Tíminn - 17.06.1965, Blaðsíða 8

Tíminn - 17.06.1965, Blaðsíða 8
24 TIMINN FIMMTUDAGUR 17. júní 196i Jónas Kristjánsson, magister: Það er kunnara en frá þurfi að segja, að mörg íslenzk forn- handrit eru stórlega sködduð, og af sumum eru aðeins varðveittar rytjur einar. Þó munu hin vera miklu fleiri, sem glatazt hafa svo að ekki er eftir af þeim tangur né tötur. Slík hafa orðið örlög handrita í öllum löndum og á öllum tímum, frá því að ritöld hófst og þangað til prentlistin leysti af hólmi handskrifaðar bæk ur. Hin vinsælustu fornrit okkar, svo sem Njálssaga, eru varðveitt í mörgum handritum sem hafa sjálfstætt gildi. Aðrar sögur eru aðeins til í einu handriti, eða þá að allar uppskriftir, sé um fleiri að ræða, eiga rætur að rekja til eins og sama 'handrits. Þannig eru öll yngri handrit Kormákssögu runnin frá Möðruvallabók, og öll handrit Svarfdælu komin frá papp írsuppskrift sem séra Jón Erlends son í Villingaholti gerði nálægt miðri 17. öld. Ef fomsaga hefur aðeins varðveitzt í einni skinn- bók, og sú hin sama hefur skadd- azt áður en nokkur eftirrit voru gerð, þá verður fátt til bjargar. Nú skal segja frá einni slíkri skinnbók, sem geymir eina hina merkustu fornsögu okkar — en því miður stórlega lemstraða. Handrit þetta á sér merkilega sögu, sem er betur kunn en venja er um píslarsögu íslenzkra skinn- bóka. Jón Eggertsson hefur maður heitir, hann var kynjaður frá Ökrum í Blönduhlíð. Jón var af efnafólki kominn og hafði um- boð konungsjarða og mikið um- leikis um skeið. En hann var bald inn í lund og lenti í miklu mála- þrasi. í þeim sviptingum barst hann til Svíaríkis og gekk þar í þjónustu sænska fornfræðaráðsins, | sem stofnað hafði verið í Uppsöl-; um árið 1667 og skyldi vera mið-! stöð fornfræðarannsókna í Sví- þjóð. Sendu Svíar Jón í söfnunar- för til íslands, og flutti hann utan nokkra tugi handrita árið 1683. Eru handrit þessi nú varðveitt í Konungsbókhlöðunni í Stokk- hólmi. Meðal þeirra er skinnbók em, sem ber safnnúmerið perg. 4to nr. 18 (perg., þ. e. pergament, skinn). Bók þessi er skrifuð með mörgum höndum, sem taldar eru misgamlar, allt frá miðri 13. öld til síðara hluta 14. aldar. í bók- inni eru fjórar sögur: Heiðarvíga- saga, Gunnlaugssaga ormstungu, Hrólfssaga Gautrekssonar og Ólafs saga Tryggvasonar eftir Odd Snorrason munk á Þingeyrum. Handritið er nú 54 blöð, en upp- hafið hefur týnzt og einnig blöð ínr,an úr bókinni hér og þar. Eyð- urnar koma eigi tilfinnanlega að sök um síðari sögurnar þrjár, því að þær eru allar til í öðrum hand- ritum, sem bæta þetta upp. En Heiðarvígasaga hefur hvergi varð- veitzt nema í þessari bók, og þar er hún svo ákaflega sködduð, sem nú skal greina. Þegar Jón Eggertssón komst yf ir handritið og flutti það utan, vantaði upphaf þess. Óvíst er, hversu mikið þar hefur farið for- görðum, en líklegt má telja .að það hafi verið að minnsta kosti eitt hefti eða kver með átta blöð um. Þar hefur þá staðið upphaf Heiðarvígasögu, sem nema mundi 20—25 prentuðum blaðsíðum í Skírnisbroti. En vel má vera, að þarna hafi glatazt enn meira, jafn vel einhver önnur saga eða sögur, og er þá ógerlegt að segja hve mikið hefur vantað framan á Heið arvígasögu, þegar Jón klófesti handritið. Nú víkur sögunni til Árna Magn ússonar. Hann tók að safna hand- ritum rétt eftir að Jón Eggerts- son fór í sína aðdráttarför til ís- lands. Þegar fram liðu stundir öðl aðist Árni vitnéskju um nálega öll íslenzk handrit, sem til voru á hans dögum, jafnvel rytjur og smásnepla. Þegar hann hóf eftir- grennslan eftir Heiðarvígasögu kom í ljós, að ekkert handrit henn ar mundi vera til á íslandi. En Árna var kunnugt um handritið í Svíþjóð, og um 1690 er hann þegar farinn að falast eftir því til láns. Árið 1691 segir hann í bréfi til Markúsar Bergssonar sýslumanns: ,,Heiðarvíga- og Víga- styrs sögur hefi ég ei ennú feng- ið frá Svíum.“ Þó mátti hann enn bíða hálfan fjórða áratug eftir sög unni. Loks fékk hann hana árið 1725 fyrir meðalgöngu sænsks er- indreka í Kaupmannahöfn. En þá tókst svo til að hann fékk aðeins fyrra hluta sögunnar — eða öllu heldur miðhluta hennar, því að upphafið var þegar glatað heima á íslandi eins og fyrr segir. Ástæðan mun hafa verið sú, að Svíar gátu ekki lesið handritið og sáu því ekki hvar einni sögu lauk og önnur hófst, en bókin hefur verið laus upp úr bandinu og því hægt að skipta henni í parta. Það sem Áyni fékk voru tólf blöð, en síðasti hluti sögunnar varð eftir í Svíþjóð á viðlíka mörgum blöð- um. Þessi vangá Svíanna varð raunar tíl hins mesta happs eins og síðar segir. Enn liðu meira en þrjú ár áður en Árni Magnússon hófst handa um hagnýtingu blaðanna úr Heið- arvígasögu. En um áramótin 1727 —28 fékk hann skrifara sinn, Jón Ólafsson frá Grunnavík til að endurrita blöðin. Tíu mánuð- um síðar æddi eldurinn mikli yfir Kaupmannahöfn og brunnu þá bæði skinnblöðin, og eftirrit Grunnavíkur-Jóns. Árið eftir tókst Jón á hendur að endursegja hið brunna sögubrot eftir minni sínu. Þetta var mjög torvelt verk, því að sagan hefur alls ekki verið auð lærð, og auk þess var þarna um að ræða kafla innan úr miðri sögu, upphafið týnt og Jóni alls ókunn- ugt um framhaldið, sem geymt var í Svíþjóð. Enn er þess að gæta að Jón hafði enga ástæðu til að leggja efni sögunnar sérstaklega á minnið, því ekki óraði hann fyrir þeim hörmungum, sem brátt áttu yfir að dynja. „Var mér þá annara að lesa hana rétt, en setja ríkt á mig sögunnar efni,“ segir hann í greinargerð fyrir verki sínu. „Þar til vissi ég mér víst að rita enn þá annað exemplar af henni á nýjan leik.“ Árni hef- ur ætlað að láta Jón gera tvö eftirrit skinnblaðanna eins og sið- ur hans var ef hann fékk handrit einungis að láni. Eini stuðningur- inn, sem Jón hafði við minni sitt, var í því fólginn, að hann hafði skrifað hjá sér nokkur fágæt orð og talshætti úr sögunni, og varð veittust þessar minnisgreinar hans. Fellir hann þær inn í end- ursögnina á sínum stöðum. Löngu síðar, þegar niðurlag sögunnar fannst í Stokkhólmi, fengu menn færi á að prófa, hversu nákvæm Skinnblað úr HeHSar'ía»vÞ>ii —* • 1 a"H<;bókasafninu 1951. Þetta stendur i upphafi kaflans sem hefst í 6. línu: Á þá leiS segir hann at vera má svá at menn virði þannveg at mér leiðiz j seinna lagi at mæla hér at Lögbergi. eigi er þaf fyrir þá sök at ek sé mál snjallr maðr, heldr berr mér til handa mik- inn vanda oft af málum. endursögn Jóns væri í ýmsum at riðum. Kom þá í ljós, að hanr hafði misminnt sumt, en hitt hef ur þó vakið bæði furðu manns og aðdáun hversu vel hann hefui munað, þó að hann læsi ekki han:i ritið yfir oftar en í það eina sinn er hann ritaði það upp Nú hugðu menn, að frumte:: sögunnar væri með öllu týndur, og mundi aldrei fást önnur vit- neskja um hann, heldur en fólgin var í endursögn Grunnavíkur-Jóns. En árið 1772 fór Hannes Finnssón. sem síðar varð Skálholtsbiskup til Stokkhólms til að rannsaka gömul íslenzk handrit. Fann hann þá nið- urlag Heiðarvígasögu, sem eftir hafði orðið hjá Svíum forðum daga, þegar þeir léðu Árna Magn- ússyni fyrstu blöðin úr perg. 4to nr. 18. Vantaði þó raunar eitt blað aftarlega í söguna, og hafði það sýnilega verið skorið upp úr bókinni meðan hún var heima á íslandi. Hannes skrifaði sögubíot ið upp og hafði eftirritið á brntt með sér. Um þetta segir hann svo í dagbók sinni þann 16. ágúst: „ . . . lokið við að. skrifa u»p Heiðarvígasögu eftir því eina k í'- skinnsfragmenti, sem til er s n 1728, og þó er því miður að í skinnbók er bæði defect og.a' i sums staðar letrið. svo að þetta stykki, sem ég í hjáv- skrifaði á 6 dögum. re.vrd- augu og þolinmæði “ (Stokh I rella, prentuð í Andvara 1° 43). Uppskrift Hannesar Fini ar týndist síðar, en áður hi verið gerð af henni ný efti i og dreifðist hún út um fsland í uppskriftum * ásamt efnisinntski Grunnavíkur-Jóns, úr fyrra hlutan- um. Eftír pappírsuppskrift var sögubrotið síðan prentað í fyrsta sinn, ásamt inntaki Jóns Grunn- víkings, í Kaupmannahöfn árið 1829, réttri öld eftir að fyrri hlutinn brann og Jón gerði endursögn sína. Næsta útgáfa var gerð eftir Stokkhólmshandritinu sjálfu árið 1847, og sá Jón Sigurðs son um þá útgáfu. Þriðja og síð- asta textaútgáfa sögunnar kom ár- ið 1904, og annaðist hana Kristján Kálund bókavörður með nokkurri aðstoð Finns Jónssonar. Útgáfa Jóns Sigurðssonar, og síðan út- gáfa KAlunds hafa verið undir- staða undir öðrum prentunum sög- unnar, svo sem lesútgáfu Sigurðar Kristjánssonar og útgáfu Sigurðar Nordals og Guðna Jónssonar í Borgfirðingasögum (III. bindi ís- lenzkra fornrita). Talið er að þeim Kálund og Finni Jónssyni hafi tek izt svo vel að lesa máða staði í Stokkhólmshandritinu, að þar muni tæplega unnt um að bæta. í Eyrbyggju er vitnað til Heið- arvígasögu undir þessu nafni, og í Melabók Landnámu er talað um hana sem „sögu Víga-Barða.“ Það má og sjá sem að líkum lætur, að höfundar ýmissa annarra forn- rita, svo sem Njálu og Grettlu, hafa þekkt söguna og notað efni hennar. En þegar fram kemur á 17. öld hefur sagan verið týnd að undanteknu því eina handriti, sem til Svíþjóðar barst seint á öldinni. Þó lifði um söguna óljós minn- ing, og þjóðsögur spunnust um efni hennar. Frá þeim segir svo í Skýringum yfir fornyrði lögbók- ar eftir Pál lögmann Vídalín, vin og samverkamann Árna Magnús- sonar (til skýringar á orðinu virki): „Borgarvirki er enn til sýnis hér á landi, það er norðan og vestan þverhöggvinn klettur, af náttúrunni gjörr, og að sunnan nokkurn part, en sumpart mann- hlaðið, að austan er manngjörr grjótveggur, og þar hafa dyrnar verið. Segja svo traditionenes (þ.e. munnmæli) að Barði Guðmunds- son i Ásbjarnarnesi hafi það gjöra látið fyrir væntandi ófriði Borg- firða, síðan hann hafði hefnt Halls bróður síns, og skuli þar frá sagt í Heiðarvígasögu. Barði Framhald á bls. 23

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.