Morgunblaðið - 23.02.1977, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1977
U.M.F. Skalla-
grímur í Borg-
arnesi 60 ára
Ungmennafélagið Skallagrlm-
ur f Borgarnesi varð 60 ára 3.
desember sl. og verður afmælis-
ins minnzt með sérstakri sam-
komu i kvöld, öskudag, i sam-
komuhúsinu I Borgarnesi. Félag-
ið var stofnað 1916 og var fyrsti
formaður þess Þórður Ólafsson
en með honum 1 stjórn voru
Björn Skúlason og Þórður
Eyjólfsson. Arið 1925 gekk félag-
ið f Ungmennasamband Borgar-
Jötunn að
losna á
Laugalandi
Akureyri, 22. febrúar
NU cru taldar góðar horfur á að
takast muni að losa jarðborinn
Jötun í nótt, að því er starfsmcnn
við horunina á Laugalandi
upplýstu í kvöld. Þó vildu þeir
ekki beinlínis gefa fyrirheit um
árangur, en töldu Ifkurnar yfir-
gnæfandi. Búið er að bora til
botns utan með borstöngunum,
en eftir að losa þær og ná þcim
upp. Klukkan eitt eftir hádegi á
morgun verða liðnar þrjár vikur
réttar sfðan borinn festist.
Hvernig sem til tekst f nótt eða á
morgun mun horholan að
Ifkindum verða nýtanleg.
Eftir að bornum hefur verið
náð upp verður gert hlé á borun í
einn eða tvo daga meðan holan
verður mæld og farið verður yfir
borstengur og önnur tæki með
gegnumlýsingartækjum í leit að
hugsanlegum brestum. Þessu
verki er nauðsynlegt að Ijúka
áður en tækin verða sett niður i
holuna aftur til áframhaldandi
borunar. Menn frá Siglingamála-
stofnun ríkisins munu annast
gegnumlýsingu tækjanna. Það
hefur verið venja að hafa þennan
hátt á eftir að lokið hefur verið
við að bora hverja einstaka holu
og árangurinn er sá að engin bor-
stöng hefur brotnað í stóru
borunum síðustu tvö árin.
Sv.P.
Enska
* knatt-
spyrnan
Aston Villa
í úrslitin
ASTON VILLA tryggði sér rétt-
inn til að leika I úrslitum ensku
deildarbikarkeppninnar gegn
Everton 12. marz nk. er liðið sigr-
aði Queens Park Rangers 3:0 í
gærkveldi. Brian Little skoraði
öll mörk Aston Villa og var
varnarleikur QPR með afbrigðum
slakur f þessum leik, sem þó fór
fram á heimavelli liðsins. Er
þetta f fimmta skipti, sem Aston
Villa leikur f úrslitum þessarar
keppni og hefur ekkert lið verið
eins oft í úrslitunum.
Sunderland, sem berst
hatrammri baráttu á botni 1.
deildarinnar, gerði sér lítið fyrir i
gærkvöldi og sigraði West
Bromwich Albion með 6 mörkum
gegn 1. í sfðasta leik Sunderland,
sem var á laugardaginn, skoraði
liðið 4 mörk, svo eitthvað virðist
vera að rofa til hjá liðinu. Tvö lið
eru nú fyrir neðan Sunderland,
Tottenham og West Ham, en bæði
þau lið hafa leikið tveimur leik-
um færra.
í Skotlandi hélt Celtic áfram
sigurgöngu sinni og vann Partick
Thistle með 4 mörkum gegn 2 og
hefur liðið nú 7 stiga forystu f
úrvalsdeildinni skozku.
fjarðar en félagið hefur á liðnum
árum beitt sér fyrir margvfslegri
menningarstarfsemi f Borgarnesi
og einkum sinnt leiklistar- og
fþróttamálum.
Skallagrfmur stóð á árinu 1932
fyrir byggingu gamla samkomu-
hússins f Borgarnesi og félagar
Skallagríms stóðu fyrir byggingu
fþróttavallar í Borgarnesi. Enn-
fremur hafði félagið forgöngu um
framkvæmdir við grasagarðinn f
Borgarnesi — Skallagrfmsgarð.
Núverandi stjórn Skallagríms
skipa Einar Thorvaldsson, for-
maður, og meðstjórnendur eru
Sigþrúður Sigurðardóttir, Karitas
Harðardóttir, Rúnar Viktorsson
og Trausti Jóhannsson.
— Saltpéturs-
sýruverksmiðja
Framhald af bls. 2
Fram kom hjá Runólfi að með
tilkomu saltpéturssýruverksmiðj-
unnar mætti fullnýta þann áfanga
Áburðarverksmiðjunnar, sem
reistur var 1972 til framleiðslu á
blönduðum áburði. Köfnunarefni
til saltpéturssýruframleiðslunnar
yrði hins vegar að flytja inn þar
til sú amoníakverksmiðja, sem
rætt væri um að reisa, yrði byggð.
Ódýrara væri þó að flytja
köfnunarefnið inn í formi
amonfaks heldur en í formi tilbú-
ins áburðar eins og nú er gert.
Sagði Runólfur að ef ákveðið yrði
að byggja þessa saltpéturssýru-
verksmiðju ykist saltpéturssýru-
framleiðsla i landinu strax um
50% á ársgrundvelli og með
henni mætti lækka framleiðslu-
kostnað á innlendum áburði og
einnig yrði íslendingar óháðari
verði á áburðartegundum á er-
lendum mörkuðum og innflutn-
ingur á tilbúnum áburði yrði nær
algjörlega úr sögunni næstu 10 til
15 árin.
— Fullkomin
hreinsitæki
Framhald af bls. 32.
tryggja bæði fjármagn f stækkun-
ina og markað fyrir viðbótarfram-
leiðsluna.
Fram kemur ennfremur í
fréttatilkynnngunni að af hálfu
íslenzku fulltrúanna í viðræðun-
um hafi þetta ekki verið talið
brjóta í bága við gildandi samn-
inga, enda yrði svo frá gengið, að
engar breytingar yrðu á fram-
kvæmd þeirra. Væri því væntan-
lega unnt að samþykkja þessar
fyrirætlanir, enda reyndist unnt
að leysa hinar lagalegu hliðar
málsins, en í tilkynningunni segir
að um það atriði verði sérstaklega
fjallað á fundi lögfræðinga
beggja aðila í næsta mánuði.
Ennfremur var á fundinum
rætt um að teknar yrðu upp fljót-
lega viðræður um hugsanlega
byggingu þriðja kerskálans í
Straumsvfk, er ljúka mætti um
það leyti sem Hrauneyjafossvirkj-
un yrði tekin f notkun á árinu
1981, en ekki var talið tfmabært
að ræða þetta mál efnislega á
fundinum, að þvf er segir í frétta-
tilkynningu iðnaðarráðuneytis-
ins.
Morgunblaðið sneri sér til
Jóhannesar Nordal, sem þátt tók í
viðræðunum fyrir íslands hönd,
og spurðist fyrir um það hvort
ákveðið væri hvaða fyrirtæki
Alusuisse hygðist reyna að semja
við hlutdeild í Isal. Hann kvað svo
ekki vera heldur væri verið að
kanna fleiri en einn möguleika í
þvf efni, en markmiðið með þessu
væri að fá fyrirtæki til að gerast
minnihlutaeigandi í ISAL gegn
því að það vildi bæði leggja til
fjármagn í stækkunina og taka
við verulegum hluta framleiðsl-
unnar.
— Uppreisn í
her Amins
Framhald af bls. 1.
af Uganda og tveggja Ugandaráð-
herra.
I Washington fordæmdi utan-
ríkismálanefnd öldungadeildar
Bandarfkjaþings Ugandastjórn
harðlega í kjölfar dauða erki-
biskupsins og ráðherranna.
Nefndin skoraði á önnur ríki að
stöðva vopnasendingar til Uganda
og hvatti til rannsóknar á vegum
SÞ á dauða mannanna.
í Nairobi bað Burgess Carr,
aðalritari alafriska kirkjuráðsins
(AACC), Amin forseta um leyfi
til þess að lík erkibiskupsins og
ráðherranna yrðu grafin upp og
að erlendir sérfræðingar rannsök-
uðu þau.
William Tolbert Líberíuforseti
sagði f skeyti til Amins að ná-
kvæm rannsókn væri nauðsynleg
til að eyða „kvíða heimsins"
vegna dauða dr. Luxum erkibisk-
ups.
— Eins og . . .
Framhald af bls. 32.
fjalla um íþróttakeppni, en
ekki atvinnugrein. Ég veit ekki
hvaða hugarfarsbreytingu þess-
ar fréttir geta haft á menn, en
vona þó að hver og einn hafi vit
á að sjá fótum sfnum forráð og
láti ekki glepjast af þessu kapp-
hlaupi.
— Ef einn bátur fer á sjó og
fær góðan afla fara fjölmiðlar
af stað, en það er ekki skrifað
um það ef sami bátur fær varla
bein úr sjó næstu tvo mánuði á
eftir. Ég er ekki i neinni
keppni, hef aldrei verið og ætla
mér aldrei að taka þátt í svona
látum og mér finnst allur þessi
fréttaflutningur fyrir neðan
allar hellur. Það er endalaust
hamrað á þvi hvaða skip eru
með mestan afla og býsnast yfir
tekjum sjómannanna og ég er
hræddur um að þessi frétta-
flutningur eigi eftir að hefna
sfn einhvern veginn. Þó ekki
væri í öðru en hugarfarsbreyt-
ingu hjá þjóðinni, sagði Gunnar
Hermannsson að lokum.
— Carter og
fjarlogin
Framhald af bls. 1.
dollara halla, um 11 milljarða
dollara meiri halla en Ford lagði
til. Thomas O’Neill, forseti full-
trúadeildarinnar, spáði þvf að
þingið mundi samþykkja fjárlaga-
frumvarpið.
Á þessu fjárlagsári leggur
Carter til að útgjöld verði 417,4
milljarðar dollara og 68 milljarða
dollara halla sem er einnig 11
milljörðum dollara meiri en Ford
lagði til.
Carter leggur til að herútgjöld
verði lækkuð um 2,8 milljarða
dollara úr 123 milljörðum dollara.
Harold Brown landvarnaráðherra
fullvissaði þingheim um að
Bandaríkjamenn stæðu Rússum
ekki að baki og gætu verið örugg-
ir þrátt fyrir lækkunina. Hann
viðurkenndi þó að aukinn vfgbún-
aður Rússa væri uggvekjandi.
Framlög til opinberra fram-
kvæmda aukast um 800 milljónir
dala á þessu ári og tvo milljarða á
næsta ári. Carter dró til baka til-
fögur fyrri rikisstjórnar um nokk-
urra milljarða dala niðurskurð á
framlögum til heilbrigðis- og vel-
ferðarmála.
Framlög til kjarnorkurann-
sókna minnka um 304 milljnir
dala en framlög til ýmissa
verndunarmála aukast um 244
milljónir dala. Áætlun um að
safna 500 milljónum tunna af olíu
verður flýtt um tvö ár. Framlög
til vatnsorkumála minnka um 268
milljónir dala þótt það sé umdeilt
vegnaþurrka.
Færri sprengjuþotur af gerð-
inni B-1 verða smíðaðar, en
Carter ákveður f júní hvort hefja
skuli framleiðslu á þeim fyrir
alvöru. Framleiðslu í stórum stfl á
langdrægu eldflauginni MX verð-
ur frestað f eitt ár. Hætt verður
við smfði 60 Minuteman-eldflauga
sem Ford forseti bað um ef svo
færi að Salt-viðræður færu út um
þúfur.
NATO fær 125 milljón dollara
hækkun til að auka varnargetu
bandalagsins, ef til vill vegna
frétta um að það geti ekki staðizt
sovézka leifturárás. Helmingur
upphæðarinnar verður notaður til
að auka vernd bandarfskra flug-
véla i Evrópu.
— Leiðtogi
dæmdur í
r
Israel
Framhald af bls. 1.
pund af 124.000 ísraelskum
pundum sem hann var ákærður
fyrir að hafa þegið í mútur. Hann
kvaðst hafa gefið vinkonu sinni
44.000 fsraelsk pund. Dómarinn
sagði að þau væru ekki aðeins
vinir heldur félagar í lóðasölu.
Yadlin viðurkenndi einnig að
hafa dregið 10.200 israelsk pund
undan skatti.
Frú Hadassah Ben-Itto dómari
kvaðst ekki trúa þeirri
fullyrðingu Yadlins að hann hefði
látið hluta mútufjárins renna til
Verkamannaflokksins og sagði að
þótt það væri rétt drægi það ekki
úr sekt hans. Lögfræðingur
Yadlins sagði að dóminum yrði
áfrýjað.
Yadlin var tilnefndur banka-
stjóri ísraelsbanka í september í
fyrra en tilnefningin var dregin
til baka þegar hann var hand-
tekinn f október.
— Bukovsky
Framhald af bls. 1.
og hafi því frestað fundinum með
Bukovsky fram f næstu viku.
Embættismenn hvfta hússins
segja að gert hefði verið ráð fyrir
að Bukovsky hitti Carter eftir að
hann hefði ráðgazt við Mondale.
Trudeau hefur beint því til
Carters, að viðræður og tilraunir
að tjaldabaki geri andófsmönnum
i kommúnistaríkjunum meira
gagn en opinber þrýstingur.
Skýrði hann forsetanum f gær frá
því hvað Kanadamenn hefðu náð
góðum árangri í því að sameina
Kanadamenn af austur-
evrópskum ættum fjölskyldum
sfnum i gamla landinu með
hógværum aðferðum.
— Peres og
Rabin heyja
harða baráttu
Framhald af bls. 1.
opinberlega um að sækjast eftir
forsætisráðherraembættinu
vegna valdagræðgi. Fram að
þeim tíma hafði fylgi Peres
stöðugt aukizt og hann virtist
hafa jafngóða sigurmöguleika
og Rabin.
Rabin, sem byggir baráttu
sfna á loforði um að berjast
fyrir friði, sagði við setningu
þingsins að sæmilegar horfur
væru á því að áfram mundi
þoka í friðarátt á næstu
tveimur árum og var ákaft
hylltur þegar hann lýsti þvf yfir
að það væri stefnu stjórnar-
innar að þakka að enginn
ísraelskur hermaður eða
óbreyttur borgari hefði fallið í
fyrra.
Peres reynir að tryggja sér
sigurinn með því að beina at-
hyglinni að innanrikismáium.
Hann sagði á blaðamannafundi
fyrir flokksþingið að hann
ætlaði að bjarga flokknum frá
alvarlegum kosningaósigri og
Rabin hefði látið undir höfuð
leggjast að breyta ósveigjan-
Iegu kerfi flokksins.
Verkalýðsleiðtogár vöruðu
við því á flokksþinginu i dag að
spilling innanlands gæti leitt til
ósigurs flokksins f
kosningunum. Borgarstjórinn í
Jerúsalem, Teddy Kollek sagði:
„I fyrsta skipti er raunverulega
hætta á því að það verðum ekki
við sem munum stjórna
þjóðinni."
Verkamannaflokkurinn
hefur 51 þingsæti af 120 en
samkvæmt nýlegum skoðana-
konnunum fær flokkurinn
35—40 þingsæti og Likud-
flokkurinn álíka mörg þing-
sæti. Umbótaflokkur fornleifa-
fræðingsins Yigael Yadin fær
um 20 þingsæti samkvæmt
þessum skoðanakönnunum.
— David Owen
Framhald af bls. 15
samningaborð síðan í september.
Hann gegndi störfum Anthony Cros-
lands utanríkisráðherra meðan hann
var veikur, og var formaður við-
ræðunefndar EBE í samningunum
við Sovétmenn um fiskveiðar í síð-
ustu viku.
Owen er, eins og Crosland var,
giftur bandariskri konu og eiga þau
tvö börn. Hún er dóttir Kyrill
Schabert, bókaútgefanda i New
York. Þau búa að staðaldri í London
en eiga einnig hús i Vestur-
Englandi.
Owen, heldur við áhuga sínum á
læknisfræði. „Ég reyni að fylgjast
með nýjungum og lít enn á mig sem
lækni," sagði hann nýlega
— Vill ekki
raforku
Framhald af bls. 15
Fjarðarárvírkjun gæti hafið
20 mw raforkuframleiðslu eftir
2 — 3 ár frá byrjunarfrarh-
kvæmdum og tryggt austfirð-
ingum rafmagn um eitthvert
árabil, eða þar til timabært
þætti að ráðast i stórvirkjun á
Austurlandi.
Bent er á að Austurland er
eini landshlutinn, sem mest allt
íbúðarhúsnæði og atvinnufyrir-
tæki eru hituð með olíu, á sama
tfma er sá tekjustofn, sem AI-
þingi hefur ákveðið að fara
skuli til að bæta fólki mismun-
andi búsetuskilyrði stöðugt not-
aður til afmarkaðra landshluta
til uppbyggingar hitaveitna, en
öðrum ætlað að búa við mun
lakari lffskjör og atvinnuupp-
byggingu vegna stöðugs orku-
skorts.
— Franskur
stjórnandi. . .
Framhald af bls. 15
Lamoureux-hljómsveitar i
Parfs.
Einleikari á Sinfóniu-
tónleikunum á morgun er
Jónas Ingimundarson pfanó-
leikari, og mun hann flytja ein-
leikshlutverkið f pfanókonsert
nr. 2 eftir Saint-Saéns.
Jónas hefur vfða komið fram
ýmist sem einleikari eða undir-
leikari og ennfremur f kammer-
sveitum. Hann starfar einnig
sem kórstjóri karlakórsins
Fóstbræðra og fór á síðastliðnu
ári með kórnum f söngför um
Finnland, Rússland og Litháen.
Skömmu síðar lék Jónas einleik
í píanókonsert Griegs með Sin-
fóniuhljómsveitinni f Tampere
í Finnlandi.
Framhald af bls. 12.
sjan hreppti þriðja vinninginn
eftir 13. skákina og þar með
fullnaðarsigur. Portisch náði
frumkvæði og betri stöðu í
mörgum skákum, en tókst ekki
að nýta það, eftir frækilega
vörn hjá Petrosjan. Portisch og
Petrosjan þykja tefla talsvert
keimlíkan stíl með örugga
stöðuuppbyggingu og mikið
næmi fyrir hinum herstjónar-
lega þætti skákarinnar (strate-
gíu), en minna gefið um leiftur-
árásir og leikfléttur. Á því sviði
hins vegar standa fáir Larsen á
sporði. Báðum hefur þeim oftar
en einu sinni verið spáð heims-
meistaratign, og væru báðir
verðugir sem andstæðingar
Karpovs, en gallinn er bara sá
að einungis annar þeirra hlýtur
það hnoss. Norðurlandabúar
fylgjast eflaust með sinum full-
trúa og óneitanlega yrði það
skemmtilegt ef Dani yrði næsti
heimsmeistari í skák.