Morgunblaðið - 03.09.1977, Blaðsíða 27
27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 3. SEPTEMBER 1977
Síöbúin minning:
Ingunn Árnadóttir
frá Stóra-Hrauni
Fædd. 25. janúar 1895
Dáin. 15. maf 1977.
Frú Ingunn Arnadóttir frá
Stóra-Hrauni lést hinn 15. maí
síðastliðinn, 82 ára að aldri.
Hún var dóttir hjónanna séra
Árna Þórarinssonar og Elísabetar
Sigurðardóttur frá Syðra-
Skógarnesi og varð þeim hjónum
ellefu barna auðið og var Ingunn
elst þeirra barna.
Mér barst lát Ingunnar vestur
um haf með islenzku blöðunum,
um mánuði eftir andlát hennar,
og er ég nú nýkomin heim þegar
ég rita þessar minningarlinur.
Minning mín um frú Ingunni er
eins og sólargeisli. Ég átti þvi láni
að fagna að dvelja 'a heimili henn-
ar og Kristjáns Einarssonar sál-
uga, framkvæmdastjóra, þrjú
sumur bæði i Reykjavik og á
Stóra-Hrauni, þar sem þau dvöldu
á sumrin með börn sin Árna og
Elinu. Ég minnist séra Árna föð-
ur Ingunnar sálugu þegar ég kom
fyrst að Stóra-Hrauni barn að
aldri og hann gekk með mér út á
túnið og kenndi mér að biðja, og
hvað hann fór með mikilli varúð í
kringum hvar ég stæði i trúnni.
Ég var ekki burðug þá og niðurlút
og feimin á láta nokkuð í ljós hvar
ég stæði þar.
Oft hef ég hugsað það með
söknuði, hve mjög ég hefði notið
þess núna miðaldra, að vera sam-
vistum við séra Árna og ræða við
hann þann merka mann og mjög
svo sérstæða.
Ingunn sáluga var mikil kona
til sálar og líkama, heil og sterk.
Ég sakna hennar úr hópi lif-
enda, ég minnist þessarar mætu
og góðu konu með söknuði, hún
vafði mig aðkomubarnið ást og
umhyggju sem sitt eigið og eins
var um Kristján sáluga. Hann
andaðist fyrir einum 15 árum.
Ég minnist oft séra Árna, föður
Ingunnar sálugu, og þá finnst
mér birta í kirngum mig. Ég
minnist hans þegar ég sem litil
telpa lék mér í Skólavörðuholt-
inu, þar sem móðir mín sat undir
steini og stoppaði i sokka eins og
alþýðukonur þess tima gerðu,
með barnahópinn í kringum sig.
Þá kom séra Árni yfir holtið til
okkar og gleði og fögnuður gagn-
tók okkur — þá lagði móðir mín
frá sér sokkana og brosti glatt —
séra Árni var kominn og þá var
öruggt að dagurinn yrði skemmti-
legur. Þá var farið heim og kaffi
hitað og kallað á afa minn, sem
var Jón Eiríksson frá Högnastöð-
um, og voru þeir séra Árni systk-
inasynir að frændsemi. Gaman
var að hlusta á þá ræða saman á
fleygri stund og oft var glatt á
hjalla, þó að stundum slægi í
brýnu með þeim þegar þeir rædd-
u eilífðarmálin, sem stóð þeim
báðum næst hjarta. Þeir sættust
þó alltaf og fögnuðu endurfund-
um.
Ingunn sáluga var mikil vin-
kona Svövu móðursystur minnar,
sem andaðist 25 ára að aldri, og
minntist hún ávallt Ingu fyrir
tryggð hennar og gæði. Ég minn-
Kveðja:
Egill Halldórsson
skipstjóri Þingeyri
Það varð mér mikil harmafregn,
er ég frétti andlát vinar míns,
Egils Halldórssonar frá Dyrhól á
Þingeyri, en hann lézt í sjúkra-
húsinu á Isafirði þann 11. ágúst
síðastliðinn aðeins fimmtugur að
aldri.
Það var fyrir tæpu ári að hann
kom hér suður til rannsóknar og
gekkst síðar undir skurðaðgerð.
Við hjónin heimsóttum Egil að
sjúkrahúsdvölinni lokinni og bar
hann sig þá jafnt sem endranær
karlmannlega og var jafn léttur í
lund og bjartsýnn og hann var
ævinlega. Okkur óraði ekki fyrir
því þá að þetta yrði okkar síðasta
spjall. Síðan fór hann vestur aftur
og auðnaðist að dvelja á heimili
sínu hjá sinni ástriku og góðu
konu, Guðmundu Pálsdóttur og
börnum sínum þar til síðustu vik-
urnar, er hann dvaldi á sjúkra-
húsinu á Isafirði.
Ekki ætla ég að rekja ættir
Egils, til þess er ég ekki nógu
kunnug, aðeins að flytja nokkur
þakklætisorð fyrir veru mína hjá
þeim hjónum. Þegar ég, sem ungl-
ingur, kom til vinnu á Þingeyri,
var ég svo lánsöm að eiga athvarf
á Dyrhól og var þar i fæði og
húsnæði í tvo vetur og part úr
sumri, og hef ávallt síðan verið
jafn velkomin þar. Vart er hægt
að hugsa sér betri verustað, en á
því heimili, þar sem var allt svo
óþvingað, glaðværð ríkjandi og
samstaða þeirra hjóna svo og allr-
ar fjölskyldunnar var innileg.
Varlega verð ég að fara út í það
að hæla Agli, þvi það hefði hann
ekki kært sig um. En það er ekki
of sterkt til orða tekið, að hann
var mikill dugnaðar- og atorku-
maður og ósérhlífinn. Hann
stundaði lengst af sjómennsku og
varð fengsæll í þvi starfi.
Egill var spaugsamur og léttur i
lund, tryggur og góður félagi, sem
gott var að leita til.
Ekki get ég látið hjá liða að
minnast þess, að foreldrar Egils,
þau Þórhildur Bjarnadóttir og
Halldór Jónsson, miklar ágætis-
manneskjur, dvöldu bæði á heim-
ili sonar síns og tengdadóttur til
dauðadags, en Halldór lézt nú
fyrir skömmu þar heima. Þau
nutu þar sérstaklega góðrar um-
önnunar og ekki má gleyma þeim
stóra hluta sem Munda átti þar að
máli en þar kom bezt í ljós hve
miklum mannkostum hún er bú-
in.
Þau Munda og Egill eignuðust
fimm börn, þau Pál, Halldór,
Stefán, Þórhildi og Svanhildi,
sem öll eru vel gerð og mannvæn-
leg.
Ég vil með þessum fátæklegu
orðum þakka þær mörgu ánægju-
stundir og góðvild, er ég naut hjá
þeim Mundu og Agli á þeirra
ágæta heimili. Þar er nú höggvið
stórt skarð, þar sem Egill er á
braut, en minningin um góðan
dreng mun lifa í hugum okkar.
Blessuð sé minning hans.
Munda mín, þér og börnunum
sendum við hjónin okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur og biðjum
um styrk guðs ykkur til handa.
Kristbjörg Jónsdóttir
frá Vésteinsholti.
ist einnig systkina hinnar látnu,
sem lifa og sjá nú á bak systurinni
góðu, og siðast en ekki sízt móður
frú Ingunnar sálugu, prestfrúnni
frú Elísabet Sigurðardóttur sem
vafði mig ást og umhyggju þegar
ég kom að Stóra-Hrauni.
Móðir min sáluga var einnig
kunningjakona frú Ingunnar og
minntist hennar ávallt sem mikill-
ar mannkostamanneskju.
Ég man hana sem mikla höfð-
inglega húsmóður á ríkmannlegu
heimili þeirra hjóna, en fyrst og
fremst sem ástúðlega eiginkonu
og elskulega móður, sem bar um-
hyggju fyrir öllum sem umgeng-
ust hana.
Megi Guð launa henni af náð
sinni öll gæðin sem ég og fjöl-
margir aðrir nutu á heimili þeirra
hjóna.
Megi sáðkorn trúarinnar, sem
séra Árni faðir Ingunnar sálugu
sáði I akur barnanna sinna og
allra þeirra, sem hann var sam-
ferða á langri vegferð sinni þess-
arar tilveru, bera ríkulegan ávöxt
um ókominn tima.
Guð gefi börnum hinnar látnu
styrk i hinum mikla missi hinnar
góðu og miklu móður. Og systkin-
um hennar er lifa bið eg blessun-
ar Guðs.
Blessuð sé minning hinnar
mætu konu.
Reykjavík, 6. ágúst 1977
Jóhanna Brynjólfsdóttir Wathne,
Austurbrún 4.
Hulda Sigurðardótt-
ir — Minningarorð
17. ágúst síðastliðinn andaðist
Hulda Sigurðardóttir, Hátúni 3
hér í borg. Hún var fædd að
Fagurhóli í Sandgerði 26. nóvem-
ber 1930. En þar bjuggu foreldrar
hennar, hjónin Sigurður Einars-
son og Sigriður Jónsdóttir. Sig-
urður var Suðurnesjamaður,
fæddur í Tjarnarkoti, Miðnes-
hreppi og Sigríður var Vestur-
Skaftfellingur, fædd að Selja-
landi i Fljótshverfi.
Sigurður andaðist 1963.
Sigríður verður 88 ára eftir
nokkra daga.
Ekki færri en 10 urðu börn
þeirra hjóna, 9 dætur og 1 sonur,
Einar Guðjón. Hann var elztur
barnanna og Hulda yngst. Hin öll
milli þeirra, 8 systur, lifa og
starfa, gegnir borgarar, dreifðir
um Suðurland.
Hulda fékk gott veganesti i for-
eldrahúsum og sjálf hlaut hún i
vöggugjöf góðar gjafir Guðs, sem
ekki eru allra. Hafði hún fina,
næma skapgerð, stillt og örugg.
Hafði næmt söngvit, söngvin og
hafði fallega rödd. Um árabil var
hún meðlimur Fíladelfíukórsins í
Reykjavík, sem undir stjórn Arna
Arinbjarnarsonar er einn kunn-
asti kirkjukór þessa lands. Hulda
hafði næmt auga fyrir litum og
málaði, sér og sinum til yndis-
auka. Skrifari var hún góður og
skrifaði skrautskrift.
24. nóvember 1957 giftist hún
eftirlifandi eiginmanni sínum,
Eiði Árnasyni, bifreiðastjóra úr
Skagafirði. Telur sá er þetta ritar,
að jafnræði hafi rikt með þeim
hjónum. Grandvarleiki og vand-
virkni í hvívetna, háttvisi og prúð
framkoma til orðs og æðis.
Þrátt fyrir að Hulda gengi ekki
alltaf heil til skógar, þá búnaðist
þeim vel, með eljusemi og reglu-
semi byggðu þau upp heimili sitt,
er stóð hér i borg um 20 ára skeið.
Síðast um 10 ára bil að Hátúni 3.
Þeim hjónum varð tveggja sona
auðið. Daviðs, sem er 17 ára og
Elvars 10 ára. Mikill harmur er
nú kveðinn að heimilinu.
Lifslán hjónanna var sameigin-
leg trú á Jesúm Krist. Þau hafa
um langt árabil verið meðlimir
Hvítasunnusafnaðarins i Fíladel-
fíu, átt þar andlegt heimili og
verið virkir kraftar. Bæði í söng-
kór. Um tima bæði við blaða- og
bókaútgáfuna, en þar vann Hulda
mikið og gott starf, svo árum
skifti. Við brottför Huldu af
þessum heimi er því skarð fyrir
skildi, sem Drottinn einn uppfyll-
ir. Með þessum linum eru Huldu
þökkuð öll hennar góðu og sam-
vizkulegu störf á vegum
safnaðarins, bæði ■ í Guðs-
þjónustum og utan.
Á sjálfan höfuðdag, 29. ágúst
sl., var Hulda kvödd hinztu
kveðju frá Fíladelfíukirkjunni.
Fjöldi vina, vensla- og vanda-
manna vottaði samúð sína við
hinztu för hennar hér i heimi.
Daglangt skein sólin urn Reykja-
vik. Þar var signing Skaparans.
Jörðin er fátækari við brottför
Huldu og hennar er saknað.
Himinninn verður ríkari við
Framhald á bls. 27
Einingareldhús er lausnin
] Nú fer hver að verða síðastur, ef
eldhúsið á að komast í gagnið
fyrir jól.
] Við bjóðum 20 mismunandi
gerðir innréttinga á verði frá kr.
50 — 1 1 5 þús. kr. fyrir hvern
Verið velkomin.
lengdarmetra af efri og neðri
skápum saman, að meðaltali.
] Við aðstoðum við skipulag og
teikningu, yður að kostnaðar-
lausu.