Morgunblaðið - 16.02.1977, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRUAR 1977
25
fclk í
fréttum
+ Mikil gasspreng-
ing varð nýlega þar
sem unnið var að
viðgerð skolp-
leiðslu í borginni
Kobe i Japan. Bif-
reiðar ultu og nær-
liggjandi hús urðu
fyrir skemmdum.
Einn maður lét líf-
ið og fimmtán slös-
uðust.
+ Barbara Streisand segist hafa fengið sðstu ósk Iffs sfns
uppfyllta, en það er að leika aðalhlutverkið f kvikmyndinni
„A star is born“ eða Stjarna fæðist, en það er eitt þekktasta
hlutverk Judy Garland, þegar hún var upp á sitt besta. Hér er
Barbara með hinum nýja manni sfnum, fyrrverandi hár-
greiðslumeistara Jon Peters og segir hún að það sé honum að
þakka að hún fékk þessa ósk sfna uppfyllta.
+ Ssnski tennismeistarinn Björn Borg og unnusta hans, hin
rúmenska Mariana Simionescu, heldu það nýlega hátfðlegt f
New York að Björn hefur undirritað samning við tennisklúbb
í Cliveland, USA. Sagt er að samningurinn sé mjög arðvæn-
legur.
+ Þessi ljóshærða bros-
milda stúlka er Saíly
Thomsett sem við þekkj-
um úr bresku sjónvarps-
þáttunum „Maður til
taks“. Hún hefur nýlega
fengið skilnað frá manni
sínum, Niges Newman,
en þau hafa verið gift i
fimm ár. „Hjónabandið
entist eiginlega ekki
nema átta vikur,“ segir
Sally, „við rifumst svo
heiftarlega að það var
útilokað fyrir okkur að
búa saman.“ Þau eiga
engin börn og Sally gaf
sjálfri sér nýjan Rolls-
Royce i afmælisgjöf um
daginn.
Á að eitra bezta
drykkjarvatn í heimi?
VERÐUR „fluor“ sett í drykkjar-
vatnið okkar, hið bezta í heimi?
Ég spyr þjóðina hvort hún ætli að
taka á móti þessu eitri? Blaða-
skrif hafa verið um þetta efni i
dagblöðum undanfarið, fluor-
andstæðingar telja að hér sé á
ferðinni mjög skaðlegt efni fyrir
líkamann sem geti valdið ýmsum
sjúkdómum, gæti einnig stuðlað
að fósturláti. Fluor-aðdáendur
hafa lika skrifað greinar um hið
dásamlega efni „fluor" sem á að
drepa tannátu, en geta einnig um
hugsanlega hættu, ef ekki væri
rétt blandað. Ég veit ekki hvernig
það er hægt að fá nákvæma
blöndu í mörg þúsund lítratank,
sem er með sífelldu rennsli út og
inn. Hér virðast vera á ferðinni
tveir ólíkir hópar og kannski eru
þeir stærri ef að væri gáð. Hvað
veit hinn almenni borgari um
þetta efni Æti það sé ekki frekar
lítið, nema þá helst sá heila-
þvottur sem sjónvarpsauglýs-
ingar hafa borið á borð um þetta
dásamlega efni ,,fluor“ í því skyni
að selja það. Ef „fluor“ yrði sett i
drykkjarvatn hér, hver myndi
hagnast á þvi frá viðskiptalegu
sjónarmiði? Ríkið eða kannski
hagsmunaaðilar, sem skiptir engu
hvort það er skaðlegt eða gagn-
legt. Þeir aðilar sem hafa verið að
tjá sig hér í dagblöðunum hafa
ekki allir titlað sig sem vísina-
menn eða tannlækna. Hér eru því
einnig á ferð áhugamenn um heil-
brigði. Það er gott að heyra að
slíkt fólk er til og sjálfsagt er sú
prósentutala mun stærri en okkur
grunar, fólk sem vill vita hvaða
gagn fæðan gerir fyrir líkamann,
þvi við vitum að rétt mataræði er
lykillinn að heilbrigði. Náttúran
hefur öll þau efni sem við þurf-
um, þar rikir jafnvægi sem
maðurinn hefur þó raksað með
skammsýni sinni. „Fluor“ er i
litlum mæli I bæði heita og kalda
vatninu hér og sjálfsagt í réttu
jafnvægi. Hvers vegna að raska
jafnvæginu og bjóða hættunni
heim af því að það getur dregið úr
tannátu hjá þeim sem eru á röngu
mataræði og þrífa tennur sinar
ekki rétt? Ekki voru forn-
mennirnir með „extraskammt" af
„fluor" og það má segja að það
þyki mikil frétt ef hauskúpa af
fornmanni finnst með skemmdar
tennur. Hvers vegna? Væri ekki
nær að halda fræðsluþætti um
rétt mataræði og hirðingu
tannanna. Tölur sýna að sykurát
islendinga er langt frá nauðsyn-
legri orkuþörf og það bil eykst
með hverju árinu sem líður. Hvar
kemur þetta niður á líkamanum,
jú það hleðst utan á likamann og
tennurnar hrynja. Ásamt hjarta-
sjúkdómum og öðru sem offita
hefur í för með sér. „Fluor“ er
skaðlegur skyndiplástur en ekki
„patent" lausn. Lausnin er
fræðsla. Skipulögð upplýsinga-
herferð um mikilvægi fæðunnar
og hinar hrikalegu afleiðinar af
röngum lífsvenjum. Við eigum öll
rétt á hreinu lofti og ómenguðu
vatni og þessar orkulindir eigum
við að verja saman.
Ólafur Reynisson
matreiðslumaður.
Alþjóða-æskulýðsmót-
ið í Bayreuth 1977
MÓT þetta verður í 27. sinn hald-
ið i Bayreuth 5. — 27. ágúst í
sambandi við Richard Wagner
tónlistarhátíðina. Þátttaka er
heimil ungu fólki á aldrinum
18—25 ára, en einnig eldra fólki
ef það er við nám, enda leggi það
þá fram vottorð skóla.
Gert er ráð fyrir að þátttakend-
ur séu með á einhverju af eftir-
töldum námskeiðum:
1. Hljómsveit. Æfð verða verk
eftir Ralph Vaughan Williams,
Bohuslav Martinu, Igor
Strawinski.
2. Hljómsveit fyrir hljóðfæraleik-
ara með minni kunnáttu.
3. Kór. Æfð verða verk eftir
Strawinski og Bruckner.
4. Kammertónlist 20. aldar.
5. Námskeið fyrir unga óperu-
einsöngvara undir stjórn Hjördis
Hymander og Pekka Salomaa.
6. Námskeið fyrir fréttamenn
blaða, útvarps og sjónvarps, en
kennsla fer eingöngu fram á
þýzku á því námskeiði.
7. Námskeið i verkum Richard
Wagner. Skilyrði til þátttöku eru
þýzkukunnátta og þekking á verk-
um Wagners, sérlega Hrings
Niflungsins. Meðal kennara er
Pierre Boulez.
8. Mót ungra rithöfunda frá
Evrópulöndum.
Þátttakendur eiga kost á að
kaupa aðgöngumiða á nokkrar
sýningar Richard Wagner tón-
listarhátíðarinnar á sérstöku af-
sláttarverði. Þetta tilboð er at-
hyglisvert þegar haft er í huga að
miðar á allar sýningar seldust
upp i nóvember s.l. ár. Nánari
upplýsingar gefur dr. Helgi B.
Sæmundsson, Friedrich-
Ebert-Strasse 52, D 7 Stuttgart,
Deutschland.
— Hugleiðingar
Framhald af bls. 10
missir eins og nú er. Konan á
kröfu á, að vera viðurkennd sem
sjálfstæður persónuleiki, og
henni ber jafnframt skylda til að
vera það. Allir, sem komnir eru
yfir 16 ára aldur, eiga að vera
sjálfstæðir skattþegnar, ,án tillits
til kyns eða hjúskaparstéttar,
annað er jafn fáránlegt og að láta
hjón hafa einn kjörseðil.
Fasteignagjöldin, sem nú eru
innheimt hér með forgangshraði,
eru orðin martröð á ibúum þessa
bæjarfélags og efalaust viðar á
landinu. Upphaflega munu fast-
eignagjöld hafa verið lögð á til
þess að mæta beinum kostnaði
bæjar- og sveitarfélaga við vega-
gerð, holræsi, vatnsveitur og sorp-
hreinsun. Nú eru hinsvegar nær
öll þessi gjöld innheimt framhjá,
en fasteignagjöldin orðin leiga,
sem bæjarfélögin innheimta af
eigin íbúðarhúsnæði ibúanna.
Þetta er þó ekki eina leigan, sem
ibúðaeigendur verða að greiða,
þeir greiða háa leigu til Raf-
magnsveitna ríkisins, í stað þess
að greiða fullu verði það rafmagn
sem notað er. Þá reiknar ríkið
mönnum leigu af eigin húsnæði
til skatts, en viðhald til frádrátt-
ar. í stað þess að láta menn sjálfa
um ibúðir sinar.
Mér finnst tími til kominn, að
menn fái að hafa ibúðir sinar i
friði fyrir skattaokri ríkis og
bæja, þegar þeir, með ærnu erfiði
og áhyggjum, eru búnir að koma
sér þaki yfir höfuðið. Það á að
vera skylda löggjafans, að tryggja
þegnunum slikt öryggi. Þessi
skattpining drepur niður alla
sjálfsbjargarviðleitni manna og
hvar stöndum við þá.
Fasteignagjöld af íbúðarhús-
næði yrðu þá einungis vatnsskatt-
ur, holræsagjald og sorphreins-
unargjaid. Gatnagerðin yrði
greidd af öllum útsvarsgjaldend-
um bæja og þorpa sameiginlega,
en ekki aðeins af fáum íbúanna
sem eiga ibúðarhús sín við aðal-
götur bæjanna, sem jafnframt
eru þjóðvegir, í nokkrum til-
vikum a.m.k.
Núverandi gjaldheimta af
ibúðarhúsnæði manna, er svo
ranglát að striðir gegn allri
óspilltri réttlætiskennd, þar sem
þegar er búið að greiða skatta og
skyldur af þvi fé sem byggt er
fyrir og húsnæðislán að nokkru
verðtryggð. Eða hve oft er hægt
að innheimta skatt af sömu tekj-
um og búa til ný gjöld á íbúðir
manna? Samanber hin illræmdu
landsfrægu gatnagerðargjöld af
gömlum húsum, sem hrædd eru
út úr, jafnvel ungu, sem gömlu
fólki, sem greitt hefur áratugum
saman til gatnagerðar í bæjar- og
sveitarfélögum sinum. Varla er
ég ein um að fordæma slíkt hátta-
lag.
Eskifirði, 5. febrúar 1977.
Sigriður Kristinsdóttir