Morgunblaðið - 23.02.1977, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRUAR 1977
25
félk í
fréttum
Stœrsti
sjóbirt-
ingurinn
1976
+ Þessi mynd birtist nýlega
ásamt frásögn ( blaðinu Lög-
berg—Heimskringla sem gefið
er út f Winnipeg. Drengurinn á
myndinni heitir Stefan Terge-
sen, sonur Lornu og Terry
Tergesen, er 15 ára. Hann fékk
nýlega bréf, þar sem honum
var-skýrt frá þvf að hann hefði
unnið til verðlauna sem sænska
fyrirtækið ABU veitir fyrir
stærsta sjóbirtinginn, sem
veiddist sumarið 1976 f Svf-
þjóð, Danmörku, Noregi og á
tslandi. Verðlaunin eru vöruút-
tekt fyrir 200 dollara, og er
ætlast til að teknar séu út vörur
frá ABU. Stefan Tergesen fór
með afa sfnum og ömmu, Ollu
og Stefani Stefanssyni til is-
lands f júff f fyrra. Þar ferðað-
ist hann um landið með þeim,
og f Skagafirði gisti hann hjá
Oskari Magnússyni og Hebu
Valdimarsdóttur á Brekku f
Skagafirði. Stefan fór að veiða f
Héraðsvötnunum með Óskari,
sem er mikill veiðimaður. Þar
tókst honum að krækja f sjó-
birtinginn sem hann er með á
myndinni. Hann reyndist vera
11,5 pund og Óskar Magnússon
gerði sér strax Ijóst að fiskur-
inn sem Stefán hafði veitt var
það stór að lfklegt væri að hann
yrði sá stærsti sinnar tegundar
sem veiddist á Islandi sumarið
1976 og var hann skráður sér-
staklega til keppninnar. Og nú
ekki alls fyrir löngu komu svo
gleðitfðindin að Stefan Terge-
sen hefði veitt stærsta sjóbirt-
inginn á Islandi 1976. f Svfþjóð
veiddist 25 punda sjóbirtingur,
f Danmörku var sá stærsti 23
pund og f Noregi 24,6 pund, svo
fslenski fiskurinn er ekki stór f
samanburði við þá.
+ & stúdentarnir I hðskólanum f
Dundee f Skotlandi fí aS rðða
verSur þessi fáklædda dama rekt-
or hðskólans. Hún heitir Fiona
Richmond og er 29 ðra gömul
leikkona, og er oft fremur fá-
klædd á senunni, jafnvel álfka
fáklædd og hún er hér á mynd-
inni. Sjálf hefur hún aldrei farið I
háskóla en hún er þekkt fyrir
skrif sín í breska sex-blaðiS „Men
only" þar sem hún skrifar um
ástalff karlmanna f hinum ýmsu
löndum Nemendur háskólans
hafa valiS hana sem frambjóS-
anda sinn viS rektorskjöriS.
+ Peter Panton, 19 ára stúdent í Chicago, veðjaði
rangt og sést hann hér vera að borga veðmálið. Hann
varð að skriða á höndum og fótum um skólalóðina í
hálftíma og blása á undan sér hnetukjarna.
+ Þessi strætisvagn, sem tekur hvorki meira né minna en 100 manns f sæti, var um daginn tekinn f
notkun f Kaupmannahöfn. Hann er þó ekki á ferðinni í sjálfri miðborginni, enda trúlega þungur í
vöfum f umferðinni, heldur gengur hann á milli Kaupmannahafnar og einnar af útborgum hennar.
Leikendur f „Systir Marfa“, sem Ungmennafélagið Efling f Reykjadal
sýnir um þessar mundir.
Efling í Reykjadal
sýnir leikritið
„SystirMaría”
Húsavfk, 18. febr.
SJÓNLEIKINN Systir Marfa,
eftir Cherlotte Hasting, hefur
Umf. EFLING f Reykjadal, sýnt
undanfarið á Breiðumýri og
Húsavfk, við góðar undirtektir og
hrifningu áhorfenda og verður
10. sýningin að Breiðumýri f
næstu viku.
Leikstjóri er Ingunn Jensdóttir
og er þetta annað leikritið, sem
hún setur á svið með þessum ung-
mennafélögum og eru báðar sýn-
ingarnar henni og þeim sem að
hafa staðið til mikils sóma.
Titilhlutverkið, systur Marfu,
leikur Unnur Garðarsdóttir, og
leysir hún það vel af hendi, og
sama má segja um Hrönn
Benonýsdóttur, sem leikur Sarat
Carn og Arnór Benonýsson, sem
leikur Willy Pentridge. Mér
finnst undravert hve vel þetta
ólærða unga fólk veldur erfiðum
hlutverkum og hefur með sóma
sett á svið stór stykki, eins og
Umf. Efling hefur nú gert í tvö
siðustu skiptin.
Aðrir leikara eru Hjördis
Hjaltadóttir, Dagný Hjaltadóttir,
Guðrún Glúmsdóttir, Jón
Aðalsteinsson, Guðrún
Friðriksdóttir Aðalbjörg Páls-
dóttir, Erlingur Teitsson og Elín
Friðriksdóttir.
Leikmynd gerði Ingunn
Jensdóttir, en leikhljóð og bún-
ingar eru fengnir að láni hjá Leik-
félagi Reykjavikur, og er lofsvert,
hvað Leikfélagið og Þjóðleikhúsið
lánar búninga og styður leikstarf-
semina út um landsbyggðina.
Leikflokkurinn hyggst hafa
sýningar nú á næstunni f Eyja-
firði og vestur í Skagafirði ef
færð leyfir. Fréttaritari.
Þórir Jensen, Kristinn Breiðfjörð og Sigurður Ármann Magnússon
standa hér við Mazda 323, sem er sá minnsti i Mazda-f jölsky Idunni.
Bílaborg:
Nýr
Mazda-
bíll
kynntur
MAZDA-umboðið, Bíla
borg, kynnti nýlega fyrir
blaðamönnum nýja tegund
Mazda-bifreiða, Mazda 323.
Forráðamenn Bílaborgar
þeir Sigurður Árm.
Magnússon, Kristinn
Breiðfjörð og Þórir Jensen
sögðu að hér væri um að
ræða nýjan bíl, sem kæmi
nánast beint frá verksmiðj-
unum og væri hann kynnt-
ur samtímis í Evrópulönd-
um. Hingað eru komnir 3
bílar til reynslu en von er
fljótlega á fleirum.
Þessi gerð af Mazda kost-
ar frá 1420 þúsund krónum
og upp i 1515, eftir véla-
stærð, sá ódýrari er með 64
hestafla vél, en sá dýrari
með 81 hestafla vél. Hann
er búinn ýmsum nýjungum
og eru „silsarnir“ m.a.
galvaniseraðir svo og
þurrkublöð og fleiri hlutar
bílsins til að koma i veg
fyrir ryðmyndun.
Á s.l. ári flutti Mazta-
umboðið inn tæplega 400
bíla og það sem af er árinu
hafa selst u.þ.b. 90 bilar og
sögðust forráðamennirnir
vera bjartsýnir á að bílasal-
an gengi vel á þessu ári.
Stöðubreytingar í
utanríkisráðuneytinu
BREYTINGAR oru aó verða á
störfum innan utanríkisþjónust-
unnar. Þórður Einarsson, deildar-
stjóri og blaðafulltrúi ráðuneytis-
ins, er að fara út til London, þar
sem hann verður sendiráðunaut-
ur og Helgi Ágústsson, sem verið
hefur i London, kemur heim og
tekur við starfi Þórðar hér i ráðu-
neytinu. Þórður fer utan nú i
vikulokin, en Helgi er væntanleg-
ur til iandsins um 10. marz.