Morgunblaðið - 03.10.1979, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 1979
11
Einsöngur
HREINN Líndal hefur ekki látið
heyra í sér sem söngvara um
fjögurra ára tímabil, en er nú
kominn aftur upp á sviðið.
Frammistaða Hreins á tónleik-
unum sýnir að hann hefur fengið
góða þjalfun og einnig, að sem
listamaður hefur hann mikið að
gefa. Það sem á vantar er öryggi,
sem með einhverjum hætti á
rætur sínar annars staðar en í
sönggetu hans. Sjálfstraust og
tilfinningakuldi hefur fleytt
mörgum yfir hindranir, sem
hinn tilfinningaríki magnar með
sér til hins óyfirstíganlega. Það
er ekki ólíklegt að Hreinn þurfi
að njóta samstarfs við góða
listamenn til að öðlast það
sjálfstraust sem eytt gæti var-
færni hans í flutningi. í þeim
lögum, sem Hreinn er alveg viss
með sig, syngur hann mjög vel,
eins og t.d. Ballöðuna eftir Resp-
ighi. Það er áreiðanlegt að Ólaf-
ur Vignir Albertsson píanóleik-
ari finnur listamanninn í Hreini,
því milli þeirra var sérlega gott
samspil í túlkun, nema þar sem
varfærni söngvarans olli því að
hraði laganna varð bæði óreglu-
Tónllst
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
legur og of hægur, eins og t.d. í
fyrsta laginu, Caro mio ben, eftir
Giordani. Að syngja lagið svo
hægt, eins og Hreinn gerði, er
margfalt erfiðara en ef hann
hefði valið aðeins meiri hraða.
Það, að hann hélt laginu, tón-
gæðum og túlkun þess sýnir að
hann er vel í stakk búinn til
stórræða á söngsviðinu. Hreinn
söng að þessu sinni aðeins
ítalska tónlist og fléttaði saman
verk frá ýmsum tímum. Að vísu
voru tvö laganna eftir Gluck, en
vel að merkja, Gluck samdi
tónlist í ítölskum stíl og var
reyndar eitt af fáum tónskald-
um, utan Ítalíu, sem ítalir viður-
kenndu að gæti samið óperu.
Þá söng Hreinn Amarilli, eftir .
Caccini, söngsnilling, tónskáld
Hreinn Lindal
og upphafsmann óperusmíðar,
og einnig Dolce amor eftir Ca-
valli, nemanda Monteverdi og
einn af fremstu óperutónskáld-
um ítala á 17. öldinni. Eftir
Verdi söng Hreinn Non t’accost-
are og Nínu eftir Pergolesi. Með
þessum ágætistónskáldum voru
svo ýmis önnur, er fengust við
léttari verkefni, sem eru bæði
vinsæl af söngvurum og hlust-
endum.
Jón Ásgeirsson.
99
Barnsins draumi
leggjum lið....
Afmælisplatti Félags einstæðra foreldra kominn
99
FÉLAG einstæðra foreldra
hefur nú sent frá sér platta
af því tilefni, að í næsta
mánuði eru tíu ár síðan
FEF var stofnað og vegna
barnaárs. Plattann teikn-
aði Baltasar og á honum
eru ljóðlínur úr kvæði eftir
Jakobínu Sigurðardóttur:
„Barnsins draumi leggjum
lið — Ekkert stríð, aðeins
frið dreymir saklaust barn
með bros í augum."
Plattinn er unninn hjá
Gler og postulíni í Kópa-
vogi. Af honum eru tvær
litagerðir, er annar platt-
inn í bláu en hinn í brúnum
lit. Upplag plattans verður
takmarkað. Með plattanum
fylgir þýðing á ljóðlínunum
á ensku, þýzku og dönsku.
Plattinn verður til sölu á
skrifstofu FEF í Traðar-
kotssundi og einnig er hægt
að panta hann hjá stjórn-
arfólki félagsins. Hann
verður og seldur í fáeinum
verzlunum.
Aðalfundur SAL
AÐALFUNDUR Sambands
almennra lífeyrissjóða
verður haldinn að Hótel
Esju n.k. föstudag. Eðvarð
Sigurðsson, formaður
stjórnar SAL, setur fund-
inn og flytur skýrslu
stjórnar og framkvæmda-
stjórnar. Þá skýrir Hrafn
Magnússon, framkvæmda-
stjóri SAL, reikninga.
Gunnar S. Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Meistarasambands
byggingarmanna, fjallar um ný
lánakjör lífeyrissjóða. Þá kynnir
Guðjón Hansen tryggingafræð-
ingur frumvarp um almenn eftir-
laun til aldraðra og loks fjallar
Ásmundur Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri ASÍ, um fjármögn-
un lífeyrisgreiðslna, samkvæmt
frumvarpi um almenn eftirlaun til
aldraðra.
I lok fundarins fer fram kosning
stjórnar SAL og endurskoðenda
fyrir sambandið.
Leiðrétting
GREINARHÖFUNDUR minn-
ingargreinar um Gísla Guð-
mundsson kirkjubónda á Hvals-
nesi, sem birtist í Mbl. á laugar-
daginn var, hlaut slæma meðferð
hér í blaðinu. Það var Halldóra
Thorlacius sem skrifaði kveðjuorð
til Gísla fyrir hönd sóknarnefndar
Hvalsnessóknar. Nafn Halldóru
misritaðist og stóð þar Halldór
Thorlacius. — Biður blaðið grein-
arhöfund afsökunar á þessum
slæmu mistökum.
Svínakjöts-
tilboð
Skráð Okkar
verö verð
Svínahamborgarhryggir 3985.-
Svínahamborgarabógar 2963- 2450.-
Einstætt tækifæri þar sem nýja verðið á svínakjöti er
rétt ókomið, kaupið núna og geymiö til jóla.
AlÚ%reykt
LAUQALÆK 2. aiml 35080
Húsmæður
Nú eru fáanlegar lofttæmidælurnar
ódýru, sem soga loftið úr frystipok-
unum, áður en sett er í frystikistuna.
Vakumpakkið sjálfar. Verndið mat-
inn og aukið plássið í frystikistunni.
Sölustaðir í Reykjavík:
S.S. Glæsibæ, SS. Austurveri,
S.S. Vesturbæ, Breiðholtskjör,
Verzl. Valgaröur og Kaupfélögin um
land allt.
PAPPIRSVÖRUR H/F
SÍMI24418 - 24433