Morgunblaðið - 03.09.1977, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 3. SEPTEMBER 1977
33
fWW
jj
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
nr ny (/jAjr7r\',íia'// ir
stytting en hvað annað að koma
þarna og án efa upplyfting fyrir
marga. En þessi skortur á verð-
miðum fannst mér sem sagt tii-
finnanlegur og hálf-skemmdi fyr-
ir mér ánægjuna af sýningunni.
Það er sjálfsagt það mikið borið í
hana af hálfu allra sem að henni
standa að svona smáatriði, sem er
í raun þýðingarmikið, má ekki
vanta, það er athugunarleysi af
hálfu sýnenda.
Sýningargestur.“
Sú var skoðun sýningargests og
kannski ekki alveg út i hött, því
varla geta verðlagsmálin verið
neitt feimnismál hjá framleiðend-
um og seljendum. En ef þeir vilja
skýra mál þétta eitthvað er að
sjálfsögðu opið rúm hér í dálkun-
um. Reyndar er þetta ekki það
eina, sem borizt hefur um fyrr-
greinda sýningu, Heimilið ‘77, því
hér fara á eftir nokkur orð annars
sýningargests:
0 Merkilegt
framtak
„Það sem mér finnst merki-
legast við þessa gífurlega miklu
sýningu í Laugardalshöllinni er
stóllinn rauði, sem nú trónar fyrir
framan Hótel Esju. Mér hefur
alltaf fundizt skorta eitthvað
mjög frumlegt og skemmtilegt
þegar svona framtak er annars
vegar og því þá að vera að horfa i
eina til tvær milljónir af þeim
hundruðum, sem sjálfsagt eru
lagðar í sýninguna? Én hins vegar
er spurningin sú hvað gera eigi
við stólinn góða þegar sýningunni
sleppir. Verður hann tekinn nið-
ur og honum komið fyrir í ein-
hverri geymslu eða fær hann að
standa þarna óáreittur um alla
framtíð? Varla hafa eigendur
hans mikið notagildi af honum,
svo þeirra vegna má hann senni-
legast vera þarna áfram, en málið
er kannski það hvort hann strand-
ar á einhverjum skipulagsatrið-
um. Reykvíkingar, virðum þetta
framtak, sem stóllinn er, og stuðl-
um að þvi að fundið verði uppá
ámóta uppátækjum þegar tilefni
gefast til þess.
Reykvíkingur."
9 „Hvar er þín
fornaldarfrægð?“
Jón á Klapparstígnum
skrifar:
„Mér finnst ég endilega þurfa
að koma því á framfæri að nú
orðið heyrir maður aldrei í lúðra-
sveitum hér i bæ, nema á 17. júni
og 1. mai. Hér áður fyrr fór
Lúðrasveit Reykjavíkur oft niður
á Austurvöll eða Lækjartorg og
spilaði lög sín fyrir borgarbúa,
svona í menningarlegum anda.
Nú orðið virðist Lúðrasveit_
Reykjavíkur aftur á móti tæplega*
rísa undir nafni.
Mig langar að leggja eftirfar-
andi spurningar fyrir Lúðrasveit
Reykjavikur: Hvar er þín fornald-
arfrægð? Hvar er músíkgleðin,
dugnaðurinn og viljinn til að
kafna ekki undir nafni, sem ein-
kenndi Lúðrasveitarmenn í gamla
daga? Aldrei les maður eitt eða
neitt i blöðum bæjarins að „í
kvöld“ spili Lúðrasveit Reykja-
vikur á Austurvelli. Kannski
mundi áhuginn vakna ef Lúðrar-
sveitarmenn spiluðu eftir upp-
mælingaskala?"
Þ»essir hringdu .. .
0 Góðtónlist
í útvarpi
Ein þrítug hringdi:
,,Ég var að lesa bréf í Velvak-
anda frá einum sem er óánægður
með vaí tónlistar í útvarpi á laug-
ardagskvöldum. Ég er ekki á
sama máli og bréfritari að því
leyti að skipta ætti tímanum til
helminga milli ungra og aldinna
eins og lagt er til. Ég hef mikið
dálæti á eldri lögum og ýmsum
danklögum með mismunandi
takti, og er ósköp ánægð með
hvernig valið er. Ég vil halda
áfram þessum danslögum sem
bréfritari talar um, tangó, rúmbu
o.s.frv., og finnst að við, sem orðin
erum þritug, megum njóta þessar-
ar tónlistar á laugardagskvöldum.
SKÁK
Mér finnst þó vanta að við fáum
að heyra tónlist eins og Fóstbræó-
ur flytja, og einnig sakna ég að
heyra aldrei i Einsöngvarakvart-
ettinum. Mikið vildi ég og að sjón-
varpið spilaði Fóstbræður, eða
eitthvað álíka fallegt, áður en
dagskráin byrjar á kvöldin. Ég er
orðin dauðþreytt á þessum hippa-
hávaða sem þar glymur ætíð.“
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á IBM skakmótinu í
Amsterdam í fyrra kom þessi
staða upp i skák þeirra Miles,
Englandi, sam hafði hvítt og átti
leik og Hollendingsins Ligter-
inks:
36. Rcxd6! — Hxd6, 37. Rxd6 —
Dxd6, 38. Hc! — Bxc6,39. Hxc6.
Svartur gafst upp. Eftir 39. . . De7
40. Hg6+ er stutt í mátið.
Þeir Korchnoi og Miles urðu
efstir á mótinu hlutu báðir 9'A
vinning af 15 mögulegum. Mótið
varð hins vegar allsögulegt að því
leyti, að strax er því lauk baðsl
Viktor Korchnoi hælis í Hoilandi
sem pólitískur flóttamaður.
HÖGNI HREKKVÍSI
TÓNUSMRSKÓLI
KÓPNOGS
Frá
Tónlistarskóla
Kópavogs
Tónlistarskóli Kópavogs tekur til starfa 1 7. september.
Umsóknarfrestur um skólavist er frá og með 5 til 10
september. Tekið verður á móti umsóknum og greiðslu
skólagjalda á skrifstofu skólans að Hamraborg 11, 3.
hæð kl. 10—12og 17—18
Auk venjulegra aðalnámsgreina verður tekin upp kennsla
á horn, kornet og básúnu.
Kennsla í forskóladeildum hefst í byrjun október og
verður nánar auglýst síðar.
Athygli skal vakin á því að nemendur verða ekki innritað-
ir í skólann á miðju starfsári.
Vinsamlega látið stundaskrá frá almennu skólunum
fylgja umsóknum Skólastjóri.
Mosfellssveit,
er opið
laugardaga,
sunnudaga,
mánudaga og
miðvikudaga,
frákl. 1-6.
Leirmunir til
sýnis og sölu.
Steinunn
Marteinsdóttir
Keramík-
verkstœðid
Hulduhólum
ÍSLANDSMEISTARAMÓT
í SANDSPYRNU
VERÐUR HALDIÐ SUNNUDAGINN 4. SEPTEMBER AÐ HRAUNI í
ÖLFUSI. MÓTSVÆÐIÐ OPNAÐ KL. 10. KEPPNI HEFST KL. 14.
KEPPT VERÐUR í FÓLKSBÍLA, JEPPA OG BIFHJÓLA FLOKKUM.
STJÓRNIN