Morgunblaðið - 23.02.1977, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.02.1977, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1977 11 Sigmundur Brestisson med rif ið íEyjum FÆREYSKA loðnu skipið Sigmundur Brest- isson frá Vestmanna sigldi frá Vestmannaeyj- um í gær eftir sðlar- hrings dvöl, en nðt Brestisverja rifnaði illa í kasti á miðunum við Ingðlfshöfða aðfararnðtt sunnudags. Var Sig- mundur þá að kasta f fyrsta sinn í öðrum túr sínum á íslandsmið, en I fyrri túrnum fengu þeir 780 tonn. Loðnuskipin færeysku landa flest í Fuglafirði en þar er nú viku löndunarbið. Sigurgeir fréttaritari Mbl. í Eyjum ræddi við Leiv Olsen skipstjóra á Sigmundi Brestissyni í gær. Leivur sagði að þeir hefðu verið 19 tíma á miðin frá Færeyjum, en Sigmundur Brestisson i Fridarhöfninni i Eyjum. Helgafell i fjarska. Leivur skipstjóri á Sigmundur Brestissyni, til hægri, með föður sfnum Edvin Olsen, kokki á Sigmundi. Ljósmyndir Mbi. siBurpidr. fyrir kg í fyrsta túrnum fengu þeir 43 aura fær- eyska eða 13 kr. 76 aura ísl., en hins vegar kvað Leivur sennilegt að verðið yrði lægra eftir þennan túr, eða 38 aurar færeyskir, sem eru jafn- virði 12 kr. og 16 aura fsl. Þegar fréttamaður Mbl. kom í brú Sigmund- ar, var Leivur þar ásamt föður sínum, Eldvin, en hann er kokkur á skip- inu. Sá hafði oft áður komið til Vestmannaeyja á skútum fyrrum, en Leivur hafði einu sinni áður komið þangað á Vestmanna 2. 17 karlar eru á Sig- mundi, en skipið er að mestu gert út á nótaveiði, síld, makríl óg kolmunna. Þeir fóru á loónu- veiðarnar af kolmunna- veiðum, en þar höfðu þeir fengið 600 tonn á rúmum tveimur mánuð- um. Fyrir kg af kol- munna fengu þeir 40 aura færeyska. Leivur sagðist telja að þeir kæmust í 3—4 túra alls á loðnuveiðunum áður en kvótinn, 25 þús. tonn, fylltist. Loðnan sem færeysku skipin veiða fer öll i bræðslu. Fellahellir helgaður baráttu gegn reykingum FELLAIIELLIR, dagskrárblað samnefndrar félagsmiðstöðvar Æskulýðsráðs Reykjavfkur I Breiðholtshverfi er komin út. Er hér um að ræða 1. tölublað fjórða árgangs, og er blaðið að þessu sinni helgað baráttunni gegn reykingum. Sem kunnugt er hefur Krabbameinsfélag Reykjavíkur gengist fyrir umfangsmiklu fræðslustarfi I skólum um skað- semi reykinga að undanförnu. í blaðinu greinir forstöðumaður Fellahellis, Valur St. Þórarins- son, frá margvíslegu fræðslu- starfi um skaðsemi reykinga, sem farið hefur fram innan veggja Fellahellis og segir m.a.: „í .nóvember sl. gekkst hópur unglinga fyrir dagskrá um skaðsemi reykinga. Á þessum fundi samþykktu allir viðstadd- ir, um 200 unglingar, að reyk- ingar skyldu bannaðar í Fella- helli nema i anddyri. Þetta sama kvöld mynduðu 16 ung- lingar starfshóp með það að markmiði að hætta að reykja. Strax á fyrsta fundi-þessa hóps var tekin ákvörðun um að setja markmiðið hærra. Undirbún- ingur að fræðslusýningu um skaðsemi reykinga hófst jafn- framt því sem haldið var uppi stöðugum áróðri gegn reyking- um.“ Þá gerir Valur að umtalsefni árangur þess starfs, sem ung- lingarnir I Fellahelli hafa unn- ið og segir að tvennt beri þar hæst. 1 fyrsta lagi sýningu sem nú hangi uppi I kaffiterlu Fellahellis og I öðru lagi sí- stækkandi hóp unglinga sem minnkað hafi reykingar til muna eða hætt alveg. Að slð- ustu segir Valur: „Én þessi bar- átta er til einskis án stuðnings heimilanna. Reyklaus Fella- hellir er ekki allt. Reyklaus heimili og reyklaust land er markmiðið. Starfshópurinn hefur tekið saman efni þessa tölublaðs Fellahellis í trausti þess að það opni augu ein- hverra og hVetji þá til umhugs- unar um þessi mál.“ Blaðinu Fellahelli var dreift i allar ibúðir i Breiðholti III um sið- ustu helgi. Er Óðalsosturinn þinn holóttur? Ef ekki, þá er eitthvað að. Óðalsostur er nefni- Og hefur þú lega íslenska afbrigðið af nokkurntíma heyrt um hinum fræga svissneska nokkuð jafn holótt og Emmenthaler osti. svissneskan ost?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.