Morgunblaðið - 27.06.1979, Page 12

Morgunblaðið - 27.06.1979, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ1979 Anna Bjarnadóttir skrifar frá Svíþjóð: Hans Blix er íyrsti starfsmaður sænsku utanríkisþjónustunnar sem verður utanríkisráðherra. Hann tók við því embætti s.l. október þegar Frjálslyndi flokkurinn myndaði ríkisstjórn. Áður var hann deiidarstjóri og ráðuneytisstjóri yfir alþjóðasamstarfi um aðstoð við þróunarlöndin frá 1976. Hans Blix hefur próf í lögfræði frá Uppsalaháskóla og doktorspróf frá Cambridge (1958) og lagadeild Stokkhólmsháskóla (1959). Hann var dósent í aiþjóðarétti í Stokkhólmi frá 1960 til 1963 er hann réðst til utanríkisráðuneytisins. Hans BIix er 51 árs. Opinber heimsókn hans til íslands verður dagana 27.—30. júní. Hann mun dveljast á íslandi með konu sinni og tveimur sonum á eigin vegum til 4. júlí. Von er á Hans Blix, utanríkisráðherra Svíþjóðar, í opinbera heimsókn til íslands hinn 27. júní n.k. Af því tilefni lagði Morgunblaðið nokkrar spurningar um samskipti landanna og utanríkismál fyrir hann. auka eftirspurnina eftir íslenzk- um afurðum í Svíþjóð." „Ég sé enga ástæðu til að tjá mig um öryggismál Islands“ — í umræðum um varnarmál er hugtakið „nordisk balans“ oft notað yfir þá heild sem ólíkar aðferðir Norðurlandanna til að tryggja eigið öryggi mynda. Fallist þér á að hugtakið sé ekki lengur aðeins fræðileg hugmynd heldur hafi það áhrif á pólitískar ákvarðanir? „Ég tel að hugtakið „nordisk balans" sé sannarlega raunveru- leiki í alheimsstjórnmálum. Það er mikilvægt að halda því jafn- vægi og þeim stöðugleika sem það felur í sér vegna þess að breyting þar á getur haft áhrif á öryggismál Norðurlanda og þar með á pólitískt ástand Evrópu." — Hvaða áhrif hefði það á öryggi Svíþjóðar og sænska utanríkisstefnu ef íslendingar segðu upp varnarsamningnum við Bandaríkin eða segðu sig úr NATO? „Ég sé enga ástæðu til j)ess að tjá mig um öryggismál Islands. Það er nokkuð sem hvert ein- stakt land verður sjálft að taka ákvarðanir um.“ — Spenna milli landanna á Nordkalottensvæðinu, sérstak- lega þó Noregs og Sovétríkj- anna, hefur aukizt á síðast liðnum árum. Hvað viljið þér segja um þróun mála þar? „Nordkalotten og hafsvæðin þar í kring hafa á undanförnum höfum viljað leika hlutverk sam- vizku heimsins." — Hvaða atriði sænskrar utan- ríkisstefnu teljið þér mikilvæg- ust? „Hin fastmótaða hlutleysis- pólitík er grundvöllur stefnu okkar í utanríkismálum. Ósk okkar um að verða ekki þátttak- endur í hernaðarlegum ófriði er orsök hennar. Með henni reynum við að viðhalda stöðugleikanum sem ríkt hefur í norrænum varnarmálum síðan eftir stríð. Hlutleysi okkar hefur í för með sér ábyrgð sem við erum skyld- ugir að bera. Það er ekki hægt að kalla okkur málpipu nokkurs stórveldis og ekki sízt þess vegna getum við fengið umheiminn til að hlusta á okkur. Svíþjóð er virkur þátttakandi í alþjóðlegri samvinnu. Á þeim vettvangi reynum við að hafa áhrif á langvarandi þróun. Við vinnum að því að árekstrar í heiminum verði leystir á frið- samlegan hátt, að því að raun- veruleg afvopnun eigi sér stað, að því að betur verði farið með náttúruauðlindir og betur gengið um umhverfið og að réttlátari skiptingu auðs milli ríkra og fátækra landa. Auk þessa leggj- um við ríka áherzlu á mikilvægi mannréttinda." — Munu utanríkismál verða mikilvæg í kosningabarátt- unni? „Um sænska utanríkisstefnu ríkir almenn eining svo að það er ólíklegt að hún verði mikilvæg í þingkosningunum í haust." — Er áhugi á því að auka „Norræn samvinna er okkur mikilvæg, ’ — Norðurlöndin hafa reynt, og þeim hefur að mörgu leyti tekizt, að starfa saman á þýð- ingarmikinn hátt. Teljið þér að einhverjir sérstakir hagsmunir tengi ísland og Svíþjóð á sviði menningarmála. viðskipta eða varnarmála? „Þeir hlekkir sem tengja menningararf Islands og hinna Norðurlandanna eru mikilvægar stoðir norræns menningarsam- starfs. Mikilvægasti hlekkurinn er að sjálfsögðu sameiginlegur uppruni tungumálanna sem hef- ur orðið uppspretta sameigin- legrar menningarvitundar. Und- irstaða norrænnar menningar- samvinnu í dag er menningar- málasamningurinn frá 1971 um samvinnu á sviði menntamála, rannsókna og menningarmála almennt. Af hálfu Svíþjóðar lögðum við áherzlu á mikilvægi aukinnar norrænnar menning- arsamvinnu í tillögu sem við fluttum i vetur um upplýsinga- og menningarsamskipti Svíþjóð- ar við útlönd. Við höfum ávallt átt mikil viðskipti við Norðurlöndin. Norræn samvinna er okkur mik- ilvæg og við erum þess vegna hlynntir áframhaldandi aukn- ingu á norrænum viðskiptum." j- íslenzk stjórnvöld hafa áhyggjur af viðskiptahallanum við Svíþjóð sem hefur vaxið mjög síðan sfldarútflutningur dróst saman. ísland flytur nú inn fjórum sinnum meira frá Svíþjóð en það selur þangað. Hvað er við þessu að gera? „Við fríverzlun næst sjaldan viðskiptajöfnuður við hvert einstakt land. Það er mikill halli á viðskiptum Svíþjóðar við Vest- ur Þýzkaland t.d. en afgangur á viðskiptunum við Island. Við erum að sjálfsögðu reiðubúnir að athuga hvað hægt er að gera til þess að minnka muninn á við- skiptunum milli Svíþjóðar og ísiands." — Það er öllum ljóst að Svíþjóð svarar ekki orkuþörf sinni. Haldið þér að það yrði spor f átt að viðskiptajafnvægi ef sænsk orkufrek fyrirtæki fengju að- stöðu á íslandi? „Með hækkandi orkuverði hlýtur áhugi sænskra fyrir- tækja, sem nota mikla orku við framleiðslu sína, að aukast á að fá aðstöðu í löndum sem geta boðið upp á ódýra orku, eins og Island. Áð hversu miklu leyti þetta gæti jafnað viðskiptin færi eftir því hvaðan hráefnin kæmu og hvert framleiðslan yrði seld.“ — Þegar ísland gekk í EFTA var gerður samningur um inn- flutning á vissu magni toll- frjáls lambakjöts á ári til Sví- þjóðar. Er hugsanlegt að auka það magn og auka einnig inn- flutning á öðrum íslenzkum landbúnaðarafurðum? „Landbúnaðarráðuneytið athugar þessa dagana tillögu íslenzkra yfirvalda um aukningu innflutningskvótans af toll- frjálsu lambakjöti. Kvótinn, sem var í byrjun 500 tonn, jókst fyrir þremur árum í 650 tonn á ári. Hvað viðkemur auknum inn- flutningi á öðrum landbúnaðar- afurðum frá íslandi þá er það fyrst og fremst íslenzkra fram- leiðenda og sölumiðstöðva að Samtal við Hans Blix utanríkis- ráðherra Svíþjóðar árum af ýmsum ástæðum orðið æ mikilvægari hernaðarlega. Ég nefni bara sem dæmi aukið hernaðarlegt mikilvægi Mur- manskherstöðvarinnar og sam- komulag landanna um land- grunns- og veiðitakmörk í kring- um Svalbarða. Ég tel það þó mikilvægt að mála þróunina á norðursvæðunum ekki of dökk- um litum þar sem það er mjög áríðandi að kyrrð haldist í þeim hluta Evrópu." — Kekkonen, forseti Finn- lands, hefur sett fram þá hug- mynd að Norðurlönd verði upp- haf stærra kjarnorkuvopna- lauss svæðis. Haldið þér að hugmynd hans geti orðið að veruleika? „Það verður að hafa það hug- fast, að Norðurlöndin eru í raun og veru nú þegar kjarnorku- vopnalaust svæði. Hugmynd Kekkonens forseta er mikilvægt innlegg í yfirgripsmiklar og ákveðnar umræður um norræn varnarmál og hvernig má styrkja þau. En af ýmsum ástæðum, meðal annars vegna hugsanlegrar útbreiðslu svæðis- ins, er líklega ekki hægt að búast við því að hugmyndin verði að veruleika eins og málin standa í dag.“ Vilja ekki leika hlutverk samvizku heimsins — í upphafi stefnuyfirlýsingar Frjálslynda flokksins um utan- ríkismál, sem þér fluttuð f marz 8.1., segir: „Við óskum ekki eftir því að leika hlutverk samvizku heimsins.“ Teljið þér að einhver sænsk ríkisstjórn hafi óskað eftir því hlutverki á undanförn- um árum? „Sænsk hlutleysisstefna hefur aldrei falið í sér að Svíþjóð ætti ekki að segja skoðun sína. Það er þó ekki þar með sagt að við samvinnu Svíþjóðar við Efna- hagsbandalagið? „Já. Við reynum að skapa og halda góðri samvinnu við Efna- hagsbandalagið. Fríverzlunar- samningur Svíþjóðar við EB er umgjörð samvinnunnar og við reynum á grundvelli hans að auka samvinnuna á þeim sviðum sem hægt er og þar sem það er hagur beggja." „ísland heillar mig“ — Ilafið þér einhverjar kenn- ingar um kosningaúrslitin í haust eða hvaða stjórn tekur við að þeim loknum? „Ég vil ekki geta mér til um úrslit kosninganna nú né um hvaða stjórn getur tekið við eftir kosningar." — Hvað munuð þér sjálfir gera ef þér ekki sitjið í næstu stjórn? — Hafið þér áhuga á að starfa sem stjórnmálamaður? „Ég verð að ákveða það eftir kosningarnar. Ég hef unnið að utanríkismálum í meira en 17 ár, fyrst sem embættismaður og nú sem fulltrúi stjórnmálaflokks. Ég er ekki í framboði til þings." — Hafið þér áður farið til íslands? „Já, ég var þar í fyrra." — Hvaða skoðun hafið þér á landinu og menningu þess? „Island á menningararf sem svarar á einstæðan hátt til stórkostlega hreinnar og opinn- ar náttúru. ísland hefur gefið í arf — ekki einungis norrænni menningu heldur heimsmenn- ingunni allri — einstæða menn- ingarríkidóma með fornnorrænu sögunum og íslenzku skáldverk- unum. Áframhald og þróun bókmenntahefðarinnar hefur styrkt stöðu íslands í hugum Norðurlandabúa — og heimsins alls. ísland heillar mig og ég er mjög ánægður yfir að vera á förum þangað." ab Leikhópur Alþýðuleikhússins. Talið frá vinstri: Kjartan Ragn- arsson, Ólafur örn Thoroddsen, Sigfús Már Pétursson, Hanna María Karlsdóttir, Sigurður Sig- urjónsson, Lilja Guðrún Þor- valdsdóttir, Messíana Tómasdótt- ir, David Walters og Stefán Bald- ursson. Alþýðuleik- húsiðíleik- för með „Við borgum ekki” ALÞÝÐULEIKHÚSIÐ er nú að leggja upp í leikferð með sýningu sína á leikritinu „Við borgum ekki, við borgum ekki“ eftir Dario Fo. Sýningar á leikritinu eru nú orðnar yfir 50 en verkið hefur verið sýnt í Lindarbæ í vetur. Ráðgert er að fara með sýninguna um Austur- og Norð- urland næsta mánuðinn og verð- ur sýnt á einum 20 stöðum. Með hlutverkin í sýningunni fara Kjartan Ragnarsson, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Hanna María Karlsdóttir, Sigfús Már Pétursson, Ólafur Örn Thoroddsen og Sigurður Sigurjónsson sem nú hefur tekið við hlutverki Gísla Rúnars Jónssonar. Leikstjóri er Stefán Baldursson, leikmynd og búningar eftir Messíönu Tómas- dóttur en lýsingin er í höndum David Walters. Fyrsta sýningin í leikförinni var í Vík í Mýrdal í gær en í dag verður sýnt í Kirkjubæjarklaustri og á fimmtudagskvöld á Höfn í Hornafirði. Síðan verður haldið áfram austur og norður með land- inu. Ferðinni lýkur að öllum líkind- um á Akureyri í þessum áfanga en ráðgert er að sýna síðar annars staðar á landsbyggðinni. Námskeið á vegum Leik- mannaskóla kirkjunnar TVÖ undanfarin sumur hefur leikmannaskóli kirkjunnar í Hólastifti starfað að Hólum í Hjaltadal. Starfsfólk kirkjunnar í Húnavatns,- Skagafjarðar-, Eyjafjarðar- og Þingeyjarpró- fastsdæmum á þar kost á að fá fræðslu um störf sín og þjónustu f kirkjunni. í sumar starfar skólinn dagana 6.-8. júlí. Umræðuefnið að þessu sinni verður guðsþjónustan. Pró- fastar flytja erindi, þátttakendur starfa í umræðuhópum. Tilkynna þarf þátttöku til Jóns A. Jónsson- ar, Hafnarstræti 107, Akureyri. Þessi nýbreytni í starfi kirkjunnar hefur notið mikilla vinsælda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.