Morgunblaðið - 30.11.1977, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30 NÖVEMBER 1977
Matthias Bjarnason sjávarútvegsráðherra undirritar
reglugerð um útfærslu fiskveiðilandhelgi í 200 mílur
j Erlend
veiðisókn
I úr sögunni
Um þessar mundir er ár
liðið síðan brezkur veiði-
I floti hélt endanlega út úr
I 200 milna fiskveiðiland-
helgi okkar. Þar með lauk
| margra alda veiðisókn
| brezkra sjómanna á
1 Íslandsmiðum. Þýzkur
| veiðifloti hélt sömu leið
| fyrir fáum dægrum. Segja
* má að þar með sé hin
I stækkaða fiskvekiðiland-
I helgi okkar friðuð af
I erlendri veiðisókn, þó að
I Belgar og Norðmenn hafi
. enn óverulegar veiði-
I heimildir og frændur
I okkar, Færeyingar, um-
. saminn veiðirétt. Brottför
I brezkra og þýzkra veiði-
I flota af íslandsmiðum er
sögulegur atburður, sem
I skráður verður gullnu letri
| í íslandssöguna, og mikil-
1 vægur þáttur nauðsyn-
| legrar fiskverndar.
| Núverandi ríkisstjórn
' stóð fyrir útfærslu fisk-
I veiðilandhelginnar í 200
§ mílur. Hún stóð og þann
' veg að málum í kjölfar
I úifærslunnar, að hún er
I nú virt í reynd af öllum.
I Oslóarsamningurinn, sem
I_________________________
innsiglaði islenzkan sigur
i landhelgisstriðum,
mætti að vísu andstöðu
Alþýðubandalagsins. Sú
andstaða er nú feimnis-
mál i Þjóðviljanum. Sú
andstaða situr þar á
þagnarbekk við hlið
þeirrar afstöðu þing-
manna Alþýðubandalags-
ins 1973, að samþykkja á
Alþingi, allir sem einn,
veiðiheimildir 139
brezkra togara innan 50
milnanna og til tveggja
ára, án nokkurs konar
viðurkenningar á útfærsl-
unni af Breta hálfu eða
tryggingar fyrir þvi, hvað
við tæki að samnings-
tímanum loknum. Allir
sanngjarnir menn viður-
kenna nú, að sjávarút-
vegsráðherra, Matthías
Bjarnason, og rikisstjóm-
in i heild, hafi haldið
þannig á málum, sem leitt
hefur til farsælli niður-
stöðu en jafnvel hinir
bjartsýnustu þorðu að
vona.
Til að
sigurinn
nýtist okkur
Þannig var og haldið á
málum, að útfærsla fisk-
veiðilandhelgi okkar gæti
nýzt okkur í sölu sjávar-
afurða á heimsmarkaði.
Tryggður var farvegur
fyrir framleiðslu okkar á
EFTA- og EBE-markað,
m.a. með niðurfellingu
tolla á sjávarafurðir okkar
á Evrópumarkaði. Banda-
ríkjamarkaður er að visu
mjög hagstæður okkur Is-
lendingum og raunar eina
markaðssvæðið, sem
gefur okkur umtalsverðan
vinning i viðskiptajöfnuði,
þ.e. kaupir verulega meira
af okkur en hann selur
hingað. Engu að siður var
traustur farvegur á
Evrópumarkað, sem
þróast getur i árvissa,
hagstæða afsetningu
íslenzkrar framleiðslu,
mikilvægur áfangasigur,
til viðbótar útfærslu land-
helginnar og friðun
hennar af erlendri veiði-
sókn.
Aldrei i sögu þjóðar-
innar hefur verið grtpið til
jafnmargra né viðtækra
friðunaraðgerða i fisk-
veiðilandhelginni. Má þar
nefna alfriðun mikilvægra
hrygingar- og uppeldis-
svæða, skyndilokanir
svæða er ungfiskur
gengur á, tímabundin
veiðibönn á þorsk og til-
raunaveiðar og vinnslu á
litt nýttum fisktegundum.
Sem dæmi má og benda á
stóraukna loðnuveiði, er
gjörbreytt hefur bæjar-
brag og hag manna í
ýmsum sjávarplássum
nyrðra — auk áhrifa
þessarar vinnslu á þjóðar-
búskapinn. Efnahagsað
stæður i þjóðfélaginu sem
og atvinnumál i sjávar-
plássum almennt hafa
engu að siður valdið þvi,
að ekki var beitt eins
harkalegum veiðihömlun-
um og ella hefði verið
gert. Því getur svo farið
að herða verði hömlur á
þessu sviði til samræmis
við fræðilegar niðurstöður
visindamanna okkar á
næstu mánuðum og
misserum.
Rikisstjórnin hefur
staðið sig mjög vel i öllu,
er lítur að landhelgis-
málum, fiskvernd og út-
flutningi sjávarafurða. Um
það eru landsmenn
almennt sammála.
Karlakórinn
FOSTBRÆÐUR
Karlakór KFUM ~ 1916—1976
Á síðasta ári átti Karlakprinn Fóstbræður 60 ára afmæli. I tilefni þessara
tímamóta hafa nú verið gefnar út 2 hljómplötur sem innihalda sýnishorn
af söng kórsins allt frá árinu 1930 til ársins 1975. Eftirtaldir stjórnendur
kórsins koma við sögu á hljómplötunum: Jónas Halldórsson, Ragnar
Björnsson, Jón Þórarinsson, Garðar Cortes, Jón Ásgeirsson og Jónas
Ingimundarson. Þessar hljómplötur þurfa allir unnendur karlakórssöngs
að eignast, enda hefur verði þeirra verið stillt mjög í hóf. Kosta þær báðar
kr. 3900.-. m
FALKIN N
I
dutch
h<>ll«ndais ?
INTERNATIONAL
m) MULTIFOODS
Fæst í kaupfélaginu
v \ \ i /
^Tepprlrnd
er stærsta gólfteppasérverzlun
landsins.
að TEppplrnd
er staðsett í verzlunarhjarta
borgarinnar við Grensásveg.
að Tepprlrno
teflir fram sérhæfðu starfsliði við
sölu og lögn gólfteppa.
að "Tepprlrnd
flytur teppin inn milliliðalaust frá
helstu framleiðendum Evrópu
a zTepprlrnd
býður hagstætt verð og hagstæð
kjör á teppum.
Pantiö tímanlega fyrir jól
TÉPPfíLfíND
Stærsta sérverzlun landsins með gólfteppi
Grensásvegi13.
Símar 83577 og 83430.
r.A t*
5