Morgunblaðið - 03.10.1979, Qupperneq 7
r
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 1979
7
Viðskipta-
jöfnuöur við
Sovétríkin
Viðskíptajöfnuður okk-
ar við Sovótríkin hofur
um árabil verið óhag-
staaður okkur svo mörg-
um milljörðum hefur
numið árlega. Og hann
hefur orðið þeim mun
óhagstaaðari sem Rotter-
damverðviðmiðun á olíu-
vörum hefur fjarlaegst
heimsmarkaðsverð eins
og það er t langtíma-
samningum milli þjóða.
Þannig höfum við á líð-
andi ári búið við 70%
haerra olíuverð en aðrar
þjóðir V-Evrópu. Þetta
þýðir ekki aðeins það, að
við stofnum til viðskipta-
skulda við Svovétríkin í
mun hasrri heildarvöru-
kaupum frá þeim en
nemur útflutningi þang-
að, heldur rýra þessi við-
skiptakjör stórlega kaup-
mátt útflutningstekna
þjóðarinnar í heild, sem
getur ekki komið fram
nema í verri lífskjörum
okkar sem þjóðar og ein-
staklínga. Ymislegt hefur
verið gott um verzlunar-
viðskipti islands og
Sovétríkjanna og vonandi
geta þau þróast í þann
farveg, sem báðar þjóð-
irnar geta saett sig við, en
þá verða Sovétríkin að
sýna meiri tillitssemi til
þeirra staðreynda, er við-
skipti þjóöanna hljóta að
grundvallast á.
Leiðinlegur
tónn — en
íhugunar-
veröur
Dagblaðið Vísir birtir
sl. mánudag viðtal við
Þórhall Ásgeirsson, ráðu-
neytisstjóra í viðskipta-
ráðuneytinu, þar sem
blaðið hefur þetta eftir
viðmælanda sínum: „Ef
íslendingar hætta að
kaupa olíu af Sovétríkj-
unum, er ekki útilokað,
að það hafi áhrif á önnur
viðskipti þjóðanna, svo
sem fiskkaup frá Sovét-
ríkjunum." Þessi ummæli
í kjölfar nýafstaðinna við-
skiptaumræðna í Moskvu
eru íhugunarverð. Getur
veriö að Sovétmenn hafi
látið að því liggja, eftir að
hafa neitað um hvor-
tveggja, nýja verðviðmið-
un (sem byggð yrði á
Opec-hráolíuverði og
eðlilegum hreinsikostn-
aði) og sölu hráolíu til
okkar (sem við létum
hreinsa annars staðar),
að EF við leituðum hag-
stæðari olíuviðskipta
annars staöar, myndu
þeir grípa til hefndarað-
gerða í minni fiskkaupum
frá okkur? Sem sé: ef
íslendingar vilja ekki búa
áfram við verri olíukjör
en aörar V-Evrópuþjóðir,
verði metin jöfnuö í minni
fiskkaupum? Erfitt er að
trúa slíku, þó lesa megi
milli lína í fréttafrásögn
Vísis. Ef þetta er hins
vegar réttur skilningur
verður sú hætta auðsærri
og viðsjárverri, sem
margir hafa talið í sjón-
máli, ef íslendingar gerð-
ust háöari Sovétríkjunum
viðskiptalega og efna-
hagslega. En menn
skyldu ekki láta þessa
hótun fara framhjá sér.
„Þeir eiga
þetta stjórn-
arsamstarf
ekki skilið“
Leiðari Alþýöublaðsins
í gær endar á þessum
orðum: „Þeir (þ.o.a.a.
kjósendur Alþýðuflokka-
ins) hafa oröiö fyrir aár-
um vonbrigöum. Þeir
eiga þetta atjórnaraam-
atarf ekki akilió.“ Bragð
er að þá barnið finnur. Og
þessi úttekt og niður-
staða á stjórnarsamstarf-
inu í stjórnarmálgagni
talar máli, sem ailir hljóta
að skilja. Spurningin er
einfaldlega, ef þeir kjós-
endur Alþýðuflokksins
eiga „þetta stjórnarsam-
starf ekki skilið“, hvers
vegna neyðir Alþýðu-
flokkurinn þá samstarf-
inu upp á þá? Stjórnin
lifir ekki deginum lengur
en Alþýðuflokkur blæs
lífsanda í nasir hennar og
stjórnarstefnunnar. Þeim
var ég verst er ég unni
mest var eitt sinn sagt og
þau orð virðast eiga viö
um Alþýðuflokkinn og
kjósendur hans í dag.
Eða réttara sagt kjósend-
ur hans fyrir ári. Um
kjósendur hans í dag er
erfiðara að segja, því þau
„sáru vonbrigöi", sem
Alþýðublaöið tíundar í
greindum leiðara, hafa
gert fjölmarga reynslunni
ríkari. Máske er það
kosningaóttinn sem
bindur Alþýðuflokkinn,
eins og hina stjórnar-
flokkana, áfram í ríkis-
stjórn, sem allir eru jafn
óánægðir með; þeir sem
að henni standa ekki
undanskildir.
Nú eru nýju teppin
■ ■ ^ *
komin
irpantar J
i hvers |
1A
• 20 manna sérhæft starfslið er
yður ávailt til þjónustu.
• Reyndir fagmenn annast lagn-
ir teppanna.
• Sölumenn með góöa vöru-
þekkingu, aöstoða yður við
teppavaliö.
Sértu með parkett á gólfi, nú eða einlit
teppi, sem lífga þarf upp á, þá býður
Teppaland geysilegt úrval sérofinna
teppa úr hreinni ull á betra verði en
margur hyggur.
Mjog góð sýningaraðstaða gefur við-
skiptavinum möguleika á að skoða
stöku teppin hvert fyrir sig við góða
hirtu.
Tepprlrnd
Grensásvegi 13 — Simar 83577 og 83430 (Stærsta sérverzlun landsins meö gólfteppi)
Bridge
er tómstundagaman skammdegisins
Námskeiö bridgeskólans hefjast mánudaginn
8. október.
2 flokkar — 10 kvöld hvert námskeiö.
A. fyrir byrjendur og B fyrir þá, sem læra vilja
meira.
Innritun á fimmtudag og föstudag kl. 18 til 20 í
Félagsheimili Hestamannafélagsins Fáks.
Kvötdsíminn er 19847. Bridgeskólinn Ásinn.
Sænskar
verkstæðis-
borvélar
fyrirliggjandi
Borstærö 32 mm
Sýningarvél
í verzlun.
G.J.FOSSBERG
VÉLAVERZLUN HF.
Skúlagötu 63, Reykjavík. Sími 18560.
Samkeppni um
gerð leikfanga
Bægiö burt stríðsleikföngum —
gerið betri leikföngl
Húsmæörasamband Noröurlanda efnir til
samkeppni um gerö góöra leikfanga, sem börn
una sér lengi viö, hafa uppeldislegt gildi og
hvetja ekki til ofbeldis og stríösleikja.
Leikföngin skal miöa viö börn á aldrinum
3—12 ára. Þau skulu vera ódýr í
fjöldaframleiöslu, en aö ööru leyti er efnisval
og útfærsla óbundin.
Menningarsjóöur Noröurlanda hefur veitt styrk
til samkeppninnar og veröa veitt tvenn
verölaun.
1. verölaun 400.000 ísl. kr.
2. verðlaun 200.000 ísl. kr.
Sýnishorn og vinnuteikningar skulu berast
Kvenfélagasambandi íslands, Hallveigar-
stööum, Pósthólf 133, Reykjavík, fyrir 31.
janúar 1980. Tillögurnar skulu vera greinilega
merktar dulnefni og nafn höfundar og heimilis-
fang skal fylgja í lokuöu umslagi, merkt sama
dulnefni.
Fimm manna dómnefnd, skipuö
uppeldisfræöingum, kennurum og fulltrúum
féiaga í Húsmæörasambandi Norðurlanda,
mun fjalla um tillögurnar í apríl 1980. Áöur en
dómnefndin lýkur störfum, en í henni er einn
fulltrúi frá hverju Noröurlandaríkjanna, mun
hún ráöfæra sig viö hóp barna.
Húsmæðrasamband Norðurlanda.