Alþýðublaðið - 30.08.1920, Side 2
2
blaðsins er í Alþýðuhúsinu við
lagólfsstræti og Hverfisgötu.
Sími 08®.
Auglýsiagurn sé skilað þangað
eða i Gutenberg í síðasta lagi kl.
XO, þann dag, sem þær eiga að
koma i blaðið.
vitað nru skeytin, sem frá Pólverj-
um koma, meira og minna ýkt,
en þannig verður útkoman, ef
gengið er út frá skeyti Raaes
fréttastofu.]
Khöfn, 28. ágúst.
Snúa bandamenn bakinn rið
PólTerjnm!
Reuter tilkynnir, að ensku og
frönsku sendinefndirnar hafi yfir-
gefið Warsjá. Er nú friðurinn ein-
göngu kominn undir nefndum Pól-
verja og bolsivíka í Minsk. [Skeytið
er fremur óskýrt, en helzt er að
þýða það þannig.]
Bolaiyíkar veita viðnám.
Símað er frá Warsjá, að sókn
Pólverja sýnist stöðvuð í bili.
Khöfn, 29. ágúst.
Bolsivíkar vinna á.
Símað er frá Berlín, að bolsi-
víkar dragi saman her fyrir aust-
an Besuitowsk og gagnárásir þeirra
i Galiziu gangi þeim í vil.
Hingað og ekki lengra!
Símað er frá London, að Eng-
land, Frakkland og Ameríka semji
við Pólland um það, hve langt
Pólverjar skuli sækja fram.
fisuiisleysi og
brunamál bæjarms.
Eftir Magnús V. Jóhannesson.
----- (Frh.)
VI.
Viðhald áhalda.
Það sem mikið ber á við bruna
er óhirða áhalda. Flestar slöngur
leka með samskeytum, og margar
þeirra eru götóttar, og svo mikið
ber á þessu, að bunustj. eiga
stundum full erfitt með að verja
<
ALÞYÐUBLAÐIÐ
sig gegn útrás vatnsins. Þetta er
því að kenna að ekki er lagfært
þegar óiag er á komið, heldur
látið drasla. Á þann hátt gengur
alt fyr úr sér og þessar slöngur
gera ekki hálft gagn. Bærinn hefir
launaða starfsmenn sem brunaverð-
ir eru nefndir, og það á að vera
og er þeirra verk að viðhalda öll-
um áhöldum liðsins, en þeir eiga
ef tii vill þá afsökun að launin
séu lág, og geta þess vegna ekki
gefið sig alla við starfinu, og ef
það er satt að þeir hafi smátekj-
ur af öðru óviðkomandi til að
geta lifað, þá má það ekki svo
til ganga. Hver maður óskiftur
við það sem hann tekur að sér,
hvort sem það er í þágu einstakl-
ings eða þess opinbera. Verka-
menn, krefjist lífvæniegra launa
og sýnið skyldurækni' í starfi.
Björgnnar- og rifrildisliðs-
foringjar.
Björgunarliðsforingi er skipaður
af bæjarstjórn, ja það er nógu
gott ef það kæmi að gagni. Em-
bættismaður þessi tilheyrir vara-
liðinu, svo ef maður á að dæma
nftir reynslunni, sem er ólygnust
að sagt er, mundi sá maður aldrei
kvaddur, og vel gæti komið fyrir
sá stórbruni sem hann væri ekki
viðstaddur. Nei, foringi þessi á
að tilheyra ýastaliðinu, en þó má
sú veiting eða skipun ekki byggj-
ast á þunga holdsins, heldur á
dugnaði og hœjileikum. Hér þarf
mann sem hefir sinn vagn með
nauðsynlegustu áhöldum til bjorg-
unar. Liðsmenn aðstoða við að
draga vagninn á ákvörðunarstað-
inn og þegar þangað er komið
foringi þeim hæfileikum gæddur
að geta valið sér aðstoðarmenn
úr hóp þeirra er umhverfis standa.
Það sem mælir með því að sér-
stakur áhaldavagn fyigi liðinu, er
m. a. það, að við síðasta feruna
var fyrst framan af enginn snæris-
spotti til að láta húsgögn síga I.
Það var kátlegt að sjá menn þeyta
„konsólspeglum" af efri hæð tii
jarðar!!! Stjórnleysi var um að
kenna að ekki var bjargað af lofti
íbúðarhússins við síðasta bruna,
og sýndi það meðal annars óhrekj-
anlega það, að því var aðeins
bjargað sem einhver var hlutað-
eigandans önnur hönd, en hér var
enginn fyrir íbúana á loftinu, og
því fór sem fór, þangað síðast
farið sem fyrst akyldi, og þá var
það of seint. Engin áhöid til að
láta húsmuni síga í, aðeins þeytt
litiu niður, sem varð eins lítils
virði við björgun sem brunnið
hefði inni.
Eins og það er nauðsyn að
björgunarforingi tilheyri fastalið-
inu, þá grldir það snma um for-
ingja rifrildisliðsins,* og sama nauð-
synin að hann hafi áhaldavagni
yfir að ráða, og það sé maður
sem starfanum sé vaxinn. Bæjar-
stjórnin hefir á yfirborðinu gengið
svo frá brunamáiunum sem þau
væru ekki neitt máiamynda kák,
þá eiga þau ekki að vera það &
framkvæmdinni.
(Frh.)
lítlenðar jréttir.
Álþjóða sjómannafnnd
átti að halda í Bryssel (Belgíu;
9. ágúst.
Fárviðri í €anada.
Nýlega gerði afskaplegt fárviðri
í Suður-Saskatschewan í Canada,.
Stóð það í nær 20 mínútur og
olli geysilegum skaða á eignum
og drap 2 menn en meiddi 15.
Tnndurdnfl í norðnrhöínm.
Það er tilkynt að þýzkir dufla-
veiðarar hafi nú gersamlega hreins-
að Kattegat af tundurduflum, og
þar sé því engin hætta lengur fyr-
ir skip. En aftur á móti er eigí
búist við að Norðursjórinn verði
orðinn að fullu hreinn fyr en næsta
sumar. Times Weekly.
Parísarhúar fara hyggilega að
ráði sínn.
Borgarráðið í París hefir nýlega
samþykt að kaupa alla strætisvagna
í borginni, bæði sporvagna og
bifvagna (motor omnibus), og reka
flutning um göturnar fyrir borgar-
innar reikning.
Sér grefnr gröf — ------
Á fundi einum er haidinn var í
Rómaborg fyrir skömmu, sprakk
sprengikúla í höndunum á stjórn-
ieysingja einum, og drap hann
þegar í stað. Hann hefir sjálfsagt
ætlað henni að bana einhverjurn
öðrum en sjálfum sér.