Morgunblaðið - 16.02.1977, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRUAR 1977
7
Gfsli Jónsson mennta-
skólakennari hefur gert
manna bezt grein fyrir
sögu fslenzkrar kven-
réttindabaráttu og lagt
henni lið með sagn-
fræðilegum og málefna-
legum rökstuðningi.
Hann fjaflar enn um
þetta efni, f tengslum
við framkomið skatta-
lagafrumvarp, f leiðara
tslendings, málgagns
sjálfstæðisfólks f
Norðurlandskjördæmi
eystra. Þar segir hann
orðrétt:
Kvenrétt-
indafélag
íslands
„Fyrir hálfum
mánuði minntust menn
sjötfu ára afmælis
Kvenréttindafélags
lslands, og f þvf sam-
bandi hefur sitthvað
verið rifjað upp um
fslenska kvenréttinda-
baráttu. Sagan um jafn-
rétti kynjanna á tslandi
er á margan hátt
ánægjuleg, enda voru
tslendingar löngum
meðal þeirra þjóða sem
þar fóru framarlega.
Minna má til dæmis á
lög um erfðajafnrétti
systra og bræðra 1850,
lögin um kosningarétt
kvenna „sem áttu með
sig sjálfar“ 1882, kosn-
ingarétt og kjörgengi
giftra kvenna til
sveitarstjórna 1907, al-
gert jafnrétti um skóla-
göngu og embættis-
gengi 1911 og kosninga-
rétt og kjörgengi
kvenna til alþingis 1915
með endurbótum frá
1920. Frá sfðari árum er
svo helst að minnast
laganna og launajafn-
rétti og jafnréttisráð.
Af skiljanlegum
ástæðum höfðu karlar
forgöngu í þessari jafn-
réttisbaráttu f fyrstu
lotu. Þar gleymast ekki
Páll Briem, Þorlákur
Guðmundsson, Skúli
Thoroddsen og Hannes
Hafstein, svo að nokkur
kunnustu nöfnin séu
nefnd. Sfðar meir komu
samtök kvenna sjálfra
fram á sóknarsviðið,
fyrst undir forystu Þor-
bjargar Sveinsdóttur og
Ólaffu Jóhannsdóttur,
sfðar Brfetar Bjarn-
héðinsdóttur, og það var
einmitt hún sem hafði
veg og vanda af stofnun
Kvenréttindafélags
tslands 1907.“
Skattalaga-
frumvarpið
„1 umræðunum
undanfarið hafa menn
mjög staðnæmst við
skattalagafrumvarp það
sem lagt hefur verið
fram til kynningar, en
þar er gert ráð fyrir þvf
að afnema hina marg-
umtöluðu 50% reglu, og
þvf hljóta allir jafn-
réttissinnar að fagna,
segir Guðrún Erlends-
dóttir hrl„ fulltrúi jafn-
réttisráðs, f ræðu á
Gísli Jónsson
menntaskólakenn-
ari.
fundi Kvenréttinda-
félagsins 27. jan. sl. 1
sama streng tekur vara-
formaður K.Í., Björg
Einarsdóttir, f mjög at-
hyglisverðri grein f Vísi
3. þessa mánaðar. Hún
segir m.a.: „Að þetta
bráðabirgðaákvæði hef-
ur gilt f nær tvo áratugi
kennir að oft er Iffseigt
það, sem aðeins á að
lappa upp á gamalt
kerfi um stundarsakir.
Þegar, tveimur árum
eftir gildistöku 50%
reglunnar, urðu breyt-
ingar á skattalögum er
rýrðu gildi hennar og
hafa nú orðið svo mikl-
ar breytingar á lög-
unum að það sem átti að
stefna f réttlætisátt er
orðið að argasta órétt-
læti.“
Þetta eru vissulega
orð að sönnu. Þegar
hlutur eiginkonu, sem
vinnur heimilisstörf, er
algerlega vanmetin,
þegar það getur skipt
hundruðum þúsunda f
skatti hvort kynjanna
vinnur fyrir tekjum
heimilisins og þegur
ekkjur og ógiftar konur
njóta ekki sama réttar
og giftar konur.“
Lítið jafn-
réttismál
.Jlitt er svo rétt sem
fram hefur komið hjá
þessum ágætu konum
og fleirum, að ákvæði
skattalagafrumvarps-
ins, sem koma eiga í
stað 50% reglunnar,
eru mjög athugaverð,
og verður að sjálfsögðu
að gæta þess að gera
ekki nýjar skyssur f
stað þeirra sem fyrr
hafa til orðið. En meðan
stighækkandi tekju-
skattur til rfkisins er
innheimtur, sem ekki
virðist nauðsynlegt og
þaðan af sfður sjálfsagt,
þá hlýtur það að vera
krafa allra jafnréttis-
sinna, að fólk sé ekki
mismunað eftir kynj-
um, þegar skattur er á
lagður.
Og svo er hér eitt
ósköp Iftið jafnréttis-
mál f lokin, og það kost-
ar engin fjárútlát. Vilja
menn nú ekki vera svo
góðir, að hætta að skrifa
utan á bréf og boðskort
Hr. Jón Jónsson og frú,
ef erindið eða boðið er
til beggja hjónanna,
rétt eins og konan sér
einhvers konar húsgagn
eða fylgifé bónda sfns,
eða í hæsta lagi „staðar-
bót og hýbýlaprýði",
eins og sagt var um
Gissur Hallsson, er
hann sat f sæmd sinni f
Skálholti á efri árum?
Gift kona er sjálfstæð
persóna, og þvf ekki að
skrifa heldur Til
Guðrúnar Guðmunds-
dóttur og Jóns Jónsson-
ar, þegar bréf eða boð
er stflað til þeirra
beggja?“
LANG ÓDÝRUSTU
20" litsjónvarpstækin á markaðnum
Vegna hagstæðra samninga við Toshiba Japan getum við boðið nokkurt
magn 20" litsjónvarpstækja fyrir
AÐEINS KR. 213.915
Þetta nýja glæsilega litsjónvarpstæki
er búið fjölda tæknilegra nýjunga:
line-in myndlampi
Blackstripe-kerfi er
tryggir úrvals svart-hvíta mynd jafnt
og litmynd.
Sjálfvirk afsegulmögnun.
Árs ábyrgð.
Greiðsluskilmálar
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
Bergstaðastræti 10A
sími 16995.
VARIZT HALKUNA
Fæst hjá skósmiðnum, skóbúðinni og apótekinu.
Steiktar kartöfluflögur og
matarolía (hnetuolía).
HEILDSOLUBIRGÐIR:
AGNAR LUDVIGSSON HF,
Nýlendugötu 21, Sími 12134.
íSkotlandi
Brottför
9. og 18. maí
(10 dagar)
Verö
kr. 64.500,-
Flug fram og til baka.
Gisting á Marine Hotel,
North Berwick
Morgunverður og
kvöldverður.
Flutningur til golfvalla og til og frá flugvelli
Ekki innifalinn brottfararskattur.
Allarfrekari upplýsingar.
FERDASKRIFSTOFAN
URVAL
Eimskipafélagshusinu simi 26900