Morgunblaðið - 23.02.1977, Síða 29

Morgunblaðið - 23.02.1977, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRUAR 1977 29 M i* i I ? | i ? k I H AI = VELVAKANDI . SVARAR í SÍMA ^ 0100 KL. 10— 11 " FRÁ MANUDEGI landsins felst. En hvers vegna dregur hann þá fram í kirkjulegu starfi þá menn sem vitað er að eru kaþólskrar trúar en ekki evange- Iísk-lútherskrar eins og stjórnar- skráin fram á þennan dag ákveð- ur? Svar við þessum spurningum vil ég gjarnan fá i Morgunblað- inu. Ég geri ekki ráð fyrir því, að það láti sér í léttu rúmi liggja hvað um islenzka þjóðkirkju verð- ur, en núverandi kirkja hér á landi virðist vera furðu laus í reipunum og ótrúlega veik fyrir kaþólskri ásókn hið innra, er hin siðari ár er reynt að þröngva upp á okkur. Virðingarfyllst, Stefán Pjetursson." Ekki getur Velvakandi sagt að hann hafi tekið eftir þessari ka- þólsku sem rætt er um i þessu bréfi, en það má auðvitað vel vera ð hún hafi þá farið framhjá hon- um, en það væri svosem nógu fróðlegt að vita hvort bréfritari á sér einhverja skoðanabræður í þessu máli. 0 Hvaðan kom hrafntinnan? Illugi Jónsson: — Mig langar að gefnu tilefni að spyrjast fyrir um það hvaðan hrafntinnan, sem notuð var á Þjóðleikhúsbygginguna, kom á sínum tíma. Það hefur verið sagt að hún hafi komið úr Hrafntinnu- hrauni við Torfajökul. Ég held að það hafi lika a.m.k. verið tekið nokkuð úr Hrafntinnuhrygg við Kröflu, allt að 10—15 tonn. Þar var að minnsta kosti skoðað, ég man eftir því og það var víða leitað fyrir sér eftir þessu fallega grjóti. Annað mál sem mig langar að forvitnast um er svonefndur vatnsköttur, sem hefur verið notaður til að fara með undir is til að Ieggja net. Var grein um þetta í Mbl. í fyrra, en hvenær skyldu þessi tæki hafa verið smíðuð fyrst? Árið 1930 var smíðað tæki í Mývatnssveit, kafari nefndist það, og notað var til að fara með undir ís í sama tilgangi. Vera má einnig að svipað tæki og þessi hafi verið notað þegar sýnd var í sjón- varpi nýlega veiði úr Þingvalla- vanti, en ég veit það ekki, kannski hafa éinhverjir tekið eftir því. Þessir nringdu . . 0 Opið of stutt? Fr. B. Hansen: —Er til skynsamleg skýring á því hvers vegna veitingastöðum er lokað yfirleitt kl. 11:30 á kvöld- in? Fólk vill gjarnar fara út, t.d. eftir að hafa slappað af heima yfir góðri sjónvarpsmynd, eða eftir góða máltíð með kunningjum og gestum, — slappað af og farið á einhvern rólegan stað og fengið sér hressingu. En slíkt er alls ekki hægt ef klukkan er orðin meira en hálftólf á kvöldin, maður verð- ur að sitja heima og reyna að hafa það huggulegt þar. Ég er auðvitað ekkert á móti því að vera heima, en hér finnst mér vanta þennan möguleika á að geta farið út ef þannig stendur á og menn langar til þess. Ef Valvakandi þekkir rétt til þá munu lög kveða á um lokunar- tíma veitingastaða og það kann ef til vill að vera einhver skýring á því hvers vegna á að loka hálf tólf á kvöldin en ekki síðar. SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á millisvæðamótinu í Biel í Sviss í júlf i fyrra kom þessi staða upp í skák Smejkals, Tékkóslóvakíu, sem hafði hvítt og átti leik, og Guljkos, Sovétrikjunum, en þeir eru báðir sterkir stórmeistarar. Smejkal átti aðeins tvær mínútur eftir fyrir næstu sex leiki, en tókst samt að finna snjallt fram- hald: 0 Litlar undirtektir. Sveinn Sveinsson: —Mér finnst það undrunar- vert ef aðeins einn 15—16 ára unglingur hefur tekið undir hug- mynd mína um þennan svokallaða æskulýðssjóð sem ég hef minnst á í blöðum. Og ég þakka honum eða henni fyrir þær undirtektir. Ég hef talað um að menn gætu farið í Alþýðubankann og lagt þar fram sinn skerf til að gera eitthvað fyrir unglingana. Bók á nafninu Æskulýðssjóður liggur þar frammi til að menn geti lagt fram- lög sin í. Það er áhættulaust, fólk getur tekið aur sinn til baka ef það vill ekki vera með. En full- orðnir vilja víst frekar ræða vandamálin en að gera eitthvað í þeim, eða svo virðist mér a.m.k. HÖGNI HREKKVÍSI ri »977 é » McNaught Synd., Hvað eigid þér við? — „Katt-fiskur“ — hvar — í glugganum? 03^ SlGtA V/öGÁ í ©Permobel BLONDUM á staðnum bílalökk á allfle tegundir bíla fi Evrópu og Japan 35. Rxb6!! — Rg7, (Ef 35. . ,Dxb6 þá 36. Bxg6+! — Kxg6, 37. Dxe8+ og vinnur létt 36. Rxc8 — I)xc8, 37. Dxa5 — I)h8, 38. Dc7+ — Kf8, 39. Dxd6+ — Kf7, 40. I)c7+ og svartur gafst upp, enda timahrak- ið yfirstaðið. m /y-// yvSKUIá' V^SS/ \ e/AVClS0? FR WÓGU VfctfT VlALQlQ W?I ' ’ÚMlfc WTAQ VIANN \ VÁ?>V</N 07 WAQtV WN0R49/ NO ONÍ' UORWÓNA? WN01 VÍANN VOL A W VlALQlQ V/V? E$U SAOtfAtfN/tf NÓOO Sf£(?K/R? ET BG LlflTl NO í örs«/?0N \ VlONUH? WVAQ OYI 5N/9/9? EF vífófcjR WkVT/ NÚ KANNSK).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.