Morgunblaðið - 03.09.1977, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1977 23
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar |
Munið sérverzlunina
með ódýran fatnað.
Verðlistinn Laugarnesvegi
82. s. 31330.
Keflavik
Til sölu m.a. glæsileg 3ja
herb. ibúð , gott herb. í kjall-
ara fylgir. Góð 2ja — 3ja
herb. íbúð. Stór bilskúr. Góð
efri hæð í tvibýlishúsi. Stórt
iðnaðarhúsnæði fylgir. Enn-
fremur raðhús og parhús á
góðum stöðum i bænum.
Njarðvík
Góð risibúð. Glæsilegt
raðhús næstum fullgert. Enn-
fremur 2ja og 3ja herb.
íbúðir í smíðum. Hagstæð
kjör. Höfum kaupendur á bið-
lista af flestum gerðum íbúða
á Suðurnesjum.
Eigna og verðbréfasalan,
Hringbraut 90, Keflavik.
Simi 92-3222. Friðrik Sig-
fússon fasteignavsk.
Ný teppi og mottur.
Teppasalan s. 19692.
Stundvís og reglusöm
21 árs gömul stúlka óskar
eftir atvinnu. Margt kemur til
greina. Meðmæli ef
óskað er Uppi. í s.
31473.
Ijósastillingartækjum. Ragnar
Eiðsson Bragðavöllum. Sími
um Djúpavog. (97-8800).
ÚTIVISTARFERÐIR
Laugard. 3/9. kl. 13.
Reykjafjall, létt ganga.
Verð: 1200 kr. Fararstj.:
Einar Þ. Guðjohnsen.
Sunnud. 4/9.
1. kl. 10. Grinda-
skörð, hellaskoðun eða
fjallgöngur. Fararstj.: Einar Þ
Guðjohnsen.
2. kl. 13. Umhverfi
Húsfells: Fararstj.: Gísli
Sigurðsson. Verð: 1000 kr.
Fritt fyrir börn m fuliorðn-
um. Farið frá B.S.Í. að vest-
anverðu.
• Útivist.
FERflAfÉLAG
ÍSIANBS
0L0UG0TU3
SÍMAR, 11798 og 19533.
Laugardagur 3. sept.
kl. 13.
19. Esjugangan.
Gengið á Kerhóla-
kamb (851 m.)
Gengið frá melnum austan
við Esjuberg. Skráningargjald
kr. 100. Bíll frá Umferðar-
miðstöðinni að austanverðu.
Verð kr. 800 gr. v/bilinn.
Allir fá viðurkenningarskjal.
Fararstjóri: Þórunn Þórðar-
dóttir.
Sunnudagur 4. sept.
kl. 13.
1. Gönguferð á Ármannsfell
(766m.) Fararstjóri: Guðjón
Halldórsson
2. Gengið um Þingvelli. Létt
ganga. Fararstjóri: Þorgeir
Jóelsson.
Verð kr. 2000. — greitt við
bílinn. Farið frá Umferðar-
miðstöðinni að austanverðu.
Ferðafélag íslands.
I
KFUM 1 KFUK
Almenn samkoma í húsi
félaganna við Amtmannsstig
2b sunnudagskvðld *- kl.
20.30. Ástráður Sigurstein-
dórsson skólastjóri talar.
Fórnarsamkoma. Allir
velkomnir.
Fundarboð
Aðalfundur Kirkjukórasam-
bands íslands verður haldinn
fimmtudaginn 8. sept. 1977
kl. 8 e.h. að Hótel Borg
Reykjavik 5. hæð. Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Söngmálastjóri Haukur
Guðlaugsson mætir á
fundinum. Stjórnin.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Skagafjörður
Aðalfundur sjálfstæðisfélags Skagfirðinga verður haldinn i
Sæborg Sauðárkróki (Aðalgötu 8) þriðjudaginn 6. sept. n.k.
kl. 9 síðdegis.
Dagskrá. Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Stjórn kjördæmissamtaka
ungra Sjálfstæðismanna
í Reykjaneskjördæmi
Fundur verður haldinn i Valhöll, Reykjavík mánudaginn 5.
spetember n.k. kl. 20.00.
Fundarefni: Undirbúningur SUS-þings.
Sauðárkrókur
Bæjarmálaráð sjálfstaeðisfélaganna á
Sauðárkrók er boðað til fundar í Sæborg
miðvikudaginn 7. sept. n.k. kl. 8.30
síðdegis.
Dagskrá: Bæjarmálaefni
' Stjórnin.
ÍGreiðsla
olíustyrks í Reykjavík
til þeirra, sem nota olíukyndingu fyrir
tímabilið apríl 1977 — júní 1977 hefst
mánudaginn 5. september hjá borgar-
gjaldkera, Austurstræti 16. Afgeiðslutími
er frá kl. 9.00 — 15.00 virka daga.
Styrkurinn greiðist framteljendum og ber
að framvísa persónuskilríkjum við mót-
töku.
Skrifstofa borgarstjóra.
Tónlistarskóli
Hafnarfjarðar
Söngnemendur
Starfrækt verður söngdeild við Tónlistar-
skóla Hafnarfjarðar næstkomandi vetur.
Kennarar: Sieglinde Kahman og Sigurður
Björnsson. Væntanlegir nemendur skili
umsóknum fyrir 15. september. Um-
sóknareyðublöð og nánari upplýsingar á
skrifstofu skólans kl. 4—6 daglega.
Skólastjóri.
Frá Landakotsskóla
Skólinn verður settur þriðjudaginn 6
september. Nemendur mæti sem hérseg-
ir.
12 ára kl : 10:00
1 1 ára kl : 10:30
9 og 10 ára kl . 1 1 00
8 ára kl : 1 1 30
7 ára kl.: 13:00
6 ára kl : 1 3:30.
Skólastjórinn.
Frá Kvennaskólanum
í Reykjavík
Uppeldisbraut verður starfrækt við skól-
ann næsta vetur Hægt er að bæta við
nokkrum nemendum. Upplýsingar veittar
í síma 13819. Skólastjóri.
Tilboð óskast
í nokkrar fólksbifreiðar, Pick-up bifreið og
jeppabifreið. Ennfremur í nokkrar ógang-
færar bifreiðar er sýndar verða að Grens-
ásvegi 9, þriðjudaginn 6 sept kl
12—3. Tilboðin verða opnuð í skrifstofu
vorri kl. 5.
Sa/a varnaliðseigna.
-Nýjar tegundir
Framhald af bls. 21
HÉR KOMA NOKKUR
SÝNISHORN
ÞESSARA SAGNA
Hefnd kokkáisins
Bergenbúi nokkur vann á
steypubíl á kvöldin, í aukavinnu.
Dag nokkurn ók hann framhjá
húsi sinu, á steypubflnum, og sá
þá bil eins kunningja sinna
standa fyrir utan, en bíllinn var
með sólþaki. Hann stöðvaöi bilinn
og gekk inn til að vita hvað kunn-
inginn vildi. Hljóð frá svefnher-
berginu tóku af allan vafa um, að
það var ekki hann, sem kunning-
inn var að heimsækja, heldur
konan. — Án þess að þau i svefn-
herberginu yrðu vör við, gekk
hann út og að bil kunningjans.
Hann dró sólþakið niður og bakk-
aði steypubílnum að bílnum.
Þessu næst fyllti hann bilinn með
steypu. — Þegar kunninginn ætl-
aði að aka á brott í bíl sinum var
steypan orðin hörð. — Seinna um
kvöldið var billinn dreginn burt.
Lögreglunni var ekki gert viðvart
um málið.
Nokkrar rolls-royce
sögur
Rolls-Royce eigandi nokkur var
á ferðlagi á meginlandinu. Þá
gerðist það, að drifskaft bilsins
brotnaði. Hann sendi simskeyti til
verksmiðjanna. Stuttu siðar var
komið fljúgandi með varahlutinn
og gert við á staðnum.
— Nokkrum mánuðum síðar
hafði eigandinn ekki enn fengið
viðgerðarreikninginn. Það varð
úr að hann skrifaði til verksmiðj-
anna. Eina svarið, sem hann fékk,
var, að Rolls-Royce drifsköft
brotnuðu aldrei.
Þegar farið fra aó framleiða
hina heimsfrægu Silver Ghost
tegund og tekið til við að aka
henni, kom í ljós, að klukkan, i
mælaborðinu var það sem olli
mestum hávaða á 100 km. hraða.
Forstjórar verksmiðjanna gáfu
fyrirmæli um að reynt yrði að
lagfæra þetta hið snarasta.
Engum er leyft að aka Rolls-
Royce, nema hafa áður fengið
þjálfun í ökuskóla verksmiðj-.
anna.
Barnagæzlan,
scm kom of seint
Ung hjón ætluðu að fara i ferða-
lag. Amma gamla hafði lofað að
gæta litla barnsins þeirra á með-
an þau væru burtu.
Þau höfðu hringt og amma var
á leiðinni. Nú sátu þau og biðu.
Tíminn leið. — Við komum of
seint tii flugvallarins, við missum
af ferðinni, sögðu þau hvort við
annað.
Þar sem amma hlaut að koma
innan tiðar, settu þau barnið i
barnastólinn og reyrðu það fast.
Þá var síður hætta á, að það færi
sér að voða. Þessu næst pöntuðu
þau leigubfl og óku til flugvallar-
ins.
Viku siðar komu þau heim úr
ferðalaginu. Barnið sat ennþá í
stólnum. Dáið. Amma hafði lent i
bílslysi á leiðinni til þeirra. Hún
hafði legið meðvitundarlaus á
sjúkrahúsi, i viku, og því ekki
getað sagt neitt.
Ódýri bíllinn
Maður nokkur sá auglýsingu i
blaði um notaðan bíl til sölu, fyrir
ótrúlega lágt verð. Hann fór þang-
að, sem billinn var til sýnis og
knúði þar dyra. Til dyra kom
kona á sorgarklæðum. Hann
keypti bilinn. En skömmu siðar
uppgötvaði hann blóðpoll i einu
sætinu. Þar hafði eiginmaður
konunnar skorið sig á háls.
Farþeginn, sem hvarf
Ung stúlka stöðvai bil og bað
um far. Hún nefndi ákveðið heim-
ilisfang og ætlaði bílstjórinn að
fara með hana þangað. Á leiðinni
hvarf stúlkan sporlaust úr bfln-
um. Ökumaðurinn fór á staðinn,
sem hún gaf upp. Þar var honum
sagt, að stúlkan hefði látizt fyrir
nokkru.
fslenzkir
bíldraugar
Ýmsar sagnir ganga af viðskipt-
um bilstjóra og drauga. Sagt er,
að fólk, sem tekið hafi verið uppi,
hafi horfið sporlaust. Einnig er
talað um svipi, sem hafa sézt
ganga á undan bilum eða í veg
fyrir bila. Nokkrir staðir eru til-
greindir í þessu sambandi. Má þar
tilnefna Vogastapa og Kerlingar-
skarð.
Sagnir eru lika til um reimleika i
gömlum likvögnum og fleira i
þessum dúr.
Fyrir nokkrum árum voru vin-
sælir s.k. fílabrandarar, t.d.:
Hvernig sézt, að það hafi verið fíll
i ísskápnum? — Það eru fótspor í
smjörinu!
Eða: Hvað er það, sem er brúnt
með rauðar rendur? — Kjötbolla
með axlabönd!
Heimildir:
Folkloro 1969, 80:4. Londun.
The Folk-lore sociely. Fataburen 1971.
(irein f Expressen 5/10 1976.
N'ordisk folktro. Lund 1976.
Tradition 3. 1973.)