Alþýðublaðið - 21.01.1931, Síða 4
4
AEÞ'SagEíí A'ÐÍBi
Heílsamjólkin.
SJálfvirki
síminn.
Seinnipartinn í sumar eöa í
haust byrjaði mjóikurbú Ölfus-
inga að búa til mjólkurhlaup
®5a hina svokölluðu heilsumjólk.
Upphaflega var heilsumjólk búin
itfl í Búlgaríu, en náöi brátt mik-
flli útbreiðslu, bæði í h,eima!andi
sinu og meðal annara pjóða,
sökum kosta þeirra, er hún hefir
fram yfir aðrar mjólkurtegundir.
Víðast hvar sem hún er fram-
leidd mun hjð búigariska heiti
bennar, yoghurt, vera notað. Þó
hafa einstaka þjóðir orðið til
pess að gefa henni nafn, svo
sem við ísilendingar og Norð-
m-enn, sem kalla hana „Kuitur-
mælk“, þ. e. mjólk með hrein-
xæktuðum, kyngóðum mjóikur-
súrgerlum.
Ýkjalaust mun heilsumjólkin
vera lang hollasta 9 og bezta
mjólkin, sem á markað flytst til
Reykjavíkur, og því mjög nauð-
synlegt að hennar sé neytt utm-
fram aðsra mjólk lakari, og þó
að menn kunni ef til vili illa'
viö súrbragðið i fyrstu, þá mutnu
þeir fljótiega venjast þvi, og er
frá frá Jiður taka það fraim yfitr
remmu- og þráa-bragð, sem oft
er að fimna af nýmjólk. Heilsu-
imjólk ber einnig að taka fram
yfir gerilsneydda mjólk, þó góð
sé, vegna þess, að heilsumjólk er
ekki að eins gerilsneydd, heldur
líka ræktaðir í henni gerlar • á
eftir, sam beina efnabreyting
;allri í þá átt, að gera hana sem
hollasta. Við ísiendingar erum
imjög á eftir öðrum þjóðum í
öllu því, er að mjólkurframleiðslu
lýtur, mjólkin olckar er frekar
v'slæm, líklega megnið af henni í
öðrum og þriðja flokki {>egar í
mjólkurbúunum. Við geymslu í
búðunum meðan á úthlutun
stendur, oft við óhentugt hita-
stig, tapar húm enn ineiru af upp-
ranalegum gæöum og hollustu,
og er því varasöm fæða oft og tíð-
um, nema soðin sé áður hennar
er neytt. Heilsumjólkin, sem mik-
ið betur þolir geymslu, hlýtur því
ialt af að vera mikið tryggari
vara, og eiga þeir, sem frum-
kvæði eiga að nýbreytni þessari,
þakkir iskilið, og væri æskilegt,
að önnur mjólkurbú sæi sér fært
að taka upp framleiðslu þessa.
A. G.
Fimm Færeyiugar drukkna.
Rétt fyrir jólin vildi það. slys
tfl við Færeyjar, að kútter, sem
á voru 5 fiskimenn, fórst með;
ailri áhöfn, er hann var á íeið
til hafnar. Allix átti fiskiönenn-
iarnir heima á Suðfurey.
Björgunarskipid „Þór“ er verið
að búa á veiðar, verður salt látið
S hann í d-ag. Búið er að setja í
hann fallbyssu.
Smátt og smátt styttist sá tími,
er við Reykvíkimgar þurfum að
bíða eftir sjálfvirka símanum. —
Að vísu verðux fressi nýi sími
okkar ekki sjál.fvirkur í orðsins
fylsta skilningi, en hann er þó
stórkostlég framför frá þvi, sem
nú er.
Nýlega sendu Danir sendimefnd
til Bandarikjanna til að kynna sér
sjálfvirka símann eins og hann
er sjálfvukastur. Nefndin er ný-
lega komin heim úr förinni og
lætur hún mikið af simakerfi
þeirra Bandaríkjamanna. I Banda-
rikjunum, að minsta kosti í öilum
stærri borgunum, er ekkert síma-
þjónustufólk nema ,við ritsimann,
engar simastúllcur; — alt er sjálf-
virkt. „Ameríski hraðinn" er einna
mest áberandi i símanum. Það
tekur að eins 2 mínútur að fá
samband við San Fransisco frá
New York; svona er alt. — Auð-
vitað þýðir sjálfvirki síminn at-
vinnuleysi og skort fyrir það
fólk, er áður vann að afgreiðslu
við símann, því að aliar vélræn-
ar endurbætur eru til bölvunar
fyrir alþýðuna í íhaldsþjóðfélag-
inu. Slíkar umbætur eru að eins
vatn á myliu auðvaldsherranna.
En þrátt fyrir það geta menn
ekki verið á móti vélrænum um-
bóturii. Hitt er annað mál, að
grundvelli skipulagsins er hægt
að breyta svo að umbætumar,
hverjar svo sem þær eru, geti
orðið tii blessunar fyrir alla.
Um
ST. ÆSKAN nr. 1. Jólafagnaður
stúkunnar verður næstkomiandi
föstudag kl. 7 í G.-T.-húsinu.
Þeir féiagar, sern ekki hafa
fengið aðgöngumiða, vitji
þeirra í G.-T.-húsið annað
kvöld (fimtudag) kl. 5—7.
Nætarlæknlr
ef í nótt Einar Ástráðsson,
Bjarkargötu 10, sími 2014.
„Dómar“
yerða leiknir annað kvöld.
Skagaf jarðarsviðið, sem Frey-
móðui Jóhannsson hefir málað,
er svo d ásamlega faguxt, aö það
út af fyrir sig er þ-ess vert, að
þúsundir fólks korni til að sjá
það og njóta fegurðaT þess.
Sjómannafélag Reykjavikur
heldur aðalfund sinn annað
kvöLd ki. 8 í Góðtempiarahús-
inu við Templarasund. Allir _ fé-
lagar, sem eru hér heirna, þurfa
að sækja fundinn.
Yerkamannaféiagið „Framsókn".
í stjórn félagsins voru kosnar
á aðalfundi þess í gærkveldi:
Jónína Jónatansdóttir fonmaður,
Jóhanna Egilsdöttir varaformað-
ur, Gíslína Magnúsdóttir gjald-
keri (allar endurkosnar), Svava
Jónsdóttir xitari og Guðbjörg
Brynjólfsdóttir fjármálaritari.
Veðrið.
Kl. 8 í morgun var hitastigiö
0 í Reykjavík. Otlit hér á Suð-
vesturlandii: Vaxandi norðan-
kaldi. Orkomulaust og víða létt-
skýjað. Hríðarveður á Vestfjörð-
um og í nótt á Norðurlandi.
Sparið peninga. Forðist ó-
pægindi. Munið pvi eftir. að
vanti ykkur rúður i glugga,
hringið i sima 991, 1738, og
verða pær strax iátnar i. —
Sanngjarnt verð.
ALÞYÐUPRENTSMIÐJAN,
Hverfisgötu 8, sími 1294,
tekur að sér alls kon-
ar tækifærisprentun,
svo sem erfiljóð, að-
göngumiða, kvittanir,
reikninga, bréf o. s,
frv„ og afgreiðir
vinnuna fljótt og við
réttu verði.
Um Wegenersleiðangurinn
heldur Jón frá Laug fyrirlest-
ur á sunnudnginn í Gamla Bíó.
Útvarpið
í riag: Kl. 19,25; Hljómleik-
ar (grammófón). Kl. 19,30; Veð-
urfregnir. Kl. 19,40: Enska, 1.
flokkur (Anna Bjamadóttir kenn-
ari). Ki. 20: Barnasögur (Ragn-
heiður Jónsdóttir kennari). Kl.
20,10; Hljómleikar (Fleischmann,
Celló); Robert Schumann; Nacht-
stúck, sami: Schlummerlied, Co-
dard: Berceuse, Popper: Gavotte.
Kl. 20,30: Yfirlit um heimsvið-
burði (fréttamaðui' útvarpsins).
Kl. 20,50: Ymislegt. Kl. 21: Frétt-
ir. Kl. 21,20—25: Hljó-mleikar (Þ.
G., fiðla, E. Th., slagharpa, Egg-
ert Gilfer, harmoníum): Fr. Schu-
bert: Álfakongurinn, Beethoven:
Romanze Op. 50, Field: Noctume,
C. Schmeidler: Konsert — Ro-
manze.
MwaH ©V al fréfta?
Togar.arrdr. „Ari“ kom af veið-
umj í 'morgun. „Andri“ kom í |gæ.r
frá Englandii.
Skipafréttir. Fisktökuskip kom í
morgun tfl „Alliance". „Vestri“
fór i morgun austur um land til
fisktöku.
Á Fáskrúdsfirdi hefir rekið
töluvert brak, sem talið er vera
úr „Apríl“.
ísfisksaki.. „Gylfi“ seldi afla
smn í Bretlandi á mánudaginn
fyrir 1230 stpd.. og „Max Pem-
bertnn" fyrir 787 stpd.. „Bragi,"
s-eldi í gær fyrir 1291 stpd.
Pétur Sigurdisson flytur fyrir-
lestur í Varðiarhúsmu í kvöld kl.
cý: im John Wcsleg.
S k jaldbreidingar! Förinn.i til
HaMarfjarðar er frestað.
Hjálprœdisherinn. Verið vel-
komin á eftirfarandi samkomur:
Fimtudag 22. jatn.: Skuggamynda-
sýning fyrir börn kl. 6J/j> síöd.
Inngangur 10 aura. Sama dag:
Færeysk samkoma M. 9 síöd. H.
Andrésen lautn,. stjórnar. Föstu-
dag 23. jan.: Sam.koma fyrir börn
kl. öýg. Sama dag: Hljómleíka-
samkoma kl. 8. Finnur Guð-
mundsson kadet stjþrnar. Laug-
ardag 24. jan.: Skuggamynda-
.sýning fyrir fullorðna kl. 8 síðd.
Inngangur 25 aurar.
Gudspekifélcg ð. Næstkomandi
föstudagskvöld minnist stúkan
Falleglr
tntlpanar
og hiacintur,
margir íitir, fást daglega
hjá
VaJd. Poulsen,
Kiapparstig 29. Sími 24.
WILLARD
erubeztufáan-
legir rafgeym-
aribilafásthjá
Eiríki
Hjartarsynl
TÆKIÐ EFTIR
Menn eru beðnir að gefa gaum
yfirlýsingu í „Vísi“ í dag við-
víkjanidi svokölluðium „Blöndahls-
kolum“. H/f. Sleipnir, kolaverzl-
un, símii 1531.
Sokka». So&taif, Sokkov
frá prjónastofunni Malin era ís-
lenzMr, endingarbeztir, hlýjastir.
Kenni að tala og lesa dönsku
Byrjendum orgelspil. A. Briem,
Laufásvegi 6, simi 993.
„Septíma" II ára afmælis síns í
húsi félagsins við Ingólfsstræti á
venjulegum fundatíma. Verða þar
ræðuhöld, upplestur og söngur.
Síðan verður sezt að kafffl
drykkju. „Septíma" var á þeim
tíma, sem hún var stofnuð, sjö-
unda stúkan á landinu („sep-
thna“ er latínia og þýðir hin sjö-
unda), og með stofmm hennar
varð íslandsdfcild Guðspekifélags-
ins til, því minst 7 stúkur geta
gengið í allsherjarfélag guðspeki-
nema. Afmælisfundturinn verður
nánar auglýstur síðar.
50 Dúsund dolSarar.
Sex grimuklæddrr menn komu
jnn í banka nokkurn í Pittsburg
nýlega, miðuðu byssum á banka-
gjaldkerann og rændu frá honum
50 þúsund dollurum. Ræningjun-
um íókst að sleppa.
Ritsíjóri og ábyrgðarmáður!
Haraldur Guðmundsson,
Alþýðupreatsmiðjan.