Morgunblaðið - 03.10.1979, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 1979
Verður Jóni Ásgeirs-
syni boðið starf út-
varpsfréttamanns?
LAGÐAR voru fram á fundi
útvarpsráðs í gær umsóknir um
starf fréttamanns við hljóðvarp-
ið, en umsóknarfrestur er nýlega
útrunninn. Fimm sóttu um
starfið: Benedikt Jónsson, Hildur
Bjarnadóttir, Hjálmar Sverris-
son, Hörður Þ. Ásbjörnsson og
Kristinn Björnsson.
Útvarpsstjóri lagði fram þessar
umsóknir, en þær voru ekki rædd-
ar á fundinum og ákvörðun um
ráðningu frestað. Samkvæmt upp-
lýsingum sem Mbl. hefur aflað sér
er uppi sú hugmynd að bjóða Jóni
Ásgeirssyni starf fréttamanns.
Jón hefur sem kunnugt er gegnt
starfi ritstjóra Lögbergs-Heims-
kringlu í Kanada en er væntanleg-
ur heim á næstunni. Þykir rétt að
Hermann Gunnarsson gegni
áfram starfi Jóns sem íþrótta-
fréttamaður, en Jóni verði boðin
staða almenns fréttamanns enda
sé hann hæfur og góður starfs-
maður á því sviði einnig.
Metrigning í Kvískerjum:
Jafngildir nœr árs-
úrkomu í Bárðardal
EKKI vantaði nema 90 millimetra uppá til þess að
sólarhringsúrkoman í Kvískerjum í öræfum um
helgina jafngilti ársúrkomunni að Mýrum í Bárðar-
dal, sem er „þurrasti“ mælingastaðurinn á Islandi.
Úrkoman í Kvískerjum frá
klukkan níu á sunnudags-
morguninn til jafnlengdar á
mánudag mældist 247,7 milli-
metrar, sem er það mesta
sem mælst hefur hér á landi
á einum sólarhring. Ársúr-
koman að Mýrum er að
meðaltali 338 millimetrar og
við Mývatn er ársúrkoma að
meðaltali 400 millimetrar.
Fyrra regnmet var 233,9
millimetrar, en það mældist
á Vagnstöðum skammt frá
Kvískerjum í febrúar 1968.
Til skýringar skal þess getið
að 247,7 millimetra regn
jafngildir 25 sentimetra
vatnshæð ef vatnið sigi ekki
niður eða gufaði upp.
Athugasemdir við um-
mæli í útvarpsþætti
Á FUNDI útvarpsráðs í
gær gerði Eiður Guðnason
athugasemd við ummæli
Péturs Guðjónssonar
er
Stirðar
gæftir frá
Sandgerði
Sandgerði, 2. okt.
UM siðustu helgi lönduðu í
Sandgerði fjórir loðnubátar
2.200 lestum af loðnu og hefur
þá verið landað hér alls 5.300
lestum af sumarloðnu og hef-
ur bræðsla gengið vel.
Gæftir hjá fiskibátunum
hafa verið mjög stirðar að
undanförnu og afli þeirra frek-
ar tregur, en rækjubátarnir
hafa aftur á móti aflað vel
þegar þeir hafa komist á sjó.
Eru þeir búnir að fá um 500 af
þeim 700 lestum, sem heimilað
var að veiða.
Fréttaritari
Olíuviðskiptanefnd fékk greinar-
gerð um viðræðurnar í Moskvu
„VIÐ munum næstu dagana
skipuleggja okkar starf og hafa
samband við þá aðila erlendis,
sem við viljum ræða við,“ sagði
Jóhannes Nordal formaður olíu-
viðskiptanefndar, er Mbl. spurði
hann um fund nefndarinnar í
gær, sem var sá fyrsti eftir að
viðskiptaráðherra fól nefndinni
að hefja starf að nýju.
Þórhallur Ásgeirsson ráðu-
neytisstjóri í viðskiptaráðu-
neytinu kom á fundinn og gerði
nefndarmönnum grein fyrir
viðræðunum í Moskvu í síðustu
viku. Myndin var tekin á
fundinum í gær: f.v. Geir H.
Haarde ritari nefndarinnar,
Björgvin Vilmundarson, Ingi R.
Helgason, Jóhannes Nordal, Þór-
hallur Ásgeirsson, Kristján
Ragnarsson og Valur Arnþórsson.
99
Dæmi til þess að
fólk hafi orðið fyrir
þungum búsif jiun
vegna þess að ábyrgðartryggingar hrökkva hvergi til
99
hann flutti í þættinum Um
daginn og veginn sl. mánu-
dagskvöld og taldi þau
óviðeigandi með tilliti til
væntanlegs framboðs Al-
berts Guðmundssonar við
forsetakosningar.
Sagði Eiður það skoðun
sína að þátturinn væri ekki
vettvangur fyrir framboðs-
ræður og hefði forseta ís-
lands og raunar hlustendum
öllum verið sýnd ókurteisi
með þessum ummælum.
Fleiri útvarpsráðsmenn tóku
undir athugasemdir Eiðs.
„Við þekkjum dæmi þess,
að vísu ekki mörg, að fólk
hafi orðið fyrir þungum
búsifjum, vegna þess að
ábyrgðartryggingarupp-
hæðin hefur hvergi hrokk-
ið til við tjónagreiðslur.
Þess vegna liggur í augum
uppi að upphæð ábyrgð-
artrygginga er of lág í dag
og breytinga er þörf hið
fyrsta,“ sagði Runólfur
Þorgeirsson hjá Sjóvá-
tryggingafélagi íslands í
samtali við Morgunblaðið,
er hann var inntur álits á
tillögu forstöðumanns
Tryggingaeftirlits ríkisins
að hækka ábyrgðartrygg-
ingarupphæðina úr 24
milljónum, eins og hún er í
dag, í 240 milljónir króna.
„Við hjá tryggingafélögunum
studdum að vísu ekki tillögu for-
stöðumannsins á sínum tíma og
töldum rétt að ganga ekki svo langt í
einu skrefi. Okkar tillaga var því sú,
að hækka upphæðina upp í 120
milljónir króna. Tilfinning okkar var
sú að hvorki neytendur né ríkisvald-
ið gætu sætt sig við svo mikið stökk,
þó svo að slík hækkun hefði aðeins í
för með sér nokkurra prósentustiga
hækkun fyrir neytendur. Það er og
ljóst að það verður að taka þessa
upphæð til endurskoðunar mun oft-
ar en nú er gert og einnig að það sé
gert með lengri fyrirvara. Sem dæmi
um það má nefna að það tekur oft
3—5 ár að koma mali í gegn og þá
eru krónurnar orðnar að aurum eða
einhverju minna. Þegar síðast var
hækkað úr 12 milljónum upp í 24
milljónir var nýja upphæðin orðin
úrelt við gildistöku," sagði Runólfur
ennfremur.
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu féllst ríkisvaldið
ekki á neina hækkun þegar málið
kom til umfjöllunar s.l. vor, en
samkvæmt lagaákvæðum hefur
dómsmálaráðherra heimild til þess
að hækka upphæðina til jafns við
verðlagsþróun á hverjum tima. Það
var ekki gert.
Söltunarsíld tíl Eskifjarðar
Esldflrði, 2. október.
FYRSTA söltunarsildin kom
hingað til Eskifjarðar í dag og
var það vélskipið Skúmur, sem
kom með 550 tunnur af rekneta-
síld. Síldin er að hluta til söltuð
hjá Söltunarstöð Friðþjófs, en um
200 tunnur verða frystar hjá
Hraðfrystihúsi Eskif jarðar. Áður
hefur nokkurt magn af sild verið
fryst, en það hefur einkum veiðst
i Reyðarfirðinum.
Afli hefur verið góður hjá línu-
bátum þegar gefið hefur á sjó og
þeir komist upp í 9 lestir í róðri.
Loðnu er landað daglega eftir því
sem rými losnar og í dag lönduðu
Gísli Árni og Súlan, báðir bátarn-
ir með fullfermi.
— Ævar
Nýtt Votaberg
til Eskifjarðar
Kskiflrði, 2. október.
UM helgina bættist nýtt fiskiskip
totann hér á Eskifirði og heitir
það Votaberg SU 14, 134 lesta
stálskip, keypt frá Hornafirði.
Gamla Votaberginu hefur nú
verið sökkt í hafdjúpið, en það
skemmdist svo í árekstri á miðun-
um í sumar að ekki var talið fært
að gera við það aftur. Votabergið
nýja fer nú til síldveiða með nót.
Eigendur eru hlutafélagið Aust-
firðingur og skipstjóri er Friðrik
Rósmundsson. Skipið hét áður Jón
Helgason SF 14.
— Ævar
Bókaflóðið hafið:
Skáldsaga eftir Indriða G. og margar aðrar
nýjar íslenskar skáldsögur eru væntanlegar
MARGAR nýjar bækur eru vænt-
anlegar á markaðinn nú fyrir
jólin eins og undanfarin ár, eins
og fram kom í frétt Morgun-
blaðsins í gær. Hefur þegar verið
skýrt frá nokkrum væntanlegum
og nýútkomnum bókum nokk-
urra forlaga, og gær leitaði
Morgunblaðið einnig til AI-
menna bókafélagsins, Prent-
verks Odds Björnssonar og Arn-
ar og Örlygs og spurðist fyrir
um nýjar bækur.
Örlygur Hálfdánarson hjá Erni
og Örlygi sagði að langstærsta
bók forlagsins í ár yrði Ferðabók
Stanleyleiðangursins 1789, í þýð-
ingu Steindórs Steindórssonar frá
Hlöðum. Bókin segir frá leiðangri
um ísland í kjölfar Móðuharðind-
anna, og er hún prýdd mörgum
myndum frá ferðinni. Kemur bók-
in í nokkurs konar framhaldi af
fyrri ferðabókum sem forlagið
hefur gefið út. Þá er væntanleg
bókin Misjöfn er mannsævin,
þriðja bókin í flokki um hernáms-
árin, rituð undir dulnefni; enn má
nefna bókina Forn frægðarsetur
eftir Ágúst Sigurðsson á Möðru-
völlum, önnur bókin undir því
heiti; skáldsaga eftir nýjan höf-
und, Grétar Birgis, Skellur á skell
ofan, reykvísk skáldsaga; þá eru
væntanlegar tvær bækur um fé-
lagsleg og pólitísk efni, annars
vegar Islandspólitík Dana 1913 tii
1918, og hins vegar Uppreisn frá
miðju eftir þrjá danska höfunda
sem kynnt hefur verið hér á landi,
og að síðustU má nefna bók um
yoga sem koma mun út.nú fyrir
jól.
Frá Almenna bókafélaginu eru
einnig væntanlegar fjölmargar
bækur samkvæmt upplýsingum
Brynjólfs Bjarnasonar, svo sem
ný skáldsaga eftir Indriða G.
Þorsteinsson er nefnist Unglings-
vetur; ný skáldsaga eftir Magneu
Matthíasdóttur, Göturæsis-
kandídatar; ævisaga Agnars
Kofoed-Hansen er væntanleg, Á
brattann nefnist hún og er skráð
af Jóhannesi Helga; Ævisaga
Rögnvalds Sigurjónssonar, Píanó-
leikur, er ennfremur væntanleg
og nefnist hún „Með lífið í lúkun-
um“ en höfundur er Guðrún
Egilson; og enn má nefna Guð-
mund G. Hagalín sem ritar
indriði G.
Þorsteinsson.
Guðmundur G.
Hagalin.
síðustu bók ævisögu sinnar, Þeir
vita það fyrir vestan, en hún segir
frá ísafjarðarárum skáldsins.
Prentverk Odds Björnssonar
gefur einnig út fjölda bóka, og að
sögn Geirs S. Björnssonar eru
þessar helstar: Hofdala-Jónas,
sjálfsævisaga Jónasar Jónassonar
frá Hofdölum í Skagafirði, skráð
af Hannesi Péturssyni og Krist-
mundi Bjarnasyni frá Sjávarborg;
sjálfsævisaga Friðriks Hall-
grimssonar frá Úlfsstaðakoti,
Margslungið mannlíf; ævisaga
Árna Björnssonar tónskálds,
Lífsfletir, skráð af Birni
Haraldssyni; tvær íslenskar
skáldsögur eru væntanlegar frá
POB, eftir Oddnýju Guðmunds-
dóttur, Síðasta baðstofan og
Sumar við sæinn eftir Ingibjörgu
Sigurðardóttur, og enn má nefna
nokkrar þýddar skáldsögur sem
væntanlegar eru.