Morgunblaðið - 23.02.1977, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRUAR 1977
13
Háskólakórinn
Háskólakórinn
sveiflu. Textaframburóur er
alveg sérstaklega skýr og góöur
og má þar glöggt merkja fag-
mannslegt handbragð stjórn-
andans. Jafnvægi er í flestum
tilvikum gott-milli radda, og
meðferðin á viðfangsefnunum
bæði músíkölsk og kúltiveruð.
Að vísu virtist gæta nokkurrar
þreytu í söng kórsins í upphafi,
sem raunar hvarf er á leið, og
konsertinn var í heild vel-
heppnaður og skemmtilegur.
Ekki er ástæða til að minnast á
eitt lagið öðru fremur í þessum
pistli. Sami gæðastimpillinn
var á þeim öllum hvað viðkem-
ur söng kórsins. Undirritaður
hefur ekki heyrt Háskóla-
kórinn betri i annan tima. Sem
fyrr segir er kórinn á förum til
Skotlands innan skamms.
Héðan fylgja honum bestu ósk-
ir um ánægjulega og árangurs-
rika för.
Félagsstofnun stúdenta 21.
febr. 1977.
Flytjendur: Iláskólakórinn.
Stjórnandi: Rut L. Magnússon.
Efnisskrá: Flutt voru fslensk
og erlend lög, eftir ýmsa höf-
unda. —
Háskólakórinn hélt tónleika í
Félagsstofnun stúdenta á
mánudagskvöldið og söng
íslensk og erlend lög eftir ýmsa
höfunda. Kórinn er senn á för-
um til Skotlands og mun syngja
þar á nokkrum stöðum. Þunga-
miðja efnisskrárinnar voru
islensk kórverk eftir þá Róbert
A. Ottósson, Gunnar Reyni
Sveinsson, Atla Heimi Sveins-
son og Jón Ásgeirsson, en auk
þess erlend þjóðlög, negrasálm-
ar og íslensk þjöðlög I raddsetn-
ingu Jóns, sem margar hverjar
eru mjög góðar. Er skemmst frá
þvi að segja, að framfarir kórs-
Tónllst
eftir EGIL
FRIÐLEIFSSON
ins eru ótrúlega miklar á
skömmum tima. Stjórnandinn,
Rut L. Magnússon, hefur unnið
gott starf og tekist að aga
kórinn svo vel, að sérstök
ánægja er á að hlýða. Hjá henni
fer saman hæfni og kunnátta og
árangurinn lætur ekki á sér
standa, þegar jafn mikil alúð er
lögð í æfingar og að undan-
förnu. Hljómur kórsins er
fágaður og blæbrigðaríkur og
býr yfir þó nokkri dynamiskri
Eftirminnilegir tónleikar:
Messiaen-tónleikar
Kammersveitar Rvíkur
Þegar flestir borgarbúa nutu
góða' veðursins s.l. sunnudag
uppi til fjalla, komu nokkrir
tónlistarunnendur saman í Bú-
staðakirkju til að hlýða á frum-
flutning hérlendis á „Kvartett
um endalok t(mans“ eftir
Olivier Messiaen. Óþarft er að
fara orðum um þetta verk, þar
sem grein um það birtist hér í
blaðinu eftir undirritaðan s.l.
laugardag. Þótt þeir, sem tón-
leikana sóttu, hafi misst af
hollri útivist i góða veðrinu i
eina klukkustund eða svo, urðu
þeir ekki siður aðnjótandi þess,
þ.e.a.s. hinna listrænu áhrifa
þess innan kirkjudyra, þvi að
geislar sólarinnar myndurðu
fagran bakgrunn fyrir flutning
þessa merkilega verks með alis
kyns litaspili á veggjum og alt-
ari kirkjunnar.
Flutningur verksins var
framúrskarandi góður. Þorkell
Sigurbjörnsson reyndist hinn
öruggi, alhliða tónlistarmaður,
sem lék af skilningi tónskálds-
ins allar tæknilegar og ritmísk-
ar þrautir þessa þrælerfiða
verks og af talsverðum tilþrif-
um og fallegum blæbrigðum
píanþleikarans. Gunnar
Egilson sýndi hér á sér fleiri
hliðar en við höfum kynnst hjá
honum áður. í hinu níðþunga
„Hyldýpi fuglanna“ fyrir ein-
leiksklarínett kom skýrt í ljós
vald Gunnars yfir hljóðfæri
sínu. Eftirminnileg eru mikil
blæbrigði alls konar, langir tón-
ar úr svo veikum styrkleika að
nánast voru óheyranlegir yfir í
mesta styrkleika, sem hljóðfær-
ið býr yfir, og tónhendingar í
löngum stökkum endurteknar í
mismunandi styrkleika. í ,,Lof-
Tónllst
eftir HALLDÓR
HARALDSSON
söng til eilifðar Jesú“ kynnt-
umst við afbragðs góðum leik
hinnar bandarísku Ninu Flyer,
cellóleikara. Hún nær fallegum
tón úr hljóðfæri sínu, bæði fín-
legum en um leið gæddum mik-
illi festu og öryggi. í þessum
þætti fær cellóleikarinn tæki-
færi til að sýna blæbrigði i tón-
myndun og mismunandi styrk-
leika, en allt þetta notaði Nina
sér til hins ýtrasta ásamt lif-
andi meðferð, sem verður til á
augnabliki túlkunarinnar.
Sams konar tækifæri fékk Rut
Ingólfsdóttir í lokaþættinum,
„Lofsöng til ódauðleika Jesú“.
Hér sýndi Rut frábæra með-
ferð, tónmyndun hennar og
mótun langra tónhendinga var
hér bæði fíngerð, en um leið
þrungin spennu og festu. Þessi
lokaþáttur er eins konar mót-
partur einleiksþáttarins fyrir
celló og blönduðust þessir eigin
leikar Rutar þyi mjög vel leik
Ninu Flyer. Fór leikur þeirra
oft mjög vel saman, t.d. I 2.
þætti. í 6. þætti reyndi sérstak-
lega á samleik allra hljóðfær-
anna, þar sem þau leika sömu
laglínuna mjög hratt i afar
flóknu hljóðfalli. En allt slikt
hljómar svo eðlilega í verkum
Messiaens, að áheyrandinn ger-
ir sér vart grein fyrir, hve erfið-
ir þessir kaflar eru. Allar þess-
ar þrautir vinnast ekki nema
með mikilli vinnu og var aðdá-
anlegt að heyra, hve vel þeim
tókst að valda þessum þáttum,
því að allt er þetta fólk hlaðið
öðrum tónlistarstörfum og lítill
tími til æfinga. En það sem
mest var um vert á sunnudag
var, að þá gerðist það, sem mik-
il æfing ein getur þó aldrei
tryggt — það myndaðist hið
„rétta andrúmsloft", stemning,
sem gerði þessa stund ógleym-
anlega. Verðugt lófaklapp í lok
tónleikanna virkaði þvi heldur
annarlega.
Við áheyrn þessa verks komu
berlega i ljós yfirburðir Mess-
ianes sem tónskálds, þegar haft
er I huga ýmislegt annað i
heimi samtiðartónlista. Hér
heyrum við ýmsum áhrifa-
meðulum beitt, en á slikan hátt,
að þau verða eðlilegur hluti af
heildinni og gefa henni vissan
ferskleika. Hér fer saman þekk-
ing, kunnátta, reynsla og inn-
blástur, þannig að hvert einasta
augnablik verksins heldur at-
hygli hlustandans vakandi. Þar
að auki gefur þessi tónlist
áheyrandanum þetta „eitt-
hvað“, sem vantar svo tilfinn-
anlega í mörg verk nú á dögum.
Vegna allra þeirra, sem
misstu af þessum tónleikum,
sem sannarlega má nefna list-
viðburð — þeir standa hrein-
lega upp úr sem eftirminnileg-
ustu tónleikar hér i seinni tið
— vil ég skora á hina ágætu
flytjendur og Kammersveit
Reykjavíkur að endurtaka
þetta merka verk við fyrsta
tækifæri, þ.e. nú i vor.
Náttúruverndarfélag Suðvesturlands:
Aðalfundur álykt-
ar vegna álversins
1 Straumsvík
Á AÐALFUNDI Náttúruverndar-
félags Suðvesturlands sem
haldinn var 16. þ.m. I Norræna
húsinu vo'ru eftirfarandi ályktan-
ir og greinargerð samþykkt:
Alyktanir
1) Fundurinn telur efndir um
varnir gegn mengun frá álverinu
i Straumsvík og frágang þar yfir-
leitt óþolandi ástand og raunar
vítavert gáleysi og svik á marg-
gefnum fyrirheitum ISALs.
2) Fundurinn álitur allar
umræður og hugsanlegar
ákvarðanir um stækkun álversins
I Straumsvik ótimabærar meðan
ekki er staðið við gefin fyrirheit
um varnir gegn mengun og um
hreinlæti á núverandi stigi fram-
leiðslunnar.
3) Fundurinn lýsir yfir stuðn-
ingi við heilbrigðisyfirvöld í
Hafnarfirði í þessu máli, sem
vissulega skiptir Hafnfirðinga
miklu, starfsfólkið i álverinu og
einnig aðra Suðurnesjabúa og
þjóðina alla I ljósi hugsanlegrar
framvindu svonefndrar stóriðju i
landinu.
4) Fundurinn beinir því til
landsmanna, ráðamanna sem ann-
arra, að fara sér hægt i þessum
efnum og kynna sér vel af eigin
raun álverið í Straumsvik og um-
hverfi þess áður en ákvarðanir
eru teknar um nýjar framkvæmd-
ir úti um landið.
Greinargerð
Ljóst er að áhrifa flúors frá
Álverinu í Straúmsvik á um-
hverfið gætir í auknum mæli og
meir en gert var ráð fyrir. Gildir
þetta einkum fyrir mosa, tré og
skepnur í næsta nágrenni við
verksmiðjuna og fyrir tré í nær-
liggjandi byggðarlögum eins og
Hafnarfirði og allt til Reykjavik-
ur. Hreinlæti innanhúss og við
álverið er einnig mjög ábótavant
m.a. vegna ryks frá verinu sjálfu
og frá uppskipun á hráefni.
Stafar þetta af þvi að útbúnað
skortir til að hefta útbreiðslu
ryksins (kerbrot, álgjall, sót,
súrál).
Ef ekki er unnt að standa betur
að vörnum gegn mengun í
Straumsvík en raun ber vitni, þá
er það lágmarkskrafa að látið sé
af marklausum loforðum þar um
og það viðurkennt af viðkomandi
aðilum. Sé aftur unnt að bæta úr
með mengunina þá má ekki
lengur þar við sitja. Heilbrigðis-
yfirvöld í Hafnarfirði hafa á
undanförnum árum hvað eftir
annað áréttað þessi sjónarmið, og
Framhald á bls 30
NÝTT og vistlegt bakarf var opnað f Suðurveri f siðustu viku og heitir
það Bakarameistarinn. Það eru þeir Sigurþór Sigurjónsson og Jóhann-
es Björnsson sem reka þetta fyrirtæki, en báðir hafa þeir áður verið
með slfkan rekstur, Sigþór með Laugarásbakarf og Jóhannes með
bakarfið að Álfheimum 6 ásamt örðum. Á boðstólnum verða aliar
hugsanlegar og óhugsanlegar köku- og brauðtegundir eins og Sigþór
orðaði það f rabbi við Morgunblaðið.
Myndin er af Sigþóri (t.v.) og Jóhannesi í nýja bakarfinu.
Háskólafyrirlestur.
Ulla Petterson félagsfra^ingur við háskólann i Stokkhólmi flytur
opinberan fyrirlestur í stofu 201, Árnagarði fimmtudaginn 24. febrúar
klukkan 20.30 eh.
Fyrirlesturinn nefnist:
„AKTUELLA UTVECKLINGSTRENDRE INOM
SVENSK SOCIALPOLITIK/*
Ailir veikomnir Félagsvísindadeild
Háskóla islands.