Morgunblaðið - 03.10.1979, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 1979
13
K&re Willoch, leiðtogi Hægri
flokksins.
Eyjólfur Guðmundsson:
Oddvar Nordii forsætisráð-
herra hugleiðir kosningaósig-
urinn.
Fylgisaukning
Hægriflokksins
Eins og komið hefur fram í
fréttum fóru kosningar til bæj-
ar- og sveitarstjórna, og til
fylkisþinga, fram hér í Noregi
dagana 17. og 18. sept. sl.
Sigurvegari í þessum kosning-
um varð Hægri flokkurinn
(Högre), sem jók fylgi sitt um
7% frá kosningunum 1975.
Fyrirfram var ljóst að flokkur-
inn myndi vinna á, en fæstir,
höfðu gert ráð fyrir jafn glæsi-
legum sigri.
Verkamannaflokkurinn, sem
stjórnað hefur landinu undan-
farið, tapaði fylgi sem nemur
2%. Hið sama er að segja um
Miðflokkinn (Senterpartiet) sem
missti um 2,4% af fylgi sínu og
Kristilega þjóðarflokkinn
(Kristelig Folkeparti) sem tap-
aði 2% og einnig kommúnista
(SV), sem misstu um 1%.
Greinilegt er að Verkamanna-
flokkurinn er mjög óánægður
með úrslitin, og er nú ráðgert að
ráðamenn flokksins komi saman
í næsta mánuði til að hugleiða
þessi mál og hvað megi verða til
úrbóta.
Meginástæðurnar fyrir fylgis-
hruni Verkamannaflokksins eru
eftirfarandi:
Stjórn Verkamannaflokksins
hefur ekki tekist að draga úr
atvinnuleysi í landinu og áætlað
er að um 50 þúsund verði
atvinnulausir á vetri komanda.
Þetta skeður m.a. sem afleiðing
af að fjölmörg iðnfyrirtæki hafa
orðið að hætta rekstri og mörg
þúsund manns um leið misst
vinnu. Iðnrekendur kenna
stjórnvöldum um erfiðleika sína
og benda á að skatta- og trygg-
ingalöggjöfin geri m.a. sitt til að
eyðileggja rekstrarmöguleikana.
Baráttan við verðbólguna hef-
ur ekki gengið nægilega vel. Svo
á að heita að í gildi sé algjör
verðstöðvun, bæði á vörum,
þjónustu og kaupgjaldi, og gert
ráð fyrir að svo verði fram til
áramóta. Þrátt fyir þetta hefir
verð á olíu og bensíni o.fl.
hækkað. Stjórninni hefir því
ekki tekist að stöðva verðbólg-
una og búast má við miklum
verðhækkunum á næsta ári.
Lög um bann við innflutningi
útlendinga, sér í lagi af hörunds-
dökku þjóðerni, hafa verið í
gildi. Þetta er þó varla annað en
nafnið eitt, sérstaklega eftir að
stjórn Verkamannaflokksins
hefur ákveðið að taka á móti
3000 flóttamönnum frá Víetnam.
Fjárhagsaðstoð og önnur
hjálp Norðmanna við þróunar-
löndin, mætir vaxandi andstöðu.
Sérstaka óánægju vekur hjálp-
arstarfsemin við stjórnvöld í
Víetnam, og hafa hægrimenn
gagnrýnt þetta harðlega. Benda
þeir á að Víetnam rekur hernað í
nágrannalöndunum, Laos og
Kambódíu.
Verkamannaflokkurinn hefur
að margra dómi sýnt undan-
látssemi gagnvart Sovét-
mönnum, bæði varðandi Sval-
barða og markalínuna á Bar-
entshafinu. Það síðastnefnda
hefir skapað mikla óánægju
meðal sjómanna, sem stunda
veiðar þar norður frá.
Vaxandi fylgi Hægriflokksins,
sem berst fyrir efldum landvörn-
um og nánari samvinnu innan
NATO, segir sína sögu. Þetta er í
samræmi við skoðanir ungu
kynslóðarinnar, sem nú hefir
kosningarétt við 18 ára aldur.
Mikill hluti fylgisaukningar
flokksins kemur greinilega frá
yngstu kjósendunum, bæði
vegna stefnu hans í varnarmál-
um og eins vegna stefnu hans í
þjóðmálum almennt.
Finnskur myndlist-
armaður í Gall-
erí Kirkjumunir
FINNSKUR málari opnaði ný-
lega sýningu i Galleri Kirkju-
munum við Kirkjustræti í
Reykjavík. Verður sýning hans
opin daglega kl. 9—18 og kl.
9—16 um helgar.
Osmo Isaksson hefur stundað
myndlistarnám í Finnlandi og
Frakklandi, tekið þátt í samsýn-
ingum, m.a. í Svíþjóð, Tékkósló-
vakíu og Þýzkalandi, svo og sam-
sýningum, en þetta er í fyrsta sinn
sem hann kemur til íslands. Sýnir
hann 30 vatnslitamyndir, en hann
hefur einnig fengist við að mála
olíuverk og grafík. Osmo Isaksson
kvaðst hafa ferðast til fjölmargra
landa og gert sér þá far um að
safna efni, sem hann síðan ynni úr
heima við, en hann býr til skiptis í
Svíþjóð og Finnlandi, hálft ár í
senn. Sagðist hann hugsa sér að
koma til íslands næsta sumar og
ferðast um landið, en hann kvaðst
hafa verið mjög hrifinn af að
koma til Þingvalla og upplifað þar
sérstæð áhrif frá landslaginu, sem
hann kvaðst hafa áhuga á að
reyna að túlka með myndum
sínum, kæmi hann hingað á ný.
Sýning hans verður opin til 21.
október n.k.
Kross- og
myndagátur
til móður-
málskennslu
„LANGSUM og þversum" nefnist
bók sem bókaútgáfan Bjallan gefur
út. Bókin er eftir Vilborgu Dag-
bjartsdóttur og hefur að geyma 25
krossgátur og myndagátur sem ætl-
aðar eru til móðurmálskennslu í
grunnskólum. Sigurbjörn Helgason
hefur myndskreytt bókina.
Gáturnar í „Langsun og þversum"
eru á lausum blöðum og verður
verkið einungis selt í skólum.
SINDRA
STALHF
Fyrirliggjandi í birgðastöð
STANGAJÁRN
Fjölbreyttar stæröir og þykktir
SÍVALT JÁRN
FLATJARN
VINKILJARN
L
FERKANTAÐ JÁRN
□
Borgartúni31 sími27222
INNHVERF IHUGUN
TRANSCENDENTAL MEDITATION
Almennur kynningarfyrirlestur
verður aö Hverfisgötu 18, (gegnt Þjóðleikhúsinu) í kvöld
miðvikudaginn 3. október, kl. 20.30. Innhverf íhugun er einföld
andleg aöferö til að þróa huga og skerpa hugsunina. Hún veitir
djúpa hvíld og skapar almenna vellíðan.
Allir velkomnir
íslenska íhugunarfélagið. Maharishi Mahaah Yogi
SINDRA
STALHF
Fyrirliggjandi í birgðastöð
svartar og
galvaniseraðar pípur
°oo° o°°^ °OOo
sverleikar: svart, % — 5“
galv., % — 4“
Borgartúni31 sími27222