Morgunblaðið - 30.11.1977, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLACIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1977
A ALÞJÖÐLEGU bitrnalæknaþingi f Nvju-Delhi f.vrir skömmu var sett
upp sýning, sem Sigríður Björnsdóttir hefur samió um mvndlist barna
á sjúkrahúsum. Sýningin var samansett af Ijósmvndum, teikningum
og textum og skiptist í fimm eftirtalda flokka: 1. Hvað segja börn á
sjúkrahúsum um mvndir sínar? 2. Myndir sem hjálpa okkur að skilja
tilfinningar og hugarástand sjúklinganna. 3. Börnin teikna drauma
sína. 4. Skapandi starf sem uppbyggjandi og fyrirbvggjandi þáttur í
lífi harns á sjúkrahúsi. 5. Greining á alhliða virkni og þjálfun sem á
sér stað f skapandi starfi.
■j?>
^ \
\ 5 \ Æ
ol l\° t\\ £
^ ; , §>
%
5
A/EW
Hér birtist síðari hluti hins
mikla ritverks um sævíkinga
fyrri tíma við Breiðafjörð,
sannar frásagnir mikillar
sóknar á opnum bátum við
erfiðar aðstæður, sem stund-
um snerist upp í vörn eða
jafnvel fullan ósigur. Nær
hvert ár var vígt skiptöpum
og hrakningum, þar sem hin-
ar horfnu hetjur huðu óblíð-
um örlögum byrginn, æðru-
og óttalaust. Aflraunin við
Ægi stóð nánast óslitið árið
um kring og þessir veður-
glöggu, þrautseigu víkingar,
snillingar við dragreipi, tóku illviðrum og sjávar-
háska með karlmennsku, þeir stækkuðu í stormi og stórsjó
og sýndu djörfung í dauðanum, enda var líf þeirra helgað
hættum. — Um það bil 3000 manna er getið f þessu mikla
safni.
niAtt mmm
AIDttll Afi
MGNA
MMklL-
Þessi bók spannar 60 — 70
ár af ævi Magnúsar
Storms, hins ritsnjalla og
glaðbeitta gleðimanns,
sem allir er kynnst hafa dá
fyrir hreinskilni og hvass-
an penna. Á fyrri hluta
þessa tímabils lifði hann
„hinu ljúfa lífi“ við
drykkju og spil, naut sam-
vista við fagrar konur og
átti 10 — 12 gangandi víxla
í bönkum. Nú hefur hann
söðlað um og breytt um
lífsstíl. Heimslistarmaður-
inn er orðinn lystarlaus á
vín og konur, safnar fé á
vaxtaaukabók og hugleiðir
ráð Sigurðar Nordals um
undirbúning undir ferðina miklu. Friðþæging hans við
almættið er fólgin í þessari bók, en í hana hefur hann valið
til birtingar sitthvað af því bezta, sem hann hefur ritað, —
og víst er að bókin svíkur engan, sem ann íslenzku máli eða
snjöllum og tæpitungulausum texta.
Nokkrar sögur um bróð-
ur Astvald, Grafarráðs-
konurnar, stúlkurnar í
tjöldunum, guðina í
Sporðhúsum, fólkið á
Kormáksgötunni og
kjallarann í Hartmanns-
húsinu. —
Jóni Helgasyni lætur
flestum höfundum betur
sá leikur að lífsmyndum,
sem einkennir þessar
sögur hans, en höfuðein-
kenni þeirra er fagurt
mál, stíisnilld og óvenju-
Ieg frásagnarlist. Fyrri
smásagnasöfn hans,
Maðkar í mysunni og
Steinar í brauðinu, töld-
ust til tíðinda, er þau
komu út, og víst er að
eins mun fara um þessa bók hans, svo frábærlega vel sem
þær sögur eru sagðar, sem hún hefur að geyma.
Sjúkrahótel Rauða
krossins lagt nið-
ur vegna rekstr-
arörðugleika
STJÓRN Rauða krossins
hefur ákveðið að leggja
skuli niður rekstur sjúkra-
hótels R.K.Í. í Reykjavík
frá næstu áramótum og var
ákvörðun þessi tekin á
fundi stjórnarinnar sl.
laugardag. Er það gert
vegna þess að mikill halli
er nú á rekstrinum og
áfallnar skuldir orðnar yf-
ir 20 milljónir króna og
sögðu forráðamenn Rauða
krossins að reksturinn
myndi ekki halda áfram
nema rekstrargrundvöllur
fyrir hótelið fengist og
skuldirnar hefðu verió
greiddar.
Á fundi með fréttamönnum í
gær kom fram að vegna þessa
halla er RKÍ kominn í vanskil við
deildir félagsins úti á landi, en
mikið af föstum tekjum er koma.
frá söfnunarkössum hafa að und-
anförnu farið í rekstur hótelsins.
Björn Friðfinnsson sagði að tekj-
um af söfnunarkössunum væri
skipt til helminga, annar helming-
ur þeirra færi til deildanna og
hinn helmingurínn til reksturs
aðalstöðvanna í Reykjavík svo og
til fræðslustarfs o.fl. Sagði Björn
að nú hefði verið farið að ganga á
þann hluta þessa fjármagns er
fara ætti til deildanna og væri
fyrirsjáanlegt að deildirnar yrðu
að draga úr starfsemi sinni ef því
myndi halda áfram.
Ólafur Mixa, formaður Rauða
krossins, sagði að Sjúkrahótelið
Ljósm. Kax.
Frá setustofu sjúkrahótels RKÍ en sjúklingarnir sem þar dvöldust
höfðu það á orði að þessa starfsemi mætti alls ekki leggja niður.
.Jíilíus Sólnes:
Stefnum að mikilli eflingu
Stúdentafélags Reykjavíkur
STJÖRN Stúdentafélags Revkja-
víkur hefur rætt mikið um það, að
stúdentahugsjónin sé að týnast og
1. desember er nánast gleymdur
og hefur það haft sín áhrif f þessu
að hér áður sá félagið alltaf um
útvarpsdagskrá 1. desember,
sagði Júlfus Sólnes, nýkjörinn
formaður félagsins í samtali við
Morgunblaðið.
Við höfum rætt það í nýkjörinni
stjórn félagsins að nauðsynlegt sé
að snúa við blaðinu í þessu efni og
okkar fyrsta tillaga verður
stúdentafagnaður 3. desember
n.k., en slfkur fagnaður hefur ver-
ið haldinn allt frá árinu 1871.
Þessi fullveldishátíð hefur alla tíð
verið með frekar þunglamalegu
sniði. en nú er í bígerð að gera
Júlfus Sólnes
bragarbót á því með því að fá
stúdenta sjálfa til að skemtmta
t.d. mun læknakörinn skemmta á
fagnaðinum ó laugardag.
Þá mun félagið í framhaldi af
þessu standa fyrir umræðufund-
um á næsta ári og má geta þess að
vonast er til þess að hægt verði að
fá Mogens Glistrup til að koma á
fund á næsta ári og ræða þar um
fjármál og skattamál. Þá er einnig
í bigerð að halda almennan fund
um landbúnaðarmálin fyrir jól.
Félagið er frekar laust í reipun-
um, þannig að allir stúdentar í
Reykjavik eru sjálfkrafa félagar í
þvi, án þess raunverulega að
sækja formlega um inngöngu, og
er fjárhagur þess af þeim sökum
vægast sagt bágur. Við eigum þó
barfkabók frá árinu 1972 sem hef-
ur aldrei verið hreyfð og lætur
nærri að 250 króna innstæða frá
1972 sé í dag orðin um 30.000
krónur.
Starfandi félagar í félaginu eru
aðallega menn sem lokið hafa
háskólaprófi, og er það alveg kjör-
inn vettvangur að mínum dómi
fyrir menn úr mörgum starfsstétt-
um að koma saman og bera saman
bækur sínar.
Að lokum gat Júlíus þess að á
fullveldisfagnaðinum yrðu marg-
ir góðir gestir, t.d. forseti Islands,
forsætisráðherra og borgarstjóri,
en aðalræðumaðúr kvöldsins
verður Hannibal Valdimarsson.