Morgunblaðið - 23.02.1977, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRUAR 1977
jrrr
i
1
íhugunarverð
getgáta
t umræðu á Alþingi
um atvinnulýðræði lét
Eðvarð Sigurðsson, for-
maður Dagsbrúnar, f
Ijðs þá skoðun, að milli
60 og 70% fyrirtækja og
stofnana, sem veittu at-
vinnu f landinu, væru f
höndum rfkis, sveitar-
félaga eða samvinnu-
félaga. Þetta væri
stórum hærra hlutfall
en tfðkaðist f nágranna-
rfkjum.
í blönduðu þjóðfélagi
sem okkar er það ekki
ný frétt, að rekstrar-
form fyrirtækja séu
með ýmsum hætti. Og
vissulega geta aðstæður
réttlætt opinberan
rekstur, ef hann starfar
á heiðarlegum jafn-
keppnisgrundvelli við
einkarekstur. Hins veg-
ar er það stór spurning,
hvort einkarekstur býr
við slfka^afnkeppnisað-
stöðu. t fyrsta lagi er
stofnkostnaður rfkis- og
bæjarrekinna fyrir-
tækja yfirleitt greiddur
að verulegum hluta af
almannafé, þeim at-
vinnutekjum borgar-
anna, sem skattheimtan
tekur til sfn. t öðru lagi
fá þessi fyrirtæki, mörg
hver,' rekstrarframlög
af skattpeningum
borgaranna. Þann veg
hefur t.d. rekstrar-
fjárstyrkt bæjarútgerð
aðra aðstöðu en einka-
aðili f útgerð, einkum
þegar þess er gætt, að
skattakerfið kemur f
heildina litið mun
þyngra niður á einka-
framtaki heldur en
opinberum rekstri, sem
er undanþeginn ýmsum
kvöðum samneyzlu-
tfundar þjóðfélagsins.
Almenningur
og atvinnu-
reksturinn
Hér á landi hefur
einkarekstur jafnan
verið litinn vissu horn-
auga. Hagkvæmni og
hygginda gætir þó mun
frekar f slfkum rekstri,
af eðlilegum ástæðum,
en þeim, sem sótt getur
hugsanlegt tap sitt f
vasa borgaranna. 1 stað
þess að búa þann veg f
haginn, að hinn al-
menni borgari sjái hag
sinn f þvf að setja spari-
fé sitt á eðlilega vexti
(arðsemi) f atvinnu-
rekstri, t.d. með hluta-
bréfakaupum, útilokar
löggjafinn með skatt-
kerfi sfnu arðsemi f
ýmsum þáttum atvinnu-
rekstrar. Svokallað
„efnahagslegt" lýðræði
yrði þó „virkara" ef
hinn almenni borgari
teldi sér hag f eign af
því tagi, sem hér hefur
verið gerð að umræðu-
efni. Hvern veg væri
t.d. að opna ýmis rfkis-
eða bæjarrekin fyrir-
tæki fyrir raunveru-
legri almannaeign, þ.e.
hlutafjáraðild hins af-
menna borgara?
Margur maðurinn kysi
áreiðanlega heldur að
verja þeim hluta skatt-
greiðslna sinna, sem
gengur f raun f slfk
fyrirtæki, f eigin hluta-
fjáreign. Og almennur
skilningur á nauðsyn at-
vinnurekstrar, eðli
hans og vanda myndi án
efa aukast með slfkri
tilhögun.
Mismunandi
rekstrarform
Mismunandi rekstrar-
form, sem starfa á jafn-
keppnisgrundvelli, geta
skapað heilbrigða sam-
keppni. Hér er þvf ekki
sett fram sjónarmið,
sem felur f sér neins
konar útilokun eins
rekstrarforms eða for-
réttindi annars. Þvert á
móti er þess krafizt, að
mál verði þróuð I þá átt,
að samkeppnin fari
fram á heiðarlegum
jafnkeppnisgrundvelli.
Vel rekið fyrirtæki,
sem skilar eðlilegum
arði til eigenda sinna og
til að standa undir eðli-
legum vexti atvinnulffs-
ins (atvinnuöryggi) og
batnandi lífskjörum
landsmanna, á að vera
keppikefli, ekki „arð-
ránsgrýla“ eins og
alltof oft vill verða,
vegna áróðurs vinstri
afla f þjóðfélaginu.
Við höfum vftin til
varnaðar, allt f kringum
okkur, þar sem atvinnu-
rekstur hefur skroppið
saman, og atvinnuleysi
er þjóðfélagsböl, sem
milljónir manna þurfa
við að búa. Við þurfum
að draga rétta lærdóma
af þessari þróun, ef við
eigum ekki að lenda f
sömu súpunni. Forsend-
an fyrir því að það tak-
ist er að almannavið-
horf til eðlilegs og heil-
brigðs atvinnurekstrar
breytist hér á landi,
þann veg, að við byggj-
um upp en brjótum
ekki niður það, sem
verðmætasköpun og
framtfðarvelmegun f
landinu byggist á. t þvf
efni sem fleirum er
ekki ráð nema f tfma sé
tekið.
VARAHLUtii
SMURSTÖO
bílagler
bilamálun
Fyllum upp s/itna málmfleti
og slípum þá sfðan í upphaflegt má/.
Fyllum með:
0 Stáli af mismunandi hörkustigum.
0 Ryðfríu stá/i.
0 Kopar.
15 ára reynsla
/ ásprautun á alls konar öxla,
bæði í bí/a, vinnuvé/ar, báta og skip.
EF ÞAÐ ER FRETT-
fh y MORGUNBLAÐINU ak;lýsin(;a- SÍMINN ER:
22480
Er byrjuð með
megrunarkúrana aftur
Vil vekja sérstaka athygli á 1 0 tirr.a megrunarkúrum.
Megrunarnudd, partanudd og afslöppunarnudd.
Nudd — sauna — mælingar — vigtun — matseðill
Nudd- og snyrtistofa,
Astu Baldvinsdóttur,
Hrauntungu 85 Kópavogi
Opið til kl. 10 öll kvöld
Bílastæði, Sími 40609.
FLUGMALAFELAG ISLANDS
Almennur fundur
um flugvallamál
verður haldin í ráðstefnusal Hótel Loftleiða í
kvöld kl. 20:30.
Frummælendur: GuðmundurG. Þórarinsson
Leifur Magnússon
Á eftir verða hringborðsumræður undir stjórn
Ómars Ragnarssonar.
Allir velkomnir. „ ..
Stjórnin.
LYSTADÚN húsgagnasvampurinn.
WONUSTÍAN
Svampurinn veitir
nánast fullkomið
hugmyndafrelsi í hönnun.
Svampurinn er ódýrt efni.
malmfylling
Komdu með hugmyndir
þínar. Við bendum þér á
hvernig hagkvæmast og
ódýrast verður að útfæra
hafir þú enga hugmynd
þá komdu samt. Við
höfum nokkrar sem
gætu hentað þér.
Áklæði bjóðum við líka, t.d.
hagstæðu verði. Þú getur svo saumað, eða við,;