Morgunblaðið - 30.11.1977, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 30.11.1977, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. NÖVEMBER 1977 19 — Ekkert óeðlilegt Framhald af bls. 2 notuö. Þetta var hörö, en drengi- leg barátta." Sagðist Alexander helzt álíta að undirrót sögusagna varðandi skoðanakönnunina- í Ólafsvík væri óánægja sjálfstæðismanna á staðnum með eitthvað dræma aðsókn að prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins, sem einnig fór fram þessa dagana. Alexander Stefánsson hlaut 1731 atkvæði í skoðanakönnun- inni og kom næstur Halldóri E. Sigurðssyni ráðherra, að atkvæðamagni, en Halldór fékk 2139 atkvæði. ,,Ég er persónulega mjög ánægð með minn árangur, þótt ég hefði hins vegar vel getaö hugsað mér að lenda á milli þeirra Halldórs og Alexanders," sagði Dagbjört Höskuldsdóttir, er Mbl. ræddi við hana, en Dagbjört fékk þriðja mesta atkvæðamagnið í skoöana- könnun framsóknarmanna á Vesturlandi; 1597 atkvæði. ,,Það er auðvitað alltaf smalað grimmt í svona kosningu," sagði Dagbjört, „En ég trúi nú engu nema því bezta um mannfólkið, þannig að þótt ég sé þeirrar skoðunar, að framkvæmd skoðanakönnunarinnar hafi ef til vill verið laus í reipunum, þá tel ég enga ástæðu til eftirmála þess vegna. Ég vil þvert á móti lýsa ánægju minni með áhuga stuðningsfólks framsóknarmanna á þessari skoöanakönnun og þá ekki sízt hinn mikla áhuga stuðnings- manna flokksins i Olafsvík '' ----------------------- — Carter Framhald af bls. 1 Brasilíu ásamt dvöl í Nígeríu verði frestað þar til næsta ár. Önnur lönd sem voru á upp- haflegu áætluninni og víst er talið að verði í nýju feröaáætl- uninni eru Saudi Arabia, Ind- land, Iran, Frakkland, Pólland og Belgía. — Aukafundur Framhald af bls. 2 ríkisstjórnar geröu samning um 10% útflutningsbæturnar, og krefst fundurinn þess að sölu- skattur verði afnumirtn áf kjöti óg kjötvörum til þess að auka innan- landsneyzlu — og þar með að draga úr útflutningsbótum. Morgunblaðið spurði Gunnar Guðbjartsson hvaða tillögur stjórn Stéttarsambandsins myndi gera til aukafundarins, sem hald- inn er í dag, þegar sú hafi orðið raunin að þeir bændafundir, sem haldnir hafi verið, hafi lagzt gegn tillögum aðalfundarins í haust. Gunnar kvað of mikið sagt að bændur séu almennt á móti tillög- unum. Helzta andstöðu við tillög- unum kvað hann vera á Suður- landi og i Eyjafirði. Andstöðu gætti og annars staðar, en yfir- leitt væru samþykktir funda í öðr- um byggðarlögum jákvæðar. Þegar viðtökurnar eru þó með þessum hætti kvað Gunnar ekki annað vera til ráða en verðjöfnun- argjald lögum samkvæmt. Eru margir hér meðal fulltrúa á Stétt- arsambandsfundi, sem telja það versta kostinn, vegna þess að þá yrðu menn búnir að leggja í fram- leiðslukostnaðinn, þegar þeir vita hvað þeir eiga að greiða. Telja þeir, sem mæla á móti, aö þeir skilji ekki vandann og halda að unnt sé að sækja féð í ríkissjóð, sem er vonlaust — sagði Gunnar — að unnt séað fá hærri útflutn- ingsbætur en lög hafa heimilað. Kvað Gunnar Guðbjartsson það bezt sjást af afstöðu Alþýðu- flokksins og fleiri á þingi. „Við stöndum því á þessum tillögum frá því í sumar og viljum útfæra þær meir og betur, en hins vegar komum við fram með viöbótartil- lögur aö þvi leyti, að unt leið og bændur taki þetta á sig, verði um leið reynt að greiða fyrir sölunni ínnanlands með þvi m.a. að fella söluskattinn niður af kjötinu og gera hliðstæðar ráðstafanir í mjólkinni, sem greitt gætu fyrir sölu á mjólkurvörum." Mfög óhreinn fatnaður þarf mjög gott þvottaefm... o Með Ajax þvottaefni verður mistiti þvotturinn alveg jafn hreinn og suðuþvotturinn. Hinir nýju endurbættu efnakljúfar gera þaó kleift aó þvo jafn vel meó öllum þvottakerfum. Strax við lægsta hitastig leysast óhreinindi og blettir upp og viðkvæmi þvotturinn verður alveg hreinn og blettalaus. Við suðuþvott verður þvotturinn alveg hrpinn og hvítur. Ajax þvottaefni, með hinum nýju efnakljúfum sýnir ótvíræða kosti sína, einnig á mislitum þvotti — þegar þvottatíminn er stuttur og hitastigið lágt. Hann verður alveg hreinn og litirnir skýrast. Hreinsandi efni og nýjr, endurbættir efnakljúfar ganga alveg inn i þvottinn og leysa strax upp óhreinindi og bletti í forþvottinum. Þannig er óþarft að nota sérstök forþvottaefni. Ajax þvottaefni þýðir: gegnumhreínn þvottur með öllum þvottaherfum. Morgunblaðið spurði Gunnar Guðbjartsson, hvort hann byggist við því að fjörugar umræður yrðu á fundinum í dag. Hann kvaðst búast við því, en sagði að annars væru á fundinum aö mestu leyti sömu fulltrúar og verið hefðu í sumar, menn, sem þekktu málin í raun. Ráðgert er að fundinum ljúki í dag. — Hæstiréttur Framhald af bls. 2 kostnaö í héraðí og fyrir Hæsta- rétti. Dömsorð: Framangreind ummæli skulu ömerk. Birta skal dóm þennan í fyrsta eða öðru tölublaði Nýs lands. sem út kemur eftir birtingu döms þessa. Aðaláfrýjandi greiði gagn- áfrýjendunv sameiginlega 60.000 kr. í málskoslnað í héraði og f.vrir Hæstarétti. Mál þetla dæma sem vara- dómarar í Hæstarétti Halldór Þor- björnsson yfirsakadömari, Guð- mundur Ingvi Sigurðsson hæsta- réttarlögmaður, Jön Finnsson hæstaréttariögmaöur, Unnsteinn Beck borgarfógeti og Þorsteinn Thorarensen borgarfógeti. — Mýrdalsjökull Framhald af bls. 3. mikla, sent fundist hefur undii jöklinum og það hlypi siðan fram i Kötlugosum. Sagöi Helgi, að hann teldi að við Kötlugos opnaðist fyrir vatns- geymi, sem væri undir jöklin- um, en hins vegar gæti hann ekki með vissu sagt neitt ákveð- ið um það, þ.e. útfrá þeim mæl- ingum sem gerðar hafa verið, hvort þarna væri nú vatn eða ekki. Til þess þyrfti hann, að afla sér meiri vitneskju um hvernig ætti túlka þau gögn, sem hann hefði i höndunum. Yrði það gert með því að fara upp i Grimsvötn á næsta ári, því þar væri vatn undir jökli og með því aó nota issjána þar, fengist samanburður. — Minning Jón Framhald af bls. 23 ungu og glæsilegu hjón voru þar ætið. Sú vinátta, sem þá hófst milli okkar Jöns L. Þórðarsonar, hélzt ætíð fölskvalaus. Ekki óraði mig fyrir því, er ég fyrst kynntist Jóni, að við ættum eftir að starfa jafnmikið saman og raun varð á, en Jón var, eins og áður er sagt, kosinn i Sildarút- vegsnefnd 1947, er ég hafði starf- að þar skamma hríð. Þau Brynhildur og Jón fluttust búferlum til Reykjavíkur árið 1945 og á ég riiargar og góðar endurminningar frá hinu fallega heimili þeirra á Hagamel 8, sem rómað var fyrir gestrisni og höfð- ingsskap eins og heimili þeirra á Siglufirði hafði einnig verið. Þö að lifsstarí Jóns hafi einkum verið tengt síldveiðum og sildar- iðnaði átti hann fjölþætt áhuga- mál. Ég geri ráð fyrir að tónlist- ina hafi borið þar hæst en hann var einnig mikill bókamaður og átti ágætt bökasafn. Þótti honum skemmtilegt að ræða um bækur. Jón L. Þórðarson var stjórnsam- ur og áreiðanlegur í hvivetna. Ég mun ætið minnast hans sem drengskaparmanns og góðs vinar. Við hjónin flytjum öllum að- standendum hans innilegar samúðarkveðjur. Gunnar Flóvenz. * : _ f yumaí Stfbzeiióóon k.f. Suðurlandsbraut 16, Sími 35200. ^PÖNNUNNI Fr ER DYFIÐ í DEGIÐ — ÁRANGURINN ER NÆFURÞUNN PÖNNUKAKA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.