Morgunblaðið - 30.11.1977, Side 17

Morgunblaðið - 30.11.1977, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. NOVEMBER 1977 17 ENGINN veit sína ævina fyrr en öll er, segir mál- tækið og flestir prísa sig sæla fyrir að svo sé, þótt forvitnin leiði marga á vit spádóma, hugboða og annars slíks, er gæti gef- ið vitneskju um hvað manns bíður jafn vel eft- ir dauðann? En engum hefur tekizt að fá full- komin svör við því, svo vitað sé. Á hverjum d'egi fæðast í heiminn börn, börn sem eiga sér annað hvort langt líf eða stutt fyrir höndum. Sums stað- ar þar sem lifnaðarhættir eru vanþróaðir er meðal- aldur manna styttri en í landi eins og okkar. Ann- ars staðar er hann hærri. eins og í Kákasus,, þar sem fólk virðist enn mið- aldra þótt það sé tírætt, eftir sögusögnum að dæma, hvort sem það er að þakka loftslaginu eða jógurtinni. En þótt með- alaldur íslenzkra kvenna til dæmis sé einn sá hæsti í heiminum í dag, veit enginn hversu háum aldri hann nær, sumir hafa engan áhuga á að vita það og aðrir hafa ekki áhuga á því að verða háaldraðir. Það eru þó ekki margir sem ná tíræðisaldri, en einn í þeirra hópi er Sveinn Jónsson fyrrver- andi útgerðarmaður í Vest- mannaeyjum. Hann leit dagsins ljós fyrir nákvæmlega einni öld síðan, hinn 1. desember árið 1877 að Yzta-Skála undir Eyja- fjöllum. Rúmum þremur árum síðan, 14. september 1880, fæddist meybarn í nágrenninu, á Fornasöndum undir Eyja- fjöllum, sem skírð var Kristín og er Þorleifsdóttir. Þessi tvö gengu í hjónaband sama árið og Kristján IX. þáverandi ,,kon- ungur vor“ andaðist í Amalien- borg, eða á því herrans ári 1906. Síðan þá eru liðnir sjö áratugir og eitt ár, og mundi mörgum þykja það langur ævitími fyrir eitt hjónaband — en það er heldur ekki á hverjum degi, sem maður fyrirhittir hjón, þar sem eiginmaðurinn er hundrað ára og eiginkonan 98 ára. Þessi öldruöu hjón eru nú á Vífilsstaðaspítalanum, nánar tiltekið á deild 4 og hafa verið þar sl. fjögur ár. Eða frá þvi að einar mestu náttúruhamfarir, sem dunið hafa yfir hér á landi á þessari öld, urðu vió eldgosið í Vestmannaeyjum hinn 23. janúar áfið 1973. Kristín var þá búsett á heimili dótturdóttur sinnar, en Sveinn var á Sjúkra- húsi Vestmannaeyja. Þau komu bæði til Reykjavíkur þessa ör- lagariku nótt, voru lögð inn á Landspítalann og siðan flutt á Vífilsstaöaspítala, þar sem þau hafa dvaliö síðan. Morgunblaðið ákvað að heilsa upp á þessi öldruðu hjón nú í vikunni. Blaðamann og ljös- myndara bar aö garði síðdegis og að frátöldu starfsliði og hjúkrunarfólki var Sveinn Jónsson sá fyrsti af sjúklingum, sem við hittum. Hann sat í hjólastól á gangi deildar númer fjögur, með silfurgrátt hár og horfði beint fram fyrir sig. Við kynntum okkur og hann spurði hvert væri erindiö. Við tjáðum honum það og kvaðst hann þreyttur mjög, því að gest- spítalann. ,,Ég læt það nú vera elskan mín," sagði Kristín um leið og hún gekk teinrétt að lyftunni. Rólyndið, orsök þessa háa aldurs Áður en við kvöddum bauð Kristín Þorleifsdóttir okkur að líta á herbergi sitt, þegar Sveinn var lagstur til hvíldar í sínu herbergi hinum megin við ganginn. Kristín er i herbergi með annarri konu, Jenny Guðmundsdóttur, og áður en Teódóra opnaði dyrnar að her- bergi þeirra Kristínar og Jennyar. sagði hún okkur að Jenny yrði 99 ára í janúar n.k. Hverju svo sem maður hafði átt von á, var það alla vega ekki að sjá þá sjón, sem við blastí. Jenny sat í rúmi sínu og heklaði iangan dúk eins og hún ætti lifið aö leysa. Hreint og beint ótrúlegt miðað við aldur hennar. Hún brosti breitt, þegar viö tylltum okkur við rúmstokk hennar. „Ég er alltaf að hekla. Það styttir mér stundirnar í ell- inni. Maður er ekki neitt ung- lamb lengur. „Röddin er þrótt- mikil og heyrnin þannig að nóg heföi verið fyrir spyrjanda að hvisla. „Ég er að heklá dúka ó sófa- borð,“ sag'ði Jenny og Teódóra bætti við: „Hún selur dúkana sína, en á mjög lágu verði. Alltaf sama billéga veróinu." „Það tekur nú ekki aö hækka það héðan af," svaraði Jenny kankvis. „Ég er móðursystir Hrafn- kels yfirlæknis hér ó Vífils- stöðum. Var elzl af fimm systrum og sú eina, sem er á lifi. Jú, ég var í Vestmannaeyj- um þegar gosiö varð eins og þau Sveinn og Kristín. En ég á afmæli hinn 23. janúar, daginn sem hamfarirnar skullu yfir. Ég hafði ekki hugmynd um aö eldurinn væri í eyjunni sjálfri, frétti það fyrst þegar ég var komin til Reykjavíkur," og Jenny hló. „Þetta var mikil héppni að allir skyldu sleppa lífs. Já, það er nú meira." „Hvaöa galdraverk er nú þetta," spurði hún síðan ljós- myndarann, þegar hann bjóst til að smella af. „Ég hekla stundum gler- augnalaust," bætti hún við. „Hins vegar bjóst ég ekki við að ævidagurinn yrði svo langur og fékk mér því ekki lesgleraugu. Þannig get ég ekki lesið en ég hlusta mikið á útvarp. Þá geri ég leikfimiæfingar á hverju kvöldi. Sjáðu hvað ég er liðug í kroppnum," og Jenny gerir - ‘nokkrar armsveiflur fvrir hafnarlaust. ,,Á meóan ég hekla finnst mér ég ekki gömul. Það er mikil eftirspurn eftir dúkunum mínum. Þeir eru komnir til Danmerkur og Ameriku meira að segja. Þeir eru vinsælir til tækifærisgjafa. En þaö þykir öllum svo mikið í þá varið vegna þess hvað ég er gömul," og aftur brosir Jenny kankvis. Hvert er þó leyndarmálið að ná svona háunt aldri eins og þau hjónin Sveinn og Kristrri og Jenn.v hafa nóð. „Ætli það sé ekki rólyndið." og gömlu konurnar kinka koili hvor til annarrar á rúmstokkum sinum. Aldarafmæli Sveins Jóns- sonar verður haldiö hátíðlegt í setustofunni á Vifilsstaða- spítalanum af starfslíði og ættingjum, en Sveinn og Kristín eiga eina dóttur. Asdisi sem á 4 börn. þannig að þessi sómahjón eru löngu orðin lang- amma og langafi ef ekki langa- langamma og langalangaafi. — H.Þ. Hjónin Sveinn Jónsson og Kristfn Þorleifsdóttir. Hann er hundraó ára og hún níutíu og átta ára. Þau hafa verið gift í sjötfu og eitt ár. Heldur upp á aldar- afmæfísitt með 98 ára gamafíi eiginkonu kvæmt hefði verið hjá sér og konu hans þó um morguninn. Teódóru Thorlaeius deildar- hjúkrunarkonu bar að i þessum svifum og vísaði hún okkur til setustofu á fyrstu hæð, þar em meira næði væri til að ræða við Svein og Kristínu. Ók hún síðan Sveini inn í lyftuna i hjólastóln- um, en Kristín eiginkona hans Þorleifsdóttir gekk á eftir og studdist við staf á mynstruðum kjól með sjal. Hún erótrúlega bein í baki og reist miöað við sinn aldur, svo ekki sé tekið sterkar til orða. „Sveinn stundaði sjó- mennsku alla tíð,“ tjáði Kristin okkur. Fyrst hefði hann verið á opnum bátum, þá hefði hann einnig gegnt formennsku og síðan farið út í útgerðina. Þeg- ar Kristín hafði lokið máli sínu, sagði gamli maðurinn lágt: „Eg var nú bara útgerðarmaöur aö nafninu til. Við vorum þrír sem gerðum út bátinn Ingólf Arnar- son. Já, já." Bæði eru þau hjón- in farin að heyra illa og Sveini er ofurlítið farið að förlast, að því er Teódóra deildarh júkrun- arkona tjáði okkur. Kristín er hins vegar mjög ern, meó óbrigðult minni. Þaö eina sem háir henni er að sjónín er tekin að dofna, þannig að hún getur ekki lesið lengur. „Ég er ótrú- lega hress miðað við að ég hef þurft að líða svolítil veikindi," sagði hún. En þaö var ekki fyrr en síðastliðinn vetur, sem ég fór að missa heyrnina. Nú get ég ekki lesiö á blaö eða í bók og finnst mér því tíminn lengi að liða og leiðinlegur. Við hjónin vorum talsvert bókhneigð hér i eina tíö, þótt Sveinn hafi nú verið meiri lestrarhestur en ég.“ Aðspurður um hvernig væri að hafa náð svo háum aldri, svaraði Sveinn stuttlega: „Ég Ljósm.: Krirtþjófur. Jenný Guðmundsdóttir, herbergisfélagi Kristínar er níutíu og níu ára og heklar í óða önn, hvern dag, seni guð gefur. get ekki lýst því." Kristínu kvaðst aldrei hafagrunað að þau hjónin næöu bæði svo há- úm aldri. „Það er ekkert leiðin- legra en hvað annað ef maður umber það sæmilega, maður finn langtum síður til þess. En öneitanlega er maður síður ein- mana þegar makinn er einnig á lífi. Okkur líður vel hér á Vífilsstöðum og ég hef yfir engu að kvarta." „Eg er þreyttur," sagði Sveinn. „Nú vil ég fara að sofa." Við ákváðum því aö halda þessum aldraða manni ekki lengur á snakki og lofa honum að njóta hvíldar. Er við gengum út úr setustofunni ásamt þeim hjónum og deildar- hjúkrunarkonunni, sagði sið- astnefnd okkur að Kristin væri óskaplega dugleg að ganga og færi í gönguferðir um allan

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.