Morgunblaðið - 16.02.1977, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1977
31
GETRAUNAÞÁTTUR
MORGUNBLAÐSINS
AF ÞEIM tíu léikjum sem fram
fóru af seðlinum í síðustu viku,
vorum við með heila átta rétta og
ef frestuðu leikirnir eru einungis
felldir niður, þá eiga lærisveinar
okkar nokkra möguleika á ein-
hverjum vinningi að þessu sinni
(svo fremi sem enginn er með niu
eða tíu leiki rétta). Ef kastað er
upp um frestuðu leikina tvo,
dvina sigurmöguleikarnir nokk-
uð, en þó ekki með öllu. Það getur
varla dulizt nokkrum manni, að
eftir rólegan vetur, erum við nú
sem óðast að komast i okkar al-
besta tippform og nú gerum við
okkur ekki ánægða með neitt
nema þann stóra.
Arsenai — West Ham 1
Velgengni West Ham ríður ekki
við einteyming og hefur liðið nú
sigrað í einum leik í röð, en við
teljum, að sú sigurganga rofni að
þessu sinni, enda var það bara
Stoke sem þeir sigruðu á laugar-
daginn. Öruggur heimasigur
(3—0).
Aston Villa — QPR 1
QPR hefur endurheimt fyrir-
liða sinn, Gerry Francis, og styrk-
ir það liðið að sjálfsögðu töluvert.
Þrátt fyrir það er Villa mun sigur-
stranglegra, enda hefur heima-
völlur liðsins verið einn aðal
höggstokkur stóru liðanna í vetur.
Naumur heimasigur (2—1).
Stundin
Bristol C — Manchester City
tvöfaldur x eða 2
Deildarstaða Bristol-liðsins seg-
ir lítið um getu þess, liðið hefur
leikið færri leiki en flest hinna
botnliðanna og markahlutfall
þess er miklu betra en nær-
staddra liða. Á móti þessu vegur,
að Manchester-liðið hefur leikið
16 leiki í röð án taps og kemur
sterklega til greina í keppninni
um titilinn í vor. Aðalspáin er
markalaust jafntefli, en til vara
tippum við á, að Manchester steli
báðumstigum( (0—1)
Leeds — Tottenham
tvöfaldur x eða 1
Aðalspáin hér er jafntefli,
vegna þess að Leeds hefur tapað
stigi eða stigum til ólíklegustu
liða á heimavelli sinum i vetur.
Til vara höfum við heimasigur
(0—1), vegna þess að Tottenham
hefur aðeins hlotið tvö stig á úti-
völlum í vetur.
Leicester — Ipswich x
Einn berdreyminn tjáði okkur,
að þessi færi 2—2 og til þess að
styggja hann eigi, samþykktum
við það.
Liverpool — Derby 1
Það tekur því ekki að eyða orð-
um i þennan leik. Pottþéttur
heimasigur (2—0).
Manchester Utd. —Newcastle 1.
Newcastle hyggur áreiðanlega á
hefndir fvrir meðferðina sem
nálgast
þeir fengu í Manchester í deildar-
bikarnum fyrr í vetur (2—7
rothögg). Sú hefnd verður að
okkar mati að bíða betri tima, þvi
að Manchester-liðið hefur undan-
farið sýnt margt gott, en fátt
slæmt, þar sem Newcastle hefur
dalað nokkuð eftir allgóða byrjun
og vörn liðsins hefur þótt gjaf-
mildari en góðu hófi gegnir.
Heimasigur (2—1).
Norwich — Coventry tvöfaldur 1
eða x.
Norwich er betra lið en margan
grunar, til þess benda ýmsir
athyglisverðir sigrar liðsins i
vetur. Aðalspáin er sú að þeir
bæti einum slíkum við, heimasig-
ur (2—1). En við berum einnig
virðingu fyrir Coventry og viður-
kennum möguleika á jafntefli
(1—1).
Stoke — Everton 2.
Af tveim framúrskarandi lélegum
liðum, teljum við þó Everton
heldur skárra, enda kemur það
annað slagið fyrir, að þeir skora
mark, sem er meira en Stoke
gerir. Útisigur (0—1).
Sunderland — Middlesboro x.
Sunderland hefur nú leikið þrjá
leiki i röð án taps og er marka-
hlutfall þeirra 1—0, Sunderland í
hag. Hefur liðið vart halað inn
stig af sliku offorsi í allan vetur
og verður fróðlegt að fylgjast með
framhaldinu. Hvorugt þessara
liða leggur sérstakt kapp á
sóknarleikinn og gætu úrslitin
orðið í samræmi við það. Við telj-
um 0—0 vera líklegast, en 4—4
kemur vart til mála.
Hull — Bolton 2.
Hér er mikill gæðaflokks munur á
liðunum og spáum við í samræmi
við það, útisigur (1—3).
Millwall — Blackpool, tvöfaldur
1 eða x
Millwall er hörkulið, sérstakíega
á heimaveMi og er aðalspáin sú, að
Blackpool hafi ekki roð við þeim,
heimasigur (2—0). Blaekpool er
að missa hægt og bítandi af fyrstu
deildar lestinni og gæti sú stað-
reynd porrað þá upp í að ná jafn-
vel öðru stiginu, en ekki meir.
Seinni spá: jafntefli (1—1). —gg.
BIKARKEPPNIFSÍ
BIKARKEPPNI Fimleikasambands
Islands fer fram á morgun, fimmtu-
daginn 17. febrúar I íþróttahöllinni I
Laugardal. Hefst keppni kl. 20 30
Parna er um að ræða flokkakeppni
og hefur hvert félag rétt til þess að
senda einn flokk til keppninnar af
hvoru kyni. j piltaflokki verða keppn-
isflokkar frá Ármanni, KR. Fylki og
Gerplu en I kvennaflokki frá fyrr-
nefndum félögum, frá Björk úr Hafn-
arfirði og ÍR. Alls verða þvl keppend-
ur F mótinu milli milli 60 og 70
talsins.
Björgvin Björgvinsson skorar. Hann hefur ðtt einna beztan leik
landsliðsmanna f leikjunum við SLASK
Jafntefli á
landsliðinu
ÍSLENZKA handknattleikslands-
liðið og pólska liðið SLASK gerðu
jafntefli, 21—21, I leik slnum I
Iþróttahúsinu á Akranesi í fyrra-
kvöld, en í leik þessum sýndi
fslenzka landsliðið loks sitt rétta
andlit og var sigri nær. Var það
ekki fyrr en á sfðustu stundu að
Pólverjunum tókst að jafna, en
fslenzka liðið hafði lengst af verið
yfir í seinni hálfleiknum, með 3
mörk er staðan var 19—«6 og
skammt var til leiksloka.
Það sem gerði gæíumuninn
fyrir íslenzka liðið i leik þessum
var góð markvarzla Gunnars
Einarssonar, sem stóð i markinu
allan tímann. Vörn landsliðsins
var líka öllu betri i leik þessum
en verið hefur í æfingaleikjunum
við SLASK, þótt oft mynduðust
unni 20—20. Geir Hallsteinsson
skoraði þá úr vitakasti fyrir
landsliðið, 21—20, en á siðiistu
stpndu tókst Pólverjunum að
skora og jafna.
Beztu leikmenn íslenzka liðsins
i leik þessum voru þeir Gunnar
Einarsson og Björgvin Björgvins-
son, en Björgvin hefur komið
allra leikmanna íslenzka liðsins
bezt frá leikjunum við Pólverj-
ana. Mörk landsliðsins skoruðu:
Björgvin Björgvinsson 5, Geir
Hallsteinsson 5, Þorbjörn
Guðmundsson 4, Viggó Sigurðs-
son 3, Ölafur Einarsson-2, Ágúst
Svavarsson 1 og Bjarni
Guðmundsson 1.
Markhæstir SLASK-manna
voru þeir Klempel og Maczucski
sem skoruðu 4 mörk hvor.
reyndar slæmar giompur í hana,
sem Pólverjunum tókst að nýta
sérvel.
Gangur leiksins á Akranesi var
í stuttu máli sá, að SLASK skoraði
tvö fyrstu mörk leiksins, en lands-
liðinu tókst síðan að jafna og kom-
ast eitt mark yfir um miðjan fyrri
hálfleik er staðan var 5—4. Eftir
það var jafnt á öllum tölum upp i
10—10, en landsliðið skoraði svo
siðasta mark hálfleiksins og hafði
yfir í hleíi 11—10.
í seinni hálfleik hafði svo lands-
liðið yfir nær allan timann og
eftir að munurin var orðinn þrjú
mörk 19—16 og skammt til leiks-
loka virtist sem íslenzkur sigur
væri loks í höfn. En SLASK-
leikmennirnir voru ekki á því að
gefa sig, og jafnt var orðið á töl-
Goðmundur Freyr, nýbakaður skjaldarhafi:
„Aðeins stórátak getur
komið í veg fyrir það að
glímuiðkun leggist niður"
Glíma nú aðeins iðkuð á fjórum stöðum á landinu
— AÐEINS stórátak getur
komið f veg fyrir að glímuiðk-
un leggist niður, sagði nýbak-
aður skjaldarhafi Guðmundur
Freyr Halldórsson I samtali við
blaðamann Morgunblaðsins að
lokinni Skjaldarglfmu Ár-
manns.
— Ég held að fólk geri sér
ekki grein fyrir þvi hvað það
verður mikill missir ef glímu-
iðkun leggst niður í landinu,
sagði Guðmundur. Þetta er
ekki bara íþrótt, þetta er
þjóðararfur og ef gliman leggst
niður, verður það svipað áfall
og þegar við drápum siðasta
Geirfuglinn. Það þarf að gera
stórátak til þess að vinna glím-
unni þann sess sem henni ber
og i því efni tel ég árangursrik-
ast að færa glímu inn í skólana
og gera hana að skyldufagi,
sagði Guðmundur Freyr.
Við setningu Skjaldarglim-
unnar flutti Ólafur H. Óskars-
son skólastjóri á Seltjarnarnesi
ávarp og gerði að umtalsefni þá
hættulegu þróun, sem nú virð-
ist vera í málefnum glímunnar.
Fullyrti Ólafur að glímuiðkend-
um færi sifellt fækkandi í land-
inu og kvað hann glimu nú að-
eins iðkaða á fjórum stöðum á
landinu, í Reykjavik, Suður-
Þingeyjarsýslu og tveimur stöð-
um á Austurlandi. Annars stað-
ar væri glíma ekki iðkuð og
væri hún t.d. nánast horfin af
Suðurlandi, þar sem hún stóð
með hvað mestum blóma fyrir
fáeinum árum. Gliman hefði
séð sinn fifil fegri og lægju
margar ástæður að baki, en að-
allega hörð samkeppni við hóp-
iþróttir, sem Ólafur kvað miklu
auðlærðari og gæfu auk þess
iðkendum sinum miklu fyrr
tækifæri til þess að taka þátt í
keppni.
Ólafur sagði að Glimu-
samband íslands hefði reynt að
spyrna við fótum m.a. með þvi
að senda glimukennara út um
land til að útbreiða glímuna.
Hefði orðið af þessu góðan
árangur sums staðar en litill
annars staðar, fyrst og fremst
vegna þess að heima í héruðum
hefði ekki verið til menn til að
taka upp þráðinn, þar sem
kennarinn sleppti honum. Og
sú beizka staðreynd hefði kom-
ið í ljós, að íþróttakennarar
skólanna hefðu ekki treyst sér
til glimukennslu og börið við
kunnáttuleysi. Glíman yrði þvi
minningin ein fyrir piltana,
þegar sendikennari Glimusam-
bandsins færi. Væri því brýnt,
að glímunni yrði gert mun betri
skil í íþróttakennaraskóla ís-
lands en verið hefði. Einnig
væri brýnt að afla fjármagns til
glimustarfseminnar í landinu.
Að lokum sagði Ólafur H.
Óskarsson: „Því heiti ég á alla
þá, sem hér eru samankomnir
að veita glimunni það brautar-
gengi, sem henni ber, sem
merkilegri menningararfleið ís-
lenzku þjóðarinnar og frábærri
iþróttagrein."
—SS.
Elías 1,70 m í hástökki án atrennu
ELÍAS Sveinsson KR náði mjög góð-
um árangri í hástökki án atrennu á
móti í sjónvarpssai um helgina er
hann stökk 1.70 metra. Bætti Elías
fyrri árangur sinn um 2 sm, og virtist
fara vel yfir þessa hæð, og jafnvel
vera I formi til að ógna íslandsmet-
inu I greininni, en það er í eigu
kappanna Vilhjálms Einarssonar og
Jóns Þ. Ólafssonar ÍR. Lét Elías þó
hækka úr 1.70 í 1.80 sm, en hann
var langt frá að fara þá hæð.
Lyftingamaðurinn Gústaf Agnars
son KR sigraði í langstökki án at
rennu á sama móti með 3.25 m og er
það góður árangur. Elías stökk jafn-
langt, en næst bezta stökk hans var
lakara en næst bezta stökk Gústafs,
sem þar með var sigurvegari.