Morgunblaðið - 23.02.1977, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRUAR 1977
UM slðustu helgi léku Fylkir og
ÍBK I 2. deildar keppni Islands-
mótsins í handknattleik. Fór
leikurinn fram á heimavelli Kefl-
víkinga, I Iþróttahúsinu I Njarð-
vík, og lauk hinum með yfirburða-
sigri Fylkis, 30 mörkum gegn 13,
eftir að staðan hafði verið 15 — 6
I hálfleik. Tók Fylkir strax for-
ystuna I leiknum og átti ekki I
erfiðleikum með gloppótta vörn
Keflavlkurliðsins. Mestur varð
munurinn 17 mörk, er staðan var
24:7 fyrir Fylki um miðjan seinni
hálfleikinn.
Leikur þessi var fremur léleg-
ur, og enginn leikmanna sem
skaraði verulega fram úr. Með
þessum ósigri má segja að Kefl-
víkingar séu endanlega bókaðir
niður I 3. deildina I handknatt-
leiknum, og ólfklegt má teljast að
þeim takist að krækja I eitt ein-
asta stig í deildinni úr þessu.
Markhæsti maður leiksins var
Halldór Sigurðsson I Fylki, sem
skoraði 12 mörk, þar af 7 úr víta-
köstum. Nafnarnir Einar Ágústs-
son og Einar Einarsson skoruðu 4
mörk, en aðrir færri.
Geir Hallsteinsson átti einna beztan leik landsliðsmanna I fyrrakvöld og skoraði 6 mörk.
Landsliðíð tapaði æfingaleik
ISLENZKA landsliðið I hand-
knattleik lék æfingaelik við
austurrfska 1. deildar liðið Kremz
I fyrrakvöld og fóru leikar svo að
Austurrfkismenn sigruðu I leikn-
um 25—22, eftir að hafa verið 1
mark yfir I hálfleik, 13—12. Af
eðlilegum ástæðum tók fslenzka
landsliðið leik þennan ekkert
alltof hátfðlega, leikmenn forð-
uðust átök í lengstu lög, og tóku
ýmsa áhættu, sem varla verður
tekin I alvarlegum leikjum. Eigi
að síður var tap nokkurt áfall
fyrir liðið, en vonandi verður
þetta fall fararheill landsliðsins I
Austurrfki.
Geir Hallsteinsson var mark-
hæstur Islendinga í leiknum I
fyrrakvöld með 6 mörk, Björgvin
Björgvinsson og Viðar Slmonar-
son skoruðu 4 mörk hvor, Þor-
björn Guðmundsson 3 mörk,
Viggó Sigurðsson 2, Axel Axels-
son 1, Þorbergur Aðalsteinsson 1
og Ólafur Einarsson 1.
Þess skal getið að Ólafur H.
Jónsson lék ekki með islenzka
landsliðinu I fyrrakvöld. Á hann
við meiðsli að stríða, eftir leik liðs
síns, Dankersen, við Gummers-
bach í þýzu 1. deildar keppninni
um síðustu helgi. Standa vonir til
að Ólafur geti samt sem áður
leikið með islenzka landsliðinu
um helgina, er til alvörunnar
kemur.
isiandsmðtlð 2. flelld
Fylkir burstaði ÍBK
Bikar- og deildarleikir í bland
Keppni í 2. deild íslandsmótsins í handknattleik hefur verið hin skemmtileg
asta I vetur. Þessi mynd er úr leik Stjörnunnar og Ármanns sem fram fór
nýlega, og eru það Kristján Andrésson og Viðar Halldórsson sem reyna að
stöðva Armenninginn Jón V. Sigurðsson.
STJARNAN GERÐIJAFNTEFLI
VIÐ ÞÚR í SPENNANDILEIK
AÐ VlSU spennandi ( lokin, en
ekki var leikinn merkilegur
handknattleikur I Skemmunni á
Akureyri á laugardag þegar Þór
og Stjarnan áttust við I 2. deild
karla. Urslitin urðu jafntefli, 21
mark gegn 21, og verður að telja
þau úrslit eðlileg miðað við gang
leiksins. Annars gerði dómgæzla
Jóns Magnússonar og Harðar
Hákonarsonar illa leikinn leik
verri en ella hefði getað orðið.
Þeir félagar virtust einkar fjar-
huga, helzt að sjá sem eitthvað
hefði orðið eftir I Reykjavfk þá
um morguninn.
Leikurinn var annars jafn allan
tímann, þó svo Stjarnan hefði oft-
ast frumkvæðið. Aldrei fór þó svo
að meira en tvö mörk skildu í
milli. Stjarnan leiddi í leikhléi
með 13 mörkum gegn 11. Þórsarar
jöfnuðu þegar í byrjun sfðari
hálfleiks og síðan var allt I járn-
um leikinn út. Þórsarar höfðu þó
góð færi á að ná sigri í lokin, en
þá varði Brynjólfur Kvaran tvi-
vegis vitaskot frá Sigtryggi á
mikilvægum augnablikum og þar
með fóru góð tækifæri forgörð-
um. Orslitin urðu þvi jafntefli
sem fyrr getur, 21 mark gegn 21,
og ættu bæði lið að geta þar vel
við unað.
Stjarna brá á það ráð um mið-
bik fyrri hálfleikss að taka Þor-
björn Jensson úr umferð, enda
hafði Þorbjörn þá skorað fimm
mörk. Hins vegar veikti það
varnarleik Stjörnunnar mikið og
spurning hvort sú ákvörðun hefir
verið réttlætanleg, Hins vegar
verður ekki um það deilt að
Þorbjörn er ein sterkasta skyttan
í íslenzkum handknattleik I dag,
svo og traustur varnarleikmaður,
en það er mat undirritaðs að Þórs-
urum hafi ekki tekizt að nýta sér
krafta Þorbjarnar til fulls. Hvers
vegna sjást aldrei „blokkeringar"
þegar Þorbjörn er áferðinni?
Lið Stjörnunnar er afar svipað
og verið hefir undanfarin ár,
enda byggt upp af nokkurn veg-
inn sama mannskap. Þó er því
ekki að neita að liðinu hefir farið
fram undir stjórn Sigurðar
Einarssonar, einkum I vörninni.
Sóknarleikurinnn hins vegar bág-
borinn sem fyrr, vantar ógnun.
Maður leiksins: Brynjar Kvar-
an, markvörður Stjörnunnar.
Mörk Þórs: Sigtryggur 7 (5),
Þorbjörn 5, Jðn Sigurðsson 3,
Einar Björnsson og Guðmundur
Skarphéðinsson tvö hvor, Óskar
Gunnarsson og Ragnar Sverrisson
eitt mark hvor.
Mörk Stjörnunnar: Björn
Björnsson 7 (öll viti), Magnús
Teitsson og Eyjólfur Bragason 4
hvor, Árni B. Árnason og Gunnar
Björnsson tvö hvor, Guðmundur
Ingvason og Brynjar Kvaran eitt
mark hvor. Sigb.G.
ÞAÐ leit helzt út fyrir, að
KA væri að missa af lest-
inni i baráttunni um sæti f
1. deild að ári í lok leiks við
Stjörnuna í skemmunni á
Akureyri á sunnudag.
Stjarnan hafði tveggja
marka forystu þegar um
tíu mín. voru til leiksloka,
16 mörk gegn 14, KA tðkst
að jafna metin, 17 gegn 17,
og lifðu þá sjö mín. af
leiknum. Lokakaflinn var
sfðan æsispennandi, en á
sfðustu sekúndunum tðkst
fyrirliða KA, Þorleifi
GETRAUNAÞATTUR
MORGUNBLAÐSINS
Við duttum ofan í smá lægð i
siðustu viku, en ástæðan fyrir því
er sú, að við fengum til liðs við
okkur leynitippara nokkurn sem
ekki reyndist eins klár í kollinum
og við. Hann verður ekki beðinn
Um hjálp framar og er þvi öll
svartsýni óþörf. Að þessu sinni er
á dagskrá fimmta umferð ensku
bikarkeppninnar, en inn i er
skotið nokkrum fyrstu deildar-
leikjum til uppfyllingar.
Aston Villa — Port Vale (bik) 1.
Hér er allt á hreinu á
pappirnum séð og verður hér
varla annað en heimasigur (3—0)
Cardiff — Everton (bik) 1.
Við spáðum þvi réttileg á sinum
tima (eins og venjulega), að
Cardiff slæi út Tottenham og fær
nú liðið gott tækifæri til að auka
enn hróður sinn i keppninni.
Derby —Blackburn 1. (bik).
Þessi leikur er mjög erfiður
sökum þess, að eins og er, leikur
Derby litlu betur en meðallið i
annarri deild.
Leeds — Manchester C.
Tvöfaldur X eða 1. (bik.)
Þetta verður vafalaust harður
og tvisýnn leikur og teljum við
1—1 jafntefli sennilegast, en til
vara förum við fram á heima-
sigur, bara upp á grin (1—0).
Liverpool —Oldham 1 (bik)
Þó að Liverpool gangi svona og
svona I útileikjum slnum, þá eru
þeir óviðjafnanlegir á heimavelli
Ananfassyni, að skora frá-
bært mark og tryggja liði
sínu sigur, 21 gegn 20.
Oft hefir Þorleifur skorað
glæsileg og mikilvæg mörk i gegn-
um árin, en ef til vill er þetta
mark hans hvað mikilvægast. Með
þessu marki Þorleifs heldur KA
a.m.k. enn í vonina um að öðlast
sæti í 1. deild að ári.
Leikurinn var annars fremur
slælega leikinn, en engu að siður
spennandi eins og að framan
greinir. Því miður setti slök dóm-
gæzla Jóns Magnússonar og Harð-
ar Hákonarsonar svip sinn á leik-
inn, sem og á leik Þórs og Stjörn-
unnar daginn áður. Hörmulegt,
þegar slök dómgæzla gerir það að
og teljum við að ef úrslitin verða
annað en heimasigur, hljóti það
að teljast meiri háttar áfall.
Heimasigur (2—0).
Middlesboro — Arsenal, tvö-
faldur 1 eða X. (bik).
Arsenal virðist eiga i ein-
hverjum erfiðleikum um þessar
mundir og eru ekki sigurstrang-
legir að þessu sinni.
Southampton — Manchester Utd.
Tvöfaldur 2 eða X (bik).
Hiklaust athyglisverðasti leikur
seðilsins, enda úrslitaliðin siðan í
fyrra. Manchester-liðið er betra
lið, en Southampton leikur
gjarnan sína bestu leiki í bikar-
keppnunum og hefur svo verið í
vetur.
Wolves — Chester 1 (bik).
Hér á ekki að þurfa neinn for-
mála. öruggur heimasigur
(4—1).
Coventry — WBA (dei).
Hér hvílir jafnteflis-stybban
eins og mara yfir öllu og er því
ekki annað að gera en að tippa á X
ÁKVEÐIÐ hefur verið að íþrótta-
bandalag Akraness sjái um íslands-
meistaramót unglinga i badminton
1977. Mun mótið fara fram laugar-
daginn 12. og sunnudaginn 13. marz
verkum, að íþróttakapppleikir
verða að hálfgerðum skrípaleikj-
um, en nóg um það.
I fyrri hálfleik hafði KA ávallt
frumkvæðið, en náði þó aldrei
meira en tveggja marka forystu. I
leikhléi var staðan hins vegar orð-
in jöfn tiu mörk gegn tíu. I síðari
hálfleiknum snerist dæmið aftur
á móti við. Þá var frumkvæðið í
höndum Stjörnunnar, þar til í lok-
in að allt var í járnum og Þorleif-
ur setti síðan punktinn yfir i-ið.
Maður leiksins: Þorleifur
Anaiasson, KA
Mörk KA: Hörður 6, Sigurður og
Þorleifur 4 hvor, Jóhann og
Albert 2 hvor, Alfreð, Hermann
og Páll eitt mark hver.
Mörk Stjörnunnar: Gunnar 7,
Guðmundur 5, Björn 4, Magnús
Andrésson 2, Magnús Teitsson og
Arni B. eitt mark hvor.
Sigb. G.
Ipswich —Stoke 1 (dei).
Leikmenn Stoke gætu senni-
lega ekki skorað, þó að þeir stæðu
með boltann inni I markinu og
hvað þá gegn toppliði eins og Ips-
wich (þó að Ipswich hafi reyndar
látið hirða af sér nokkur stig
undanfarið.) Heimasigur (2—0).
QPR — Leicester. Tvöfaldur 1
eða X (dei).
Heimasigur er aðalspáin vegna
þess, að QPR hafa sótt nokkuð í
sig veðrið undanfarið, en til vara
er spá sem höfðar aðallega til
Leicester, en það er jafntefli
(2—0 eða 1—1).
West Ham — Bristol C. X (dei).
Enn er sigurganga West Ham
óslitin og spannar hún nú yfir alls
tvo leiki. Þess ber einnig að geta I
sambandi við þessa spá, að
Bristol-liðið hefur einnig vaknað
nokkuð til lífsins í sinum allra
síðustu leikjum og þykir okkur
1—1 jafntefli trúlegast, þó svo að
West Ham hafi verið í fáheyrðum
vigamóði undanfarna tvo leiki.
Jafntefli (1—1). —gg
n.k. og verður þá keppt I einhliSa-,
tviliSa og tvenndarleik i fjórum
aldursflokkum. þ.e. pilta-og stúlkna-
flokki 16 — 18 ára, drengja- og
telpnaflokki 14 — 16 ára, sveina-
og meyjaflokka 12 — 14 ára og
hnokka- og tátuflokki 12 ára og
yngri.
Þátttökutilkynningar þurfa að berast
til iþróttabandalags Akraness c/o
Hörður R gnarsson. Höfðabraut 5.
simi 1256. eða Viðis Bragasonar,
Kirkjubraut 33, sími 1791 Einnig er
unnt að fá upplýsingar hjá Hinrik Har-
aldssyni i sima 2117 eða 1143 Verða
þátttökutilkynningar að hafa borizt fyrir
4 marz til þess að unnt sé að taka þær
til greina Þátttökutilkynningum þurfa
að fylgja þátttökugjöld sem eru frá
300 kr — til 1 500,00
Reynt verður að sjá keppendum fyrir
svefnpokaplássi og verða þeir, sem
vilja notfæra sér það, að geta um það i
þátttökutilkynningu sinni
Þá hefur verið ákveðið að halda opið
badmintonmót fyrir meistaraflokk á
Akranesi 20 marz, ef næg þátttaka
fæst. Er ætlunin að keppa i einliða og
tviliðaleik karla og kvenna og tvenndar-
leik Þátttökutilkynningar þurfa að ber-
ast jþróttabandalagi Akraness fyrir 13
marz og þarf þátttökugjald. kr
800,00. aðfylgja með Nánari upplýs-
ingar eru hægt að fá á sömu stöðum
og um islandsmeistaramót unglinga
ÞORLEIFUR TRYGGOIKA
SIGUR Á SIÐUSTU STUNOU
(1—1).
Unglingameistaramótið í
badminton verður á Akranesi