Morgunblaðið - 06.11.1977, Side 6

Morgunblaðið - 06.11.1977, Side 6
54 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. NÖVEMBER 1977 Þórir S. Guðbergsson: Eilítið um elliárin 4. grein Flestir þekkja gamalt fólk. en fíir heimsækja þaS. Margir þekkja þá einangrun, sem gamalt fólk býr oft við. en fáir gera nokkuð til þess að rjúfa hana. Mörg okkar vita af öldr- uðum á heimilum sinum. fólki, sem á erfitt um gang, fer litið og fær sjald- an heimsóknir. en fá okkar vilja taka sér tima til þess að sinna þvi á einhvern hátt. Einangrun rofin Með tilkomu hljóðvarps og síðar sjónvarps má segja, að gjörbreyting hafi átt sér stað í lífi margra, sem búið hafa við einangrun og einmanaleik árum saman Fjarlægðir styttast og við getum fylgst með fréttum hvaðanæva úr heiminum. Þetta styttir mörgum tímann. Það er nauðsynlegt að fylgjast með i þvi, sem er að gerast bæði heima og að heiman, að þjálfar hugsun og heila að nema og taka á móti og melta það, sem við verðum hluttakendur í. Það er ennfremur gott fyrir þá, sem sjá illa, að geta heyrt i hljóðvarpi, fylgst með fréttum, hlustað á sögur og tónlist o.s.frv. Jafnframt veitir það ánægju þeim, sem ekki heyra eða heyra illa, að geta fylgst með atburðum og myndum i sjónvarpi, og mætti sjónvarpið oftar taka tillit til þeirra, sem heyra ekki, með því að setja texta með fræðandi efni og ýmsum myndum, þar sem einungis heyrist í þulnum! Við megum heldur ekki gleyma svo mikil- vægri uppgötvun sem síminn er. Víða erlendis hafa félagsmálastofnanir eða liknar- samtök komið á fót sérstöku „símasam- bandi" — þar sem viðkomandi aðilar geta alltaf hringt í ákveðin númer, ef þeír þurfa á hjálp eða leiðbeiningum að halda — eða það er hringt til þeirra með ákveðnu millibili, til þess að heyra, hvernig þeim liður, hvernig gangi o.s.frv. Heimilishjálp hefur verið komið á fót í Reykjavík og nágrannabæjunum og e.t.v. víðar, en félagsmálastofnanir sveitarfélag- anna veita allar nánari upplýsingar um þá hjálp, og er ekki nema sjálfsagt, að fólk kynni sér það Einnig veita félagsmálastofn- anirnar ýmsar aðrar upplýsingar og leiðbein- ingar og félagslega ráðgjöf, sem nauðsyn- legt er að veita i nútima þjóðfélagi Margt fleira væri unnt að telja upp og væri eðlilegt, að yfirvöld gæfu út skýringarbækl- ing með hvers kyns upplýsingum um ýmis- legt, sem drepið hefur verið lauslega á í greinum þessum og margt annað, sem eðli- legt er, að almenningur viti ekki eða hafi ekki möguleika til þess að fylgjast með. Upplýsingar um skattaívilnanir, afslátt af opinberum gjöldum fyrir lágtekjufólk, heim- ilishjálp o.fl. er unnt að fá hjá félagsmála- stofnunum. Upplýsingar um hækkun ellilíf- eyris, tekjutryggingar og bætur hjá Trygg- ingastofnun ríkisins eða/og félagsmála- stofnunum, o.s.frv. Einangrun sem slík verður þó hvorki rofin til fulls með hljóðvarpi eða sjónvarpi, síma eða upplýsingabæklingum. Heldur fyrst og fremst með persónulegum samskiptum og hlýjum hug. Hreyfing er nauðsyn Líkamleg þjálfun og hreyfing er nauðsyn- leg alla æfi, og ekki síst á elliárunum Best er að venja sig á góðar og hollar hreyfingar eins snemma á æfinni og unnt er, og halda þeim áfram til æfiloka. Morgunleikfimi hljóðvarps- ins hefur hjálpað mörgum undanfarin ár og sjónvarpið sýndi nokkra þætti á sl. vetri með sérstökum æfingum fyrir þá, sem komnir voru á gamals aldur. Enda lífsnauðsyn að þekkja sínar eigin takmarkanir og gæta þess að leggja ekki meira á líkamann en hann þolir hverju sinni. Það er vandi að velja réttar æfingar fyrir vöðvana og þarf oft sérfræð- inga sér til hjál^ar. Hitt vita flestir, að göngur, trimm thns og annað þess háttar í hófi hefur yfirleitt mjög góð og holl áhrif á líkamann og starfsemi hans. Tæknilegur og hagkvæmur útbúnaður Álitið er, að við liggjum i rúminu um þriðja hluta æfi okkar. Það er því nauðsyn- legt, að við hvílumst vel þann tíma og liggjum í rúmi, sem hentar okkur. Þdð er nauðsynlegt fyrir þá, sem eiga erfitt með að beygja sig mikið t.d., að rúmið sé ívið hærra en venjulegt rúm t d. 55 — 60 sm hátt að efri rönd dýnunnar, og er þá bæði auðveld- ara að búa um sig og leggjast fyrir. Þeir, sem þurfa að liggja lengi í rúmi, þyrftu að hafa rúm, þar sem unnt er að stilla bæði höfða- og fótagafl o.s.frv. Það er vissulega margt, sem ber að athuga. þegar um tæknilegan og jafnframt hagkvæman og nauðsynlegan út- búnað er að ræða. Næst rúminu er stóllinn e.t.v. þarfasta húsgangið. Margt fólk velur húsgögn fyrst og fremst eftir útliti og fegurð, en gleymir notagildinu. Það er nauðsynlegt bæði fyrir unga og gamla að sitja vel og þægilega. Góður hægindastóll þarf að vera stöðugur og sterkur og helst léttur og meðfærilegur Hann þarf helst að gefa góðan stuðning fyrir hnakka, herðar og mjóhrygg — og setan þarf að vera í réttri hæð og ekki of hallandi. Armar þurfa að vera stöðugir og handfangið þægilegt. Bólstrun þarf að vera þétt og stinn, en ekki of hörð. Lausir púðar þurfa helst að vera með áklæði, sem unnt er að taka af og þvo o.s frv. Margt fleira væri unnt að nefna í fljótu bragi eins og t.d. góða og hagkvæma lýs- ingu bæði við vinnu, lestur og við stiga og tröppur þar sem annars er hætta á að misstíga sig eða detta. Eldhús þurfa að vera hagkvæm og þægi- leg Eldhúsbekkir, ísskápur og ofn þurfa að vera i mátulegri hæð. Handföng ættu að vera stór og gott að hafa stór stuðningshand- föng, sem þægilegt er að styðja sig við o.s.frv. Gamalt fólk, öryrkjar eða fólk, sem að einhverju leyti þyrfti sérhönnuð eldhús eða húsgögn á að láta i Ijós óskir sinar og þarfir. Hverjir ættu fremur skilið þægilegt og gott líf en þeir, sem hafa greitt skatta og skyldur gagnvart þjóðfélaginu lengst allra? Hverjir ættu fremur að fá að njóta lífsins, eiga manneskjulegt og hlýlegt umhverfi en þeir, sem hafa lagt grundvöll að því þjóðfélagi, sem við lifum i nú og hafa reynt að gera sitt besta? Við gleymum því alltof oft, hvernig það var að vera barn og unglingur — og minn- umst þess lika of sjaldan að eftir fáein ár verðum við i hópi þeirra, sem komnir eru á efri ár æfinnar Við eigum oft erfitt með að setja okkur í spor annarra. Ég á ekki aðra ósk heitari til handa eldri kynslóðinni en að hún fái að njóta góðra og hamingjusamra daga — og að unga kyn- slóðin beri meiri umhyggju og hafi meiri áhuga á velferð aldraðra en við höfum haft fram til þessa. Jlt w _________________________ __________ Richard Valtingojer og Magnús Pálsson við verk Magnúsar sem hann nefnir „Minning Njálsbrennu f 10 hlutum“. Þrír listamenn med sýningu í Norræna húsinu DAGANA 5. til 20. nóvember mun standa yfir samsýning þriggja listamanna í Norræna húsinu. Þeir eru Richard Valtingojer, Salóme Fannberg og Magnús Pálsson, og á sýningunni eru teikningar, grafík vefnaður og objekta. Magnús Pálsson hefur áður haldið 4 einkasýningar í Reykja- vík, einn eða með öðrum, síðast í fyrravetur í Gallery Súm, auk þess sem hann hefur sýnt verk sin í Þýzkalandi og Hollandi. Magnús lauk námi í leikmyndateikningu í listaskóla, en á þessari sýningu á hann fjögur verk, sem hann segir vera í anda táknmyndastefnynn- ar eða symbolismans. Salóme Fannberg er reykvikingur en hefur undanfar- in 2 ár verið búsett f Flatey á Breiðafirði. Þetta er hennar fyrsta sýning, en hún stundaði nám i vefnaði í Listaskóla Barcelona i fjögur ár. I Norræna húsinu sýnir hún ofin veggteppi og skúlptúr, sem hún hefur gert á undanförnum 3 árum. Hún vinnur þau mjög sérkennilega, þar sem hún hefur m.a. i þeim þang og annan sjávargróður. Richard Valtingojer er Austur- ríkismaður, en hefur verið búsettur hér á landi frá 1960. Hann hefur haldið sýningar erlendis, og í byrjun sjötugasta áratugsins hélt hann nokkrar sýningar í Reykjavík á myndum sínum. Á sýningunni í Norræna húsinu eru kola- og blýants- teikningar, sem hann hefur unnið á undanförnum 6 árum, en þó aðallega tvö síðastliðin ár. Sýningin verður opin alla dagana frá kl. 14.00 til 22.00 og eru flest öll verkin til sölu. Vísnavinirhefja annað starfsár sitt Morgunblaðinu hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning frá félaginu Vfsnavinir: Félagið Vísnavinir er að hefja sitt annað starfsár og var stofn- fundur haldinn þann 25. okt. sl. Félagið var stofnað í fyrrahaust með tónleikum í Norræna húsinu sem haldnir voru af dönsku vísna- söngkonunni Hanne Gustavi, Hjalta Jóni Sveinssyni, Stefáni Andréssyni og Gísla Helgasyni. Markmið félagsins er að fá fólk til að efla áhuga á vísna- og þjóð- lagaflutningi og er allt áhugafólk um umrætt efni velkomið i félag- Vetrarfundur sambands raf- veitna á mánu- dag og þriðjudag Samband íslenzkra rafveitna heldur vetrarfund að Hótel Sögu dagana 7. og 8. nóvember nk. Mun vetrarfundurinn verða settur kl. 9.15 með ávarpi formanns SÍR, Aðalsteins Guðjohnsen, og með ávarpi iðnaðarráðherra, dr. Gunn- ars Thoroddsen. Fyrri dag mun Jóhann Már Maríusson flytja er- indi er hann nefnir Val og tíma- setning nýrra virkjana, Kristján Jónasson flytur erindi er nefnist 1320 kV aðalorkuflutningskerfi milli landshluta og svo munu þeir Karl Ómar Jónsson og Sigurður Sigfússon fjalla um fjarvarma- veitur í þéttbýli. Seinni daginn flytur Gunnar Amundason erindi er nefnist Notkun rafreikna við hönnun dreifikerfa, Haukur Pálmason fjallar um ýmsar tækni- nýjungar í framtíðinni og Jakob Björnsson orkumálastjóri segir frá Alþjóða orkumálaráðstefn- unni sem haldin var í september sl. ið. Hliðstæð félög eru starfrækt á hinum Norðurlöndunum. Formaður félagsins er Bryndís Júlíusdóttir, en meðstjórnendur eru Stefán Andrésson og Agnar G.L. Ásgrímsson. Vísnavinir hitt- ast næst þriðjudaginn 8. nóv. í kjallara Tónabæjar og er allt áhugafólk velkomið þangað. Forsfða skólablaðs M.R. en forsíðan er eftir Gunnar Arnason Skólablað MR komið út KOMIÐ er út 1. tölublað 53. árgangs skólablaðs Mennta- skólans í Reykjavík og er blaðið 36 síður að stærð og í dagblaðs- broti. Meðal efnis er þýðing á kvæði T.S. Elliots, The Waste Land, og mun það i fyrsta sinn sem það er birt í íslenzkri þýðingu að þvf er segir i frétt frá ritnefnd blaðsins, en það er einn nemenda skólans sem þýtt hefur kvæðið. Þá er í blaðinu grein um Thomas Mann, þýðing á ljóði eftir nútímaskáldið Henri Joél, greinar um félagslíf, smásaga og fleira efni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.