Morgunblaðið - 03.09.1977, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1977
f
Höldum áfram þar sem við hættum í Hollandi
— ÞESSI leikur leggst vel í mig
og því sk.vldum við ekki geta náð
einu stigi, eða jafnvel sigri á móti
Belgunum, sagði Ellert B.
Schram, formaður KSl, á fundi
með íslenzkum fréttamönnum
hér í Briissel í gær. Minnti Ellert
á að haustið 1975 hefði Island
leikið í Frakklandi og tapað þar
0—3, en síðan farið til Belgíu og
tapað þar aðeins 0—1, eftir mjög
góðan leik. — Ég vona að sagan
endurtaki sig núna. Strákarnir
voru eins í leiknum gegn Hol-
landi og þeir voru í Frakkaleikn-
um á sínum tíma og ég hef trú á
því að þeir nái toppleik gegn
Belgum, nú eins og þá og tapi
ekki óverðskuldað eins og 1975,
sagði formaðurinn.
Meiðsli hrjá nokkra leikmenn
islenzka liðsins, aðallega þá Guð-
geir Leifsson og Janus Guðlaugs-
son, en þeir munu samt að líkind-
um báðir hefja leikinn gegn Belg-
um. Enn hafa Knapp og landsliðs-
nefndin ekki ákveðið hvort Sig-
urður Dagsson eða Arni Sveins-
son verði í markinu, en trúlegt er
að Arni f-ái tækifæri að spreyta
sig í leiknum i dag.
/-----------------------------
Ágúst I. Jónsson skrifar
frá Briissel
-------------1________________/
Atli Eðvaldsson kemur nú inn í
liðið í stað Arna Sveinssonar frá
Akranesi og Asgeir Elíasson mun
nú hefja leikinn en það gerði
hann ekki í Hollandi. Liðið verður
skipað eftirtöldum leikmönnum í
dag:
Arni Stefánsson eða Sigurður
Dagsson verða í markinu, en aðrir
Ieikmenn verða: Ölafur Sigur-
vinsson, Janus Guðlaugsson, Mar-
teinn Geirsson, Gísli Torfason,
Asgeir Elíasson, Hörður Hilmars-
son, Atli Eðvaldsson, Guðgeir
Leifsson, Asgeir Sigurvinsson og
Matthías Hallgrímsson.
Ekki er enn ákveðið hvaða tveir
leikmenn verða „úti í kuldanum"
í kvöld, en trúlega verða það þeir
Teitur Þórðarson og Ingi Björn
Albertsson sem geta fylgzt með
leiknum í sparifötunum. Yrðu þá
varamenn þeir Jón Gunnlaugs-
son, Guðmundur Þorbjörnsson,
Arni Sveinsson og Kristinn
Björnsson.
— Þetta verður vafalaust erfið-
ur leikur. Strákarnir eru enn
þreyttir eftir leikinn gegn Hol-
landi, nokkrir þeirra eiga við
meiðsli að stríða og Jóhannes Eð-
valdsson leikur ekki með okkur
og það hefur meiri áhrif en fólk
heldur. Samt er ég bjartsýnn á
leikinn, sagði Tony Knapp er
Tony Knapp
landsliðsþjálfari
virðist hvergi
hræddur kjör f
þrá og vonast eft-
ir a.m.k. öðru
stiginu f leiknum
ídag.
Morgunblaðið ræddi við hann um
leikinn.
— Ef við gætum haldið áfram
þar sem við hættum í Hollandi, þá
gætum við unnið Belgana. Það
nægir okkur þó ekki að spila vel í
45 minútur — við þurfum að leika
af krafti allan leiktímann í kvöld,
ef við ætlum að gera stóra hluti
hér.
— Leikaðferð okkar fer að
verulegu leyti eftir því hvernig
þeir spila. Asgeir Sigurvinsson
hefur gefið okkur miklar og gagn-
Iegar upplýsingar um Belgana og
það á örugglega eftir að hjálpa
okkur mikið.
— Atli Eðvaldsson fær væntan-
lega það hlutverk að gæta Gools
eins og skuggi, en Gools er geysi-
sterkur leikmaður frá FC Brtigge.
Ég valdi Atla sérstaklega I liðið
með þetta í huga, en Atli er leik-
maður sem ég held að geti hlaupið
allan liðlangan sólarhringinn. Þá
verður Asgeir Sigurvinsson I
fremstu víglínu og eftir þeim upp-
lýsingum sem við höfum þá er
Martens gæslumaður hans. Sá
leikmaður er mjög góður en hann
er orðinn rösklega þrítugur og því
farinn að missa örlítið snerpu.
Guðgeir Leifsson mun i kvöld
leika á vinstri vængnum og sóknir
íslenzka liðsins munu því senni-
lega flestar verða upp vinstri
r ........................................................ .
Verður gert út um mál Guðgeirs í dag?
ÞJÁLFARI hollenzka liðsins NEC frá Nijmegen hefur greínilega mikinn
áhuga á þvl að fá Guðgeir Leifsson til sin. Hefur hann fengið samþykki
framkvæmdastjóra félagsins fyrir þvl að Guðgeir verði keyptur. náist
hagstæðir samningar. Munu þeir báðir fylgjast með landsleiknum við
Belgiumenn i Brussel i kvöld og væntanlega gera Guðgeiri tilboð að
honum loknum. Þá hefur félagið Telstar einnig sýnt áhuga á Guðgeiri
og verða útsendarar þess einnig leiknum. Segist Guðgeir vona að sem
flest félög sýni honum áhuga, — hann geti þá valið úr.
Staða Telstar og NEC i hollenzku 1. deildar keppninni er mjög ólik.
Að loknum fimm umferðum er Telstar á botni 1. deildarinnar en NEC
trjónar mjög óvænt i 1. sæti. Hefur liðið unnið alla sina leiki og er því
með fullt hús stiga. NEC var I fallhættu ( fyrra. en tókst að bjarga sér
og leikmenn liðsins hafa greinilega látið hendur standa fram úr ermum
i sumar og æft vel.
Þjálfari félagsins var áður hjá belgíska félaginu Charleroi. siðan hjá
Anderlecht og hefur hann jafnan náð góðum árangri með lið sin.
Belgíumennirnir vilja ekki Teit
ÞEGAR Teitur Þórðarson fékk ekki leyfi frá Jönköping til þess að leika
með íslenzka landsliðinu gegn Belgum var hann ekki settur i þann 22
manna hóp sem tilkynntur var FIFA um leikmenn i þessum leik. og var
Jón Alfreðsson frá Akranesi valinn i hópinn i hans stað. Á síðustu
stundu fékkst hins vegar leyfi frá sænska félaginu fyrir Teit og var
FIFA sent skeyti og beðið um leyfi fyrir Teit, þótt tilkynningin hefði
komið of seint. Var talið liklegt að það leyfi myndi auðveldlega fást.
Nú hafa Belgar hins vegar mótmælt að Teitur verði meðal leikmanna i
islenzka liðinu og standa fast á rétti sinum. Er greinilegt að þeir óttast
„stormsenterinn" frá Akranesi og litlar líkur á þvi úr þessu að Teitur
verði með i leiknum.
TVEIR TOPPMENN LEGGJA
SENN SKÓNA Á HILLUNA
TVEIR af sterkustu leikmönnum
íslenzkrar knattspyrnu undanfar-
in ár íhuga nú alvarlega aó leggja
skóna á hilluna. Þetta eru þeir
Jón Gunnlaugsson, miðvörðurinn
sterki frá Akranesi, og Sigurður
Dagsson, markvörður úr Val.
Blaðamaður Mbl. rabbaði stutt-
lega við þá Iandsliðsfélaga í
Brússel í gær.
— Það er rétt að ég hafði hugs-
að mér að þetta yrði síðasta
keppnistímabil mitt í knattspyrn-
unni, sagði Sigurður Dagsson. —
Ég verð auðvitað alltaf i kringum
knattspyrnuna, en það kemur
sterklega til greina hjá mér að
fara utan til náms á næsta ári og
geti maður þá haft tekjur eða
þægindi af þvi að leika knatt-
spyrnu er ekki ólíklegt að ég geri
það.
— Hvað um frammistöðu Vals-
liðsins og þína eigin í sumar?
— Við misstum taktinn í Vals-
vörninni í lok mótsins. Það vant-
aði einhvern veginn sambandið
milli manna. Ég var hins vegar
ánægður með liðið fram undir það
að þetta tímabil hófst. En það er
eins og ein mistök leiði af sér
önnur og markið sem við fengum
á okkur gegn FH sat í manni, þó
svo að maður héldi að það hefði
engin áhrif. Sjálfsöryggið minnk-
ar ósjálfrátt.
— Eigum við möguleika á að
sigra Belga?
— Belgarnir eru mjög sterkir,
það fer ekki á milli mála. Náum
við að sýna eins góðan leik og í
seinni hálfleiknum gegn Hollend-
ingum þá eigum við möguleika á
stigi. Ég hef nokkrum sinnum
leikið gegn belgískum liðum og
það lið sem þeir stilla upp núna er
greinilega mjög reynt. Þeir Ieika
örugglega fast og gefa minni frið
en Hollendingarnir, en samt eig-
um við möguleika, sagði Sigurður
Dagsson að lokum.
Sigurður er nú 32 ára og hefur
17 landsleiki að baki. Jón Gunn-
laugsson er hins Vegar ekki nema
27 ára og hefur hann leikið 4
landsleiki. Jón hefur 12 sinnum
verið varamaður með landsliðinu.
Við spurðum Jón að því hvernig
honum hefði liðið í fyrri hálf-
leiknum er Hollendingarnir voru
í sem mestum ham.
— Ég hélt ró minni allan leik-
inn, enda hef ég orðið töluverða
reynslu á bekknum, sagði Jón og
hló. — Auðvitað var erfitt að vera
Islendingur í fyrri hálfleiknum,
en ég bjóst þó aldrei við neinu
14—2 ævintýri. Islenzka liðið er
orðið það reynslurfkt að þetta
Sigurður Dagsson
hlaut að Iagast.
— Hvað um leikinn gegn Belg-
um?
— Ég held að við eigum mögu-
leika á móti þeim, og dæmi ég það
af úrslitum í síðustu leikjum þjóð-
anna. Við töpuðum 0—1 i Reykja-
vík í fyrra og sama markatala
varð í leiknum f Liege 1975. Nú er
kominn tími til að ná í það
minnsta jafntefli.
— Af hverju hyggst þú leggja
skóna á hilluna?
— Knattspyrnan tekur einfald-
lega svo gffurlegan tíma, að mað-
ur getur ekki leyft sér að vera í
þessu. Það er aldrei friður. Leik-
irnir eru orðnir svo margir og 1
kantinn. Ásgeir Sigurvinsson á að
draga sig svolítið til vinstri, þann-
ig að gott samband ætti að verða
milli þessara sterku leikmanna.
Asgeir Sigurvinsson verður
fyrirliði íslenzka landsliðsins í
leiknum í kvöld en Lambert er
fyrirliði Belganna. Búizt er við
um 20.000 áhorfendum á leikinn i
kvöld sem verður á Anderlecht
leikvanginum i Brussel.
Landsleikurinn f kvöld verður
sjötti landsleikur Islands og Bel-
gíu. Fyrsti leikurinn fór fram fyr-
ir réttum 20 árum hér i Brussel og
sigruðu Belgar þá 8—3, en siðar
sama sumar var leikið í Reykjavík
og unnu Belgar þá 5—2. Mörk
Islands í fyrri leiknum skoruðu
þeir Ríkharður Jónsson og Þórður
Þórðarson, faðir Teits Þórðarson-
ar, tvö. i marki í seinni leiknum
stóð Helgi Danielsson, en hann er
nú varaformaður KSl og einn af
fararstjórum íslenzka liðsins I
Belgíu.
Gfsli Torfason nær í kvöld þeim
merka áfanga að leika sinn 25.
landsleik og fær gullúr svo sem
venja er, þegar þessu marki er
náð.
LEIKNUM
SJÓNVARPAÐ
LANDSLEIKUR Hollands og Is-
lands i Nijmegen á miðvikudags-
kvöldið verður sýndur frá upp-
hafi til enda i islenzka sjónvarp-
inu i dag. Hefst sjónvarp frá
leiknum kl. 17.15, og verður leik-
urinn sendur út í lit. Að sögn
Bjarna Felixsonar,, íþróttafrétta-
manns Sjónvarpsins er líklegt að
leikurinn við Belgíumenn verði
svo sýndur á mánudagskvöldið í
íþróttaþættinum, en þá stendur
einnig til að endursýna valda
kafla úr leiknum við Hollendinga.
Jón Gunnlaugsson
fylgja þeim aukin ferðalög sem ég
held að bitni meira á okkur Akur-
nesingum en flestum öðrum lið-
um. Það fara örugglega meira en
20 klukkustundir á viku i knatt-
spyrnuna hjá manni yfir háanna-
tímann, — já, og svo bætist lands-
liðið ef til vill ofan á öll ósköpin.
Ég er því fylgjandi að allt móta-
kerfið verði einfaldað, en það segi
ég satt að það verður ekki með
glöðu geði að ég hætti i knatt-
spyrnunni. Að öllu óbreyttu verð
ég þó að gera það.
VISSULEGA ERU TILBOÐIN KITLANDI EN NÁMIÐ GENGUR FYRIR
— ÉG held að ég verði að
segja það hreint út, að ég hef
heldur Iftinn áhuga á þessu tali
um atvinnusamning, sagði Guð-
mundur Þorbjörnsson, mið-
herjinn úr Val, er Morgunblað-
ið ræddi við hann í Brússel í
gær. Fyrr í sumar hafði
belgíska félagið CS Brúgge
sýnt mikinn áhuga á að fá Guð-
mund til sín og ræddi fram-
kvæmdastjóri félagsins nokkr-
um sinnum við hann, með
samning í huga. Forráðamenn
Standard Liege hafa einnig
sýnt áhuga á að fá Guðmund i
sínar raðir og fylgdust þeir
með landsleik lslands og Hol-
lands á miðvikudaginn, og
verða á Anderlechtleikvangin-
um í kvöld.
I Hollandi var Guðmundur
ekki í 16 manna hópnum en i
kvöld kemur hann væntanlega
inná sem varamaður á móti
Belgum.
— Vissulega er það dálítið
spennandi að þessi félög skuli
sýna áhuga á manni, það virkar
hvetjandi, sagði Guðmundur,
— samningur kemur hins
vegar ekki til greina af minni
hálfu næstu fjögur árin, nema
eitthvað stórkostlegt sé í boði
og mér verði gert tilboð sem ég
get ekki hafnað. Ég byrja nám í
verkfræði við Háskóla tslands í
haust og á ekki von á því að ég
fari út meðan ég stend í því.
— Sjálfur hef ég ekkert
heyrt frá Standard Liege, sagði
Guðmundur, — en samkvæmt
þvf sem ég hef heyrt um áhuga
þeirra á mér þá er Standard
það félag sem mér finnst
áhugaverðast af þeim sem
nefnd hafa verið, einfaldlega
vegna Asgeirs Sigurvinssonar.
Það væri ekki amalegt að kom-
ast að hjá sama félagi og hann.
Væri ekki námið framundan
myndi ég athuga vel hvað þeir
hafa að bjóða og ef ekki væri
skólinn væri það eflaust at-
vinnumennskan sem maður
stefndi að, sagði Guðmundur að
lokum.