Morgunblaðið - 03.10.1979, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 1979
5
Listahátíð Reykjavíkur 1980:
Þrír íslenzkir listamenn útvaldir
til að vinna að gerð listaverka
ÞRÍR islenzkir listamenn, Guð-
bergur Bergsson, Ragnheiður
Jónsdóttir og Gunnar Reynir
Sveinsson hafa verið útvaldir af
framkvæmdanefnd listahátíðar
Reykjavikur 1980, til að vinna að
gerð iistaverka á sýninguna.
Laun hvers listamanns hafa ver-
ið ákveðin ein og hálf milljón kr.
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi, er framkvæmdanefnd sýn-
ingarinnar hélt í gær til kynning-
ar á þessari ákvörðun og undir-
búningi sýningarinnar. Guðberg-
ur Bergsson hefur tekið að sér að
semja barnaleikrit, Ragnheiður
Jónsdóttir gerir röð grafíkmynda
og Gunnar Reynir Sveinsson sem-
ur tónverk fyrir litla jazzhljóm-
sveit og sinfóníuhljómsveit til
flutnings á Listahátíð. Það kom
einnig fram, að listamennirnir fá
nú þegar greiddan helming fjár-
hæðarinnar en seinni helminginn,
þegar þeir skila verkum sínum.
Ragnheiður og Gunnar Reynir
sögðu, að þau væru að hugleiða
hvernig verk þau myndu vinna að
þessu verkefni, en Guðbergur
Bergsson sagði barnaleikritið svo
Guðbergur Bergsson
til fullmótað. Fjallaði það um fólk
á reikistjörnu, sem vildi komast
til jarðarinnar, og væri ferðinni í
gegnum himingeiminn lýst og
endaði leikritið með komu þess til
jarðarinnar, og væri leikhúsið
jörðin. Leikritið verður væntan-
lega flutt á fjölum Þjóðieikhúss-
Ragnheiður Jónsdóttir
Njörður P. Njarðvík formaður
nefndarinnar gerði grein fyrir
þessari ákvörðun. Sagði hann, að
hugmyndin væri sú að gefa ís-
lenzkum listamönnum tækifæri
til að vinna að sérstökum verkefn-
um og von nefndarinnar væri sú,
að þessi nýbreytni yrði til þess að
lyfta undir íslenzka listamenn.
Gunnar Reynir Sveinsson
Listahátíð Reykjavíkur 1980
mun standa yfir í þrjár vikur í
stað tveggja áður, þ.e. frá 1.—20.
júní 1980. Dagskrá hátíðarinnar
er ekki endanlega ákveðin en að
sögn formanns nefndarinnar er
ætlunin að hún verði tilbúin um
eða upp úr áramótum. Þó er nú
þegar vitað um nokkra þekkta
listamenn og hópa er sækja okkur
heim og má nefna Els Comediants
frá Barcelona, Wolf Biermann,
The Wolfe Tones, Alicia de Larr-
ocha, Lugiano Pavarotti, Göran
Söllscher, Rafael Frúbeck de
Burgos, John Cage, Paul Zu-
kofsky, en beðið er nú svara fleiri
aðila.
Kvikmyndahátíð hefur verið
ákveðin 2.—12. febrúar 1980. Ekki
er enn að fullu ákveðið hvaða
kvikmyndir verða teknar til sýn-
ingar, eða hverjir erlendir kvik-
myndamenn eru væntanlegir, en
þó er ákveðið að Andrzej Wajda
og Carlos Saura koma til landsins
og hafa þá meðferðis einhverjar
af kvikmyndum sínum.
Nefndarmenn voru að því
spurðir, hvort landsbyggðarfólki
gæfist kostur á að fá eitthvað af
listamönnunum í sína heima-
byggð. Sögðu þeir, að slíkt hefði
komið til umræðu, en mörg ljón
væru á veginum, sérstaklega þeg-
ar þekktir, erlendir listamenn
ættu í hlut.
Fjármál listahátíðar voru gerð
að umtalsefni og kom í ljós, að
hátíðin er styrkt af ríki og borg
með kr. 3.3 millj. frá hvorum aðila
árlega, sem er óbreytt upphæð frá
upphafi, þrátt fyrir öra verðbólgu.
Þá kom fram, að ríki og borg
ábyrgjast greiðslur skulda, ef
listahátíð kemur út með halla.
Leiðrétting
Prentvillupúkinn brá á leik í
fyrirspurn minni til stjórnar
Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkis-
ins í blaðinu síðastliðinn sunnu-
dag. Gerði hann sér lítið fyrir og
breytti + 22% raunvöxtum í 22%
raunvexti. Spurning 2 á að vera:
Er staða sjóðsins slík, að hún
leyfi mínus 22% raunvexti og ef
svo er, er þá nokkur þörf á
milljarðagreiðslum árlega úr
ríkissjóði (frá skattborgurum)
til greiðslu á verðtryggingu
lífeyrisgreiðslna frá sjóðnum.
í þessu sambandi er rétt að
skýra, hvað felst í hygtakinu
raunvextir. Dæmi: Maður tekur
100.000 kr. lán hjá sjóðnum til
eins árs og getur keypt 100 kg af
kaffi fyrir þá upphæð (1 kg =
1.000.-). Eftir árið kostar kaffið
1530.- (53% verðbólga) og þá
greiðir maðurinn lánið með
vöxtum með 119.000- (19% vext-
ir) eða sem svarar 78 kg kaffis.
Sjóðurinn hefur því tapað sem
svarar 22 kg af kaffi eða 22%.
Ef sjóðurinn lánar svona í 10 ár
á hann eftir andvirði 8 kílóa af
kaffi. Pétur H. Blöndal.
FRÉTTARITARI Morgunblaðsins
á Sauðárkróki óskar þess getið af
gefnu tilefni, að hann átti engan
hlut að sögunni um menntamála-
ráðherra, sem birtist í Hlaðvarp-
anum sl. laugardag, en þar birtist
gamanefni af ýmsu tæi, sem
iesendur taka vonandi ekki alltof
alvarlega.
Aðalfundur S.Á.Á.
AÐALFUNDUR Samtaka áhug-
afólks um áfcngisvandamálió,
S.Á.Á., vcrður haldinn miðvikudag-
inn 3. okt. kl. 20.30 i Súinasal Ilótcl
Sögu.
Á fundinum vcrður gcrð grcin
fyrir starfscminni á síðast liðnu
starfsári og rcikningar S.Á.Á. lagð-
ir fram.
I stjórn S.Á.Á. sitja nú 36 manns og
eru 12 stjórnarmenn kjörnir árlega.
Á aðalfundinum fara fram pallborðs-
umræður með þátttöku fulltrúa hinna
ýmsu starfssviða S.Á.Á.
Samtök áhugafólks um áfengis-
vandamálið voru stofnuð 1. okt. 1977.
Þau starfrækja nú fræðslu- og leið-
beiningarstöð í Lágmúla 9, 3. hæð, í
samvinnu við áfengisvarnadeild
Heilsuverndarstöðvarinnar, sjúkra-
stöð að Siiungapolii fyrir 30 manns í
einu og eftirmeðferðarheimili að
Sogni í Ölfusi fyrir 26 manns.
Auk fyrrnefndrar þjónustu heldur
S.Á.Á. m.a. uppi skipulagðri fræðslu í
skólum um allt land um
áfengisvandamálið, svo og kvöldsíma-
þjónustu alla daga ársins frá kl.
17:00—23:00 í síma 81515, auk útgáfu-
starfs ýmiss konar.
Nýr fréttaritari
á Homafirði
NÝR fréttaritari Morgunblaðsins
hefur tekið til starfa á Höfn í
Hornafirði. Er það Einar Gunn-
laugsson og þeir sem vilja koma
fréttum eða upplýsingum á framfæri
við blaðið á Höfn eru beðnir að hafa
samband við Einar, sími 8526.
Athugasemd
frá fréttaritara
Litli leikklúbb-
urinn sýnir
Fjalla-Eyvind á
Seltjamamesi
LITLI leikklúbburinn á ísafirði
hefur undanfarið sýnt
Fjalla-Eyvind eftir Jóhann Sigur-
jónsson í Félagsheimilinu i Hnífs-
dal. Tuttugu og sex manns taka
þátt í sýningunni. Leikstjóri er
Jón Júliusson, leikmynd eftir
Birgi Engilberts en Kristinn
Danielsson annast lýsingu.
Félagar í L.L. ætla að leggja
land . undir fót og sýna
Fjalla-Eyvind í Félagsheimilinu á
Seltjarnarnesi föstudaginn 5.
október og laugardaginn 6. októ-
ber kl. 20.30.
4-
Rétt spor í rétta átt,
í Torgið t
Stærðir Litur Verð
1. 40-46 Ijósir 22.900,- Nælonsóli
2. 40-46 Ijósbrúnt 21.800- Grófur sóli
3. 40-45 Ijósbrúnt og dökkbrúnt 26.900,- Leður sóli
4. 40-45 Ijósbrúnt og dökkbrúnt 26.900,- Leður sóli
5. 35-40 dökk brúnt 18.900,- Grófur sóli
6. 34-46 Beige 17.350,- Grófur sóli
Austurstræti
: 27211