Morgunblaðið - 23.02.1977, Blaðsíða 32
\l (iLYSIM.ASIMINN ER:
22480
Jílorfliinblflíiiíi
Al (»LY SIN'ííASÍMIXN ER:
22480
Jflorfjunlilotiili
MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRUAR 1977
Loðnuvertíðin:
Lög um hleðslu
skipa þverbrotin
— segir siglingamálastjóri
— EG HEF fylgst með loðnubát-
unum, sem hafa verið að koma
inn til Reykjavfkur í dag og í
stuttu máli sagt hafa þeir allir
verið ólöglega hlaðnir, sagði
Iljálmar Bárðarson siglingamála-
stjóri f samtali við Morgunblaðið
f gær. — Þetta gengur kannski í
góða veðrinu sem núna er, en
hvað gerist ef veðrið versnar
skyndilega?
Á síidarárunum voru mikil
brögð að þvi að bátar væru ólög-
Iega hlaðnir, að sögn Hjálmars, o£
gerði Siglingamálastofnunin þá
átak til að koma í veg fyrir slíkt,
en árangurinn varð lítill, iá.a.
vegna þess að dómstólar dæindu
skipstjóra í svo lágar sektir að
þær veittu ekkert aðhald. — Víð
Víkingur
væntanlegur
um helgina
TOGARINN Vikingur frá
Akranesi lagði af stað i gær-
kvöidi frá Noregi til íslands,
en undanfarið hefur verið
unnið að breytingum á skipinu
þar. Sagði Valdimar Indriða-
son, útgerðarmaður á Akra-
nesi, að búast mætti við Vík-
ingi til landsins á föstudaginn
og ef allt gengi samkvæmt
áætlun ætti skipið að geta far-
ið til loðnuveiða um næstu
helgi. Upphaflega var reiknað
með að breytingum á skipinu
yrði lokið fyrr, en þar sem
skipta varð um skipasmíðastöð
seinkaði Víkingi um hálfan
mánuð.
eyddum í þetta geysimiklum fjár-
munum en árangurinn varð nán-
ast enginn. Við höfum gefizt upp í
baráttunni við ofhleðsluna, enda
kannski ekki í okkar verkahring
heldur fremur löggæzlunnar,
sagði Hjálmar.
Hjálmar sagði að samkvæmt
lögum mætti ekki hlaða sildar- og
loðnuskip meira á tímabilinu
október til apríl en að efri brún
aðalþilfars við skipshlið. Kvað
hann greinilegt að þessi lög væru
þverbrotin, sérstaklega þó á skip-
um, sem búið væri að byggja yfir.
Sagði Hjálmar að sömu lög næðu
yfir þessi skip. Yfirbyggingin
væri mikið öryggisatriði en lögin
heimiluðu ekki að hlaða mætti
þau meira en áður, því styrkleiki
skipanna væri sá sami og var fyrir
breytinguna.
Að lokum sagði Hjálmar Mbl.
nánar frá því þegar gert var átak
til að koma í veg fyrir ofhleðslu
Framhald á bls. 19
A minni myndinni sést Jón Finnsson GK koma
drekkhlaðinn inn til Reykjavíkur í gærmorgun. Á
stærri myndinni sést Álseyin nýkomin með góðan
afla, en í baksýn sér á Jón Finnsson og búið er að
lOSa Skiniú (l.jósm. >lbl. Frióþjófurl.
Einn kemur
þá annar fer
Akveðið að setja upp fullkomin
hreinsitæki í Straumsvík
Kostnaður áætlaður um 4.7 milljarðar
AKVÖRÐUN hefur verið tekin
um það af hálfu Alusuisse að
setja upp fullkomin hreinsitæki I
álbræðslunni f Straumsvfk, en
kostnaður við uppsetningu þeirra
Hættuástand fyrr við
Kröflu en búizt var við
LANDRIS hefur verið mun meira
við Kröflu sfðasta mánuðinn
heldur en jarðvfsindamenn höfðu
búist við. Er jafnvel reiknað með
að hættuástand kunni að verða á
Kröflusvæðinu 3. — 5. marz. en
ekki hafði verið reiknað með að
landrisið yrði í hámarki fyrr en
eftir miðjan marzmánuð, að sögn
Páls Einarssonar jarðeðlisfræð-
ings við Raunvísindastofnun Há-
skólans.
Sagði Páll að það sem gerzt
hefði væri, að hinn mikli rishraði
hefði haldizt lengur en búist hefði
verið við og þá verið stuðst við
þróunina á Kröflusvæðinu síðast-
liðið ár. Landrisið hefur verið 9
mm á sólarhring að meðaltali þar
sem það hefði verið mest frá því
að sigið varð á svæðinu 22. janúar
síðastliðinn.
— Ef þessi þróun heldur áfram
og skjálftar halda áfram að auk-
ast eins og allt bendir til núna, þá
má búast við að hættuástand
kunni aðskapast á Kröflusvæðinu
í byrjun marzmánaðar, sagði Páll
Einarsson. Ekki sagði hann að
jarðvísindamenn hefðu handbær-
ar neinar skýringar á því hvað ylli
svo miklum rishraða landsins að
þessu sinni, en sagði að ekki væri
ótrúlegt að ástæðan væri sú að
kvikan, sem leitaði upp á við væri
meira þunnfljótandi nú en áður
og ætti því greiðari leið. Aðspurð-
ur sagði Páii að það þyi fti ekki að
þýða að goshætta væri meiri á
Kröflusvæðinu nú en áður.
Skjálftar hafa aukizt á Kröflu-
svæðinu undanfarna daga og
mældust þeir 20 á siðustu mæli-
önn, þ.e. frá kiukkan 15 á mánu-
daginn til 15 í gær. Jarðvísinda-
menn munu nokkrir halda tii
Kröflu um næstu helgi til að
fylgjast með þróun mála á svæð-
inu og m.a. fylgjast með sprungu-
myndunum.
mun nema um 4.7 milljörðum
króna. Kom þetta fram á fundi f
Sviss hinn 14. og 15. marz sem
Gunnar Thoroddsen iðnaðarráð-
herra, ásamt Jóhannesi Nordal og
Steingrfmi Ilermannssyni, átti
með forstjórum Alusuisse, þeim
mr. Meyer og dr. Múller en auk
þess sátu fundinn þeir Halldór H.
Jónsson stjórnarformaður og
Ragnar Halldórsson, forstjóri
Islenzka álfélasins. Heilbrigðis-
ráðherra verður send skýrsla um
nánar fyrirætianir og tfmaáætl-
anir ÍSALS I þessum efnum fyrir
1. marz nk.
í fréttatilkynningu iðnaðar-
ráðuneytisins um viðræðurnar
um hreinitækin segir svo:
„Fundirnir hófust með umræð-
um um uppsetningu hreinsitækja
í álbræðslunni, þar sem lögð var
rík áherzla á nauðsyn þess, að
fullkominn hreinsibúnaður verði
tekinn í notkun svo fljótt sem
verða má.
Af hálfu Alusuisse var gerð
grein fyrir þvi undirbúnings-
starfi, sem unnið hefði verið á
þessu sviði sfðan á árinu 1972, en
þá hófust tilraunir með tæki, sem
islenski uppfinningamaðurinn
Jón Þórðarson hafði hannað. Eft-
ir tveggja ára tilraunir var ljóst,
að þessi tæki gætu ekki náð tilætl-
uðum árangri. Var þvi hafist
handa með gerð nýs kerfis, er
Framhald á bls. 19
Reynt að flýta stækkun kerskála 2:
Samið við nýtt fyrir-
tæki um minnihluta-
aðild að ÍSAL?
FORRÁÐAMENN svissneska fyr-
irtækisins Alusuisse hyggjast
freista þess að semja við annað
fyrirtæki um að gerast minni-
Tveir kunnir skipstjórar um fréttaflutning af loðnuveiðunuhi:
„Eins og verid sé að
fjalla um íþróttakeppni
en ekki atvinnugrein”
— LOÐN UNEFNDIN er að
mfnu mati komin langt út fyrir
sitt verksvið með fréttum, sem
hún sendir af loðnuveiðunum
og f jölmiðlar apa þessar fréttir
sfðan upp eftir nefndinni með
strfðsfyrirsögnum, sagði Krist-
björn Árnason skipstjóri á
Sigurði RE f samtali við
Morgunblaðið f gær. Sagði
Kristbjörn að honum fyndust
fréttir af loðnuveiðunum jaðra
við að vera óþolandi. — Þær
hafa þó ekki önnur áhrif á mig
en þau að fara óskaplega f taug-
arnar á mér. Eg vona svo
sannarlega að þessar fréttir
hafi ekki þau áhrif á menn að
þeir fyllist einhveju ofurkappi
og gæti ekki fyllsta öryggis,
sagði Kristbjörn.
Gunnar Hermannsson, sem
verið hefur með Eldborgina
GK, tók mjög í sama streng og
Kristbjörn. — Strax upp úr ára-
mótum byrjuðu þessar fréttir
og línur voru glóandi hjá fjöl-
miðlum, sem vildu ná sambandi
við bátinn, sem fékk fyrstu
loðnuna, og siðan hefur lát-
unum ekki linnt, sagði Gunnar.
— Það er eins og verið sé að
Framhald á bls. 18
hlutaeigand’i f tSAL f þvf skyni að
flýta fyrir fyrirhugaðri stækkun
kerskála 2, en með þessu móti
telur Alusuisse unnt að tryggja
bæði fjármagn til stækkunarinn-
ar og markað fyrir viðbótarfram-
leiðsluna.
Kom þetta fram f viðræðum
iðnaðarráðherra, dr. Gunnars
Thoroddsen, Jóhannesar Nordal
og Steingrfms Hermannssonar
við forstjóra Alusuisse á dögun-
um, þar sem stækkun kerskálans
kom m.a. til umræðu, en gert var
ráð fyrir þessari stækkun í breyt-
ingu samninganna við Alusuisse,
sem samþykkt var á Alþingi á
sfðasta ári, eins og segir í frétta-
tilkynningu iðnaðarráðuneytisins
um viðræðurnar f Sviss.
Fram kemur í tilkynningunni,
að vegna erfiðrar afkomu áliðn-
aðarins hafi Alusuisse ekki enn
ákveðið hvenær í þessa stækkun
verður ráðist. Til að flýta stækk-
uninni þannig að henni verði lok-
ið á árinu 1978 hefur svissneska
fyrirtækið nú tii athugunar að
semja við annað fyrirtæki um að
gerast minnihlutaeigandi i ÍSAL,
en með því móti væri unnt að
Framhald á bls. 18