Tíminn - 17.06.1965, Blaðsíða 1

Tíminn - 17.06.1965, Blaðsíða 1
HANDRITIN KOMA . ,í ■ '^-%/s V? ** é, ) > • >y • .. • m fr hmn r ****** f;‘ Í11» V ■ •■: : •• ■ • JíS-í Stórt vinarbragð Mjer er það ljúft að verða við málaleitun „Tímans“ og láta í ljósi fögnuð og þakklæti mitt og þjóðarinnar í tilefni af afgreiðslu handritamálsins í Þjóðþingi Dana. Handritin eru helgir dómar is- lenzkrar þjóðar. Hjer lifir mál ið, svo hvert mannsbarn skilur bókmenntir þúsund ára án mikilla skýringa. íslendingar hafa varðveitt sögu sína og skáldskap frá upphafi — en fátt annað. Bókmenntir og handritin eru vor þjóðararfur. Jafnframt hefur varðveitzt hjer saga annarra Norðurlanda, þeim til mikils styrks og menn- ingarauka. Nær þar víða stór ar eyður fram á fjórtándu öld ef íslenzk sagnfræði kæmi ekki til. Afhendingin styrkir norrænt bróðemi. Þjóðleg menning, stjórn þroski og sjálfstæði á meir undir varðveizlu langrar sögu en vjer oft gerum oss ljóst. Vjer höfum nú fyrir augum glöggt dæmi, þar sem er ástand nýfrjálsra, sögulausra Mið-Af- ríkuþjóða. Vjer munum veita handrit unum viðtöku feginshendi. Það er Ijóst, að'handritamálið \iarð' ekki sótt fyrir dómstólum, og hitt á að vera jafnvíst. að ákvörðun Þjóðþings verður ekki heldur hnekkt af dómstól um. Og stórt vinarbragð er það af Dana hálfu að láta önnur rök ráða en blákalda laga- skyldu. Það væri freistandi en þó óviðeigandi af mér að nefna nokkur nöfn ágætra manna í því tilefni. Þessi afgreiðsla handrita- málsins markar tímamót. Hinu síðasta ágreiningsmáli gamalla sambandsþjóða er lokið. Jeg á við þau mál, sem áttu rót sína að rekja til sjálfs sambands- ins. Oft mun íslenzkum stjórn- málamönnum hafa þótt blása á móti allt fram á þessa öld. En svo vill oft ganga á lífsins sjó, hvítfyssandi öldur þegar horft er í veðrið, en lygnt þeg ar litið er aftur um stafn. Á þessari lokastundu horf- um vjer aftur um stafn, heils- hugar fegnir því, að viðureign Dana og íslendinga og málalok hafa orðið með þeim hætti að það má vera öllum þjóðum til fyrirmyndar. Ásgeir Ásgeirsson. Á (ímamótiim eða stórhátíð- um er eðlilegt, að hugurinn hvarfli aftur, til þess, sem gerzt hefur frá hinum sömu tíma- mótum síðast. Enginn efi er á, hvaða atburður íslendingum verður minnisstæðastur frá þjóðhátíðardeginum í fyrra til þessa: það er sá mikli og merki legi áfangi, sem náðzt hefur í handritamálinu, endursam- þykkt danska þjóðþingsins á handritafrumvarpinu 19. mai 1965. Enn er ýmislegt eftir þangað til það verður að veru- leika: málið. sem Árnanefnd hefur höfðað á hendur mennta málaráðherra sínum, samning- ar fjögramannanefndarinnar. auk ýmissa formlegra atriða, sem þó eru ekki síður nauð- synleg, til þess að lögin taki gildi. Það sem af er er svo mikilvægt, að minning þess verður aldrei afmáð. En vér vonum einnig, að tramhaldið verði eftir því, málið verði leyst að fullu og öllu. Telja má vist að ölium Dönum sé ljóst. að úrlausnin byggist á máiamiðlun. en málamiðlun er nú einu sinni hið vanalegasta i friðsamlegum viðskiptum þjóða. Víst er. að íslendingar ekk; aðeins una heidur jg fagna þeim máialokum sem fel- ast í handritalögunum. íslendingum er vél ljóst, hvi- líkt víðsýni, skilningur og drengskapur birtist i baráttu fjölmargra Dana fyrir lausn þessa gamla deilumáls. Og með lausn þess hverfur úi^ sögunni síðasta deiluefni bjóðánna. Vér vonum. að bað megi verða á þeim tíma. sem gert e. ráð fyrir með samþykkt *ag anna. Vér vonum, að þessar þjóðir megi lifa saman í friði og sátt og vináttu á komandi tímum. Vér efum ekki, að handrita- skilin verði sem herhvöt fyrir íslendinga. Vér höfum nóg af málfræðingum til að leggja hönd á plóginn. Og vér kvíð- um engu um stuðning þings og stjórnar og þjóðar við þau verk, sem framundan eru og íslenzku handritin krefjast. Einar ÓL Sveinsson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.