Morgunblaðið - 30.11.1977, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 30.11.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. NOVEMBB^R 1977 5 Rætt um fræðslu- mál, afkomu sjávar- útvegs, öryggismál á Fiskiþingi FISKIÞINGI var haldió áfram gær og hófust fundir kl. 10 árdeg is. Fyrsta mál á dagskrá var um ræða um fræðslumál sjávarút vegsins og hafði framsögu Þor steinn Gíslason skipstjóri og vara fiskimálastjóri þar framsögu Urðu síðan miklar umræður um það mál. Eftir hádegi eða kl. 14. hófust umræður um afkomu sjávarút- vegs og þar hafði framsögu Ingólfur Arnarson, framkvæmda- stjóri Útvegsmannafélags Suður- nesja. Þá hafði Hjalti Gunnarsson frá Reyðarfirði framsögu um öryggismál og síðan var í gær rætt um ýmsa málaflokka, sem vísað hefur verið til stjórnar. Framsögu um þau mál hafði Jón Póll Hall- dórsson framkvæmdastjóri frá ísafirði. Kl. 17 kom dr. Björn Dagbjarts- son forstjóri Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins í heimsókn og ræddi hann um starfsemi Rann- sóknastofnunarinnar, siðan átti Már Elísson' fiskimálastjóri að leggja fram reikninga Fiski- félagsins fyrir árið 1976 og fjár- hagsáætlun fyrir árið 1978. Forseti Fiskiþings er nú Hilmar Bjarnason frá Eskifirði og vara- forseti Marius Þ. Guðmundsson, Isafirði. Ritari er Jón Páll Hall- dórsson, ísafirði, og vararitari Guðmundur Karlsson, Vest- _mannaeyjum. Fylgsnid bók nýrrar - ny útgáfu BÓKAÚTGAFAN SALT hefur sent frá sér nýja bók, F'ylgsnið, eftir Corrie ten Boont í þýðingu Gísla H. Friðgeirssonar. Bókin fjallar uni holíenska fjölskyldu er skýtur skjólshúsi yfir Gyðinga sem ofsóttir eru af nazistum á seinni stríðsárunum. Á bókarkápu segir m.a. að aðal- persöna bókarinnar, Corrie, sem hafi ásamt fjölskyldu sinni búið í litlum friðsælum bæ í Hollandi, hafi opnað heimili sitt fyrir fólki sem ekki hafi átt neinn samastað er stríðið skall á og veitt fólkinu mat og peninga og útvegað þvi dvalarstað. Þau eru kærð fyrir þetta og handtekin og síðan send i fangabúðir í Þýzkalandi. Bókin segir frá sönnum atburðum og gert hefur verið kvikmynd eftir henni. Þetta er fyrsta bók nýrrar út- gáfu, Bókaútgáfunnar Salt. Setn- ingu, prentun og hókband hefur Prentsmiðja Hafnarfjarðar h.f. annast en litgreiningu og plötu- gerð kápumyndar Prisma s.f. Bókin er 277 bls. og skiptist i 15 kafla. FYLGSNIÐ CorrietenBoom Johnog Elizabeth Sherril * Hvítar—svartar Ijósbláar—beige Verö 2.990- sími: 27211 Ný bók um Sigrúnu eftir Njörð P. Njarðvik KOMIN er út á vegum Iðunnar sagan Sigrún eignast systur eftir Njörð P. Njarðvík, myndskreytt af Sigrúnu Eldjárn. Bókin fjallar um það tilfinningalega vandamál og lifsreynslu barns, sem felst í því að eignast systkin. Sagt er frá fimm ára gamalli stúlku, sem hefur mjög náin tengsl við for- eldra sína og er vön að búa ein að umhyggju þeirra og ástúð. Þegar nýtt barn kemur allt í einu inn á heimilið finnst henni að hún sé afskipt og vanrækt. Þannig ger- breytir nýja barnið í einu vet- fangi allri tilveru hennar. ,,En smám saman fer henni að þykja ósköp vænt um litlu systur sína," eins og segir í fréttatilkynningu forlagsins. Sigrún eignast systur er einí konar sjálfstætt framhald bókar ínnar Sigrún fer á sjúkrahús, sen gerð var í samráði við bárnadeih Landakotsspítala og kom út fyrra. Bækurnar eru i stóru broti, V prentaðar i Hafnarprent. KrxhkEKó instant Litmyndir á svipstundu úr Instant myndavélinni frá Kodak. Komid á sýningu Ferðafélags ís/ands í Norræna húsinu í þessari viku og kynnist þessum vélum í sýningardei/d okkar. OPIÐ KL. 14—22. Æffi HANS PETERSEN HF BANKASTRÆTI S: 20313 AUSTURVER S: 36161 GLÆSIBÆR S: 82590

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.