Morgunblaðið - 30.11.1977, Síða 1
32 SlÐUR
257. tbl. 64. árg. MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Símamynd AP
DAYAN 0(« EGYPTINN — Utanríkisráðherra Israel, Moshe Dayan, er í opinberri heinisókn f
V-Þýzkalandi um þessar mundir og notaði hann þá m.a. tækifærið og skoðaði sýningu á egypskum
fornminjum, sem þar stendur ný yfir. Hér er hann við lfkneski af Faróinum Ramses II.
Skilningur í
V-Þýzkalandi
VIÐBRÖÍiÐ V-Þjóðverja við úti-
lokun frá tslandsmiðum þafa bor-
ið vott um skilning á málstað okk-
ar ef dæma má eftir ummælum
Frankfurter Allgemeine og blað-
anna í Hamborg í gær.
I ummælunum kemur m.a.
fram að sögn Sverris Sehopka.
ræðismanns Islands í Hamborg,
að innan Efnahgsbandalagsins sé
sú stefna nú að verða ofan á að
varðveita ofnýtta fiskstofna, en
hins vegar er sú von látin í ljós að
þegar stofnanir hafi rétt við síðar
taki V-Þjöðverjar upp samninga-
umleitanir við Islendinga að nýju.
Bent er á aö vá kunni að vera
fyrir dyrunt þýzka sjávarútvegs-
ins og verði að leggja kapp á við
stjórnvöld í Bonn að þau reki
réttar sins innatt vébanda Efna-
hagsbandalagsins i þessum efn-
u m.
Hefur of-
næmi fyr-
ir fólki
York, Englandi. AP
ÞAÐ er ekkert persónulegt en
Janette Tate þolir ekki fólk og
þar á meðal er eiginmaður
hennar, Steve.
Vandamál Janette, sem er 21
árs að aldri, er að hún hefur
ofnæmi fyrir mannlegum ver-
um. Hún er einnig með ofnæmi
fyrir ýmsu öðru, svo sem kött-
um, hundum, hestum, trjám,
blómum og fuglafiðri, en þó
ekki i sama mæli og fyrir mann-
fólkinu. Lendi hún til að ntynda
í mannþröng fær hún kiáða og
útbrot og verður sem næst frið-
laus, og það sem verra er — ef
eiginmaður hennar kyssir hana
fær hún rauöa díla.
„Við höfurn verið gift i tvö ár
en kossinn getur ennþá valdið
okkur erfiðleikum," segur Jan-
ette dapurlega.
Soares gerir loka-
átak til samninga
Lissabon, 29. nóvember Reuter
PORTÚGALSKI forsætisráðherrann, Mario Soares gaf forseta lands-
ins, Antonio Ramalho Eanes, skýrslu í dag um lokatilraunir hans til að
ná einhvers konar samkomulagi við st jórnarandstöðuna um aðgerðir í
þá veru að leysa efnahags- og stjórnmálakreppuna sem þar ríkir.
Mistakist Soares í þessari
viðleitni sinni, er búist við því að
hann muni leggja lífdaga stjónar
sinnar að veði með atkvæða-
greiðslu í þinginu um traustsyfir-
lýsingu á stjórnina. Á fundi seint í
kvöld hugðist forusta sósíalista
taka endanlega ákvörðun um
stefnuna, en á morgun miðviku-
dag, renna út þau timamörk sem
Soares hafði sett sem síðustu for-
vöð að ná samningum við stjórn-
arandstöðuna.
Heimildarmenn innan Sósiál-
istaflokksins hafa látið i það skina
að ef ekki gangi saman nú muni
Soares krefjast traustsyfir-
lýsingar þingsins á föstudag og að
umræður á þingi geti siðan staðið
í þrjá daga þar til atkvæðagreiðsl-
an færi fram á þriðjudag í næstu
viku.
talin ein helzta forsenda þess að
Portúgalir nái samningi við
Alþjóða gjaldeyrissjóðinn um 50
milijón dala fast lán og 750 millj-
ón dala lán til skemmri tíma til að
mæta mjög óhagstæðum gréiðslu-
jöfnuði, sem nemur rökslega
milljarði dala eða um 210 millj-
örðum ísl. króna á ári.
Carter á
faraldsfæti
í lok des.
Slmamynd AP
Janette Tate ásamt manni sínum Steve og er ekki að sjá að
nærvera hans valdi henni óþægindum í þetta sinn.
Washington, 29. nóv.
Reuter. AP.
CARTER Bandaríkjaforseti,
hyggur á ferðalög í lok þessa
mánaðar en hann hætti á sín-
um tíma við að leggja upp í
reisu til margra landa til að
vinna að framgangi orkumála-
frumvarpsins innan Banda-
rlkjaþings.
Að sögn talsmanna Hvíta
hússins hyggst forsetinn
leggja upp í ferðina 28. eða 29.
desember nk. Carter hefur
boðað til blaöamannafundar á
morgun, miðvikudag, og er
vænzt að hann muni þar greina
nánar frá ferðaáætlun sinni.
Gert er ráð fyrir að Carter
heimsæki alls níu þjóðlönd í
tveimur áföngum. Opinberir
talsmenn segja, að heimsókn
forsetans til Venezuela og
Framhald á bls. 19.
Mario Soares
Fulltrúi úr rikisstjórn Soares
átti í gær i viðræðum við forustu-
menn miðdemókrata sem er næst
stærsti flokkur landsins og hefur
hingað til verið helzta hindrunin
fyrir því að stjórnmálaflokkar
landsins gerðu með sér samkomu-
lag svipaðs eðlis og spænska for-
sætisráðherranum, Adolfo
Suarez, tókst að ná fram i Madrid.
Samkomulag af þessu tagi er
Bandaríkin og Sameinuðu
þjóðirnar þiggja boð Sadats
Kairó, Alsír. WashiiiKlon, Samoinuóu
þjódunum, 2í). nó\omher. Kotilor. AP.
EGYPTALAND tryggði sér í gær
þátttöku fulltrúa Bandaríkjanna
og Sameinuðu þjóðanna í undir-
búningsviðræðum þeim sem fyrir
dyrum standa um frið fyrir botni
Miðjarðarhafs og Anwar Sadat
Egyptalandsforseti liefur boðaö
til í kjölfar heimsóknar sinnar til
ísraels. Fram að því hafði ísraels-
ríki eitt þekkzt boð hans, sem
náði til.allra ríkja, sem hlut eiga
að deilunni.
Bandaríkjastjórn og aðalritari I
Sameinuðu þjóðanna, Kurt Wald-
heim. hafa tilkynnt, að þau muni
sendi fulltrúa til viðræðnanna. |
sem heimildir i Kairó segja aö
muni hefjast nk. mánudag. Auk
þessa hafði Sadat boöið til fundar-
ins Sovétrikjunum. Sýrlandi.
Jórdaniu, Libanon, og Frelsis-
hreyfingu Palestínu, en Sýrland
og Palestinumenn, sent hvað
harðast gagnrýndu för Sadats til
Israels. höfnuðu boðinu þegar og
ntunu þess í stað væntanlega
sa'kja fund, sem boöaö hefur
verið lil í höfuöborg Líbiu, Tri-
pólí, á fimmtudag. þar sem aðrir
arabaleiðtogar hyggjast ræða við-
horfin eftirsiðustu atburöi.
Hins vegar gerðist það að íraks-
stjórn boðaði til sams konar fund-
ar þeirra arabaleiðtoga, sem and-
snúnir eru stefnu Sadats. en
Líbíustjórn brá við í kvöld og
gerði tillögu um sérstakan fund
utanríkisráöherra arabaríkja. og
viröist tillagan sett fram til að
finna málamiðlun milli þessara
Framhald á bls. 2
Teknir með.
lausnarféð
Vín oíí Róm, 29. nóvomhor. Roulor.
ITALSKA lögreglan helur
handtekið járnbrautarstarfs-
mann eftir að í fórum lians
fannst veruleg fjárhæð í hol-
Ienskum gyllinum, sem víst
þykir að sé úr lausnarfé því er
mannræningjar hollenzka auð-
kýfingsins Maurits Caransa
fengu greitt fyrir að láta hann
lausan. Þá yfirhevrði lögregl-
an í Vín ungan heimspeki-
stúdent í tengslum við hvarf
milljónamæringsins Lingerie
Magnate fyrir þremur \ ikum.