tbl. 64. árg.
MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Danmörk: Stórsig-
ur jafnaðarmanna
Fylgishrun
hiáVenstre
Paul Hartling og frú
Elizabet á kjörstað f
Ordrupskóla f Kaup-
mannahöfn. Anker Jörg-
ensen forsætisráðherra
greiðir atkvæði sitt í
gær, eiginkona hans,
Inerid. horfir á.
Kaupmannahöfn 16. frhrúar frá frétta-
ritara Mbl. Lars Olsen.
ANKER Jörgensen verður
áfram forsætisráðherra
Danmerkur eftir að Jafn-
aðarmannaflokkur hans
vann umtalsverðan sigur í
kosningunum f gær, bætti
við sig 12 þingsætum, úr 53
í 65, og 7.1% atkvæða. Það
sem mesta athygli vakti í
kosningaúrslitunum var
algert fylgishrun Venstre
undir forystu Poul
Hartlings, en flokkurinn
tapaði helmingi þingsæta
sinna, hefur nú 21 á móti
42. Anker Jörgensen sagði
í nótt, er úrslitin lágu ljós
fyrir: „Það er Ijóst að
minnihlutastjórn Jafnað-
armannaflokksins mun
sitja áfram að völdum og
halda starfi sínu áfram, en
við erum einnig opnir fyr-
ir því að kanna möguleik-
ana á breiðara stjórnar-
samstarfi. Við höfðum bú-
izt við að vinna á, en sigur-
inn er óneitanlega stærri
en við höfðum þorað að
vona.“ Jörgensen sagði, að
kosningarnar hefðu eink-
um snúizt um eitt mál, að
tryggja ríkisstjórninni
starfsgrundvöll og þess
vegna hefðu kjósendur
fylkt liði um jafnaðar-
menn, enginn hinna stóru
flokkanna hefði treyst sér
til að taka ábyrgðina á sín-
ar herðar.
Stjórnmálafréttaritarar í Kaup-
mannahöfn sögðu í nótt, að kosn-
ingaúrslitin væru greinileg stuðn-
ingsyfirlýsing kjósenda við jafn-
aðarmenn og þá flokka, sem stóðu
að ágúst samkomulaginu um
kauplags- og verðlagsbindingu,
sem gert er ráð fyrir að taki gildi
Framhald á bls. 18
EBE:
Samkomulag um fiskvernd
írar tilkynna einhliða aukatakmarkanir
Brtissel 15. febrúar Reuter.
LANDBÚNAÐAR- og sjávarút-
vegsmálaráðherrar Efnahags-
bandalagsríkjanna komust að
mestu leyti að samkomulagi f dag
um þrjár aðgerðir til að vernda
fiskstofnana innan 200 mílna
fiskveiðilögsögu rfkjanna 9, en
auk þess klufu írar sig út úr og
samþykktu enn frekari einhliða
aðgerðir til að takmarka stærð og
vélarorku þeirra skipa, sem fá að
stunda veiðar við lrland. Olli
þetta mikilli gremju meðal hinna
ráðherranna, sem gagnrýndu tra
harðlega.
Healey og Re.es líkleg-
ir arftakar Croslands
Heilsu rádherrans hrakaði enn í gær
London 15. febrúar Reuter —AP.
HEILSú Anthony Croslands, ut-
anrfkisráðherra Bretlands, hrak-
aði enn skyndilega f kvöld og ótt-
ast læknar mjög um Iff hans.
Crosland, sem er 58 ára, fékk al-
varlegt hjartaáfall á sunnudags-
kvöld og hefur ekki komið til
meðvitundar frá þvf að hann var
fluttur í skyndi f sjúkrahús
skammt frá Oxford en þar f
grennd er sveitasetur hans.
Stjórnmálafréttaritarar í Bret-
landi segja nú Ijóst, að þótt Cros-
land lifi áfallið af, muni hann
Denis Healey
ekki framar gegna ráðherrastöðu.
Þessi veikindi Croslands hafa sett
Callaghan, forsætisráðherra, i
mikinn vanda, þar sem hann þarf
að gera skjótar breytingar á
stjórn sinni. Crosland hafði unnið
mjög að lausn Rhódesíumálsins
svo og lausn deildna í sambandi
við 200 mílna fiskveiðilögsögu
EBE. Hann er forseti ráðherra-
ráðs EBE, hefur unnið að undir-
búningi tveggja toppfunda sem
halda á f Bretlandi í maí og júni
auk þess sem hann undirbjó för
sína með Callaghan til Washing-
Framhald á bls. 19
Skv. fréttum frá Brússel kemur
samkomulagið verulega til móts
við kröfur Breta um verndun sild-
ar- og bolfiskstofnanna við
strendur Bretlands og lýsti brezki
fiskveiðiráðherrann Gavin Strang
yfir ánægju sinni með niðurstöð-
urnar. Þetta samkomulag gengur
skrefi lengra en samkomulagið,
sem náðist á fundi utanríkisráð-
herra landanna i síðustu viku, en
Danir hafa þó frestað að gefa sam-
þykki sitt, þar sem kosningar fara
fram i landinu í dag, og ráðamenn
vilja ekki taka ákvörðun um svo
viðkvæmt mál á slíkum degi en
gert er ráð fyrir að samþykkti
þeirra liggi fyrir eftir nokkra
daga.
Samkomulagið er sem hér seg-
ir: 1. Bann við síldv'eiðum í
Norðursjó þar til 30. april og í
írlandshafi þar til í lok þessa árs.
2. Bann við veiðum á spærlingi til
bræðslu undan N- og A-strönd
Skotlands þar til i lok marz. 3.
Takmarka skal veiðar á bolfiski
„Tímabært að hreyf-
ing komist á málin
til bræðslu á öðrum svæðum við
10—20% af heildarafla eftir því
um hvaða tegundir er að ræða.
Til viðbótar þessu tilkynntu ír-
ar, að frá 1. marz fengju bátar,
sem eru lengri en 33 m og með
1100 ha vélar eða stærri ekki að
veiða innan 50 milna lögsögu við
írland og á sumum svæðum ekki
ráðherrar harðlega þessar aðfarir
Framhald á bls. 19
Norðmenn
senda enn
einn Rússa
heim
5?
- sagdi Allon vid komu Cyrus Vance til ísrael í gær
Jerúsalem 15. febrúar AP — Reuter.
CYRÚS Vanee, utanríkisráðherra
Bandarikjanna, hét lsraelum við
komu sfna til Tel-Aviv í kvöld, að
Bandarfkin myndu um ókomna
tlma leggja sitt af mörkum til að
tryggja stöðu og öryggi tsraels.
Heimsóknin til tsraels var fyrsti
áfanginn I 6 daga för ráðherrans
um Miðausturlönd til að reyna að
koma af stað nýjum friðarviðra*ð-
um milli Araba og tsraela.
Yiegal Allon, utanrikisráðherra
ísraels, sagði við komu starfsbróð-
ur sins: „Það er kominn tími til að
hreyfing komist á ný á stjórnmál-
in í Miðausturlöndum, ísraelar
eru ekki fylgjandi stöðnum held-
ur þvert á móti framsókn í friðar-
átt." Viðræður Vance við
ísraelska ráðamenn munu eink-
um snúast um Palestínuvanda-
málið og hann mun reyna að fá þá
til að láta af harðri andstöðu sinni
við þátttöku Palestínumanna i
fyrirhuguðum Genfarviðræðum,
Framhald á bls. 19
Osló 15. febrúar Reuter.
SOVEZKI sendiráðsnauturinn
G.F. Titov, sem norsk blöð hafa
haldið fram, að hafi verið yfir-
maður KGB-deildariunar f
Noregi, er farinn heim til Moskvu.
Verdens Gang segir í dag, að
Titov hafi verið beðinn persónu-
lega um að fara úr landi. Tals-
maður norska utanrfkisráðuneyt-
isins neitaði í dag að staðfesta
þessa frétt en heimildir innan
Óslóarlögreglunnar staðfestu að
maðurinn hefði farið frá Ósló á
laugardag. Titov er 7. Rússinn,
sem fer frá Noregi eftir að upp-
lýst varð um njósnamálið í sam-
bandi við Gunvor llaavik f sl.
mánuði. Rússar ráku f gær einn
norskan sendiráðsstarfsmann
heim og bönnuðu öðrum að snúa
aftur í hefndarskvni. Titov var
einn af 15 Rússum, sem bannað
var að snúa aftur til Bretlands, er
stjórnvöld þar ráku 90 sendiráðs-
starfsmenn úr landi 1971 fyrir
njósnir.