Morgunblaðið - 03.07.1979, Qupperneq 45
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 1979
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ1979
25
Haukarnirsökkva
dýpra og dýpra
ÞAÐ verður æ erfiðara fyrir Hauka að rífa sig upp af botni 1. deiidar,
eftir því sem töpin hlaðast upp. Á sunnudaginn máttu þeir þola eitt
slíkt enn og það á mölinni á Hvaleyrarholtinu, þar sem menn
reiknuðu með að liðið fengi 99% þeirra stiga sem í hlut þess munu
falla. Það var Víkingur sem gekk þaðan á braut með bæði stigin,
skoraði þrívegis, en Haukar græddu ekkert á því að skora eitt mark,
þð að það hafi verið besta mark leiksins, þrumuskot Björns
Svavarssonar frá vítateig í stöngina og inn. Ekert mark var skorað í
fyrri hálfleik.
Haukar:
Víkingur
1:3
Haukarnir hófu leikinn með
miklum krafti, sóttu þá undan
stífri (og ekki hlýrri) golu, og áttu
meira í leiknum framan af. Því
miður fyrir þá, var leikur þeirra
allur of tilviljunarkenndur, knett-
inum var spyrnt fram á völlinn oft
að því er virðist einungis vegna
þess að mark andstæðinganna var
einhvers staðar í þá átt. Mjög oft
virtist það skipta Haukana litlu,
hvort samherji væri einhvers
staðar í nánd þar sem knötturinn
kom niður. Þrátt fyrir þetta átti
heimaliðið nokkur ágæt skot í
fyrri hálfleiknum. Diðrik varði vel
skot Ólafs Jóhannessonar og skot
Sigurðar Aðalsteinssonar fór
naumlega fram hjá markinu. í
nokkrum tilvikum vantaði aðeins
herslumuninn til þess að Hauk-
arnir kæmust í ákjósanleg mark-
tækifæri, en þegar til kom, hittu
þeir knöttinn illa, einkum þó
Ólafur Jóhannesson um miðjan
hálfleikinn.
Víkingarnir beittu skyndiupp-
hlaupum í fyrri hálfleik og náðu
að hnýta saman nokkra mjög góða
samleikskafla og fjórum sinnum
sluppu Haukarnir naumlega fyrir
horn. Sigurlás brenndi illa af
góðum færum á 27. og 35. mínútu,
í fyrra skiptið eftir mistök Gunn-
laugs markvarðar og í siðara
skiptið eftir góða sendingu Lárus-
ar Guðmundssonar. Á 40. mínútu
fékk Heimir Karlsson algert
dauðafæri eftir hornspyrnu og
enn velta menn því fyrir sér og
ræða um sín á milli, hvernig
Heimi tókst að skjóta himinhátt
yfir af markteig. Þá sluppu Hauk-
arnir með skrekkinn þegar Sigur-
lás komst einn í gegn, en Vignir
Þorlákssin sneiddi þá fæturna
undan Sigurlási og hlaut að laun-
um gult spjald frá dómara leiks-
ins, Þorvarði Björnssyni, enda
subbulegt brot. Síðasta orðið í
fyrri hálfleik áttu Haukar, en
Diðrik markvörður varði vel skot
Sigurðar Aðalsteinssonar.
Leikurinn tók að æsast í síðari
hálfleik... a.m.k. fóru þá að koma
mörk. Það fyrsta kom þó ekki fyrr
en á 68. mínútu, en fram að því
höfðu Víkingarnir verið að ná æ
betri tökum á leiknum. Gunnar
Örn Kristjánsson, sem , nýlega
hafði komið inn á sem varamaður,
skoraði af stuttu færi eftir fyrir-
gjöf Lárusar Guðmundssonar,
1—0 fyrir Víking. Örskömmu síð-
ar misnotaði Gunnar annað
dauðafæri.
Það var þó ekki langt í næsta
mark Víkings, það kom á 73.
mínútu og var keimlíkt því fyrsta,
nema hvað nú var það Heimir
Karlsson sem skoraði af stuttu
færi, eftir að Sigurlás hafði hitt
knöttinn illa sekúndubroti áður.
Nú hefði mátt ætla að búið væri
að vængstífa Haukana, en svo
reyndist þó ekki vera, þeir voru
enn sæmilega fleygir. Þeim tókst
að minnka muninn á 83. mínútu,
er Björn Svavarsson skoraði fal-
legasta mark leiksins, hörkuskot
frá vítateig, stöngin inn. Sigurður
Aðalsteinsson átti allan heiðurinn
af undirbúningi marksins. Nokkru
áður var einnig hætta við Víkings-
markið, en þá varði Diðrik vel gott
skot Lárusar Jónssonar.
Sigurlás skallaði í þverslána
nokkru síðar og í heildina séð
virtust Víkingarnir líklegri til að
bæta marki við heldur en Hauk-
arnir, enda varð það raunin.
isiandsmðllð 1. delld
Þriðja mark Víkings var furðufyr-
irbæri. Sigurlás tók þá sprettinn
inn fyrir vörn Hauka er stungu-
bolta var rennt á þær slóðir.
Gunnlaugur markvörður var
aldrei þessu vant vakandi í mark-
inu og kom hlaupandi út úr víta-
teig sínum, þar sem hann spyrnti
knettinum langt fram á völlinn.
Þar féll hann fyrir fæturna á
Ómari Torfasyni, a.m.k. 40 metra
frá markinu, sem var ekkert að
tvínóna við hlutina, heldur skaut
háu skoti að markinu á ný og þar
sem Gunnlaugur var enn einhvers
staðar frammi á vellinum, tókst
honum ekki að afstýra þessu
óvenjulega marki, „þetta var ör-
uggt“ sagðí Ómar Torfason og það
er einmitt það sem það var, ekki
bara markið, heldur sigurinn.
Haukarnir virðast dæmdir til að
falla. Þeir eru eina liðið sem sker
sig úr á einhvern hátt og vildu víst
fá lið skipta á sínum þætti og hlut
Hauka. Þó að ljósa punkta megi
finna víða í Haukaliðinu, vantar
allt of margt til þess að hala inn
stig reglulega. Markvarslan er
slök, vörnin fjarri því að vera
örugg o.fl. Þrír menn báru af liði
Hauka að þessu sinni, þeir Sigurð-
ur Aðalsteinsson, Guðmundur
Sigmarsson og Ólafur Jóhannes-
son, sem þó var daufur í síðari
hálfleiknum. Guðmundur er
„tekniskur" og hefur mikla yfir-
ferð, myndi hann sóma sér vel í
hvað liði sem væri hérlendis.
Sigurður er öðruvísi leikmaður og
vandfundnir slíkir baráttujaxlar
sem hann er, en hann berst á við
fimm meðalmenn í leik hverjum,
auk þess sem hann er útsjónar-
samur og leikinn leikmaður.
í stuttu máli:
íslandsmótið 1. deild. Hvaleyrar-
holt Haukar—Víkingur 1—3
(0-0).
Mark Hauka: Björn Svavarsson
(81. mínútu).
Mörk Víkings: Gunnar Örn (68.
mínútu), Heimir Karlsson (73.
mínútu), Ómar Torfason (90 mín-
útu).
Spjöld: Vignir Þorláksson og
Björn Svavarsson Haukum fengu
gul spjöld.
Dómari: Þorvarður Björnsson.
— gg
' ■■■ v/ í
mmXi
• Markvörður KR, Magnús Guðmundsson, kemur engum vörnum við glæsiskalla Ragnars Margeirssonar (sést ekki) og
staðan er 2—0 fyrir ÍBK. Ljósm. Emilía.
Klaufamörk allra klaufa-
marka færðu KR sigur!
• Heimir Karlsson (nr. 11) brennir af í dauðafæri sem skapaðist upp úr hornspyrnu.
Það kom ekki að sök, Víkingur vann öruggan sigur og Heimir komst á blað. Ljósm.
Kristján.
Það voru sannarlega klaufamörk allra klaufamarka, sem færðu
KR-ingum óverðskuidaðan sigur gegn ÍBK á Laugardalsvellinum á
iaugardaginn. Bæði fyrsta og sfðasta mark KR, það síðara
sigurmarkið á lokamínútu leiksins, voru næstum hlægileg frá hendi
Keflvíkinga. Jón KR-ingur Oddsson skoraði bæði mörkin og á hrós
skilið fyrir sinn þátt. Heppinn var hann í fyrra tilvikinu, en sýndi
mikið harðfylgi þegar hann skoraði sigurmarkið. Lokatölur urðu
3—2 fyrir KR, en ÍBK hafði réttilega 2-1 yfir í leikhléi.
Fyrstu minútur þessa leiks voru í stuttu máli leiðinlegar á að horfa
og lítið gerðist sem talandi er um þar til á 6. mínútu, að Jón Oddsson
skoraði eitthvert furðulegasta mark sem skorað hefur verið, eða
verður væntanlega skorað á næstu misserum. Það atvikaðist þannig,
að Guðjón Hilmarsson sendi snögga stungusendingu inn á Jón sem
fékk knöttinn rétt utan vítateigs. Hann var fljótlega aðþrengdur
mjög, því að Þorsteinn markvörður var kominn út úr vítateig sínum
áður en Jóni lánaðist að depla auga. Jón gerði þá tilraun til þess að
vippa knettinum yfir Þorstein og tókst það eftir atvikum vel. En
knötturinn var varla á hættusvæði, því að hann skoppaði rólega að
markinu þar sem Guðjón Þórhallsson beið átekta og hafði hann marga
valkosti hvað gera skyldi við knöttinn. Þorsteinn kom hlaupandi eins
og fætur toguðu og kallaði til Guðjóns að hann hefði knöttinn, Guðjón
hikaði og hoppaði boltinn þá í netið, því að í ljós kom að Þorsteinn
hafði boltann alls ekki! Þetta leit illa út hjá Guðjóni, en Þorsteinn
mun hafa rofið einbeitni hans. Hvað um það, 14) fyrir KR þótt ótrúlegt
sé.
Guðjóni tókst ekki eins vel upp,
á síðustu mínútu leiksins þegar
hann ætlaði að senda knöttinn til
Þorsteins markvarðar og engin
hætta virtist vera á ferðum. Jón
Odds var jú á sveimi í nágrenninu,
en Guðjón virtist hafa fullt vald á
knettinum. En þá kom upp
einhver misskilningur á milli
Guðjóns og Þorsteins markvarðar,
sem varð til þess, að knötturinn
rann fram hjá Þorsteini og komst
þá Jón í tæri við knöttinn og sendi
hann beinustu leið í netið, KR-ing-
um öllum til ólýsanlegrar ánægju.
Síðari hálfleikurinn hafði þar
fyrir utan verið nokkuð furðu-
legur. ÍBK hafði öll tök á leiknum
sem fyrr framan af, eða þar til á
62 mínútu, þegar Birgir Guðjóns-
son skoraði fallegt og snyrtilegt
mark eftir að hafa fengið góða
stungusendingu inn í vítateiginn.
Varð Keflavíkurliðið þá eins og
stefnulaust rekald og þó að
KR-ingarnir hafi verið allt annað
sannfærandi, rifu þeir sig
KR:
ÍBK
3:2
Það sem eftir var af fyrri
hálfleik, má segja, að ÍBK hafi
yfirspilað KR úti á vellinum.
Héldu suðurnesjamenn knettinum
oft langtímum saman og
KR-ingarnir fengu vart annað en
innkast annað slagið. KR-ingar
fengu engin fleiri færi í fyrri
hálfleik og er reyndar nokkuð
villandi að tala um færi í sam-
bandi við eina mark KR. ÍBK
skoraði fyrir leikhlé og átti það
reglulega skilið. Þórir Sigfússon
skoraði jöfnunarmarkið af stuttu
færi eftir góða sendingu frá
Guðjóni bakverði Guðjónssyni. Og
það var Guðjón sem átti einnig
allan heiðurinn af öðru marki
IBK, en þá sendi hann hnitmiðaða
sendingu úr aukaspyrnu til Ragn-
ars Margeirssonar, sem skallaði
knöttinn glæsilega í netið. Kom
síðara markið á 44. mínútu.
mikið upp og voru nær því að
skora en Keflvíkingar. Sæbjörn og
Vilhelm fengu t.d. báðir góð færi
sem ekki nýttust. Það er því erfitt
að segja hvort sigur KR hafi verið
verðskuldaður. í heildina séð var
hann það alls ekki, en KR náði sér
betur á strik þegar á leið. ÍBK
hefði þá hins vegar átt að vera
búið að gera út um leikinn fyrir
löngu.
Margir hafa látið þá skoðun í
ljós, að lið ÍBK sé aðeins loftbóla
sem eigi eftir að springa. Hvort
þetta er upphafið að því falli skal
ekki sagt. Hitt er annað, að ÍBK
lék á köflum nokkuð vel gegn KR,
sem lék lengst af verulega illa. Ef
framlína ÍBK væri frískari, hefðu
KR-ingar steinlegið. Ólafur
Júlíusson lék ekki með ÍBK og
kann að hafa munað því. Þá lék
Sigurbjörn miðvörður Gústafsson
ekki með, enda verkaði vörn ÍBK
óörugg þegar á hana fór að reyna
undir lok síðari hálfleiks. Óskar
Færset og Sigurður Björgvinsson
voru bestu menn ÍBK að þessu
sinni, en aðrir höfðu mun hægar
um sig, án þess þó að hafa verið
beinlínis slakir.
Lið KR frékk þarna heppnisstig.
Að vísu náði liðið sér bærilega á
strik undir lok leiksins, þegar
Suðurnesjaliðið sofnaði einkenni-
lega, en það breytir því ekki, að
tvö markanna voru alger
heppnismörk og lítið var um
önnur færi hjá þeim. En það eru
mörkin sem tala og ber að hrósa
Jóni Oddssyni fyrir að þefa uppi
ólíklegustu færi að þessu sinni og
nýta þau til fullnustu. Annars var
fátt um fína drætti hjá KR, þó
léku vel þeir Ottó, Sæbjörn og
Birgir, Vilhelm átti einnig góða
spretti.
í stuttu máli:
íslandsmótið 1. deild Laugar-
dalsvöllur KR-ÍBK 3-2 (1-2)
Mörk Kr: Jón Oddsson (6. og 90.
mínútu), Birgir Guðjónsson (62.
mín)
Mörk ÍBK: Þórir Sigfússon (26.
mín) og Ragnar Margeirsson
(44.mín)
Spjöld: engin
Dómari: Rafn Hjaltalín
Áhorfendur: 1131.
-gg■
STAÐAN
1. DEILD
Staðan í 1. deild eftir
leiki helgarinnar er nú
þessi:
KA — Fram 1-1
Haukar — Víkingur 1—3
Valur — Þróttur
3-1
KR - ÍBK ÍBK 7 3 3 1 13-5 9
ÍBV 74 12 10-3 9
Fram 7 2 5 0 10-6 9
KR 7412 10-11 9
ÍA 7 3 2 2 11-10 8
Valur 7 2 3 2 10-8 7
Vík. 73 13 10-10 7
Þróttur7 2 14 10-13 5
KA 7214 8-13 5
Haukar71 0 6 4-18 2
Markhæstu leikmenn
eru nú þessir: Pétur Ormslev Fram 5
Sveinbjörn Hákonars. ÍA 5
Ómar Jóhannsson ÍBV 4
Halldór Arason Þróttur 3
Óskar Ingimundars. KA 3
Gunnar Blöndal KA 3
Gunnar Ö. Kristj.s. Vík. 3
Jón Oddsson KR 3
Jón Einarsson Val 3
Ingi Björn Albertss. Val 3
Atli Eðvaldsson Val 3
Þórir Sigfússon ÍBK 3
Eyjamenn tóku IA
í ókeypis kennslu
IBV:
ÍA
2:0
ÍBV sigraði ÍA 2—0 í Eyjum á laugardaginn í leik þar sem aldrei var
spurning um hvor aðilinn væri sterkari. Eyjamenn léku góða
knattspyrnu, sinn besta leik í langan tíma, en Skagamenn fengu
aldrei frið til þess að athafna sig og byggja upp sóknir eins og þeim
hentar. Raunar var eina von þeirra Skagamanna um að sleppa frá
þessum leik sú, að góður domari leiksins, Magnús Pétursson, hefði
neyðst til þess að flauta leikinn af 5 mínútum fyrir leikslok, vegna
niðaþoku sem helltist yfir völlinn skyndilega. Svo fór þó ekki, leiknum
tókst að ljúka, en Skagamenn og dómaratríóið urðu að dvelja um
nóttina í'Eyjum.
Eyjamenn byrjuðu síðari hálf-
leik þar sem frá var horfið í þeim
fyrri. Tómas komst einn í gegn
eftir frábæra sendingu Þórðar, en
Jón Þorbjörnsson varði snilldar-
lega. Skagamenn náðu enn engu
flugi, engum árangri á miðjunni
og lítill broddur var í sókninni,
enda þar úr litlu að moða, vegna
tangarhalds ÍBV á miðjuspilinu.
Á 62. mínútu gerðu svo Eyja-
menn endanlega út um leikinn.
Óskar Valtýsson sendi þá boltann
inn í vítateig IA utan af kantinum
og þar kom Sveinn Sveinsson á
fullri ferð inn í eyðu og skoraði
með viðstöðulausu skoti, óverjandi
fyrir Jón, glæsilegt mark.
Leikurinn rann síðan áfram í
sama farinu, Eyjamenn léku bolt-
anum af skynsemi úti á vellinum
og Skagamenn skutu inn einni og
einni sóknartilraun. Úr einni
slíkri hafði Árni Sveinsson nærri
skorað mark í lok leiksins, en
Ársæll Sveinsson varði glæsilega.
Mikil fagnaðarlæti brutust út í
þokunni á Helgafellsvellinum,
þegar Magnús dómari flautaði
leikslok og góður sigur ÍBV var
þar með innsiglaður, fyrsti sigur
IBV á ÍA frá 1975.
Eyjamenn komu mjög ákveðnir
til leiks, náðu strax góðum tökum
á vallarmiðjunrri og héldu þeim
svæðum vel leikinn út í gegn. I
sókninni voru Eyjamenn einnig
strax aðgangsharðir. Tómas
Pálsson gaf tóninn snemma með
hörkuskoti sem hrökk af varnar-
manni í horn og Jón Þorbjörnsson
varði glæsilega góðan skallabolta
Gústafs Baldvinssonar eftir
hornspyrnu Ómars. Besta færi
Skagamanna í leiknum fékk Sig-
urður Lárusson þegar hann náði
að skalla á mark IBV, en boltinn
small í stöngina.
Það var svo á 37. mínútu, sem
Eyjamenn tóku forystuna alfarið í
sínar hendur. Brotið var á Gústaf
Baldvinssyni um 25 metra frá
marki ÍA úti við hliðarlínu. Hinn
ungi framherji ÍBV, Ómar Jó-
hannsson, skaut beint, geysiföst-
um jarðarbolta, sem smaug í gegn
um varnarvegg ÍA og undir Jón
Þorbjörnsson í markinu. Óvænt
mark, og hafði slæm áhrif á suma
Skagamenn, sem tóku að láta
leikinn hlaupa í skapið á sér. Á
síðustu mínútu hálfleiksins, höfðu
svo Eyjamenn nærri skorað annað
mark, þegar Tómas brunaði lag-
lega í gegn og gaf vel fyrir markið
á Gústaf, en fast skot hans sigldi
fram hjá stönginni.
Eyjamenn voru svo sannarlega í
essinu sínu í þessum leik og þegar
þessi gállinn er á þeim, taka þeir
hvaða lið sem er í deildinni. Liðið
lék virkilega góða knattspyrnu og
baráttan var ósvikin frá fyrstu
mínútu. Miðjuleikur liðsins var
stórgóður að þessu sinni og engin
lék betur en Þórður Hallgrímsson,
fyrirliði liðsins, toppleikur hjá
Þórði. Tómas Pálsson og Ómar
Jóhannsson voru mjög atkvæða-
miklir í sókninni og átti í A-vörnin
í miklu basli með að hemja þá. Þá
var vörn ÍBV örugg, en hún hefur
aðeins fengið á sig 3 mörk í 7
leikjum, þar af eitt víti. Örn
Óskarsson og Valþór Sigþórsson
komu og mjög vel frá leiknum.
Ársæll Sveinsson þurfti lítið að
taka á í þessum leik, ótrúlega
rólegt hjá honum í markinu, þegar
IA er annars vegar.
Þetta var svo sannarlega ekki
dagur þeirra Akurnesinga, fátt
eitt það heppnaðist hjá þeim sem
þeir ætluðu sér. Öðru hvoru brá þó
fyrir hinu skemmtilega Skaga-
spili, en allt rann þó út í sandinn,
áður en að lokakaflanum kom.
Skagamenn fyrirhittu mun betri
Eyjamenn en þeir bjuggust við og
mótiætið setti þá úr takti. Besti
maður ÍA var tvímælalaust Sig-
urður Halldórsson, hann hafði
mikið að gera og bjargaði oft og
tíðum snilldarlega, þegar fram-
herjar ÍBV voru búnir að snúa á
meðspilara Sigurðar. Jón Þor-
björnsson varði markið ágætlega,
nema hvað hann spyr sjálfan sig
eflaust spurninga varðandi fyrra
markið. Kristján Olgeirsson og
Sveinbjörn Hákonarson áttu báðir
góða kafla í leiknum, en hurfu
þess á milli.
Dómari var Magnús V. Péturs-
son og átti hann einn af sínum
betri dögum.
I stuttu máli:
Vestmannaeyjavöllur 30. júní
1979,1. deild ÍBV - ÍA 2-0 (1-0)
Mörk ÍBV: Ómar Jóhannsson
(37. mín.) og Sveinn Sveinsson (62.
mín.)
Spjöld: Jón Alfreðsson ÍA og
Sigurður Lárusson ÍA fengu gul.
Áhorfendur: 700
* * <
Stigahæstir
í einkunna-
gjöf Mbl.
EFTIR 7 umferðir í ein-
kunnagjöf Mbl„ eru efstu
menn þessir, lcikjaf jöldi
þeirra er gefinn upp í svig-
anum.
Tómas Pálsson ÍBV 22(7)
óskar Færset ÍBK 21(7)
Sveinbj. Hákonars. ÍA 21(7)
Marteinn Geirss. Fram 20(7)
Atli Eðvaldss. Val 19(7)
Pétur Ormslev Fram 19(7)
Kristján Olgeirss. ÍA 19(7)
Þorsteinn Ólafss. ÍBK 18(6)
Sig. Björgvinss. ÍBK 18(7)
Guðm. Sigmarss. Hauk. 18(7)
Guðm. Baldurss. Fram 18(7)
Sigurlás Þorleifss. Vík. 18(6)
Guðjón Guðjónss. ÍBK 17(7)
Elmar Geirss. KA 17(7)
Sig. Aðalsteinss. Hauk. 17(7)
Grímur Sæmundsen Val 17(7)
Dýri Guðmundss. Val 17(7)
Árni Sveinsson ÍA 17(7)
Lárus Guðmundss. Vík. 16(7)
ómar Jóhannsson ÍBV 16(7)
Sigurður Indriðas. KR 16(7)
Haukar: Gunnlaugur Gunnlaugsson 1, Ólafur Sveinsson 2, Vignir
Þorláksson 1, Ólafur Jóhannesson 2, Daníel Gunnarsson 2, Guðmundur
Sigmarsson 3, Lárus Jónsson 2, Björn Svavarsson 2, Gunnar Andrésson 1,
Sigurður Aöalsteinsson 3, Ólafur Torfason 1, Kristján Kristjánsson (vm) 1.
Víkingur: Diðrik Ólafsson 3, Ragnar Gíslason 2, Magnús Þorvaldsson 2,
Róbert Agnarsson 3, Jóhannes Bárðarson 2, Ómar Torfason 2, Hinrik
Þórhallsson 2, Heimir Karlsson 3, Helgi Helgason 2, Lárus Guömundsson 2,
Sigurlás Þorleifsson 3, Gunnar Örn Kristjánsson (vm) 2.
Dómari: Þorvaröur Björnsson 3.
KR: Magnús Guömundsson 2, Guöjón Hilmarsson 2, Birgir Guöjónsson 3,
Ottó Guðmundsson 3, Börkur Ingvarsson 2, Örn Guömundsson 1, Elías
Guðmundsson 1, Jón Oddsson 3, Sverrir Herbertsson 1, Sæbjörn
Guðmundsson 3, Sigurður Indriðason 2, Vilhelm Fredriksen (vm) 2.
ÍBK: Þorsteinn Ólafsson 2, Guðjón Guðjónsson 2, Óskar Færset 3, Guðjón
Þórhallsson 2, Þórir Sigfússon 2, Sigurður Björgvinsson 3, Einar Á. Ólafsson
1, Gísli Eyjólfsson 2, Ragnar Margeirsson 2, Skúli Rósantsson 1, Þóröur
Karlsson 2, Rúnar Georgsson (vm) 1.
Dómari: Rafn Hjaltalín 3.
ÍBV: Ársæll Sveinsson 2, Snorri Rútsson 2, Viöar Elíasson 2, Þóröur
Hallgrímsson 4, Valþór Sigþórsson 3, Sveinn Sveinsson 2, Örn Óskarsson 3,
Óskar Valtýsson 2, Ómar Jóhannsson 3, Tómas Pálsson 3, Gústaf
Baldvinsson 2, Guömundur Erlingsson (vm) 1, Jóhann Georgsson (vm) 1.
ÍA: Jón Þorbjörnsson 2, Guðjón Þóröarson 2, Jóhannes Guöjónsson 2,
Siguröur Halldórsson 3, Kristján Olgeirsson 2, Sveinbjörn Hákonarson 2, Jón
Alfreðsson 2, Árni Sveinsson 2, Jón Áskelsson 1, Sigþór Ómarsson 2,
Sigurður Lárusson 2, Guðbjörn Tryggvason (vm) 2, Kristinn Björnsson (vm)1.
Dómari: Magnús V. Pétursson 3.
Þróttur: Egill Steinþórsson 1, Rúnar Sverrisson 2, Úlfar Hróarsson 2, Jóhann
Hreiðarsson 2, Jóhann Hreiðarsson 2, Sverrir Einarsson 2, Ársæll
Kristjánsson 2, Daði Harðason 2, Halldór Arason 2, Sverrir Brynjólfsson 2,
Ágúst Hauksson 1, Baldur Hannesson 3, Þorgeir Þorgeirsson 2 (vm), Ásgeir
Árnason 1 (vm).
Valur: Siguröur Haraldsson 2, Magni Pétursson 2, Magnús Bergs 3, Hörður
Hilmarsson 3, Dýri Guömundsson 2, Sævar Jónsson 2, Ingi Björn Albertsson
2, Atli Eövaldsson 3, Jón Einarsson 2, Albert Guðmundsson 2, Hálfdán
Örlygsson 3, Ólafur Danivalsson 2, (vm) Vilhjálmur Kjartansson 2 (vm).
Lið KA: Aöalsteinn Jóhannsson 1, Steinþór Þórarinsson 1, Gunnar Gíslasor
2, Einar Þórhallsson 2, Haraldur Haraldsson 2, Ólafur Haraldsson 1, Óskar
Ingimarsson 2, Njáll Eiðsson 1, Gunnar Blöndal 1, Jóhann Jakobsson 1, Elmar
Geirsson 3, Eyjólfur Ágústsson (vm) 1, Ásbjörn Björnsson (vm) 1.
Lið Fram: Guðmundur Baldursson 2, Hafþór Sveinjónsson 1, Trausti
Haraldsson 2, Gunnar Guðmundsson 1, Marteinn Geirsson 2, Kristinn Atlason
2, Símon Kristjánsson 1, Ásgeir Elíasson 3, Guðmundur Torfason (vm) 1.
Friðrik Egilsson (vm) 1.
Dómari: Arnþór Óskarsson 3.