Morgunblaðið - 30.11.1977, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1977
Aðalfundur GATT:
Aðalumræðuefnið ótti
við nýia verndartolla
(ienf. 29. nóvember. — Reuter. AP.
ÓTTI viö alþjóðlegt viðskipta-
stríð vegna sívaxandi tilhneig-
inga margra ríkja til einhliða
verndaraðgerða með tollmúrum
mun setja mjög svip sinn á árs-
fund GATT — Hins almenna sam-
komulags um tolla og viöskipti.
Fulltrúar 33 aðildarríkja sækja
þennan fund og þar á meðal tveir
fulltrúar Islands, en fundurinn
mun standa í tvo daga. Ríkin sem
hér um ra'ðir ráða ,vfir liðlega 4/5
af heimsverzluninni.
Fyrr í þessum mánuði hafði að-
alframkvæmdastjóri GATT, Oli-
vier Long, vai'að við því að utan-
ríkisviðskiptin væru nú á við-
kvæmu skeiði og stafaði hætta af
að ríki heims gripu í stöðugt rík-
ari mæli tii verndaraðgerða til að
styðja við innanlandsiðnað,, sem
stæði höllum fæti, Afleiðingin
gæti hins vegar oröið sú að þjóð-
arhagur versnaði stórum, svo og
almenn lífskjör og lögð yrði i rúst
öll skipan alþjóðlegra viðskipta.
Nýleg atvik sem vakið hafa
áhyggjur forsvarsmanna GATT
eru allt frá kvörtunum vegna
undirboða á stáli á Bandarikja-
markaði til harkalegra aðgeröa
Efnahagsbandalagsrikjanna níu
til að koma í vg fyrir innflutning
á vefnaöarvörum frá þróunarrikj-
unum.
EBE-rikin eru einníg með inn-
flutning frá Japan undir smásjá,
en ágreiningur milli þessara
tveggja stórvelda utanríkisverzl-
unar og einnig Bandaríkjanna
gæti hins vegar gert að engu urn-
leitanir um nýtt samkomulag í þá
veru að auka friverzlun í heimin-
um. Viðræöur þessar hófust áriö
1973 og átti að ljúka fyrir 1975 en
tímamörk þessi hafa nú verið
færð aftur til næsta árs. Japanir.
sem eru undir hvað harðastri
gagnrýni, hafa lýst því yfir aö til
að greiða fyrir þessum viðræðum
muni þeir vera til með að aflétta
ýmsum mikilvægum tollum.
SÞ kanni fljúg-
andi furðuhluti
SÞ, 28. nóvember. Reuter.
FORSÆTISRÁÐHERRA Grenada, Eric Gary, hvatti til þess á allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna í dag að sett væri á stofn nefnd eða deild til
að kanna fyrirbæri, er gengju undir nafninu „fljúgandi furðuhlutir"
Sendiherra Grenada, Wellington að nafni, hafði áður borið fram
ályktun sama efnis í sérstakri stjórnmálanefnd, sem skipuð er fulltrúum
149 þjóða. Kom enn fremur fram í ályktuninni að árið 1978 skyldi á
alþjóðavettvangi verða ár hinna fljúgandi furðuhluta (sbr. kvennaár).
Var auk þess hvatt til þess að annað alþjóðaþing um fljúgandi
furðuhluti yrði á árinu haldið í Grenada, en fyrra þingið var haldið f
Mexfkó í apríl s.l.
Tóbaksreykur
er oftast til ama og óþæginda
fyrir þá sem reykja ekki.
Sannaö er að reykurinn getur
spillt líðan þeirra
og valdið þeim heilsutjóni.
Reykingamenn ættu að sýna
öðru fólki tillitssemi og
allra síst að reykja í návist barna.
SAMSTARFSNEFND UM REYKINGAVARNIR
\3QI20aG)
Flóðbylgjan á Indlandi:
Aðstoð við 2 millj-
ónir heimilislausra
Genf, 29. nóvember. Reuter.
TVÆR milljónir manna misstu
heimili sín þegar há flóðbylgja
skall yfir Andrha Pradesh-svæðið
á Indlandi suðaustanverðu fyrr í
þessum mánuói, að því er áa-tlað
er í höfuðstöövum Rauða kruss-
ins. Ennfremur er áa-tlað að flóð-
bylgjan hafi haft meiri eða minni
Berlingske-deilan:
Forsprakkar
fyrir rétt
Kaupmannahöfn,
29. nóvember. Reuter
TVEIR forsprakkar verkfalls-
ins hjá Berlingske Tidende
fyrr á þessu ári komu fyrir
rétt í gær, ákærðir fyrir að
hafa haft í hótunum við verk-
stjóra blaðsins sem
aðstoðuðu við að koma út
neyðarútgáfu af blaðinu.
Réttarhöldin hófust eftir
ítrekaðar tilraunir lögmanna
mannanna til að fá ákærur
felldar niður á þeirri forsendu,
að þær væru af pólitískum
toga, þar sem það hafi verið
Anker Jörgensen forsætisráð-
herra og danska þingið sem
hafi krafist rannsóknar á
ásökunum um ógnanirnar.
Landréttur kvað upp þann
úrskurð að farið skyldi með
málið eins og hvert annað
sakamál, og áfrýjun um nýjan
úrskurð fyrir Hæstarétti var
hafnað.
áhrif á daglcgt líf um sjö milljón
manns.
Hinir húsnæðislauNU njóta nú
umönnunar indver ka Rauða
krossins og hafa fcngið húsaskjól
i 170 búðum. Alls hafa Rauða
kioss félög í 15 löndum og fjórar
ríkisstjórnin boðið fram aðstoö
ýmist í peningum eða í hjálpar-
varningi og nemur hvort tveggja
um 300 milljönum kröna.
Rauði krossinn hofur aðstoðað
indverska Rauða krossinn með út-
vogun á biýnustu nauðþurftum
og hjálpargögnum. og yfirvöld
heinia fvrir hafa tilkynat um 3ja
mónaða noyðaráætlun til handa
150 þúsund manns í þeirn 80 þorp-
um som harðast urðu úti.
Johnson af-
þakkar FBI
Washington, 29. nóvember.
AP.
FRANK Johnson dómari. som
útnefndur var af Carter
Bandaríkjaforseta í ígúst s.l.
lil að taka við stöðu forstöðu-
manns bandarísku alríkislög-
reglunnar — FBI, hefur til-
kynnt að hann geti ekki tekið
að sér starfið vegna heilsu-
brests.
Afráðið hefur verið að hiðja
núverandi yfirmann
stofnunarinnar. Clarance
Kelley. að gegna þvi starfi
áfrani enn um sinn. en hann
átti að láta af störfum 1. janú-
ar n.k. og þá koinast á eftir-
laun.
Ensk gœði á gólf ið
Hin velþekktu ensku gólfteppi fást nú hjá flestum kaupfélögum
landsins i miklu úrvali á ótrúlega hagstæóu verói.
4UGLVSINGASTOTA SAMBANDSINS ,
Sambandisl.samvinriufelaga
SCS Innflutningsdeild
Holtagöröum Rvík Sími 81266