Morgunblaðið - 30.11.1977, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. NÖVEMBER 1977
3
Lokið við gerð
korts af landinu
undir Mýrdalsjökli
A RAÐSTEFNU Jardfræda-
félags Islands um fslenzka jard-
frædi, sem haldin var 24.—25.
nóv. sl. iagói Helgi Björnssun
jarðeölisfræóingur fram kort
af botni undir hájökli Mýrdals-
jökuls. A þessu korti, sem unn-
ió er eftir mælingum, sem
gerðar voru í ágúst sl. sjást
ha'ðarlínur undir botni jökuls-
ins. Þar sést í um það bil 900
metra hæö yfir sjó flötur sem
liggur frá enda Entujökuls suð-
ur að Háubungu austanverða
þannig að ef gos kemur upp
austan við flötinn hleypur vatn
í SA eða út á Mýrdalssand, en
ef gýs vestan við flötinn hleyp-
ur vatnið út á Sólheimasand.
Mælingarnar, sem gerðar
voru á Mýrdalsjökli í ágúst sl.
voru á vegum Raunvísinda-
stofnunar Háskólans. Var not-
uð svokölluð íssjá til þessa og
voru mældar mælilinur alls 65
km á hájöklinum, einkum í ná-
grenni Kötlu.
Þegar Morgunblaðið ræddi
við Helga sagði hann, að bezt
væri að lýsa botninum undir
hákolli Mýrdalsjökuls þannig,
að flötur í 900 metra hæð yfir
Sjávarmáli lægi í stefnu
NV—SA, frá upptökum Entu-
jökuls yfir í austanverða Hóu-
bungu. Upp úr fletinum risu
þrjár hæðir, Háabunga, Goða-
bunga og hæð efst í Merkur-
jökli.
Þá sagði Helgi, að niður i
flötinn skærust lægðir, skrið-
jöklar hefðu étið sig inn í flöl-
inn: Sólheimajökull, Tungna-
kvíslarjökull, Entujökull og
Höfðabrekkujökull. Loks væri
djúpur dalur inn í miðjum jökli
og botn hans næði niður fyrir
700 metra yfir sjó. Dalurinn
lægi í stefnu NA—SV milli
Austmannsbungu og Kötlu, en
sveigði síðan í hásuður, í stefnu
á Háubungu. Enn væri um 1 km
breitt haft milli þessa dals og
dalsins, sem Sólheimajökull
lægi i.
Þá sagði Helgi, að Katla lægi
upp á hrygg uppi af dalnum.
Upp að þessum hrygg risa
Ljósm. Mbl.: KAX
Tækjabúnaðurinn sem notaður var við mælingarnar.
Kort Helga Björnssonar af botni Mýrdalsjökuls. 900 metra hæðarlfnan, sem liggur frá Entujökli að
Háubungu SA-verðri er flöturinn sem Helgi talar um og þar markast vatnaskilin. Kötlugos 1918 kom
upp á þeim stað sem punktahringurinn er, við sjálft Kötlunafnið.
fjallshlíðar á þrjá vegu, en f
SV-átt gengi hryggurinn í átt að
Háubungu. Toppflötur hryggj-
arins væri 2—3 km breiður og
hallaði síðan bratt á báða bóga
til NV allt að 30° niður í fyrr-
nefndan dal, til SA niður
Höfðabrekkujökul.
Að sögn Helga Björnssónar
var það við NA-enda hryggjar-
ins, sem Katla kom upp 1918.
Inn á þetta svæði hefðu þeir
ekki komist sl. sumar vegna
sprungna. Væri því enn óvíst
hvort þar væri slétta, kvos eða
keila.
Þá gat Helgi þess, að í erindi
Páls Einarssonar jarðeðlisfræð-
ings hefði komið fram, að upp-
tök skjálfta röðuðu sér undir
umræddan hrygg, sem endaði í
Kötlugíg. Við gos í Kötlu væri
því eðlilegt að hlaup færi fram
á MýrdalsSand. Flöturinn í 900
metra hæð milli Entujökuls og
Háubungu markaði vatnaskil
undir jökli. Gysi hins vegai
vestan við Goðabungu, hlyp
niður Sólheima- og Skógasand.
Morgunblaðið spurði Helgt
að lokum hvort hann teldi ac'
vatn væri ávallt i dalnurr
Framhald á bls. 19.
Almennur fundur í kvöld
um utanríkismál
Reykjavíkurprófastdæmi:
Þingmenn og borgarfull-
trúar gestir safnaðaráðs
ÞEIR Hannes Þ. Gissurarson,
Kristján Hjaltason og Skafti
Harðarson, sem hafa gefið út blað
og haldið fundi í flestum fram-
haldsskólanna undir kjörorðinu
„Samvinna Vesturlanda: Sókn til
frelsis", skoruðu sem kunnugt er
á Samtök „herstöðvaandstæð-
inga“ að mæta þeim á fundi í
Háskólanum. Samtökin hafa tekið
áskoruninni, og verður fundurinn
haldinn í Félagsstofnun stúdenta
kl. 20.00 í kvöld, miðvikudags-
kvöld. Þessi fundur verður al-
mennur fundur og er opinn öllum
áhugamönnum um utanríkismál,
bæði utan Háskólans og innan.
Fundanefnd Stúdentaráðs boðar
til hans. Ræðumennirnir Hannes
Gissurarson, Baldur Guðlaugsson
og Þorsteinn Pálsson tala á fund-
inurn undir kjörorðinu „Sam-
vinna Vesturlanda: Sókn til frels-
is“, en Halldór Guðmundsson og
Pétur Tyrfingsson ásamt Sigurði
Tómassyni tala undir kjörorðinu
„ísland úr Nató — Herinn burt“.
í viðtali við Morgunblaðið sagði
Hannes Gissurarson, að þessi
fundur væri sjöundi fundur
þeirra félaga, fundirnir hefðu
gengið vel og verið hinir skemmti-
legustu. Hann kvaðst fagna því,
að „herstöðvaandstæðingar“
hefðu fjölmennt á þessa fundi,
þvi að kostur hefði með þvi gefizt
til þess að kynna fyrir þeim rök
fylgismanna vestrænnar sam-
vinnu, smám saman væri verið að
skipta um umræðuefni í utanrík-
ismálum, menn deildu ekki leng-
ur um það, hvort landið ætti að
verja eða ekki, heldur um hitt,
með hverjum hætti það ætti að
verja, hvaða skipan ætti að vera á
hinni vestrænu samvinnu, sem
talin væri sjálfsögð af flestum.
1 KVÖLD verður haldinn fundur
í safnaðaráði Reykjavíkurprófast-
dæniis í safnaðarheimili Bústaða-
kirkju klukkan 20.30 og hefur
þingmönnuin og bæjar- og borgar-
fulltrúum verið boðið til fundar-
ins.
Af tilefni þessa fundar sneri
Mbl. sér i gær til sr. Ólafs Skúla-
sonar dómprófasts og innti hann
nánar eftir fundinum. Sagði sr.
Olafur að ákveðið hefði verið að
bjóða ti! fundarins þingmönnum i
Reykjavík, Kópavogi og Sel-
tjarnarnesi, bæði þingmönnum
kjördæmisins og þingmönnum
annarra kjördæma, sem búsettir
eru á höfuðborgarsvæðinu svo og
borgarfulltrúum i Reykjavík og
bæjarfulltrúum i Kópavogi og
Seltjarnarnesi. Ólafur sagði að
ætlunin væri að kynna það, sem
væri efst á baugi í málefnum
kirkjunnar, safnaðastarf og fjár-
hagslega vangetu safnaðanna.
Harðír ihomað taka!
Nýju, lofttæmdu kaffipakkarnir frá Ó. Johnson & Kaaber eru
sannarlega harðir í horn að taka. Öllu lofti hefur verið dælt úr
þeim, en við það falla þeir svo þétt að kaffinu, að þeir verða
glerharðir.
Geymsluþolið er nær ótakmarkað, og kaffið er alltaf sem nýtt,
þegar pakkinn er opnaður.
Við bjóðum aðeins nýtt kaffi og erum harðir á því!
Ríó, Mokka, Java og Santos.
Ilmandi, úrvals kaffi — í nýjum lofttæmdum umbúðum.
0. JOHNSON & KAABER H.F.