Morgunblaðið - 23.02.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1977
5
Klukkan 19.35: -
N ý viðhorf í
efnahagsmálum
íslendinga
í kvöld klukkan 19.35
flytur Kristján Friðriksson
fyrsta erindi sitt af þremur
í erindaflokki, er hann
nefnir: Ný viðhorf í efna-
hagsmálum íslendinga.
Fyrsta erindið heitir:
Breyttar aðstæður í líf-
keðjunni við fsland.
í þessu erindi gerir
Kristján grein fyrir
kenningu sinni um
skýringu á hinu algjöra
fiskleysi, sem stundum
varð á íslandsmiðum fyrr á
öldum. Kristján hefur
kannað gamlar heimildir
er greina frá fiskgengd við
ísland og gert línurit, þar
er það, sem sést hér á
meðfylgjandi mynd. Línu-
rit þetta sýnir sveiflur
þær, sem urðu í fisk-
veiðunum frá 1640 til 1900.
Kristján Friðriksson
telur sig hafa fundið
skýringu á fiskleysinu og
kvað það ráðlegt fyrir þá er
Kristján Friðriksson
á þætti hans hlusta, að þeir
hefðu línuritið við
höndina. Næsta erindi
Kristjáns í þessum flokki
verður flutt 9. marz og
nefnist það Sextfu
milljarða tekjuauki í
þjóðarbúið
ARj:
...Mjj.&aj'.HKíi.i..,.
.......
..........
..ádlikW............
** i'O 76 $6 90 10 xó fO SO 66 76 80 00 W XO 60 4«? 30 60 70 90
IM* 1700 >»°0 1900
Hann er svo ljóðrænn,“
segir hún hlæjandi og
bætir við: „Og látlaus um
leið.
Nei, ég hef nú lítið gert
af því að syngja á sviði.
Eins og ég sagði hér fyrr,
þá er ég ekki óperusöng-
kona. En fyrir svona átta
til tíu árum var gerð til-
raun með að setja þætti úr
óperum á svið í Lindarbæ,
undir stjór Ragnars
Björnssonar og þar söng
ég. Þetta var tilraun og i
sjálfu sér ágæt leið til að
flytja óperur á ódýran
hátt.
Jú, það vilja allir söng-
varar, held ég, syngja á
sviði. En það er bara svo
lítiða að gera og oft ekki
sviðsett meira en ein ópera
á ári og þá oft sömu
söngvararnir, sem verða
fyrir valinu.
Ég hef gert þó nokkuð af
því að taka nemendur í
einkakennslu svo og hef ég
kennt við barnaskólann
Schubert
hér í Mosfellssveit. Annars
er ég húsmóðir og á tvö
börn á unglingsaldri,
þannir að nóg er að gera.
Þess utan erum við hjónin
með mikla garðrækt, bæði
innan húss og utan.
Jú, jú ég hef sungið alla
tíð. Alveg síðan ég var smá-
stelpa, enda ólst ég upp í
músík á æskuheimili mínu
á Brúarlandi hér i
Mosfellssveit. Móðurbróðir
minn er Ólafur
Magnússon, söngvari, og
föðursystir mín var þekkt
söngkona hér í eina tíð,
hún heiti Jóhanna
Jóhannsdóttir Johnsen.
t
Austur-þýzka
ritskoðunin
ÞESS var getið I Morgunblað-
inu I gær að austur-þýzka
ritskoðunin hefði endursent
bréf Jóhanns H jálmarssonar til
Reiners Kunze. Vegna þess hve
myndin af umslaginu prentað-
ist illa I blaðinu i gær birtum
við mvndina aftur.
Eins og sagði I blaðinu í gær
hafði bréfið verið rifið upp af
ríkisritskoðuninni og hún síðan
limt umslagið aftur, krotað yfir
heimilisfangið framan á því og
límt á það miða, þar sem stóð:
„Endursendið: Innihaldið brýt-
ur gegn grein 1.1.1. á lista yfir
„Bannaða hluti“. Inni i umslag-
inu voru nokkrar úrklippur úr
Morgunblaðinu með greinum
um viðtakandann, Reiner
Kunze, austur-þýzka skáldið,
sem rekið var úr rithöfunda-
sambandi Austur-Þýzkalands í
nóvember siðastliðnum.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu i gær hafði Jóhann
Hjálmarsson sent bréfið I
ábyrgðarpósti til þess að það
týndist ekki. Því var það endur-
sent, ella hefði póstþjónustan
orðið skaðabótaskyld fyrir
hvarfi bréfsins. Þess má geta,
að áletrunin á miðanum, sem
tilkynnir, að bréfið skuli endur-
sent er bæði á þýzku og
frönsku.
A 0 19 21 h 3
i
Zuruck!
R e t o u r i
?e..
ty 2 u
Listaukandi...
Til að veita listamönnum þjððarinnar
enn betri þjónustu, höfum við opnað
myndlistarhorn í verzlun okkar á
Laugavegi 84.
Myndlistarhornin eru því orðin tvó,
í Hallarmúla og nú einnig á Laugavegi 84.
Ath. ef þer
óskið eftir
litum í
magnpakkningum
sórpöntum við
þá fyri.r yður.
CHEEEÞ-
LAUGAVEGI 84
HALLARMÚLA 2
í fleiri horn að líta.