Morgunblaðið - 03.09.1977, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1977
1 tilefni af 50 ára afmæli sínu bauð Ferðafélag íslands fólki úr félagi lamaðra og
fatlaðra til skemmtiferðar í Þórsmörk 21. og 22. ágúst s.l. Alls voru 88 manns í
ferðinni og er myndin tekin af hópnum fyrir utan sæluhúsið í Þórsmörk.
— segir landbúnaðaráöherra um
samþykkt Stéttarsambandsfundarins
Kassafiskur:
Ávinningurinn 20% meiri
vigt og hærra hlutfall
í neyzlupakkningarnar
„AVINNINGURINN af því að (sa
aflann ( kassa ( togurunum er
fyrst og fremst fyrir togarana
sjálfa að minni rýrnun verður um
borð f togurunum og kassafiskur-
inn skilar þannig meiri vigt að
öllu jöfnu, ef rétt er að þvf staðið
að setja fiskinn f kassana en hins
vegar er ávinningur fiskvinnsl-
unnar sá að hærra hlutfall aflans
fer í verðmætari pakkningar en
þegar um stfaðan fisk er að
Á gjörgæzlu-
deild eftir slys
FJÖGURRA ára gamall dreng-
ur varð fyrir bifreið á Lauga-
teigi á móts við hús númer 42
laust eftir hádegi í gær. Dreng-
urinn hlaut mikil höfuðmeiðsl
og var fluttur á Borgarspftal-
ann, þar sem gerð var höfuðað-
gerð á honum. Lauk aðgerð-
inni síðdegis í gær og var
drengurinn lagður á gjör-
gæzludeild spítalans að aðgerð
lokinni.
W HATTiR
VERfl ÖRÍM rT
PEáBR MflBOf? Mfl
HBrfi 516 RLLflN
VI9 BP t\tH
HW\' ^
ræða,“ sagði Helgi Þórðarson,
verkfræðingur, f samtali við
Morgunblaðið f gær, en hann hef-
ur unnið að athugunum á hag-
kvæmni þess að taka upp kassa
um borð f togurunum, bæði fyrir
Bæjarútgerð Reykjavfkur og aðra
aðila.
Varðandi rýrnunina um borð i
togurunum sagði Helgi, að nýleg
könnun, sem hann hefði gert,
sýndi að vigtin væri um 20%
meiri að meðaltali með þvi að isa
aflann í kassa eða 20 kg úr hverj-
um 100 kg og i stöku tilfellum
gæti hún aukizt um 30%. Matið
sýndi samsvarandi aukningu, svo
að meira færi í verðmætari flokk
og fyrir skipin kæmi þessi aukn-
ing til viðbótar við kassaálagið,
sem væri 12%, og þýddi þar af
leiðandi meiri tekjur.
Eftir því sem Helgi sagði tapar
þó fiskvinnslan engu á því, þótt
hráefnið sé keypt á þessu hærra
verði, því að kassaaflinn skilar
hærra hlutfalli í neyzlupakkning-
ar, og verðmunur sá sem hefði
verið á neyzlupakkningum og
fiskblokk á helztu útflutnings-
mörkuðum okkar brúaði þetta bil
fyllilega. Helgi sagði að þetta bil
hefði haldizt nokkurn veginn sl.
þrjú ár, en dálítið hefði dregið úr
því á sl. ári en væri nú að aukast
aftur samkvæmt sfðustu fréttum.
Helgi kvað þessar niðurstöður í
raun skipta meira máli en sú
lækkun sem yrði á löndunar-
kostnaði samfara því að kassar
yrðu teknir upp í borð í togurun-
Framhald á bls. 20.
— SAMÞYKKT aðalfundar
Stéttarsambands bænda um fyrir-
sjáanlegan vanda f markaðsmál-
um landbúnaðarins er bæði skyn-
samleg yfirveguð og sýnir að
bændur skilji þann vanda, sem
nú er við að etja. Það er rétt að
tvö atriði úr tillögum fundarins
gera ráð fyrir breytingum á gild-
andi lögum, eða fóðurbætisskatt-
inum, og heimild tif verðlækkun-
ar á framleiðsluaukningu. Eg
mun ekki beita mér fyrir þvf að
þessi atriði verði afgreidd með
bráðabirgðalögum en þessi f stað
mun ég beita mér fyrir þvf að
nefnd sú, sem skipuð var f maf á
sl. ári til að endurskoða lögin um
Framleiðsluráð landbúnaðarins,
taki til starfa og skoði þá sérstak-
lega þessi atriði auk þeirra sem
tilgreind eru f embættisbréfi
hennar, sagði Halldór E. Sigurðs-
son, landbúnaðarráðherra f sam-
tali við Morgunblaðið f gær.
Nefnd sú, sem landbúnaðarráð-
herra skipaði i maí á sl. ári til að
endurskoða lögin um Fram-
leiðsluráð, verðskráningu, verð-
miðlun og sölu að landbúnaðar-
vörum er skipuð þeim Jónasi
Jónssyni, ritstjóra, sem er for-
maður nefndarinnar, Birni Jóns-
syni, forseta Alþýðusambands Is-
lands, Brynjólfi Bjarnasyni,
rekstrarhagfræðingi frá Vinnu-
veitendasambandi Islands, Gunn-
ari Guðbjartssyni, formanni
Stéttarsambands bænda og Ölafi
Andréssyni bónda. Nefnd þessi
hefur, eftir þeim upplýsingum
sem Morgunblaðið hefur aflað
sér, lítið sem ekkert starfað en á
fyrsta fundi nefndarinnar gerðu
fulltrúar ASI og VSI bókun vegna
Flugvélar Vængja
hafa ekki flogið
síðan á mánudag
FLUGVÉLUM Vængja hf. hefur ekki verið flogið sfðan sfðastliðinn
mánudag. Er það vegna þess að 6 flugmönnum félagsins hefur verið
sagt upp. Aður hafði Morgunblaðið skýrt frá tveimur uppsögnum, en f
upphafi þessarar viku var fjórum til viðbótar sagt upp vegna þess að
þeir mættu ekki til vinnu sinnar sfðastliðinn laugardag og sögðust ekki
mæta fyrr en þeir fengju yfirvinnu frá því f júnfmánuði greidda.
Heimsmeist-
aramót ungl-
inga í skák
að hefjast
A MORGUN hefst heimsmeist-
aramót unglinga í skák, kepp-
enda 20 ára og yngri, í Inns-
bruck í Austurríki og um
miðja næstu viku hefst í borg-
inni Cagnes í Frakklandi
heimsmeistaramót skákmanna
17 ára ogyngri.
Island sendir keppendur á
bæði mótin, bræðufna Ásgeir
Þ. og Jón L. Arnasyni. Asgeir
keppir í fyrrnefndu móti en
Jón í því síðarnefnda. Ásgeir
er þegar farinn utan ásamt að-
stoðarmanni sínum, Benedikt
Jónassyni, en Jón heldur utan
á þriðjudaginnásamt Margeiri
Péturssyni, sem verður honum
til aðstoðar.
Þessar upplýsingar fékk Morg-
unblaðið i gær hjá Guðmundi
Magnússyni flugmanni. Hann
kvað Guðjón Styrkársson, stjórn-
arformann félagsins vera að
reyna að fá flugmenn til starfa
hjá félaginu, sem stæðu utan Fé-
lags íslenzkra atvinnuflugmanna.
Félagið hefði þó að einhverju
leyti leigt litlar flugvélar hjá öðr-
um félögum og látið þær fara
áætlunarferðir fyrir Vængi, en
þær ferðir kvað Guðmundur hafa
verið heldur stopular.
Kristján Egilsson hjá Félagi ís-
lenzkra atvinnuflugmanna kvað
stjórn félagsins enn ekki hafa tek-
ið ákvörðun um hvað það gerði til
stuðnings flugmönnum hjá
Vængjum. Málið væri í athugun
hjá lögfræðingi félagsins, sem
væri að kanna, hvað skyldi taka
til bragðs. Allflestum flugmönn-
um Vængja hefði verið sagt upp.
Þá sagði Kristján, að FlA hefði
borizt bréf frá Vinnuveitenda-
sambandi íslands, þar sem það
lýsir því að það telji samning fé-
lagsins við Flugfélagið Vængi úr
gildi fallinn á þeim forsendum að
umbjóðendur FlA hefðu ekki
mætt til vinnu. Kristján Egilsson
kvað allan gang mála hjá Vængj-
um með miklum eindæmum og
leita þyrfti langt aftur í söguna til
þess að finna svipaðar aðferðir
vinnuveitanda. Þá kvað hann
þess atriðis í embættisbréfi
nefndarinnar, þar sem segir að
enddurskoðun laganna skuli fela
það meðal annars í sér að tryggja
bændum sömu tekjur og viðmið-
unarstéttunum. Tóku fulltrúar
ASl og VSI fram að það væri ekki
í valdi þeirra að tryggja bændum
þessar tekjur. A þessum sama
fundi lýsti Gunnar Guðbjartsson,
formaður Stéttarsambands
bænda, þvi yfir að hann sæti ekki
fleiri fundi í nefndinni á meðan
þessi bókun yrði ekki dregin til
baka og Alþýðusambandið félli
frá málshöfðun sinni á hendur
fulltrúum Stéttarsambandsins í
sexmannanefnd.
Halldór E. Sigurðsson sagðist
vilja láta fyrrnefnda nefnd taka
til starfa sem fyrst, hvort sem
Framhald á bls. 20.
Ekkert hef-
ur spurzt til
Kristins
EKKERT hefur spurzt til ferða
Kristins Davfðssonar þrátt fyrir
vfðtæka leit undanfarna daga.
Þar sem lögreglan hefur ástæðu
til að ætla að Kristinn kunni að
vera í felum einhversstaðar,
ftrekar lögreglan óskir um að fólk
veiti upplýsingar, ef það telur sig
vita um ferðir Kristins.
Kristinn er 25 ára gamall og til
heimilis að Stóragerði 34, Reykja-
vík. Hann er 1.78 cm á hæð,
grannvaxinn, með skollitað hár,
sem nær rétt niður fyrir eyru, og
síðan ennistopp, sem hann greiðir
mikla pressu hafa verið á þessum
vinnustað undanfarið, sem væri
skiljanleg afleiðing stöðugra
deilna og erja innan fyrirtækis-
ins. Kristján kvað FlA líta mjög
alvarlegum augum ef tilraunir
Vængja, til að ráða flugmenn ut-
an FlA til starfa, tækjust. Milli
félagsins og Vængja væri deila,
sem leysa þyrfti, og hún leystist
ekki með því að ráðnir yrðu aðrir
flugmenn. Kristján Egilsson
kvaðst að lokum vonast til að
þessi deila leystist svo fljótt sem
auðið væri.
Kristinn Davíðsson.
til hliðar. Hann er með fíngert
unglingsandlit, frekar laglegur og
sýnist yngri en hann í raun er.
Kristinn er með rauðleita skegg-
rót og gæti hugsanlega verið kom-
inn með rauðan skegghýjung.
Þegar hann fór að heiman frá
sér s.l. sunnudag klukkan 18 var
hann klæddur í dökkgræna VlR-
úlpu, Ijósbláar gallabuxur og var
með svarta uppháa gúmmískó á
fótum. Kristinn er heldur grennri
í andliti en meðfylgjandi mynd
ber með sér.
Gjöf til mmningar um Eggert Claessen
ElWífH Claxsvtt. stai fi .sanuakanna.
Ekki bráðabirgðalög
- lögin um Framleiðslu-
ráð verða endurskoðuð