Morgunblaðið - 16.02.1977, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRUAR 1977
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarf ulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingasjóri
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
hf. Arvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson
Björn Jóhannsson
Arni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6, simi 10100.
Aðalstræti 6, sími 22480
Askriftargjald 1 100.00 kr. á mánuði innanlands
í lausasolu 60 00 kr. eintakið.
Nýr ferskur tónn
frá Washington
Að undanförnu hefur barátta andófsmanna austan járntjalds
vakið vaxandi athygli, enda virðist hún hafa breiðzt út til vel
flestra ríkja í Austur-Evrópu. Fyrst og fremst hefur athyglin þó beinzt
að baráttu andófsmanna f Sovétrfkjunum, Póllandi og Tékkóslóvakfu,
en upp á sfðkastið sýnast einhverjar hreyfingar einnig hafa verið f
Rúmenfu. Það hefur verið ákaflega fróðlegt að fylgjast með mannrétt-
indabaráttunni f Sovétrfkjunum. Sovétstjórnin hefur f auknum mæli
gripið til þess ráðs að gera helztu forystumenn andófshreyfingar
austur þar útlæga, en jafnan þegar einhverjir þeirra hafa verið reknir
úr landi hafa ný nöfn skotið upp kollinum f þeirra stað, sem bendir til
þess, að breidd og dýpt andófshreyfingarinnar í Sovétrfkjunum sé
mikil.
Nú eftir áramótin hefur andófshreyfingin í Tékkóslóvakíu einnig
látið til sín taka opinberlega. Komið hefur f Ijós, að kjarni þeirra, sem
fylgdu Alexander Dubcek að málum 1968 virðist hafa haldið saman og
vera sama sinnis enn f dag og fremur hafa vaxið fiskur um hrygg. Þrátt
fyrir miklar tilraunir hefur Ilusak-stjórninni ekki tekizt að sundra
þeim mönnum, sem stóðu að umbótastarfinu, sem fyrst og fremst
hefur verið kennt við Dubcek. Um skeið virtist sem yfirvöld f
Tékkóslóvakfu mundu grfpa til mun harkalegri ráðstafana gegn
andófsmönnum f Tékkóslóvakfu og á tímabili voru bersýnilega uppi
áform um að gera þá útlæga. En að undanförnu sýnast tékkóslóvakfsk
stjórnvöld hafa farið varlegar f sakirnar og er það áreiðanlega fyrst og
fremst vegna þeirrar athygli, sem mál andófsmanna f Tékkóslóvakfu
hafa vakið á Vesturlöndum.
Andófshreyfingin í Póllandi virðist sprottin úr annars konar jarð-
vegi en andófshreyfingarnar f Tékkóslóvakfu og Sovétrfkjunum. 1
þeim tveimur löndum eru það menntamenn og rithöfundar sem hafa
haft forystu, en f Póllandi eru það verkamenn, sem hafa risið upp til
þess að mótmæla verðhækkunum á neyzluvörum og lffskjaraskerð-
ingu. Til stuðnings við þá hafa komið menntamenn og rithöfundar, svo
og kaþólska kirkjan. Óformleg samtök þessara þriggja aðila eru orðin
svo sterk f Póllandi, að jafnvel er nú talað um, að þar sé komin til
skjalanna áhrifamikil stjórnarandstaða, sem pólsk vfirvöld neyðist til
að ganga til samninga við. Minna hefur borið á andófshreyfingu f
Rúmenlu, en þó hafa skotið upp kollinum raddir, sem benda til þess,
að hún sé f mótun þar.
Jafnhliða þeirri víðtæku andófsstarfsemi, sem nú fer fram handan
járntjaldsins, er saman kominn á Vesturlöndum allstór og raunar
stækkandi hópur útlaga fyrst og fremst frá Sovétrfkjunum, sem hafa
með málflutningi sfnum og starfsemi allri mikil áhrif.
Til viðbótar þessu eru nú komin til sögunnar nýr forseti og rfkis-
stjórn í Bandarfkjunum. Frá forsetaskiptunum þar hefur heyrzt nýr
og ferskur tónn frá Washington í málefnum andófsmanna og nýr og
öflugur stuðningur við mannréttindabaráttuna f Austur-Evrópu. Þetta
er ánægjuleg breyting frá þeirri stefnu, sem rfkjandi hefur verið f
Bandarfkjunum undanfarin 8 ár, en hún hefur byggt á þvf, að
Bandarfkin ættu a.m.k. ekki opinberlega að veita andófsmönnum
stuðning, þar sem það mundi einungis gera illt verra f samskiptum við
Sovétrfkin á öðrum sviðum. En Carter Bandarfkjaforseti er bersýni-
lega ekki á sama máli og sá opinberi stuðningur, sem andófshreyfingin
austan járntjalds nú hefur hlotið frá Bandarfkjastjórn, mun áreiðan-
lega leiða til þess, að barátta andófsmanna f Austur-Evrópurfkjum
eflist um allan helming. Fram á sfðustu ár hafa menn almennt verið
vantrúaðir á, að andófshreyfingarnar gætu náð nokkrum umtalsverð-
um árangri f baráttu við ofurefli, en nú hin sfðustu misseri hefur mátt
sjá glögg merki þess, að starf andófsmanna og sá stuðningur, sem þeir
hljóta á Vesturlöndum, er byrjað að hafa áhrif á afstöðu einræðis-
stjórnanna austan járnt jalds. Þessi staðreynd vekur nýjar vonir um, að
fyrr en sfðar muni takast að brjóta niður það stjórnarfar einræðis, sem
nú rfkir f nafni sósfalismans f Austur-Evrópu.
Nöfnin verður að birta
Ráðstöfun utanrfkisráðherra á starfi forstöðumanns Sölu
varnarliðseigna hefur vakið eftirtekt og undrun, ekki sfzt f Ijósi
þess, að utanríkisráðuneytið hefur neitað að birta opinberlega nöfn 34
umsækjenda um þessa stöðu. Eins og allt er f pottinn búið er
nauðsyniegt, að þessi nöfn verði birt til þess að almenningur geti áttað
sig á þeim rökum, sem væntanlega hafa legið til grundvallar þessari
ákvörðun. Morgunblaðið væntir þess, að svo verði gert, enda hafa óskir
þess efnis komið fram f umræðum í Alþingi Islendinga.
Brezkir togarar
af íslandsmiðum
til Nýfundnalands
ENSKIR togarar, sem und-
ir venjulegum kringum-
stæöum væru nú á veiðum
á íslandsmiðum, leita nú
til miðanna undan strönd
Nýfundnalands — eða,
eins og brezka dagblaðið
The Daily Telagraph orðar
það, hafa verið flæmdir af
fslandsmiðum alla leið til
Nýfundnalands. Þangað er
um 7 daga sigling frá
Grimsby og er kostnaður-
inn við slíka ferð um helm-
KGB hótar
Turtsjin
málshöfðun
Moskvti — 15. febrúar — NTB.
KGB-MENN handtóku f gær
Valentin Turtsjin, forsvarsmann
Moskvudeildar Amnesty
International, og færðu hann til
yfirheyrslu þar sem honum var
tjáð að starfsemi hans væri and-
sovézk og ætti hann yfir höfði sér
málshöfðun.
Turtsjin er náinn vinur andólfs-
mannanna Yuri Orlofs og Alex-
anders Ginsburg, sem báðir voru
handteknir fyrir skömmu.
ingi meiri en þegar haldið
er á fslandsmið.
Grimsby-togarinn
William Wilberforce,“ sem
er 698 tonn, lagði fyrr i
þessum mánuði af stað á
Nýfundnalandsmið í sam-
floti með tveimur minni
skipum. Talsmaður Brezka
fiskveiðisambandsins hef-
ur sagt að nokkur frysti-
skip væru að jafnaði á Ný-
fundnalandsmiðum, en
þetta væri í fyrsta sinn sem
íslandstogarar færu þang-
að. „Nýfundnalandsmið
voru fengsæl fiskimið þar
til Rússar tóku að veiða
þar,“ sagði talsmaðurinn.
Lengi og dýrari veiði-
ferðir hafa í för með sér
hærra fiskverð í Bretlandi,
en heildsöluverð á þorsk-
flökum hefur að undan-
förnu verið 1.60—1.70 ster-
lingspund eöa um 530 ísl.
kr. kílóið.
ERLbiMT
Sanjay Gandhi
Sonur
Indiru
í kjöri
Nýju-Delhi — 15. febrúar — Reuter.
KONGRESSFLOKKURINN 1
Indlandi tilkynnti f dag, að
sonur Indiru Gandhi, Sanja.v
Gandhi, yrói í framboði í
Amethi-kjördæmi f Uttar
Pradesh f þingkosningunum f
næsta mánuði, en Uttar
Pradesh er fjölmennasta
hérað landsins.
Sanjay Gandhi er þrítugur
að aldri og er leiðtogi æsku-
lýðssamtaka Kongressflokks-
ins. Hann hefur stutt móður
sína með ráðum og dáð og spá
ýmsir því, að hún ætli honum
að setjast í sæti sitt er fram
líða stundir.
Gundelach bídur eftir
svari frá íslendingum
í UMRÆÐUM um fisk-
veiðimál á Evrópuþinginu
í Luxembourg fyrir
skömmu þar sem saman
voru komnir þingmenn frá
EBE-ríkjunum, gerði Finn
Olav Gundelach m.a. grein
fyrir viðræðum sínum við
íslenzku ríkisstjórnina um
hugsanlegan fiskveiði-
samning bandalagsins og
Kínverjar
Carter við
l'eking — 15. febrúar — Keuter.
IIIN opinbera fréttastofa Nýja
Klna varaði í dag Carter Banda-
ríkjaforseta við að taka mark á
blfðmælgi Sovétstjórnarinnar —
tilgangurinn væri sá einn að
veiða hann f gildru.
Hér var um að ræða eina hörð-
ustu árás á ,,détente“-tilraunir
Sovétmanna og Bandarikja-
manna, sem heyrzt hefur frá
fréttastofu Nýja Kína, og var því
Carter
íslendinga. Gundelach
kvaðst hafa komið á fram-
færi sjónarmiðum EBE og
sagðist vænta svars í
áframhaldi af þeim við-
ræðum. Ilann sagði, að
enda þótt EBE gerði sér
fyllilea grein fyrir því, að
íslendingum væri nauð-
synlegt að vernda fisk-
stofnana á miðunum um-
vara
Rússum
meðal annars haldið fram að
Sovétstjórnin væri að reyna að
koma af stað úlfúð milli Hvita
hússins og bandaríska varnar-
málaráðuneytisins.
,,Það var Kremlverjum likt að
heilsa nýjum ibúum Hvita húss-
ins með brosi en kveðja þá sem
farnir eru með þvi að hrækja á
þá,“ segir fréttastofan, og bætir
við að 'Sovétstjórnin láti nú einsk-
is ófreistað til að fá Hvita húsið til
að beita varnarmálaráðuneytið
þrýstingi í því skyni að Bandarík-
in haldi áfram „détente“-
stefnunni.
RUDE Pravo, málgagn tékkneska
kommúnistaflokksins, heldur þvf
fram að undanfarna mánuði hafi
verið farin hin mesta og illskeytt-
asta áróðursherferð á hendur
sósfalísku þjóðskipulagi, og sé
hér um að ræða freklega íhlutun
um innanrfkismál kommúnista-
rfkjanna.
Lögð var sérstök áherzla á að
hverfis landið, og mætti
raunar öfunda þá af að-
gerðum á þessu sviði, væri
þess að vænta, að þeir féll-
ust á málamiðlun sem ekki
gerði ráð fyrir skyndileg-
um samdrætti hefðbund-
inna veiða sjómanna frá
EBE-ríkjunum á Islands-
miðum.
Gundelach kvaðst hafa gert ís-
lenzku rikisstjórninni grein fyrtr
sjónarmiðum EBE í þessu sam-
bandi, og hefði hún hvorki fallizt
á slíka málamiðlun né hafnað
henni. Sjálfur kvaðst hann hafa
engu við að bæta að sinni, heldur
biði hann svars frá íslendingum.
Sagðist Gundelach hafa samúð
með málstað þessa fámenna og
einangraða ríkis, sem i svo mikl-
um mæli byggði afkomu sina á
fiskveiðum. Með tilliti til að-
stæðna í sjávarútvegi væri hins
vegar útilokið fyrir EBE að bjóða
íslendingum samning, þar sem
gætt yrði fullkominnar gagn-
kvæmi, og þetta væri ein ástæðan
fyrir því að sanningar hefðu enn
ekki tekiz.t. Á hinn böginn ættu
íslendingar mikilla hagsmuna að
gæta þar sem um væri að ræða
fiskmarkaði i EBE-ríkjunum, aúk
þess sem þeir hefðu mikilvæg
samskipti við aðildarríki banda-
lagsins á öðrum sviðum.
aroðursherferðin væri þraut-
skipulögð og fjármögnuð á
Vesturlöndum í samvinnu við
„auvirðilega liðhlaupa, pólitíska
ævintýramenn og áhrifalausa
svikara i sósialistalöndunum, sem
væru ekki fulltrúar fyrir neitt“.
Væri ætlun þessara afla að koma í
veg fyrir „slökun spennu og
endurvekja „kalda stríðið" í
Evrópu".
Rude Pravo út-
hrópar andófsmenn
Prag — 15. febrúar — AP