Morgunblaðið - 27.06.1979, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 27.06.1979, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ1979 17 í ræðustól er Gunnar G. Schram fundarstjóri, en þaöan að telja koma svo Geir Vilhjálmsson, Þórður Ásgeirsson, Erlendur Jónsson og Árni Waage. alastofnana rétt eins ím ekki stefnt í hættu” Stjórnin samþykk- ir framkyæmdir til að draga úr olíu- notkun og aðgerðir til orkusparnaðar Stjórnun veiöanna hrósað Þegar hér var komið sögu hófu fundarmenn fyrirspurnir utan úr sal, en ýmsir stigu þó í ræðustól og fluttu mál sitt þar. Bírgir Jónsson jarðfræöingur spurðist fyrir um hvert væri álit vísindanefndar Alþjóöahvalveiöiráðs- ins á veiðum íslendinga. Svaraöi Þórö- ur Ásgeirsson því til, að nefndin teldi þær ekki til vansæmdar og Bandaríkjamenn, sem væru miklir hvalverndunarmenn, hefðu hrósað stjórnun íslendinga á hvalveiöunum við íslandsstrendur. Erlendur Jónsson kom hér inn á aö í skýrslu hvalveiði- ráösins frá 1977 væri ýjað að því að skortur væri á upplýsingum um hvala- stofnana og mætti því álykta aö hugsanlega væri meira að þeim sorfiö en menn vildu vera láta. Þórður sagði hér, að Erlendur hefði í máli sínu aöeins fjallað um eina stofnstærðarákvörðun af mörgum. Sagði Þórður ekki telja stofnana hér við land í hættu, vegna þelrrar reynslu sem fengin væri af veiöum íslendinga. í 30 ár heföi sóknin veriö nánast óbreytt, frekar minnkaö en hitt, og aflinn verið nánast óbreyttur frá upp- hafi. Þá sagði Þórður að engar aðrar þjóðir er aðild ættu aö Alþjóðahval- veiðiráðinu veiddu langreyöar á Atlantshafi og tæpast væri aö þjóöir utan ráösins veiddu af okkar stofni. í þessu sambandi ræddi Þórður um sjóræningjaskipiö Sierra og veiöar Spánverja og sagöist undrandi á því að Greenpeace-samtökin beittu sór ekki gegn veiðum Sierra sem væru illræmdar og illa þokkaðar af þeim sem þætti vænt um hvali. í máli Eypórs Einarssonar for- manns Náttúruverndarráðs kom fram að íslendingar einir þjóöa hefðu lagt til að bannaöar yrðu veiðar fjögurra hvalategunda, sem nefndar væru í uppkasti að sáttmála Evrópuráðsins að náttúruvernd í Evrópu, og að nokkrar aörar hvalategundir yröu sett- ar undir vernd. Hvalategundirnar fjórar væru íslenzki og grænlenzki sléttbak- urinn, hnúfubakur og steypireyöur. Þá sagöist Eyþór ekki vera mótfall- inn hvalaveiöum hér viö land. Ef hægt væri að nýta hvalastofnana án þess að stofna þeim í hættu væri sjálfsagt aö nýta þá, rétt eins og sauökindina. Kvaö Eyþór þau gögn sem fyrir hendi væru ekki gefa til kynna að tilefni væri til þess aö rjúka upp til handa og fóta og heimta að ýmsar hvalategundir yrðu alfriöaðar. Rétt væri aö sleppa allri tilfinningasemi í þessu sambandi. Ey- þór undirstrikaði þó þá skoðun sína, að þörf væri fyrir frekari rannsóknir á hvalastofnunum við fsland og hlaut sú skoöun almennar undirtektir á fundin- um. Lítill fræöslufundur Guðmundur Sigvaldason jarðfræð- ingur sagöist hafa lítinn áhuga á hvölum, engan áhuga á hvalveiöum og léti hann sig litlu skipta framferöi Greenpeace-manna á íslandsmiðum. Sagöist Guðmundur hafa komið á fundinn til að fræöast um hvali, þar sem lofað heföi verið í fundarboði að gestir fundarins yrðu fræddir um það. Sagðist Guðmundur engu nær um hvali, á framsöguerindum væri ekkert að byggja og umræöur hefðu verið á slíku plani að lítið hefði út úr þeim komið. Góöur rómur var gerður að máli Guömundar. Birgir Guðjónsson læknir fjallaöi um málatilbúnaö Greenpeace-hreyf- ingarinnar og framgöngu þeirra er- lendis, sem hann hafði sjálfur kynnst. Sagöi Birgir að hreyfing grænfriöunga væri gífurlega sterk t.d. í Bandaríkjun- um og hafa yrði slíkt í huga þegar rætt væri um það tilfinninga- og áróðurs- stríð sem nú stæði yfir. Taldi Birgir að íslendingar yröu aö velja á milli þorskmarkaðarins í Bandaríkjunum og hvalveiöanna. Nokkrir fyrrverandi sjómenn á hvalveiðibátum og starfsmenn í hval- stööinni í Hvalfiröi tóku til máls og gáfu mynd af veiöunum, hvernig áhafnir veiðiskipanna væru sér meövitandi um hversu mikiö væri af hval á miðunum hverju sinni, hvernig hvalirnir höguöu sér, og þar fram eftir götunum. Meöal þessarra manna voru þeir Eggert ísaksson og Björn Friöfinnsson. Bentu þeir m.a. á að veiöisvæöi hvalbátanna væri mjög takmarkaö, en spurnir væru af miklum hval á öörum svæðum viö íslandsstrendur. Skotiö var hér inn af kunnugum manni, aö nóg væri, eins og hann oröaöi það, af andarnefju, steypireyð og hnúfubak í sjónum viö strendur landsins. Ástand stofnanna hefði ekkert veriö kannaö frá því aö veiði þessara tegunda var bönnuð. Hvalveiöar í nýju Ijósi Halldór Blöndal blaðamaóur sagöi aö hvalveiðar íslendinga heföu tekiö á sig nýja mynd þegar grænfriðungar heföu látið í veöri vaka í blaöaviötali aö þeir hygðust beita áhrifum sínum til þess að markaöur íslenzkrar fiskfram- leiðslu í Bandaríkjunum yrði eyöilagð- ur. Sagöi Halldór aö íslendingar kynnu ekki aö meta hótanir af þessu tagi, hverjar svo sem skoðanir manna væru á hvalveiöum. Halldór sagði m.a. að hvalveiöar íslendinga miðuðust ekki við þaö að færa sem flest dýr að landi, heldur að hver hvalur yrði fullnýttur. Allt hvalkjötið færi til manneldis. Auð- velt væri fyrir Grennpeace-menn að koma hér og halda því fram aö hvalveiðar okkar væru til vansæmdar, þeir ættu aö líta sér nær og kanna dýravernd í heimahögunum, en þar væru farfuglategundir, sem friðaðar væru hér, skotnar til ánægju og yndisauka. Alan Thornton flutti tölu á fundinum í nafni Greenpeace-samtakanna. Upp- lýsti Thornton að samtökin hefðu í 1V4 ár unnið að því að gera veiöar sjóræningjaskipsins Sierra ókleifar og miðaði nú þegar í þá att. Sagöi hann Alþjóðahvalveiðiráðið hafa viöurkennt opinberlega ósigur sinn í baráttunni við Sierra, og jafnframt lagt blessun sína yfir veiðar skipsins þar sem Japanir keyptu allt kjöt af skipinu. Thornton gagnrýndi að ekki hefði verið farið að tilmælum vísindamanna varöandi merkingar langreyöa við ís- landsstrendur. Skv. tilmælunum ætti að vera búið að merkja 1.000 lang- reyður við ísland frá árinu 1973, en aöeins 47 heföu veriö merktar. Þá sagði Thornton að Greenpeace hefði skorað á íslensk yfirvöld að láta athuga nákvæmlega hvali við strendur lands- ins og að endurskoöa hvalveiðistefnu sína í Ijósi niðurstaðnanna. Ástralíu- menn hefðu orðið við slíkri beiðni fyrir nokkrum árum og hætt hvalveiöum við strendur landsins er niðurstöður rann- sóknanna lágu fyrir. íslendingar heföu enn ekki svaraö þessari málaleitan. Bannaði áróöurs- stríð gegn fiski Að lokum sagði Thornton aö Greenpeace-menn beröust af alefli fyrir málstaö sínum og hygöust þeir reyna áfram aö koma í veg fyrir hvalveiöar íslendinga. Að máli Thorn- tons loknu stóö David McTaggart leiöangursstjóri á skipi Greenpeacé Rainbow Warrior upp, og sagði að ónákvæmlega hefði verið eftir honum haft í blaöafrétt varöandí stuöningsaö- gerðir grænfriöunga í Bandaríkjunum. „Ég hringdi ekki til Bandaríkjanna og baö um aöstoð. Það var hringt í mig frá Bandaríkjunum og vinir okkar þar sögðust vilja hjálpa okkur og nefndu leiöir í því sambandi. Ég bað þá um, fyrir alla muni, að hefja ekki áróð- ursstríö gegn íslenzkum varningi á Bandaríkjamarkaöi. Ekki væri ástæða til þess. Aftur á móti get ég upplýst hér að viö erum að vinna að því á bak viö tjöldin að samtökin vestra hjálpi frekar íslendingum við að selja þar ýmsar vörur, sem þeir hafa umframbirgðir af, svo sem osta,“ sagði McTaggart. Kristján Loftsson framkvæmda- stjóri Hvals hf. ræddi nokkuð um hvalveiöar hér viö land og ýmsar fullyrðingar sem settar hefðu verið fram í umræðum um hvalveiöar íslend- inga. M.a. sagði Kristján að það væru hagsmunir Hvals hf. að ekki yröi gengiö um of á stofnana við ísland og sagöi hann reynsluna af veiöunum ekki benda til þess að um ofveiði væri að ræða. Einnig geröi Kristján grein fyrir hvert afurðir hvalvinnslunnar færu, hvernig þær væru nýttar, o.þ.h. Aö lokum sagði Kristján, að með þeim staölausa áróðri sem haldið hefði verið uppi af umhverfisverndunarsinnum, væri veriö að gera tilraun til að koma höggi á þá aðila sem hagaö hefðu sér af skynsemi viö hvalveiöar. Á fundi ríkisstjórnarinnar á mánudag, voru að tillögu iðnaðar- ráðherra samþykktar víðtækar aðgerðir til orkusparnaðar og hag- kvæmari orkunýtingar, sem ríkis- stjórnin hefur ákveðið að beita sér fyrir og varða eftirtalið: Hröðun á nýtingu innlendra orkugjafa Tryggt verður á næstunni viðbót- arfjármagn að upphæð 2600 milljón- ir króna til framkvæmda í orkumál- um á árinu 1979, er sérstaklega eru til þess fallnar að draga úr olíunotk- un, og hefur iðnaðarráðuneytið mót- að tillögur þar að lútandi. Húshitun Gerð verði samræmd húshitunar- áætlun, með það að markmiði að 80% af því húsnæði sem nú er hitað upp með olíu verði á næstu fjórum árum tengd jarðhita, fjarvarmaveit- um eða beinni rafhitun. Opinberar framkvæmdir í orku- málum verði á næstu árum ekki síst miðaðar við að þessu markmiði verði náð. Áfram verði dregið úr kostnaði við olíukyndingu húsa með skipulegum sparnaðaraðgerðum, svo sem still- ingu kynditækja og stýringu hita- kerfa. Hluti af olíustyrk verði bund- inn skilyrði um slíkar ráðstafanir. Sérstakt átak verði gert til að draga úr orkunotkun í opinberum bygging- um í samvinnu við umsjónaraðila. Reglur um greiðslu á olíustyrk verði endurskoðaðar fyrir 1. október n.k. og upphæð hans miðuð við að misræmi í tilkostnaði við húshitun aukist ekki frá því sem nú er. Sérstaklega verði ýtt undir við- hald eldra húsnæðis til að tryggja orkusparnað, m.a. með auknum lán- um. Reglur um hönnun og frágang húsa verði endurskoðaðar m.t.t. orkusparnaðar. Atvinnuvegirnir Stuðningur verði aukinn við orku- sparnað og skipti yfir á hagkvæmari orkugjafa í fiskiskipum. Samstarfs- hópur ráðuneyta, Landsambands íslenskra útvegsmanna og Fiski- félags íslands leggi fram tillögur varðandi frekari stuðning við skipti frá gasolíu yfir á svartolíu og um aðrar aðgerðir til orkusparnaðar, m.a. varðandi ganghraða skipa, nýt- ingu á kælivatni, rafmagn til skipa í höfnun og botnhreinsun. Endurmetnir verði möguleikar á að taka upp innlenda orkugjafa í iðnaði í stað olíu og draga úr olíunotkun, m.a. við fiskimjöls- og graskögglaframleiðslu, svo og varð- andi nýtingu á afgangsvarma í tengslum við úrbætur á loftmengun frá fiskimjölsverksmiðjum. Hraðað verði undirbúningi að stækkun áburðarverksmiðjunnar þannig að fullnægt verði innan- landsþörfum m.t.t. gjaldeyrissparn- aðar. Hraðað verði hagkvæmniathugun- um varðandi hugsanlega framleiðslu á innlendu eldsneyti í stað olíu og mótuð stefna um nauðsynlegar rannsóknir í þessu skyni. Gerð verði úttekt á orkunotkun í landbúnaði og mótaðar tillögur um sparnað, m.a. varðandi vélbúnað og tæki, og nýtingu áburðar og fóðurs. Samgöngur Innflutningsgjöld af fólksbifreið- um verða tekin til endurskoðunar og stefnt að því að frá og með 1. janúar 1980 verði innflutningsgjöldin stig- hækkandi m.t.t. eyðslu eldsneytis. Athugað verður með hvaða hætti sé best að ná fram sparnaði í bensín- og olíunotkun einkabifreiða. Frá og með 1. janúar 1980 verður þungaskattur felldur niður af bif- reiðum, sem stunda reglulega áætlunarakstur í þéttbýli. Tollur á reiðhjólum verður felldur niður með öllu frá og með 1. júlí n.k. Gerð verður athugun á með hvaða hætti hið opinbera getur stuðlað að orkusparnaði á sviði vöruflutninga, m.a. með aukinni hleðslunýtingu, flutningar á vörum innanlands bein- ist í auknum mæli að strandferða- skipum, og skipulag aðflutninga til landsins verði endurskoðað. Hraðað verði athugun á hag- kvæmari orkunýtingu á skipum í eigu ríkisins. Háskóla Islands verður veitt und- anþága frá greiðslu á aðflutnings- gjöldum og þungaskatti af rafbif- reið, sem notuð yrði til rannsókna á hagkvæmni slíkra bifreiða hérlend- is. Rannsóknir Rannsóknir varðandi orkubúskap landsmanna verði efldar til muna, ekki síst með tilliti til orkusparnað- ar og hagkvæmari orkunýtingu. Fræðsla Auknar verða upplýsingar og fræðsla til almennings um orku- sparnað og leitað samstarfs við fjölmiðla og áhugaaðila í því sam- bandi. Island verður aðili að sérstöku átaki Alþjóða orkumálastofnunar- innar varðandi kynningu á orkumál- um og orkusparnaði í október næst- komandi. Olíuverslunin Lagt verður kapp á að nefnd ríkisstjórnarinnar, er fjallar um olíuverslun, skili áliti í áföngum í sumar, m.a. varðandi öryggi og hagkvæmni í olíukaupum og aukn- ingu birgðarýmis, þannig að unnt verði að taka ákvarðanir um ein- staka þætti. Iðnaðarráðuneytinu er falin for- ganga um þessi mál í samvinnu við önnur ráðuneyti og ýmsa aðila eftir eðli aðgerða í hverju tilviki, segir í fréttatilkynningu ríkisstjórnarinn- ar. idinga í hyalyeiðimálum Norrænir úrsmiðir héldu sitt árlega þing í Reykjavík í vikunni en samtökin voru stofnuð árið 1913 og gekk Úrsmiðafélag íslands í þau árið 1957. Á þingunum eru rædd ýmis hagsmunamál úrsmiða svo sem tollamál, námshættir og tækni, en með tilkomu elektrónískrar tækni hafa úr af þeirri gerð verið mjög ofarlega á baugi hjá úrsmiðum, og hafa félög úrsmiða víða staðið fyrir námskeiðum fyrir félagsmenn sína vegna hinnar nýju tækni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.