Morgunblaðið - 03.07.1979, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 03.07.1979, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ1979 Tvö mörk á sömu mínútunni VALUR bar sigurorð af Þrótti 3—1 í leik liðanna í 1. deild á sunnudagskvöld í Laugardalnum. Var sigur þeirra sanngjarn og heldur virðist lið Vals vera að rétta úr kútnum. En samt vantar mikið á að liðið leiki jafn vel og það gerði best í fyrra, með sömu mönnum. Tvö mörk skoruð svo til á sömu mínútunni í síðari hálfleiknum komu Val á bragðið. Og óhætt er að segja að á tveggja mínútna kafla í síðari hálfleiknum hafi liðið leikið eins og íslandsmeistarar eiga að gera. Jafnræði í fyrri hálfleiknum Svo virtist sem taugaspenna þrúgaði leikmenn beggja liða í byrjun leiksins. Bæði liðin náðu illa saman, og mikið var um miðjuþóf á vellinum. Þróttarar voru þó öllu brattari framan af og náðu oft ágætum leikköflum og léku nokkuð vel. Á 25. mínútu leiksins skorar Ágúst Hauksson svo fyrsta mark leiksins. Fékk hann boltann vel fyrir utan vítateig Vals, skaut afar saklausu skoti að marki Vals. Boltinn hrökk í Sævar Jónsson og hinn öruggi markvörður Vals, Sigurður Haraldsson, varð að horfa á eftir lausu skotinu í gagnstætt horn marksins. Hann hafði farið fullfljótt af stað og var kominn í rétt horn er boltinn breytti um stefnu af Sævari. Á 30. mínútu leiksins er brotið illa á Þróttara inn í vítateig Vals en góður dómari leiksins sleppti brotinu sem var augljóslega í það minnsta óbein aukaspyrna. Bestu tækifæri Valsmanna í fyrri hálfleiknum voru á 16. mín- útu er Ingi Björn skallaði framhjá eftir hornspyrnu. Ingi sem var í upplögðu færi virtist ekki hitta boltann nægilega vel. Þá átti Atli Eðvaldsson gott færi á 40. mínútu en skot hans mistókst og hættunni var bægt brá. Tvö mörk á sömu mínútunni Valsmenn komu sýnilega ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og var allur annar bragur á leik þeirra. Sóttu þeir allstíft fyrstu 15 mínúturnar og markið lá í loftinu. Á 59. mínútu fékk Jón Einars- son góða sendingu frá Inga þar sem hann var einn og óvaldaður inni í vítateig. Egill markvörður varði hálf mislukkað skot Jóns en hélt ekki botlanum sem hrökk fyrir fætur Jóns aftur og þá tókst honum að skora af stuttu færi. Þróttarar voru illa á verði í vörninni og sama var uppi á teningnum rétt mínútu eftir markið. Sævar náði boltanum og sendi fram á Hörð sem gaf góðan bolta inn á Atla sem skoraði með þrumuskoti í hornið fjær. Var þetta fallegasta markið í leiknum. Síðasta markið kom svo á 77. mínútu. Ingi Björn náði ekki til boltans eftir góða fyrirgjöf, og boltinn fór út til Hálfdáns sem skaut föstu skoti á markið. Egill varði en missti boltann frá sér og fyrir fætur Inga sem skoraði sitjandi á jörðinni. Potaði hann tánni í boltann og yfir línuna. Ekki mikiÖ um góð tilþrif Þrátt fyrir að stöku sinnum í leiknum brygði fyrir góðum leik- Það er ekki oft sem menn skora í þessari stellingu. Ingi Björn Albertsson situr á jörðinni og tekst að pota tánni í boltann og skora framhjá liggjandi markverði Þróttar. Ljósmynd: Sigurvin Einarsson. Það er ekki laust við að það sé örvæntingarsvipur á andliti Sigurðar Haraldssonar Valsmarkvarðar þar sem hann horfir á eftir boltanum í netið. Skot frá Ágústi Haukssyni fór í Sævar Jónsson Val, og breytti um stefnu. Ljósmynd: Sigurvin Einarsson. köflum hjá báðum liðum, var mikil lægð í leiknum. Og vantar mikið á að leikmenn rífi sig upp úr meðalmennskunni. Lið Vals var dauft framan af leiknum en sótti í sig veðrið og verður nú fróðlegt að sjá hvort liðið tekur ekki fjörkipp við þenn- an góða sigur. Guðmundur Þor- björnsson lék ekki með að þessu sinni vegna meiðsla. Magnús Bergs kom inn í liðið og lék sinn fyrsta leik í sumar með meistara- flokki. Styrkir hann liðið, og væntanlega enn meir síðar í sumar þegar hann verður kominn í betri þjálfun. Hörður Hilmarsson átti góðan leik, og vandfundinn er sterkari miðjuvallarleikmaður. Þá átti Hálfdán örlygsson einn sinn besta leik í sumar. Hálfdán er mjög lipur og laginn leikmaður jafn- framt því sem hann er útsjónar- samur í sendingum sínum. Lið Þróttar var sannfærandi framan af leiknum, en eftir því sem á leikinn leið misstu þeir tök á samleiknum og oft á tíðum virtist ekki vera heil brú í því sem liðið var að gera. Var allur annar bragur á leik þeirra nú en á móti KR. Eitthvað var Ágúst Hauksson miður sín, og munar um minna. Þá var vörn liðsins illa á verði í síðari hálfleiknum. í stuttu máli: Islandsmótið 1. deild: Laugar- dalsvöllur 1. júlí Valur — Þróttur 3-1 (0-1) Mörk Vals: Jón Einarsson og Atli Eðvaldsson á 59. mín. og Ingi Björn Albertsson á 77. mín. Mark Þróttar: Ágúst Hauksson á 25. mín. Áminning: Engin. Áhorfendur: 1950. ~ þr- Meistaramót í frjálsum íþróttum Meistaramót íslands 15—18 ára fer fram á Húsavík 14. og 15. júlf nk. Keppt er í eftirtöldum greinum: Fyrri dagur: Drengir: 100 m, kúluvarp, hástökk, 800 m, spjótkast, langstökk, 200 m grindahlaup. gtúlkur; 100 m, hástökk, kringlukast, 400 m, 4x100 m boðhl. Sveinar: 100 m, 400 m, 1500 m, hástökk, kúluvarp, spjótkast og 4x100 m boðhlaup, langstökk. . Meyjar: 100 m, 400 m, hástökk, kringlukast, spjótkast, 4x100 m boðhlaup. Seinni dagur: Drengir: 110 m grindahlaup, kringlukast, stangarstökk, 400 m, þrístökk, 1500 m, 4x100 m boðhlaup. Stúlkur: 200 m, 800 m, 100 m grindahlaup, kúluvarp, spjótkast, langstökk. Sveinar: 200 m, 800 m, 100 m grindahlaup, stangarstökk, þrístökk, kringlukast. Meyjar: 200 m, 400 m, 100 m grindahlaup, kúluvarp, spjótkast, langstökk. Þátttökutilkynningar skulu berast formanni HSÞ Sigurði Friðriks- syni, Höfðavegi 4, 640 Húsavík, sími 41138 í síðasta lagi 10. júlí. £ Llí vlkunns ip íá 1 Úlfar Hróarss. (Þrótti) Diðrik Ólafsson (Vík) Óskar Færset (ÍBK) Sigurður Halld. (ÍA) Sigurður Björgv. (ÍBK) Þórður Hallgrímss. (ÍBV) Ásgeir Elíass. (Fram) Hörður Hilmarss. (Val) Halldór Arason (Þrótti) Pétur Ormslev (Fram) Sigþór Ómarss. (ÍA) Skortur a linuvörðum í þriðju deildinni VÖLSUNGAR frá Húsavík fóru fýluferð til Akureyrar á föstu- daginn, en þar áttu þeir að keppa við Dagsbrún í E riðli 3. deildar í knattspyrnu. Leiknum varð að fresta vegna þess að engir línu- verðir mættu til leiks. Þá léku Árroðinn og HSÞ á Laugalandsvelli í sama riðli. Árroðinn fór með öruggan sigur af hólmi. 4—0. Mörkin skoruðu Örn Tryggvason, Baldvin Þór Harðarsson, Hafberg Svansson og Garðar Hallgrímsson. A laugardaginn léku í D-riðli 3. deildar í knattsp. á Dalvík Svarf- dælir og KS. Siglfirðingar (KS) sigruðu í leiknum 4—0. Mörk þeirra skoruðu: Haraldur Ragnarsson 2. Jakob Kárason og Hörður Júlíusson 1 mark hvor.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.