Morgunblaðið - 30.11.1977, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. NÖVEMBER 1977
Þjóóaratkvæði um bjór:
Skiptar skoð-
anir á þingi
JÓN G. SÓLNES, 2. þm. Norð-
urlands eystra, mælti í gær
fyrir tillögu til þingsályktunar
um, hvort leyfa skuli fram-
leiðslu og sölu áfengs öls hér á
landi. Tillagan gerir ráð fyrir
því að ríkisstjórnin láti fram
fara þjóðaratkvæði, samtímis
komandi þingkosningum, um,
hvort leyfa skuli framleiðslu og
sölu áfengs öls; léttustu teg-
undar áfengis, eins og tals-
menn tillögunnar kalla það.
Tillagan gerir ráð fyrir því að
atkvæðisrétl hafi allir í þjóðar-
atkvæðinu, er náð hafa 18 ára
aldri. í framsögu sagði Jón G.
Sólnes m.a. að hann teldi eðli-
legt að þjóðin fengi sjálf að
segja til um, livað gjöra skuli í
jafn viðkva-mu deilumáli. Til-
valið væri að nýta það tækifæri,
sem komandi þingkosningar
gæfu til að leita þjóðarumsagn-
ar í málinu.
Oddur Ólafsson, 2. þm. Reyk-
nesinga, og Helgi F. Seljan, 7.
landskjörinn, mæltu harðleg^
gegn tillögunni. Umræður um
málið verða nánar raktar á
þingsíðu Mbl. á morgun.
— Erl. gjaldeyrir
Framhald af bls. 32.
verður hægt að fela erlehdum
banka að færa fé beint inn á
reikning i innlendum banka. Ut-
borganir munu einkum fara frarn
með bankamillifærslum, banka
og ferðaávísunum, en um það set-
ur Seðlabankinn nánari reglur.
Að sjálfsögðu verður einnig unnt
að yfirfæra fé af gjaldeyrisreikn-
ingi í íslenzkar krónur hvenær
sem er — segir í fréttatilkynning-
unni.
Gert er ráð fyrir að lekið verði á
móti innstæðum í fjórum gjald-
miðlum, þ.e.a.s. bandaríkjadollur-
um, þýzkum mörkum, sterlings-
pundum og diinskum krónum.
Öðrutri frjálsum gjaldeyri, sem
komið er með, mundi bankinn
skipta yfir i einhvern hinna fjög-
rra gjaldmiðla, áður en féö er lagt
inn. Vaxtakjör fara eftir þeim
kjörum, sem bankarnir geta
ávaxtað innlánsféö á og yrðu vext-
ir á innlánum þessum væntanlega
ekki lægri en eru á hverjum tíma
á almenni sparifé í þessum lönd-
um. Kostnaður eða gengismunur
verður ekki tekinn, þegar fé er
lagt inn af útgefnum bankaávís-
unum og ferðaávísunum og við
millifærslu til eriends banka.
1 lok fréttatilkynningar við-
skiptaráðuneytisins segir síðan að
lalsveröan undirbúning þurfi í
bönkunum, áður en hægt veröi að
taka á móli gjaldeyri til ávöxtun-
ar, en lögð verði áherzla á að
hraða þeim undirbúningi eftir því
sem unnt er. Stefnt er að því að
byrja að taka á móti fé á gjaldeyr-
isreikningum fljótlega upp úr
áramótu nt.
Ráðherra tók fram, aö allur
gjaldeyrir, sem innlendir aðilar
erga að eignast fyrir útfluttar vör-
ur, endurgreiöslur fyrir innflutt-
ar vörur, fargjöld, farmgjöld,
skipa- og flugvélaleigur, iðgjrild,
tjónabælur, umboðslaun, þjón-
ustu við og afgreiðslu erlendra
skipa, flugvéla og ferðamanna,
þjónustu opinberra aðila og við-
skipti við varnarliðið, skal án
óeðlilegs diátlar frá því hann er
kominn eða gat komizt í umráð
eigenda eða umboðsmanns hans,
seldúr Seðlabanka Islands eða
þeim innlendum bönkum, sem
heimild hafa til að verzla með
gjaldeyri.
Allir þeir, sem undanþegnir eru
skilaskyltlu á gjaldeyri, geta hins
vegar ávaxtað hann eins og áður
segir. Þar er um að ræða áhafnir
skipa og flugvéla, en jafnframt er
þeim, sem fá laun greidd í erlend-
um gjaldeyri, heimilt að ráðstafa
honum til eigin þarfa. Þeim inn-
lendum aðilum, sem fá umboðs-
launatekjur frá erlendum við-
skiptaaðilum, er heimilt að verja
þeim til aö greiöa fyrir innflutta
vöru, sem frjálst er að flytja til
landsins. Er þeim heimilt að
geyma erlendan gjaldeyri sinn á
innlendum gjaldeyrisreikningi.
Ólafur Jóhannesson sagöi aö
sterkur orðrómur væri manna á
meðal um að allur sá ferðagjald-
eyrir, sem erlendir ferðamenn
komi með inn í landið, skili sér
ekki. Strangt tiltekið á að skila
slíkum gjaldeyri. Sagöi ráðherra
að með þessari tilraun að gefa
mönnum kost á gengistryggri
ávöxtun gjaldeyris með hóflegum
vöxtum, væri jafníramt tilraun
gerð til þess að koma í veg fyrir
svartamarkaðsbrask. Kvaðst hann
vonast til að þessir gjaldeyris-
reikningar freistuðu manna til
þess að fara þessa leið og
bankarnir njóta góðs af og fá
meiri gjaldeyrisveltu. ,,Ef þessi
tilraun tekst," sagði ráðherra, „sé
ég ekki annað en hún sé eingöngu
af því góða. Hún tryggir betri
meðferö fjár og aflar bönkunum
aukins gjaldeyris.
Morgunblaðið spurði viðskipta-
ráðherra, hvort lögð yrði sönnun-
arbyrði á fólk og það látið sanna,
hvernig það hefði komizt yfir
gjaldeyrinn. Ólafur Jóhannesson
sagði að Seðlabankinn myndi
setja sértakar reglur um nánari
atriði, en hann kvaðst þeirrar
skoðunar að betra væri að fá
gjaldeyrinn inn í bankana en láta
hann leika lausum hala í þjóð-
félaginu — það jafnvel þótt við-
komandi væri þar sekur unt smá-
yfirsjón. ,,í þessu verður kannski
frekar að beita brjóstvitinu en
bókstafnum," sagði ráðherra.
Þetta væri spor í rétta átt í að
afnema allt pukur með erlerídan
gjaldeyri.
Þá var ráðherra spuröur um
það, hvort hér væri farið að ein-
hverri fyrirmynd erlendis frá, t.d.
á Norðurlöndum. Hann kvað enga
slíka reikninga tíðkast á Norður-
löndum, en í Finnlandi væri þó
eitthvað kerfi svipað þessu, en
ráðherra bætti við; „Þaö er ekki
útilokað að við getum verið frum-
legir á einhverju sviði og þurfum
ekki að apa allt eftir útlending-
um.“
Þá var ráðherra spurður að þvi,
hvort stofnun slfkra gjaldeyris-
reikninga gæti ekki haft þau
áhrif að framboð erlends gjald-
eyris rnanna á meðal myndi
minnka og hvort það gæti þá ekki
leitt til enn hærra verðs á svört-
um markaöi. Um það kvað Ólafur
Jóhannesson útilokað að segja,
fyrr en séð væri hvernig þessi
tilraun tækist. Hann kvað hugsan-
lega geta komið í ljós að breyta
þyrfti eitthvað þeim gjaldeyris-
skammti, sem menn fengju til
ferðalaga og taka þær reglur sem
um hann giltu til endurskoðunar.
Gjaldeyrisskammtur ferðamanna
þætti víst ekki of hár, en tekið
yrði tillit til þess, hvort hann
þyrfti að hækka. Annars mun
ekki ætlunin að skerða þann
gjaldeyrisskammt sem menn fá til
ferðalaga, þótt menn eigi ein-
hverja gjaldeyrissjóói á banka-
reikningi.
Þá kom það fram á fundinum að
ferðagjaldeyrir til nóvember væri
nu orðinn 4.997,4 milljónir króna,
en hann var á öllu árinu í fyrra
3.172,2 milljónir króna. Af þess-
um tæpum 5 milljörðum eru urn
617,4 milljónir vegna viðskipta-
ferða íslendinga erlendis. Til inn-
flutnings nam seldur gjaldeyrir
alls á þessu ári frant til nóvember
84 milljörðum króna, en þá er
ekki talin með alls konar þjónusta
og er því upphæðin, sem seld hef-
ur verið í gjaldeyri, snöggtum
hærri. Hins vegar hafa bankarnir
keypt gjaldevri fram til nóvern-
ber fyrir 88,1 milljarð króna. Það
kom fram, að fram til nóvember
voru umboðslaun islendinga er-
lendis vegna ýmissa viðskipta
2.216 milljónir króna, en það er sú
upphæð, sem skilað hefur verið
til bankanna.
— Boð Sadats
Framhald af bls. 1
tveggja funda, sem arabaleiðtog-
um stendur nú til boða að sækja.
Að> sögn talsmanns Bandarikja-
stjórnar hefur ekkí Verið ákveðið
hver muni sækja fundinn i Karíró
af hálfu Bandaríkjastjórnar, en
heimildir þar herma að það muni
ekki verða Vance utanríkisráð-
herra, enda viðræðurnar 'ekki á
utanríkisráðherrastigi. Fulltrúa-
deild bandaríska þingsin^ sam-
þykkti i gær samhljóða tillögu þar
sem borið er lof á Sadat og Begin,
forsætisráðþerra israels, fyrir
friðarumleitanir þeirra.
Kurt Waldheim, aöalritari Sam-
einuðu þjóðanna, héfur til'nefnt
Finnann Ensio Siilasvuo, yfir-
mann gæzlusveita SÞ í Miðaustur-
löndum, fulltrúa sinn við undir-
búningsviöræöirnar í Egypta-
Iandi, en hefur jafnframt stungið
upp á að öll þau líki sem boóið
hafði verið til Kaírófundarins,
komi sér saman um annan fund-
arstað, t.d. á vegum Sameinuðu
þjóöanna, þar sem horfur séu á að
Kaírö-viðræðurnar kunni aö bera
takmarkaðan árangui' með svo
margar arabaþjóðir fjarstaddar,
en hins vegar sé brýn þörf á
undirbúningsíundi af þessu lagi.
LABOÐ
HILDU
Velkomin á lagerinn
TIL HATIÐABRIGÐA bregðurHilda sér
í betri fötin (þau sömu og vöktu svo mikla
athygli í Laugardalshöllinni í sumar)
og gefur þér kost á að kaupa vandaða gæða-
vöru beint úr vörugeymslunni Skeifunni 6 (bakdyr).
NÚ ER TÆKIFÆRIÐ til að gleðja
vini og kunningja heima eða heiman með
fatnaði sem skipað hefur sér sess meðal
eftirsóttustu tískuvara erlendis.
VIÐ PÖKKUM og göngum frá póstskjölum
fyrir þig, ef þú óskar.
Opið frá kl. 10-16 mánudaga - föstudaga.