Morgunblaðið - 03.09.1977, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1977
3
ÍSBJÖRNINN h.f. stefnir að því að taka hið nýja
frystihús sitt við Reykjavíkurhöfn í notkun fljótlega
upp úr áramótum, að þvf er Jón Ingvarsson hjá
tsbirninum sagði í samtali við Morgunblaðið í gær.
Um svipað leyti fær ís-
björninn til landsins tvo
skuttogara sem eru í
smíðum um þessar mund-
ir í Flekkefjord í Noregi.
Verður annar þeirra af-
hentur í desember og
hinn í janúar. Bæði þessi
skip eru hönnuð með það
fyrir augum að allur afli
verði þar ísaður í kassa,
enda sagði Jón Ingvars-
son að nýja frystihúsið
væri gert til móttöku á
kassafiski og með allri
þeirri hagræðingu sem
unnt er að ná fram nú á
tímum.
Nýju togararnir eru
437 tonn að stærð og af
sömu stærð og Vest-
fjarðatogararnir Gyllir
og Guðbjörg, sem hafa
og Ásberg og einnig Ás-
borgu hér innanlands,
þannig að aðeins Ásþór
er nú eftir auk skuttogar-
ans Hrannar.
Fljótlega á næsta ári
bætist togaraflotanum í
Reykjavík þriðja nýja
skipið. Það er útgerðar-
fyrirtækið Sæfinnur,
sem þetta skip á, en nú er
unnið að smíði þess hjá
Stálvík í Garðahreppi. Að
sögn Magnúsar Gestsson-
ar, eins af forráðamönn-
um Sæfinns, er vonazt til
að skipið verði afhent í
febrúar á næsta ári en
það gæti þó dregizt fram í
apríl. Skipið er 51 metri á
lengd og 9 metrar að
breidd, og þannig undir
Nýtt frystihús Isbjarnarins
í notkun upp úr áramótum
Þrír nýir togarar til Reykjavíkur um svipað leyti
reynzt mjög hagkvæmir í
rekstri. Til að fjármagna
þessi togarakaup hefur
ísbjörninn m.a. selt til út-
landa nótaskipin Ásgeir
500 tonnum. Kvað Magn-
ús það svo til alveg hlið-
stætt skuttogaranum
Elínu frá Súgandafirði.
Að því er Magnús
sagði, þá er skipið byggt
með tilliti til þess að afl-
inn verði allur ísaður í
kassa, en einnig væri
gert ráð fyrir að skipið
gæti stundað veiðar á
öðrum tegundum fisks,
svo sem kolmunna, og
nefndi Magnús að fyrra
skip útgerðarfélagsins,
Arinbjörn, hefur stund-
að veiðar á loðnu í troll
með góðum árangri.
Kvað hann nýja skipið
verða mjög fullkomið að
öllu ley.ti.
Magnús sagði, að nýi
togarinn yrði gerður út
frá Reykjavík og legði
þar upp afla sínum. Hann
kvað þegar búið að semja
við aðila í Reykjavík um
móttöku og vinnslu afl-
ans, en kvað of snemmt
að skýra frá því hvaða
aðili það væri.
Karpov, Hort, Friðrik
og níu aðrir stórmeist-
arar á Interpolismótinu
„Þetta skákmót verður að styrk-
leika 13—14, en slíkir reikningar
eru gerðir upp f 15 hæst,“ sagði
Friðrik Olafsson, stórmeistari, í
samtali við Mbl. i gær, en hann er|
einn ellefu stórmeistara, sem
ásamt heimsmeistaranum Karpov
taka þátt í Interpolis-skákmótinu,
sem hefst I Tilburg I Hollandi 22.
september n.k.
Auk þeirra tefla á mótinu:
Anderson, Sviþjóð, Balashov,
Sovétrikjunum, Gligoric,
Júgóslaviu, Hort, Tékkóslóvakiu,
Hiibner, V-Þýzkalandi, Kavalek,
Bandaríkjunum, Miles, Englandi,
Razuvajev, Sovétríkjunum,
Sosonki, Hollandi, og Timman,
Hollandi.
Þegar Mbl. spurði Friðrik,
hvort þetta yrði sterkasta mót,
sem hann hefði teflt i siðustu
árin, sagði hann, að mótið i Bad
Laudesberg í marz. sl. gæfi þessu
móti í raun ekkert eftir, ef undan-
skildir væru þeir þrír Þjóðverjar,
sem þar höfnuðu í neðstu sætun-
um, en mótið í Bad Laudesberg
var 16 manna mót. Þar kepptu
átta þeirra, sem nú keppa í Til-
burg; Karpov, Friðrik, Anderson,
Gligoric, Hiibner, Miles, Sosonko
og Timman. Urslit þess móts urðu
þau, að heimsmeistarinn bar sig-
ur úr býtum, Timman varð i öðru
sæti, Fuhrman, Sovétríkjunum, í
þriðja sæti, Sosonko varð fjórði
og Friðrik fimmti.
343 óvæntir gestir
VANDRÆÐAASTAND varð I fyrrakvöld, er 323 farþegar komu
óvænt til Keflavíkurflugvallar með Boeing-þotu frá Pan
American Airays. Þotan með áðurnefndan fjölda farþega og 20
manna áhöfn bilaði, er hún var á flugi fyrir norðan land á leið frá
London til San Fransisco. Einn hreyfill Júmbóþotunnar hrein-
lega sprakk og varð hún á lenda á næsta flugvelli, sem var
Keflavíkurflugvöllur.
Þegar allur þessi fjöldi fólks, 343 manns, kom voru fyrst gerðar
ráðstafanir til þess að unnt yrði að sækja fólkið, en önnur flugvél
fékkst ekki. Þá lá fyrir að fólkið náttaði sig á Islandi og má segja
að starfsfólk Flugleiða hafi unnið talsvert þrekvirki að koma
öllum fyrir í svefnstað, enda sváfu farþegarnir á 14 stöðum í
Reykjavik. Flestir sváfu á Hótel Loftleiðum, Hótel Esju og á
Hótel Sögu. A Loftleiðahótelinu sváfu menn yfirleitt alls staðar,
þar sem unnt var að hola farþegunum niður. Sofið var á börunum
á Loftleiðum og Esju og á sundlaugarbarmi Loftleiðasundlaugar-
innar, i Leifsbúð og viðar, um hádegisbil í gær kom svo önnur
þota og sótti farþegana.
Fyrstu réttir verða
mánud. 12. septemb.
FYRSTU réttir á þessu hausti verða mánudaginn 12. september
n.k. samkvæmt upplýsingum Guðmundar Jósafatssonar frá
Brandsstöðum, starfsmanns Búnaðarfélags lslands. Þann dag
verður réttað I Hrútatungurétt og Miðfjarðarrétt í Húnavatns-
sýslu, Brekkurétt f Norðurárdal og Fljótstungurétt I Mýrasýslu.
Samkvæmt skrám Búnaðarfélagsins verður siðast réttað I Fells-
endarétt I Dölum 27. september.
Hér fer á eftir listi yfir réttir
þær, sem komnar voru á skrá
Búnaðarfélags Islands:
Tjarnarrétt i Kelduhverfi,
þriðjudaginn 13. september.
Hraunsrétt i Aðaldal, miðviku-
daginn 14. september. Silfra-
staðarétt i Skagafirði, mánu-
daginn 19. september. Reyni-
staðarrétt i Skagafirði, mánu-
daginn 19. september. Mæli-
fellsrétt í Skagafirði, miðviku-
daginn 14. september. Starfns-
rétt í Húnavatnssýslu, miðviku-
daginn 14. og fimmtudaginn 15.
september. Skrapatungurétt
Húnavatnssýslu, sunnudaginn
18. september. Auðkúlurétt
Húnavatnssýslu, laugardaginn
17. september. Undirfellsrétt í
Húnavatnssýslu, laugardaginn
17. september. Víðidalstungu-
rétt í Húnavatnssýslu, laugar-
daginn 17. september. Valdárs-
rétt i Húnavatnssýslu, föstu-
daginn 16. september. Mið-
fjarðarrétt í Húnavatnssýslu,
mánudaginn 12. og þriðjudag-
inn 13. september. Hrútatungu-
rétt í Húnavatnssýslu, mánu-
daginn 12. september. Fells-
endarétt i Dölum, þriðjudaginn
27. september. Gillastaðarétt i
Dölum, sunnudaginn 25. sept-
ember. Brekkurétt i Norðurár-
dal, mánudaginn 12. septem-
ber. Svignaskarðsrétti Mýra-
sýslu. miðvikudaginn 14. sept-
ember. Fljótstungurétt í Mýra-
sýslu, mánudaginn 12. septem-
ber. Þverárrétt í Mýrasýslu,
miðvikudaginn 14. september.
Rauðsgilsrétt i Borgarfirði,
föstudaginn 16. september.
Öddstaðarétt i Borgarfirði, mið-
vikudaginn 14. september.
Svarthamarsrétt í Hvalfirði,
miðvikudaginn 21. september.
Kjósarrétt, þriðjudaginn 20.
september. Hafravatnsrétt,
mánudaginn 19. september.
Kaldárrétt, sunnudaginn 18.
september. Gjábakkarétt i
Þingvallasveit, mánudaginn 19.
september. Laugarvatnsrétt,
þriðjudaginn 20. • september.
Klausturhólarétt í Grimsnesi,
miðvikudaginn 21. september.
Ölfusrétt, fimmtudaginn 22.
september. Tungnarétt, mið-
vikudaginn 14. september.
Hrunamannarétt, fimmtudag-
inn 15. september. Skeiðarétt,
föstudaginn 16. september.
Landréttir, föstudaginn 23.
september.
Þá verða stóðréttir í Mæli-
fellsrétt 17. september, Stafns-
rétt 14. september og Miðfjaró-
arrétt 14. september.