Morgunblaðið - 03.09.1977, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1977
17
Albert túlkaði sjónar-
mið Laimamálanefndar
Blaðinu hefur borizt eftirfarandi frá Launamálanefnd Reykjavfkur-
borgar:
TALSMAÐUR Stéttarfélags verkfræðinga hefur itrekað skýrt fjölmiðl-
um villandi eða jafnvel rangt frá staðreyndum i kjaradeilu félagsins
við Reykjavikurborg. Því þykir nauðsynlegt að taka fram eftirfarandi:
1. Það er ekki rétt, að lokaboð Reykjavíkur hafi verið 7.5% hækkun á
júlíkaup. Hið rétta er, að borgin bauð verkfræðingum fyrst 7.5%
hækkun á júlikaup og samningstíma til 1.11. 1977 í samræmi við
samninga B.H.M. og sjúkrahúsalækna. Eftir að verkfræðingar höfðu
hafnað þessu bauð borgin 12% hækkun á júlíkaup og áfangahækkanir
og samningstfma í samræmi við kjarasamninga A.S.I. Auk þess bauð
borgin hlutfallslegar vísitöluhækkanir.
Til skýringar á þessu tilboði skal tekið fram, að í júlí höfðu
verkfræðingar fengið 6.73% vfsitöluhækkun og 4% áfangahækkun
umfram samninga A.S.I. og jafngildir því tilboð bergarinnar um 12%
hækkun á júlílaun 24.32% hækkun á vegin meðallaun verkfræðinga
frá því að samningar A.S.l. runnu út. Rétt er að sýna eftirfarandi samanburð: A. Hjá Reykjavíkurborg: Maflaun Tilbod Launamála- nefndar HækKun
Alm. verkfr. -r- byrjunarl. 129.910 161.504 31.594
Alm. verkfr. — hámarksl. 187.070 232.564 45.494
Deildarverkfr. —byrjunarl. 149.397 185.728 36.331
Deildarverkfr. — hámarksl. 208.318 258.979 50.661
Vegið meðaltal 180.418 224.293 43.875
B. Hjáríkinu: Maílaun Júlflaun Hækkun
Alm. verkfr. — byrjunarl. 124.765 148.875 24.110
Alm. verkfr. —hámarksl. 144.912 172.910 28.004
Deildarverkfr. — byrjunarl. 150.438 179.508 29.070
Deildarverkf. —hámarksl. 174.734 208.501 33.767
Samkvæmt tilboðinu hækka vegin meðallaun verkfræðinga i
september vegna vísitölu um kr. 8.815.00. Samkvæmt samningum
A.S.Í. hækka septemberlaun hins vegar um kr. 3.520.00.
Samkvæmt samningum A.S.l. nam hækkun mánaðarlauna miðað við
maílaun kr. 18.000.00 auk sérkröfuprósenta.
2. Launamálanefnd borgarinnar er einróma þeirrar skoðunar, að
miðað við aðra undangengna kjarasamninga og nýgerð tilboð ríkisins
til B.S.R.B. og B.H.M. sé ofangreint tilboð þegar í hámarki. Hefur
samningamönnum Stéttarfélagsins verið skýrt frá þessari skoðun
nefndarinnar en ekki sem einkaskoðun formanns hennar, Alberts
Guðmundssonar.
3. Fullyrðing talsmanns Stéttarfélagsins um að engar teikningar
verði stimplaðar hjá byggingarfulltrúa er einnig röng. Byggingarfull-
trúi hefur samkvæmt stöðu sinni og reglum um byggingarmál rétt og
skyldu til að stimpla og afgreiða teikningar. Hefur hann gert það
undanfarna daga og mun gera áfram eftir því sem tök eru á. Á sama
hátt munu aðrir embættismenn borgarinnar sem fjalla þurfa um
teikningar og önnur mál varðandi byggingar greiða fyrir afgreiðslu
þeirra eftir föngum.
4. Þá eru þau vinnubrögð talsmanns verkfræðinga ámælisverð að
bera í fjölmiðla ummæli sem höfð eru á samningafundum aðila og á
fundi hjá sáttasemjara auk þess sem þar er ranglega skýrt frá
staðreyndum. Er það skýlaust brot á vinnulöggjöfinni og viðurkennd-
um leikreglum, auk þess sem frásögn umrædds talsmanns verður
vægast sagt að teljast vafasöm heimild.
Reykjavík, 2. september 1977.
Launamálanefnd Reykjavíkurborgar.
Sumarauki í Sólon íslandus
JÓNINA Guðnadóttir opnar í dag
kl. 4 sýningu á listaverkum úr
keramik í gallerí Sólon lslandus.
Á sýningunni eru hinir marg-
breytilegustu listmunir, sem Jón-
ína hefur unnió úr steinleir,
hrauni, ýmsum ábrenndum leir-
tegundum og notað oxíð og gull
til skreytinga.
Hér er ekki um að ræða fjölda-
framleiðslu á nytjahlutum, eins
og keramikið hefur yfirleitt verið
unnið, heldur listmuni til skreyt-
inga, að sögn Jóninu.
Er þetta þriðja einkasýning
listakonunnar, sú fyrsta var í
Unuhúsi 1968 og önnur í bóka-
safni Norræna Hússins 1975.
Jónína Guðnadóttir hefur
kennt við Myndlista- og Handíða-
skóla íslands frá því að keramik-
deildinni þar var komið á fót
1969, að frádregnum tveimur ár- í
um í Kaupmannahöfn, þar sem
hún vann á keramikverkstæðum
og kynnti sér nýja tækni í
keramikvinnuaðgerðum. Hún
nam við Myndlista- og Handíða-
skólann frá 1959—61 og hélt
síðan til náms við hinn þekkta
Konstfack listiðnaðarskóla í
Stokkhólmi, þar sem hún lærði i
fimm ár.
Öll verkin á sýningu Jóninu eru
til sölu og er verðið að smæstu
hlutunum frá fimm þúsund krón-
um og þeim stærstu upp í sjötíu
þúsund krónur. Eitt samfellt
listaverk á sýningunni er frá-
brugðið hinum og það kallar Jón-
ína Sumarauka. Eru það ótal fugl-
ar i öllum stærðum, sem hanga í
loftinu.
Sýningin stendur til 19. sept. og
er opin frá kl. 14—22 alla dagana.
Kaupmannahötn 22
Gonf
Lissabon
London
Helsingfors
Honolulu
Madrid
Mallorka
Miami
Montreal
New York
Róm
Ósló
Paris
Stokkhólmur
Toronto
Vancouver
Vln
20
27
20
20
32
30
27
27
30
31
24
19
22
21
30
19
24
sól
místur
bjart
rigning
sól
skýjað
bjart
skýjaS
bjart
rigning
skýjaS
skýjaS
rigning
sól
bjart
skýjaS
skýjað
bjart
Stjórnarkreppan í
Hollandi að leysast
Haag, 2. september. AP.
ÚTLIT er nú fyrir, að stjórnar-
kreppan í Hollandi sé á enda eftir
að væntanlegir samstarfsflokkar
um stjórnarmyndun komust að
samkomulagi um frumvarp um
fóstureyðingar í dag. Er gert ráð
fyrir að Joop den Uyl, leiðtogi
jafnaðarmanna, myndi stjórna á
næstunni þrátt fyrir að enn eigi
eftir að afgreiða ýmis mál, þ.á m.
útgjöld til varnarmála og stefna f
kjarnorkumálum.
Þrír flokkar, jafnaðarmenn,
kristilegir demókratar og demó-
kratar 66, eigi aðild að þessu sam-
komulagi, sem gerir ráð fyrir að
ný ríkisstjórn semji og leggi fyrir
þing nýtt frumvarp um frjálsar
fóstureyðingar fyrir 1. janúar
1979, eða ef það ekki tekst að láta
þingið taka ákvörðun um málið.
Flokkur den Uyls vill að gild-
andi löggjöf um fóstureyðingar
verði rýmkuð þannig að konur
taki sjálfar ákvörðun um hvort
þær láti eyða fóstri eða ekki, en
kristilegir demókratar eru i
grundvallaratriðum andvigir því
að fóstri sé eytt nema til að
vernda líf möðurinnar. Demókrat-
ar 66 hafa almennt stutt jafnaðar-
menn i þessu máli.
Samkomulag þétta var gert fyr-
ir tilstuðlan dr. Gerards Veringa,
sem sæti á i rikisráðinu og
Júlíana Hollandsdrottning skip-
aði sáttasemjara eftir að den Uyl
hafði i annað sinn gefizt upp við
stjórnarmyndun.
Carter vísar reið-
ur á bug ásökunum
um vafasöm lán
Washington 2. septomber
Reuter — AP
CARTER Bandaríkjaforseti hef-
ur vísað algerlega á bug tímarits-
grein í blaðinu Republic, þar sem
segir að hann hafi tekið vafasöm
lán í Georgiubanka, sem Bert
Lance, núverandi fjárlaga- og
hagsýslustjóri Bandaríkjanna,
var þá bankastjóri fyrir. 1 grein-
inni segir að Carter hafi tekið
þessi lán til að fjármagna kosn-
ingabaráttu sína. Segir þar að
Carter hafi fengið há lán án þess
að þurfa að setja nokkrar trygg-
ingar eða mjög litlar.
Persónuleg fjármál Lance hafa
verið mjög i sviðsljósinu undan-
farnar vikur vegna rannsóknar á
fjárreiðum hans meðan hann var
bankastjóri og ýmsum eignum
hans. en rannsóknarnefndir hafa
ekkert fundið enn, sem kallazt
getur lögbrot.
Jody Powell, blaðafulltrúi
Carters, var mjög reiður á fundi
með blaðamönnum i Hvita húsinu
í gær og sagði að greinin væri
dæmigerð slúðurblaðamennska,
þar sem menn forðuðust að spyrja
spurninga eða leita upplýsinga,
sem gætu eyðilagt greinina. Sagði
Powell að umrædd lán væru
miklu heiðarlegri en sá grunnur,
sem greinin væri byggð á. öll
helztu dagblöð og fjölmiðlar
Bandaríkjanna hafa vitnað i
greinina. Þar segir m.a. að Carter
hafi notað sem tryggingu fyrir
lánunum hugsanlegt fé, sem hann
fengi skv. lögum um fjármögnun
„Gott að fara með þingeyskt loft til Snæfellsness”
— segir Jakob V. Hafstein sem opnar
í dag sína 15. málverkasýningu
í DAG opnar Jakob V. Hafstein
slna 15. mélverkasýningu i Tjarn-
arbúð, en það mun vera í annað
sinn sem málverkasýning er hald
in i Tjarnarbúð, áður mun Magnús
Jónsson prófessor hafa haldið þár
sýningu á striðsárunum. Opnar
Jakob sýningu sina i dag kl. 17,
en hún verður opin til og með 11.
september frá kl. 16—22 daglega
nema laugardaga og sunnudaga,
þá verður opið frá kl. 14—22.
í spjalli við blaðamenn i gær
sagði Jakob Hafstein að þetta væri
hans 15. einkasýning. Hefði hann
haldið sina fyrstu árið 1967 „heima
á Húsavlk ', eins og hann orðaði
það. Sagðist hann ekki hafa haft
meiri kjark í sér þá til a halda
sýningu i höfðborginni. Á þessari
sýningu sýnir Jakob i fyrsta sinn
pastelmyndir, alls 24, sem hann
hefur gert á síðustu árum, en auk
þess eru á sýningunni 1 1 vatnslita-
myndir og 12 oliumálverk „Ég hef
fengizt við pastel i nokkur ár, en
þorði ekki að sýna pastelmyndir fyrr
en nú þar sem mér finnst ég loks nú
vera að ná einhverju taki á past-
elinu," sagði Jakob i gær
Jakob sagðist svo til eingöngu
Framhald á bls. 29
Listamaðurinn Jakob V. Hafstein við myndir sinar I Tjamarbúð i gser.
Jakob opnar i dag málverkasýningu ITjamarbúð og er það 15. einkasýn-
ing Jakobs.
Mótmælti
með sjálfs-
íkveikju
Stokkhólmi — 2. september — AP.
MAÐUR frá Panama hellti yf-
ir sig benzíni og kveikti síðan í
fyrir utan bandaríska sendi-
ráðið 1 Stokkhólmi. Starfs-
mönnum sendiráðsins tókst að
kæfa eldinn eftir skamma
stund, en maðurinn, sem er
lagaprófessor að nafni
Leopoldo Aragon, liggur nú í
sjúkrahúsi alþakinn brunasár-
um. Líf hans er í hættu. Að því
er maðurinn tjáði fréttamanni
sænska sjónvarpsins áður en
athurður þessi átti sér stað,
var tilgangur hans að mót-
mæla undirritun hins nýja
samnings Panama og Banda-
ríkjanna um Panamaskurðinn.
Aragon kom í hús sænska
sjónvarpsins, sem er í næsta
nágrenni við sendiráðið, áður
en atburðurinn gerðist, og
tjáði mönnum þar fyrirætlan
sína, og krafðist þess að tekin
yrði kvikniynd. Þegar kröfu
hans var hafnað hótaði hann
að drepa tvo menn, ef þeir
gerðu lögreglunni viðvart um
það, sem í aðsigi væri.
kosninga, sem heimila frambjóð-
endum að safna jafnmiklu fé í
kosningasjóð sinn meðal stuðn-
ingsmanna og nemur upphæð-
inni, sem hið opinbera lætur hon-
um i té. Segir í greininni að um-
rædd lög hafi verið úrskurðuð
brot á stjórnarskránni vorið 1976
og þvi ekki hægt að nota slikt fé
sem tryggingu. Powell sagði að
ekkert af lánum Carters hefði
verið tekið með opinbert framlag
sem tryggingu, fyrr en lögin
hefðu verið umskrifuð og þau tek-
ið gildi.
Enn finn-
ast fleiri
lán Bert
Lance
New York 2. september AP.
BANDARtSKA stórblaðið The
Wall Street Journal skýrði frá því
i dag, að banki Bert Lance, fjár-
laga- og hagsýslustjóra Carters
Bandaríkjaforseta, hefði í
desember og janúar lagt 4
milljónir dollara á vaxtalausa
reikninga i öðrum banka, sem á
sama tími hefði veitt 400 þús.
dollara lán til að greiða skuldir
Lance vegna kosningabaráttu
hans til fylkisstjórakjörs í
Georgiu 1974. Blaðið segir að
banki Lance, National Bank í
Georgiu, hafi í desember og janú-
ar aukið vaxtalausar innstæður
sínar í Southern Citizens Bank í
Atlanta úr 61000 dollurum í 4.4
milljónir dollara meðalinnstæðu
á dag og bankinn hafi á sama
tíma lánað kosninganefnd Lance
140 þús. dollara í desember og
250 þúsund doliara í janúar. Seg-
ir blaðið, að talsmenn National
Bank segi, að innstæðan hafi ver-
ið aukin skv. ráðleggingu sér-
fræðinga um nauðsyn bankans á
að auka innlausnarsamstarfs við
Atlantabankann.