Morgunblaðið - 03.10.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 1979
3
Lítum enn á Flugfélag
íslands sem viðsemjanda
segir varaformaður FÍA
—VIÐ fáum ekki séð að sú fullyrðing Sigurðar Helgasonar
forstjóra í Mbl. fái staðist að Flugleiðir hafi yfirtekið öll málefni
Flugfélags íslands og Loftleiða þar sem ekki hefur verið gengið
frá því við okkur að Flugleiðir fari með samningamál okkar. og
lítum við enn á Flugfélag íslands sem viðsemjanda okkar, sagði
Hallgrímur Jónasson varaformaður Félags ísl. atvinnuflug-
manna í samtali við Mbl. í gær.
—Þá finnst okkur rétt að minna
á að á þessum tímamótum, eins og
forstjórinn talar um, eru 9 flug-
menn frá okkur að hætta og er það
bein afleiðing þeirrar þjónustu-
skerðingar, sem fyrirhuguð er af
hálfu fyrirtækisins. Þess má Þó
geta að verðlagsnefnd getur haft
áhrif á þessa þjónustuskerðingu
Eldur laus
í loðnubáti
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var í
gærmorgun kvatt að loðnubátnum
Keflvíkingi þar sem hann lá við
bryggju í Reykjavíkurhöfn við
Örfirisey. Var eldur laus frammi í
ibúðum skipverja.
Fljótlega tókst að slökkva eldinn
og urðu ekki ýkja miklar skemmdir
á bátnum að sögn slökkviliðsins.
Fóru slökkviliðsmenn niður í íbúð-
irnar með reykgrímur.
og þar með atvinnu þessara
manna þegar hún nú tekur fyrir
beiðni félagsins um fargjalda-
hækkun á innanlandsleiðum, sem
lögð hefur verið fyrir og ef hún
leyfir þá hækkun, sem nauðsynleg
er talin til að fyrirtækið geti
starfað óbreytt áfram.
Þá sagði Hallgrímur að FÍA
hefði í samvinnu við þá 9 flug-
menn sem hættu störfum hinn 1.
október sl. leitað nokkuð eftir
atvinnumöguleikum erlendis og
væri í athugun atvinna fyrir þá í
Líbýu og hjá bresku flugfélagi, en
ekkert væri enn ákveðið í þeim
efnum.
INNLENT
Bundið slitlag á
Garðskagaveg
GarAl, 2. október.
NÚ er verið að ljúka við að leggja
bundið slitlag á Garðskagaveg,
þ.e. veginn milli Garðs og Sand-
gerðis. Er þá lokið við að olíu-
bera hringveginn milli Garðs,
Sandgerðis og Keflavikur.
Það er Loftorka sf. sem staðið
Loðnan í
feluleik
SVO virðist sem loðnan
hafi stungið sér eða
farið í feluleik á miðun-
um úti af Kolbeinsey og
frá því síðdegis á mánu-
dag þar til síðdegis í
gær tilkynntu aðeins 5
skip um afla til loðnu-
nefndar. Allmörg skip
eru þó á miðunum.
Á mánudag tilkynntu 6 skip
um afla til loðnunefndar, alls
4060 lestir. Tvö síðustu skipin
þann daginn voru Harpa með 640
og Arnarnes með 600 lestir. Þar
til síðdegis í gær bættust þrjú
skip við; Örn 560, Sæberg 530,
Þórshamar 550.
Þess mafgeta að upp úr Eld-
borginni, sem landaði í Hafnar-
firði á mánudagskvöld, mældust
1625 tonn, en það er stærsti
farmur, sem íslenzkt loðnuskip
hefur fengið.
hefir að lagningu olíumalarinn-
ar.
í fyrra voru veittar 40 milljónir
til framkvæmda við veginn og var
hann þá undirbyggður og þannig
ekið á honum í vetur og vor en þá
hófust framkvæmdir að nýju og
var vegurinn þá réttur af og
fínpússaður. Nokkuð hefir dregist
að olíumölin væri lögð á veginn og
er það trúlega vegna anna hjá
verktakanum. Á næsta ári hefir
verið ákveðið að setja 16 milljónir
í frágang vegarins eða réttara
sagt nágrenni hans.
Að þessum framkvæmdum
loknum á að olíubera spotta út á
Stafnes sem er um 1200 metrar en
hann var einnig undirbyggður í
fyrra.
Þessar upplýsingar eru fengnar
hjá rekstrarstjóra Vegagerðarinn-
ar á Suðurnesjum, Eyvindi Jónas-
syni.
Fréttaritari
Vél af gerðinni Skyvan er Arnarflugsmenn skoðuðu í gær þarf stutta flugbraut, en vélar þcssar eru
framieiddar hjá Shorts í Belfast. Ljós. Ól.K.M.
Amarflug:
Leitar eftir kaupum á flug-
vélum til innanlandsflugs
ARNARFLUG íhugar um þessar
mundir kaup á flugvél tii að
annast innanlandsflug félagsins.
Var forráðamönnum félagsins
sýnd í gær vél sem framleidd er
hjá Shorts í Belfast og nefnist
Skyvan.
Að sögn Stefáns Halldórssonar
hjá Arnarflugi getur vél þessi
hafið sig til flugs á um 300 m
langri braut og tekur 19 farþega
með farangri. Stærsti kostur vél-
arinnar sagði hann að væri stórar
vörudyr að aftan og mætti jafnvel
; aka bílum inn í vélina. Ný kostar
þessi vél kringum 500 milljónir
króna, en Stefán sagði að hug-
mynd Arnarflugs væri að fá
keypta notaða vél.
Þá sagði Stefán að skoða ætti
einnig vél af gerðinni Twin Otter,
sem tekur 19 farþega, sams konar
vél og Vængir notuðu. Færu
næstu daga menn til Kanada til
að skoða notaðar vélar af þessari
gerð, en nýjar kosta þær svipað og
Skyvan vélin og eru svipaðar
henni.
Þriðja vélin, sem til greina
hefur komið, er áströlsk 17 far-
þega af gerðinni Nomad og kostar
hún tæpar 300 milljónir ný. Sagði
Stefán að stefnt væri að því að
félagið hefði til umráða nýja vél
af einhverri framangreindra
gerða, leigða eða keypta eftir um
það bil mánuð, en síðan myndi
önnur bætast við bráðlega. Fjórir
flugmenn, sem störfuðu hjá
Vængjum vinna nú hjá Arnar-
flugi og sinna innanlandsfluginu.
Þotur félagsins hafa verkefni
til 1. desember, önnur hjá brezku
flugfélagi, en hin við Ameríkuflug
Flugleiða og kvað Stefán óráðið
með verkefni eftir þann tíma, en
verið væri að kanna þau mál. Svo
sem Mbl. skýrði frá í sumar var 4
flugmönnum og 4 flugvélstjórum
sagt upp störfum frá 1. október.
Tveir flugmannanna voru ráðnir
áfram til áramóta og einn flugvél-
stjóranna, en þrír þeirra fengu
starf sem flugvirkjar. Þá hefur
verið sagt upp 7 af 11 fastráðnum
flugfreyjum félagsins, en Stefán
kvað uppsagnirnar verða aftur-
kallaðar ef útséð væri um frekari
verkefni fyrir þoturnar.
Erlendu flugmennirnir sýna forráðamönnum Arnarflugs vélina,
en á henni eru stórar vörudyr að aftan.
Húsnæðislán miði við fjöl-
skyldustærð og staðalíbúð
Km-gjald
hækkar
Ferðakostnaðarnefnd ríkisins
hefur reiknað út nýtt km-gjald,
sem gildir frá 1. október. Fyrir
fyrstu 10 þúsund km. greiðist nú
almennt gjald 102 krónur á
hvern ekinn km. sérstakt gjald
115 krónur fyrir hvern ekinn km.
og jcppagjald 143 krónur fyrir
hvern ekinn km.
Hækkun gjaldsins, sem síðast
breyttist hinn 1. ágúst, er að
meðaltali um 5,6%. Almenna
gjaldið er fyrir akstur í þéttbýli,
sérstaka gjaldið fyrir akstur í
strjálbýli og jeppagjaldið er eins
og nafnið bendir til fyrir akstur
um torfærur.
SAMKVÆMT stefnumótun í hús-
næðismálum sem Magnús H.
Magnússon félagsmálaráðherra og
Georg Tryggvason aðstoðarmaður
hans kynntu blaðamönnum á
blaðamannafundi í gær er um að
ræða allmiklar breytingar á skip-
an húsnæðismála, en frumvarp
þar að lútandi er nú tilbúið ásamt
reglugerðum og verður það
væntanlega lagt fyrir alþingi
skjótt eftir setningu. Stefnumótun-
in er afrakstur nefndar sem
félagsmálaráðherra skipaði s.l.
haust og nefndar sem fyrrverandi
félagsmálaráðherra hafði skipað
og eru hugmyndirnar í hinni nýju
stefnumótun byggðar á nefnda-
starfi undanfarinna ára. Eins og
sagt hefur verið frá í Morgunblað-
inu miða þessar hugmyndir við
það að húsnæðismálalán sé árið
1980 orðið 80% af byggingarkostn-
aði samkvæmt ákveðinni viðmiðun
og útreikningi. Er þá miðað við að
10% lánsins verði afgreitt 3 mán-
uðum cftir að botnplata er full-
gerð, síðan 30% þegar húsið er
fokhelt eða þar um bil og 40%
þegar það er tilbúið undir tréverk.
Þessar hugmyndir miðast við það
að byggja upp sjóðinn, en ofbjóða
þó ekki greiðslugetu almennings,
sagði Georg Tryggvason.
Samkvæmt útreikningum við
undirbúning málsins er miðað við
verðtryggingu og 3,5% vexti og
Magnús H. Magnússon
lánstími sé 21 ár. Skammtímalán
vegna sérþarfa m.a. verði hins
vegar vaxtalaus. Samkvæmt út-
reikningunum verða afborganir
hlutfallslega minni fyrstu árin
miðað við afborganir samkvæmt
núgildandi reglum, en mjög svipað-
ar þar eftir.
Stefnumótunin miðar við breyt-
ingu á skipulagi húsnæðismála-
stofnunar, breytingu á heildar-
skipulagi verðlánakerfi hins opin-
bera, að ákvörðun lánsfjárhæðar
breytist þannig að ekki sé miðað við
sömu lánsupphæð til allra heldur sé
miðað við raunverulega lánsfjár-
þörf miðað við fjölskyldustærð og
þeir sem vilja byggja stærra geta
það en njóta lánsmöguleika miðað
við fjölskyldustærð. Þá er miðað við
að árið 1980 verði lánshlutfallið
30% af byggingarkostnaði en hækki
síðan um 5% á ári þar til það nær
80%, en til þess að þessu markmiði
verði náð þarf aukningu framlaga
og lána til byggingarsjóðsins, en
ríkisstjórnin mun ábyrgjast þá
aukningu.
Útlánaflokkar Byggingarsjóðsins
verða 9 talsins, almenn nýbygging-
arlán til einstaklinga, lán til bygg-
ingar stofnana eða heimila, sérstök
viðbótarlán til einstaklinga með sér
þarfir, lán til kaupa á eldra hús-
næði, en síðan Gunnar Thoroddsen
stórhækkaði þau lán fyrir liðlega
ári hefur þróunin orðið sú að
tæpum fjórðungi allra útlána Bygg-
ingarsjóðs ríkisins er varið til
kaupa á eldra húsnæði. Þá er
flokkur sem tekur til lána vegna
viðhalds, endurnýjunar eða stækk-
unar á eldra húsnæði, lán til
orkusparandi breytinga á húsnæði,
lán til útrýmingar heilsuspillandi
húsnæðis, lán til tækninýjunga í
byggingariðnaði og lán til fram-
kvæmdaaðila í byggingariðnaði.
Lánveiting skal miðuð við það að
húsnæði það sem umsækjandi
byggir eða kaupir sé ekki meira en
20% umfram stærðarmörk þeirrar
staðalíbúðar sem hæfir hans fjöl-
skyldustærð og að umsækjandi eigi
ekki íbúðarhúsnæði fyrir.